Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1971, Blaðsíða 73
TÍÖINDI
77
lúthersku kirkjunnar í Þýzkalandi veturinn 1964—’65. Þar
hafði þessu takmarki víðast verið náð, og í hverjum meðal-
stórum söfnuði (3—5 þús. manns) störfuðu auk prestsins a.
m. k. einn djákni og ein safnaðarsystir. Þau önnuðust með
prestinum barna- og æskulýðsstarfið, líknarstörf meðal
sjúkra og aldraðra, húsvitjanir o. m. fl. Bækistöð þeirra var
í safnaðarheimilinu.
Þetta hreif mig að sjálfsögðu. Ég hafði sjálfur átt í erfið-
leikum með húsnæði til æskulýðsstarfa, og voru allar bjargir
bannaðar með aukið starf á félagslegum vettvangi.
Það varð mér því gleðiefni, er ég kom heim frá námi vorið
1965, að hentugt húsnæði, fyrrverandi sjúkrahús Skagfirð-
inga, var til sölu, en það er næsta hús við kirkjuna á Sauðár-
króki. Húsið er stórt og því fylgir góð lóð. Húsið fékkst með
mjög hagkvæmum kjörum, og var ákveðið að kaupa það og
gera það að safnaðarheimili. Kaupin voru gerð um haustið
og strax hafizt handa um bæði viðgerð og starf. Húsið var
illa farið, en vel byggt í upphafi. Hefur það þegar verið
mikið lagfært, en þó vantar talsvert á ennþá, að framkvæmd
sé að fullu sú viðgerð, sem fyrirhuguð er. í húsinu verða tveir
salir, annar um 70 ferm., en hinn um helmingi minni. Auk
þess verða þrjú minni fundarherbergi, eldhús, snyrting, fata-
geymsla og ágæt aðstaða til ljósmyndaiðju. Nokkuð af þessu
húsnæði er nú leigt út til Tónlistarskóla Skagfirðinga og
Verkamannafélagsins Fram. Þannig fær heimilið nokkrar
tekjur, en einnig af skeyta- og kortasölu og nýtur auk þess
styrkja frá Sauðárkróksbæ og ýmsum félagasamtökum. Einn-
ig hefur safnaðarheimilisstjórnin gengizt fyrir skemmtunum
til fjáröflunar. Margir einstaklingar hafa gefið því gjafir og
unnið í sjálfboðavinnu.
í heimilinu fer fram fermingarundirbúningur, æskulýðs-
félag kirkjunnar hefur þar fundi vikulega yfir vetrarmánuð-
ina, einnig s.k. „opið hús“. Námskeið í föndri og annarri
tómstundaiðju hafa verið haldin á hverjum vetri. Þá hefur
húsnæðið verið leigt út fyrir fundi, bazara o. fl. Þegar hægt