Helgarpósturinn - 27.07.1979, Blaðsíða 5
5
helgarpósturinn Föstudagur 27. júlí 1979.
• Khaled.konungur Saudi-Arabiu
hefur pantað hljóðfráa þotu frá
Boing verksmiðjunum i
Ameriku. Þotan, sem er næstum
tilbúin, er innréttuð ,,við hæfi”. 1
henni verða þrjú hásæti úr dýr-
mætum við og auk þess mögu-
leikar til þess að komast i sjón-
varpssamband gegnum gerfi-
hnött við öll þau sjúkrahús sem
ftogið er yfir. Farartækið mun
kosta eftir þvi, eða um 16 mil-
jarða króna.
• Jóhannes Páll páfi 2. er sko
ekki hræddur við að verða súper
stjarna. Hann hefur nýlega
skrifað undir plötusamn-
ing. Fyrsta platansem hann mun
gefa út, verður með tveim
messum. Þá er lika sagt að hann
hafi samþykkt að leika i kvik-
mynd ungs pólsks leikstjóra.
• Astin fékk isstúiku tennisvau-
anna til að bráöna. Bandariski
meistarinn Chris Evert stóðst
ekki mátið þegar breski tennis-
leikarinn John Lloyd geröi hosur
sinar grænar fyrir henni. Þau
hafa nú gengið i hjónaband.
• Leikkonan Jacqueline Bisset
hefur þann sama sið og Greta
Garbo.hún læturalltaf mynda sig
eina. Hún hefur svarið, að sýna
aldrei franska vininn sinn Vic, en
sá mun vist græöa á tá og fingri i
Kalifomiu (á hverju fylgir ekki
sögunni). Sjálfsagt muna
margir eftir henni úr myndinni
The Deep þarsem hún lék á móti
Nick „Gæfa eða gjörfileiki” Nolte
og núna „Þeysandi þrenniing”
• Fyrr i sumar kom Margot
Fonteyn fram á ballettsýningu
hjá Konunglega ballettinum
breska i tilefni 60 ára afmælis sins
og hafði sýningin á sér allt yfir-
bragð þess að þetta væri kveöju-
sýning þessa annálaöa ballett
dansara. Ahorfendur fögnuðu
henni lengi og innilega, og blöðin
skrifuðu eftir tónleikana, eins og
þarna hefði Fonteyn verið aö
kveðja danssviðiö. Nú hefur hins
vegar komið á daginn að Fonteyn
var alls ekki að kveðja, þvl að hún
dróg seinna ballettskóna að nýju
upp úr pússi slnu og dansaði með
Rudolf Nureyev 1 London fyrir
skemmstu og virtist þá heldur
ekkert i kveöjuhugleiðingum...
• ISviþjóð er nýlega gengin i gildi
barnalöggjöf, þar sem foreldrum
erbannaðað berja eða misþyrma
börnum sinum. Einn pabbinn
fékk að kynnast lögunum fyrstur
manna fyrir skömmu, þegar hann
árla morguns var vakinn upp i
sumarbústað sinum af lögregl-
unni og á hann borin kæra 13 ára
sonar hans fyrir misþyrm-
ingu. Það vildi honum hins vegar
til happs að strákur dróg i sama
mund kæru sina til baka . í ljós
kom lika að foreldrar piltsins
höfðu lagt rikt við hann kvöldiö
áður að hann kæmi heim á til-
teknum tima, en þegar það stóðst
ekki var hann skammaður þegar
hann loks skilaði sér. Pilturinn
rauk upp i vonsku og tók að
fleygja munum innanstokks, svo
að faðir hans varð að takai hann
og leggja hann undir sig á gólfið
meðan hann var að róast. Svo
i gengu foreldrarnir til hvilu, en
pilturinn sem enn var fokreiður,
fórá næstulögreglustöð.ogkæröi
föður sinn fyrir misþyrmingu...
• Kurt Russel tókst aö endurskapa rokkkónginn Elvis Presley með
góðri föðrun, tiu aukakilóum, lituöu hári.fölskum augnhárum og 150
tima vinnu fyrir framan myndsegulband. Þetta gerði hann til þess að
geta leikið aðalhlutverkið i myndinni „Elvis, the movie”. Season
Hubley leikur hlutverk Priscillu, konu Elvisar. Það tókst ekki betur til
hjá þeim hjúum, að þetta varð ást við fyrstu sýn. Þau létu siðan pússa
sig saman i New York fyrir skömmu. Hver segir svo að kvikmyndir
geti ekki breytt lifshlaupi manna og kvenna?
rafhitunarkatlar
GÓÐ LEIÐ TIL ORKUSPARNAÐAR
Rafhituna.rkatlar af öllum stærðum
mpö og án noysluvatnsspírals.
Gott vorð og hagkvæm kjör.
Uppfylla kröfur Öryggiseftirlits
og raffangaprófana ríkisins.
Eingöngu framleiddir með
fullkomnasta öryggisutbdnaði.
I ^Jn FUNA
'•^flOFNAR
HVERAGERÐI
AUSTURMÖRK 9 — SlMI 4454
FUNA
• Hér á myndinni, sjáum við bandariska leikarann Kirk Douglas og
konu hans, Anne, er þau hittast i fyrsta sinni á kvikmyndahátiðinni i
Cannes, árið 1953. Þau eru enn I hamingjusömu hjónabandi, og taka
mikinn þátt i lifi hvors annars.