Freyja - 01.04.1906, Side 18

Freyja - 01.04.1906, Side 18
218 FREYJA VIII. 9. Frú Catharine Wough McCullock segir um hana. ,,Hún var mikil kona, svo mikil að hún átti skiliö aö vera sett samhliða þeim Washington og Lincoln. “ Hún var sérstaklega lík Washington í því, hve réttlátlega hún mat samtíðarfólk sitt og starf þess —mat það samkvæmt verkum þess ÁN tillits til trúarbragða þess. ,, Til sönnunar þessu, “ segir Mary H. Garrison, ,,var hennar órjúfan- lega tryggð og vinátta hennar við starfsystur hennar E. C. Stant- on eftir að hún tók fyrir alvöru að berjast gegn biblíunni. “ Susan B. Anthony var nokkurskonar miðdepill eða ið allra helgasta, sem öldur trúarbragðastríðsins brotnuðu á, og þar sem andstœðingarn- ir komu og tóku höndum saman til að vinna að einu og sama málefni, n. 1. Kvennfrelsismálinu. Með hennar aðstoð sameinuð- ust fjarstæðir kraftar utan um sameiginleg málefni. Heiinurinn get- ur aldrei verið nógsamlega þakklátur fyrir það, að Susan B. Anth- ony skyldi vera til og að hún skyldi einmitt vera það sem hún var og standa þar sem hún stóð. Þó Susan B. Anthony lifði ekki til að sjá fyrirheitna landið — landið eða þjóðina sem á að viðurkenna konuna mannlega veru, sem hafi tilkall til að njóta og njóti sömu mannréttinda sem brœð- ur hennar, þá sá hún samt roða fyrir því. Hún sá konum veitt jafnrétti í sumum ríkjum BandaríVjanna, tvoþingmenn á Englandi komast að við síðustu kosningar þó þeir sæktu einungis undir merkjum kvennréttindamálsins og flesta eða alla þingmenn frjáls- lynda flokksins og milli flokkanna skuldbinda sig til að berjast fyr- ir því ef þeir næðu kosningu. Hún vissi þess vegna að hreifing sú var ekki lengmr bundin við Bandaríkin, heldur væri hún orðin ein af heimsins fyrstu og hel/.tu málum, og að sem bein afleiðing áf baráttu hennar og samverkasystra hennar, væri meira og minna rýmkuð kjör kvenna um allan hinn menntaða heim, og almenn tilfinning fyrir réttmœti krafa þeirra. Kvennfélagið, ,,The Women’s Alliance“ hefir ákveðið að reisa Susan B. Anthony minnisvarða á bletti þeim er nefnist ,,Wash- ington square, “ í Washington, höfuðstað Bandaríkjanna. Óskandi væri að minjar tilveru hennar og baráttu lifðu ekki einungis ímynda- styttu þessari heldur í lifandi og dugandi starfsemi fyrir málefnum þeim sem henni voru kœrust.

x

Freyja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.