Helgarpósturinn - 03.08.1979, Page 4
„Hagsmunatogstreitan harðari en ég átti von á”
NAFN: Kjartan Jóhannsson STARF: Sjávarútvegsráðherra FÆDDUR: 19. desember 1939 HEIMILI: Jófríðastaðavegur 11, Hafnarfirði
FJÖLSKYLDUHAGIR: Eiginkona, Irma Karlsdóttir og eiga þau eitt barn BIFREIÐ: Engin ÁHUGAMÁL: Skíða- og gönguferðir. Leikhús og bókalestur
Er enn eitt landhelgisstriö framundan?spyrja mennÞessadaga Jan Mayen deilan er á hvers
manns vörum og ýmsar blikur á lofti. Kemur til árekstra á miöunum viö 200 milna mörkim suöur
undan Jan Mayen? Margt bendir tii þess aö hitni i kolunum milli þessara bræöra- og vinaþjóöa,
íslendinga og Norömanna. Samningaviöræður eru þó enn i gangi, þótt litt miöi.
Ekki alls fyrir löngu uröu talsveröar deilur er sjávarútvegsráöherra breytti reglum fiskveiða-
sjóös og stöövaöi þar meö kaup fiskiskipa erlendis frá. Mjög voru skoöanir skiptar um þessa
ákvöröun sjávarútvegsráöherra.
Málefni sjávarútvegsins hafa mjög veriö i sviösljósinu i sumar. Kjartan Jóhannsson sem stýrir
þvl ráðuneyti hefur aö ýmsu leyti fariö ótroönar slóöir I starfi sinu. Kjartan er í yfirheyrslu Heig-
arpóstsins.
Nú hafa ýmsar þinar embætt-
isákvarðanir veriö umdeildar í
meira lagi. Fyrst veiöibanniö i
mai og nú siöan breytingarnar á
reglugerö fiskveiöasjóös. Ertu I
eöli þinu einráöur og ferö þinar
eigin leiöir?
„Það tel ég alls ekki vera. Ég
ber mig saman viö ýmsa aðila
varðandi þær ákvarðanir sem
ég þarf að taka. Það fer eftir að-
stæðum hvernig þaö er hverju
sinni. Að þvi er varðar suma
hluta, þá hef ég á þeim mjög
fastmótaðar og ákveðnar skoð-
anir, en kannski ekki eins harð-
ur á öðrum hlutum i staðinn.”
Nú hefur þú sett þorskveiöi-
markiö viö 285 þúsund tonn I ár.
Samkvæmt blaðafregnum nálg-
umst viö óöfiuga þetta mark. Er
von á frekari veiöibönnum af
þessum sökum?
„Það hefur engin ákvörðun
verið tekin um það, en auðvitað
verður fylgst með þvi hvernig
aflast og athugaðir möguleikar
á þvi að takmarka þetta frekar.
Það er þó of snemmt að segja
fyrir um það i dag. Lita verður á
allar aðstæður, atvinnusjónar-
mið og annað i þessu sam-
bandi.”
Er það rétt að þaö hafi veriö
meirihluti innan rlkisstjórnar-
innar fyrir skipakaupum til
Akraness og Neskaupstaöar?
„Það hefur aldrei komið
fram. Ekki hefur verið um aö
ræða minnihluta eða meiri-
hluta innan rikisstjórnarinnar i
þessu efni. Málið var aldrei af-
greitt innan rikisstjórnarinnar.
En i þessu sambandi, er rétt að
benda sérstaklega á þann regin-
misskilning sem kemur fram
hjá ýmsum þeim sem hafa fjall-
að um þetta mál. Það er talað
um þessa ákvörðun mina, sem
sérstaka árás á þessi tvö byggð-
arlög. Hið rétta er, að þær regl-
ur sem ég setti, eru auðvitað al-
menns eðlis og gilda jafnt fyrir
alla, þó að þarna hafi sérstak-
lega komið fram tvær umsóknir
sem voru nákvæmlega i far-
vatninu þá stundina. Þessi
ákvörðun min átti heldur ekki
að koma á óvart þvi að ég var aö
staðfesta stefnu, sem Fiskveiði-
sjóður hafði þegar mótað og
auglýst þegar i febrúar. Enn-
fremur var ákvörðunin staö-
festing á stefnu rikisstjórnar i
reynd á seinustu mánuðum. En
ég vil einnig minna á, aö
aukning fiskiskiptastólsins mun
ekki skila neinum auknum arði
fyrir þjóðarbúið, heldur veröa
til þess að rýra tekjur sjo'manna
og almennings. Það verður bara
þeim mun minna til skiptanna á
hvert skip og áhöfn. En hins
vegar þá er nauðsynlegt að
auka fjárfestinguna i fiskvinnsl-
unni til þess að gera hana tækni-
lega fullkomnari, auka hagræð-
ingu og þar er áreiðanlega grið-
arlegan ávinning að hafa.”
Er sú saga ekki rétt, aö þú
hafir ætt I vonsku upp I ráöu-
neyti, eftir aö hafa oröið undir I
rikisstjórninni og breytt reglum
fiskveiðasjóðs?
„Það er fáránlegt. Ég hef haft
þessi mál til ihugunar i langan
tima og stefnan lá fyrir. Þessi
ákvörðun var tekin að vandlega
ihuguðu máli.”
En á með þessu aö stööva alla
endurnýjun á fiskveiöiflotan-
um? A alls engin endurnýjun aö
koma til? Hver er framtiöar-
stefnan i þeim efnum?
„Þar er fyrst til að taka, að
innlendur skipasmiðaiðnaður
hefur þó nokkra afkasta-
möguleika. Ef á að byggja hann
upp á annað borð, sem ég held
að flestir séu sammála um, þá
mun hann geta séð fyrir endur-
nýjunarþörfinni, að langmestu
leyti. Að þvi vil ég gjarnan
vinna. Þær búa reyndar við
6nóg verkefni núna. Að öðru
leyti er ég þeirrar skoðunar að
það verði að vera almennar og
altækar reglur, sem gilda i
þessu efni, en ekki það að menn
séu að afgreiða eitt og eitt mál
eftir geðþóttaákvörðunum.”
Nú hefur sú gagnrýni heyrst
aö þú sem sjávarútvegsráö-
herra, hafir aldrei nálægt sjó-
mennsku komiö og þekkir þar af
leiöandi ekki lif og hugarfar sjó-
manna. Sé r t v e rk f ræ öi-
menntaöur og hafir þekkt lltiö
til sjávarútvegs. Hvaö viltu
segja um þetta?
„Það er nú auðvelt að slá
svona fram i hita umræðunnar
og hafa ýmsir ráðherrar i ýms-
um málaflokkum orðið að sæta
þvi á undan mér.
Ég sat sem formaður útgerð-
arráðs Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar um tima og kynntist
þessum málum vel á þeim vett-
vangi þá vann ég að athugunum
fyrir Fiskifélagið og fleiri aðila
á sinum tima varðandi útgerð-
armál. En hitt held ég að sé að
ýmsu leyti hollt, að vera ekki
fastur i einhverjum hagsmuna-
samtökum, þegar menn setjast I
stóla eins og þessa. Hættan er
alltaf sú að menn búi við
ákveðnar skoðanir, sem mótist
af þvi úr hvaða hagsmunahóp-
um þeir koma. Það er hollara að
mörgu leytiaö menn geti komiö
að þessu utan aö og ég tel að ég
hafi sett mig inn i þessi mál eins
og kostur er.”
Aður en þú breyttir reglum
Fiskveiöasjóös, þá voru heimil-
uö fiskiskipakaup til þins kjör-
dæmis — Reykjaness. Var þar
um fyrirgreiöslupólitlk aö
ræða? Varstu aö tryggja þig I
sessi i þinu kjördæmi?
„Nei, alls ekki. Að þvi er
varðaði kaupin á Ými, þá var
það þannig, að sá aðili sem
keypti hann þurfti ekki á lána-
fyrirgreiðslu að halda. Þannig
að það heyrði ekki undir mitt
ráðuneyti. Nú viðvikjandi Júli-
usi Geirmundssyni, þá var aug-
ljóst að atvinnuástand var mjög
slæmt á Suðurnesjum og lágu
fyrir opinberar skýrslur um að
þvi væri sérstök hætta búin, ein-
um allra staða á landinu. Það
stafaði meðal annars að þvi að
þeir Suðurnesjamenn höfðu orð-
ið aftur úr i þróuninni varðandi
uppbyggingu togaraflotans. Þar
var einungis um það að ræða, að
bæta úr atvinnuástandi, en sið-
astliðinn vetur var einmitt mik-
ið atvinnuleysi á Suðurnesjum.
En við þetta vil ég bæta þvi að
sifellt er að verða ljósara hver
nauðsyn er á að takmarka sókn i
fiskistofna og þá að halda i við
stærð skipastólsins. Gögn um
það hlaðast nú upp.
Þetta ber að þinu mati engan
brag hreppapólitikur?
„Ég tel alls ekki að það geri
það.”
Núyfiri Jan Mayen máliö. Er
ekki jafn langt I samninga viö
Norömenn og I upphafi var?
Hefur I rauninni nokkuö þokast?
„Það hefur þokast aö þvi leyt-
inu, aö menn þekkja nú sjónar-
mið hvors annars og þvi betur
eftir þvi sem frá llður. Eins hafa
ýmsar staðreyndir verið aö
koma fram, eins og það virðist
ætla að verða einhver loönuveiði
fyrir noröan okkar efnahags-
lögsögu. Ætlimegi ekki segja að
málið hafi þokast.”
Er lausn vandamálsins jafn
langt undan?
„Það er erfitt að segja um
þaö. Ég hef nú þá trú að Norö-
menn muni skilja okkar viðhorf
iþessu máli og það sem i húfi er
fyrir okkur efnahagslega sé að
það veröi ekki gengiö á loðnu-
stofninn.Égheld að þessar tvær
bræðraþjóöir hljóti að geta
komist að samkomulagi, sem
tryggi okkur það efnahagslega
öryggi, sem okkur er nauösyn-
legt i sambandi við þessar veið-
ar.”
Hvaö gerist ef Norömenn fara
inn fyrir 200 milna mörkin?
„Þeim verður visað út eða
gripiö veröur til harkalegri aö-
gerða, þá t.d. sekta og gera afla
upptækan. Égtel aö sömu regl-
ur eigi að gilda i þessum hluta
landhelginnar eins og hvar
annars staðar.”
Er ekki til reglugeröarákvæöi
frá 1975 sem kveöur svo á aö
ekki skuli færa skip sem þarna
veiöa, til hafnar?
„Það er deilumál milli lög-
fræðinga — spurning um laga-
lega túlkun — hvort lögin um
efnahagslögsögu séu nægileg
eða þurfi breytingu á reglu-
gerðarákvæði frá 1975. Það er
verið ?ð athuga það mál i ráðu-
neytinu. Ef nauösyn ber til þá
verður reglugerðinni breytt.”
Hvað gerist nú i þessari deilu
ef viö tækjum norskt skip innan
markanna og færöum þaö til
hafnar?
„Deilan hefði harðnað.”
Fáum við á okkur norsk her-
skip eins og geröist meö Bret-
ann á sínum tfma?
„Nei.”
Þú er viss um þaö?
„Ég er viss um þaö.”
Eru deilur innan rfkis-
stjórnarinnar hvernig skuli taka
á þessu máli?
„Ég hef nú ekki orðið var við
það. Hins vegar ræða menn
þessimál fram og aftur. Ég geri
ráð fyrir þvi að hið sama gildi I
Noregi, — að menn skiptist á
skoöunum um þá möguleika
sem fyrir hendi eru.”
A meöan beinar samningaviö-
ræður eru ekki I gangi, er þá
ekki I raun aöeins veriö að biöa
eftir atburöum, eöa öllu heldur
árekstrum á miöunum?
„Nei, Þótt menn sitji ekki viö
samningaborð, þá eru samn-
ingaviðræður I gangi. Þaö er
samband á milli landanna og
viðræðum er haldið áfram.”
Eru ráðherrastörfin eins og
þú bjóst viö?
„Ég hafði nú ekki mikiö
hugsað um það áður en ég tók
við embætti. Það má kannski
segja að hagsmunatogstreitan
hafi verið haröari en ég átti von
á.”
Nú hefur frami þinn innan
stjórnmála veröi æöi hraöur.
Stefnir þú enn ofar?
„Ég á nú erfitt með aö svara
þvi. Hvað er ofar og hvað er
neðar I þessum efnum. Ég held
að sumt af þessu haf i orðið fyrir
röð atburða og það sé erfitt aö
segja fyrir um slika hluti fyrir-
fram
Nú er talað um þann mögu-
leika aö Benedikt Gröndal muni
jafnvel hætta sem formaður
Alþýðuflokksins fljótlega. Munt
þú sækjast eftir formannssæt-
inu?
„Ég hef ekkert hugsaö um
það. Sú umhugsun tæki sinn
tima”.
Þú ert lærður sem rekstra-
verkfræðingur og I þvl starfi
þlnu geröir þú kannanir I
rekstri ýmissa fyrirtækja.
Myndir þú telja eftir þá reynslu
þina, aö rikisapparatiö væri vel
rekiö?
„Nei. Ég tel að það sé mjög
margt, sem þurfi að færa til
betri vegar. Þvi miður hef ég
ekki komist til þess að taka á
þvi, hvað varðar þær stofnanir
sem heyra undir sjávarútvegs-
ráðuneytið. Það er vegna þess
að svo mörgu öðru hefur þurft
að sinna. En ég mun taka á
þeim málum fyrren seinna. Þaö
eru einnig ýmsar stofnanir I
öðrum ráðuneytum, sem ekki
slður er ástæða til að taka i
gegn. Það er nauðsynlegt fyrir
Islenska rikið að setja ákveðnar
leikreglur um það hvernig eigi
að reka þessar opinberu sto&i-
anir. Þær verða siðan að standa
sig vel innan þess ramma sem
setttur er. Ég held aö það sé
einn af göllunum i kerfinu hjá
okkur, sem er að mörgu leyti
mjög gallað að menn geta ávallt
sótt á um það að fá hvers konar
tilkostnaöi mætt meö verðhækk-
unum. Þetta gildir ekki sist aö
þvi er varðar opinberar stofn-
anir . 1 stað þessa eiga menn að
vinna eftir fyrirfram geröri
áætlun og sniða sér stakk eftir
vexti.”
t þessu sambandi. Er rikis-
apparatið yfirhlaöiö mannafla?
„Ég held að það geti átt við
sums staöar. Að verkefnin séu
ekki nógu vel skipulögð.”
Nú hafa Islenskir blaöamenn
kvartaö yfir þvl að oft hafi veriö
erfitt aö ná f þig aö undanförnu
og iselnskur almenningur fái
þfnar skoðanir helst I gegnum
norsku blööin. Ertu eins og
ýmsir stjórnmálamenn aörir
veikur fyrir erlendum fjölmiöl-
um. Ganga þeir fyrir hjá þér?
„í þessu Jan Mayen máli eins
og það stendur núna er afskap-
lega mikilvægt að rödd okkar
heyrist vel I Noregi, til að vekja
skilning norsks almennings á
málstað okkar. Þess vegna hef
ég litið á þaö sem skyldu mina
að sinna þeim viðtölum sem
beðið hefur verið um af hálfu
norskra fjölmiðla. Ég man ekki
til þess aðerlend pressahafi átt
viðtöl við mig um önnur mál, en
Jan Mayen máliö.”
eftir Guðmund Árna Stefánsson
Föstudagur 3. ágúst 1979 -Jie/garpásturinrL-