Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1971, Page 76
80
T í Ð I N D I
kvæmdum, en Guð hinn sami, sem öllu kemur til leiðar í
öllum,“ segir Páll postuli. Einum er gefið að prédika, annar
er sérlega hæfur til að syngja Guði lof. Og jafnvel þótt
menn treystist eigi til þess að taka þátt í flutningi orðs eða
söngs í guðsþjóustunni, eiga þeir samt ótal mciguleika til að
helga krafta hugar og handa þjónustunni við góðan Guð og
til eflingar ríki hans. Öll getum við verið hljóðlátir þátttak-
endur í trú, tilbeiðslu og bæn og þannig gerzt farvegir bless-
unar Guðs til okkar mannanna.
Víst er einnig, að Guð lítur ekki á neina þjónustu smáum
augum, þc')tt hún sé borin fram af mannlegum veikleika og
cSfullkomleik. Aðalatriðið er að vilja, reyna og framkvæma,
og þjónustu, sem unnin er af trúmennsku, metur Guð mikils
og mun við verkalok segja: „Gott þú góðu og trúi þjónn.
Yfir litlu varstu trúr, yfir meira mun ég setja þig. Gakk
inn til fagnaðar Herra þíns.“ Höfum því ávallt í huga, að
það er í senn ábyrgðarmikið að þjóna Guði, og einnig mikil
náð að eiga þess kost. Látum þá vissu viðhalda árvekni okk-
ar og fúsleik til starfa. Cdeymum ekki áminningu Páls post-
ula: „Gættu embættisins, sem þú hefir tekið að þér í Drottni
að þú rækir það vel.“
Tilgangur okkar á að vera einn og hinn sami, að þjóna
Guði, og takmark okkar hlýtur að vera það, að laða fleiri
og fleiri til slíkrar þjónustu og til fundar við hann, sem er
vegurinn, sannleikurinn og lífið. Ur því að við stefnum að
sama marki, þurfum við öll að taka höndum saman í við-
leitni okkar og vinna af einhug og brc')ðurhug. Við orkum
svo litlu eitt og eitt, en saman getum við með Guðs hjálp
gert margfallt meira. Þess vegna ber brýna nauðsyn til þess,
að við stöndum saman og stríðum saman.
En hversu sem starfslið einnar kirkju leggur sig fram,
getur það aldrei rækt trúna og tilbeiðsluna fyrir söfnuðinn
í heild. Hver einstaklingur verður að standa í persónulegum
tengslum við Guð, þjcma honum í hjarta sínu og tilbiðja
hann í einlægni, vilji hann njc')ta blessunar af samfélaginu