Helgarpósturinn - 03.08.1979, Blaðsíða 7
_JlelgafpósturihrL_ Föstudagur 3. ágúst 1979
I
7
HEIMSMEISIARARIKVIKMYNDAGERÐ
Loksins eru Islendingar orðnir
mesta kvikmyndagerðarþjóð
heimsins. Miöað við fólksfjölda
að sjálfsögðu.
Þegar þetta er skrifað er unnið
að gerð þriggja biómynda, leik-
inna mynda, sem teknar eru á
35 millimetra litfilmu, rétt eins
og hjá þeim i Hollywood. Þetta
eru myndirnar „Veiðiferðin”
eftir Andrés Indriðason, „Oðal
feðranna” eftir Hrafn Gunn-
laugsson og „Land og synir”
eftir sögu Indriða G. Þorsteins-
sonar. Þetta er umtalsverð
kvikmyndaframleiðsla og verð-
ur enn umtalsverðari, ef maður
gerir sér litið fyrir og fer Ut i
hlutfallsreikning og samanburð
við aðrar þjóðir.
Til að standa okkur á sporði i
kvikmyndagerö þyrftuSviar að
gera 120 langfilmur á ári, en
þeir gera þetta 15 til 20 myndir
og þykjaát góðir. Þrjár myndir á
Islandi samsvara 3000 myndum
i Bandarikjunum, þar sem
kannski eru geröar 200 til 300
myndir á ári. Og mesta kvik-
myndagerðarþjóð heimsins (að
magni tiljlndverjar framleiða
ekki einu sinni einn tiunda á við
okkur — miðað við fólksfjölda.
Islendingar eru með öðrum
orðum orðnir afkastamestu
kvikmyndagerðarmenn heims-
ins fyrir nó utan að vera mestir
lestrarhestar og verðbólgu-
snillingar af jarðarinnar inn-
byggjendum.
Og ekki nóg með það, heldur
framleiðum við bæði ódýrustu
og jafnframt dýrustu kvik-
myndir I heimi,þvi að krónutölu
eru islenskar myndir fram-
leiddar fyrir margfalt lægra
verðen nokkrum heilvita manni
i útlöndum myndi detta i hug að
hægt væri að gera kvikmynd
fyrir. En um leið framleiðum
við heimsins dýrustu kvik-
myndir. Miðað við fólksfjölda
að sjálfsögðu.
Það stóð i blöðunum um dag-
inn , að „Land og synir” ætti að
kosta 40 milljónir, sem sam-
I svarar þvi aö Bandarlkjamenn
gerðu mynd fyrir 40 milljarða,
| Sviar mynd fyrir 1,6 milljarða
eða um 20 milljónir sænskra
króna, og út i þvilikan spandans
hafa þeir ekki enn þorað að
leggja — mér vitanlega.
Þetta er ánægjuleg þróun. Og
að öllu tölfræöilegu gamni
slepptu nálgast þetta að vera
kraftaverk, og kraftaverk þarf
ekki að miöa viö fólksfjölda.
En þrátt fyrir að við íslending-
ar séum skyndilega orðnir
mesta kvikmyndagerðarþjóð
veraldar vantar mikið á að
þessi unga listgrein sé búin aö
slita barnsskónum hér á landi.
Viö gerð hverrar myndar kem-
ur við sögu töluvert stór hópur
fólks, þarsemhverog einn hefur
tiltölulega afmarkað verksviö
vegna sinnar sérkunnáttu:
myndatökumaður, hljóðmaður,
kvikmyndastjðri, handritshöf-
undur, klippari, skrifta, leik-
myndahönnuöur, o.s.frv. Vegna
fámennis er verksvið hvers og
eins ekki eins takmarkaö hér-
lendis eins og i löndum þar sem
kvikmyndagerð er stærri I snið-
álag getur orðið svo mikið að
það komi niöur á gæðum.
Þrátt fyrir að við getum sagt i
gamni aö Islendingar séu orön-
ir heimsmeistarar I kvik-
myndagerö má ekki gleyma þvi
aö islensk kvikmyndagerð býr
við afarkröpp kjör. Markaös-
svæðið er litið, þótt almenning-
ur sýni islenskum kvikmyndum
mikinn áhuga, og þess vegna er
erfitt að fjármagna kvikmyndir
hér á landi. Þetta á þó ef til vill
eftir að skána, þvi kannski tekst
að gera hér myndir sem þykja
gjaldgengar erlendis.
An nokkurrar þjóðrembu má
leiða rök að þvi, að aðrar þjóöir
hafi helst áhuga á að sjá héð-
an myndir sem sýna hið sér-
stæða við land og þjöð — sýna
hiö almenna I hinu sérstæða.
Hvers vegna skyldum við reyna
að framleiða glæpamyndir sem
eins gætu gerst i New York eöa
London eða Paris, þegar kvik-
myndagerðarmenn i þessum
stórborgum hafa allt aðra aö-
stöðu til að gera slikar myndir?
Ættum við ekki heldur aö beina
kvikmyndavélinni að þeim þátt-
um þjóðlifs okkar og sögu, sem
Helgi Sæmundsson — Hrafn Gunnlaugsson — Jónas Jónasson —
Magnea J. Matthiasdóttir — Páll Heiðar Jónssonar — Steinunn
Sigurðar dóttir — Þráinn Bertelsson
hringbordid
i dag skrifar Þráinn Bertelsson
um. Þetta hefur bæði kosti og
galla.
Kostirnir eru augljósir: Allir
keppast við að vinna sem mest
og best án þess að hugsa
um hvort þaö sé beinlinis i
verkahring t.d. hljóðmannsins
að rogast með lampa kvik-
myndatökumannsins. Gallarnir
eru hins vegar þeir, að vinnu-
okkur og jafnframt öörum væri
hollt að kynnast betur?
Það skiptir þó ekki megin-
máli, að islenskar kvikmyndir
verði mikil útflutningsvara,
heldur er það aöalatriðiö að
þessi listgrein sem svo mjög
hefursett mark sitt á tuttugustu
öldina fái að dafna hér á landi
við lifvænleg vaxtarskilyröi.
• Það vakti mikla athygli mitt I
hreinsunareldinum sem geisaði
um bandariskar stjórnarstofnan-
ir fyrir skömmu, þegar Jimmy
Carter forseti stokkaði upp rikis-
stjórn sina og ráðgjafalið, aö
hann valdi Hedley Donoyan, sem
þar til 1. júni s.l. var aðalritstjóri
fréttatimaritsins Time, sem einn
helsta ráðgjafa sinn. Time hefur
verið óvægið I garö Carters og er
talið að þetta val bygging á löng-
un forsetans til að opna Hvita
húsið og vega á móti Georgiu-
mafiunni, sem svo er kölluð, en
guðfaðir hennar er Hamilton
Jordan.nýskipaður starfsmanna-
stjóri i Hvita húsinu. Donovan
heyrir beint undir Carter, en ekki
undir Jordan.
• Lögreglan I Miami hefur ákært
laganema fyir aö ræna banka
með tækni, sem hann fékk aö láni
frá Hó m er :
William Brent McFarlan kom
sér fýrir i trékassa, sem hann
senda til banka nokkurs i Palm
Béach. Samkvæmt lögreglunni
átti að ná I kassann seinna. 1
skjóli nætur á hinn grunaði að
hafá laumast út úr kassanum og
gengið i auöæfin I geymsluher-
berginu.
Áætlunin, sem kölluð er
„Trójuhestsránið” fór út um
þúfur, þegar varðmaður kom inn
á geymslusvæöið. Þjófurinn
neyddi varðmanninn inn l annað
herbergi og notaöi lykla hans til
að hleypa sjálfum sér út.
Lögreglan heldur að upp-
hafiega hafi ætlunin verið sú aö
ræninginn fyllti kassann af þýfi
og léti siðan senda sér hann. Hon-
um tókst i' staöinn að komast und-
an með andvirði 65 þús. dollara i
suðurafriskum krúgeröndum,
sem erfitt verður aö rekja.
En upp komastsvik um siðir....
En Hómer var nú ekki svo galinn
eftir ailt saman.
• Rokkstjarnan bandariska Al-
ice Cooper hefur nú náð sér eftir
töluverða baráttu við bjórdósirn-
ar. Það er ekki sist að þakka konu
hans, Sheryl, sem hefur hugsað
um hann sem ungabarn. Ekki
fylgir sögunni hvort frúin á von á
sér, en nafn barnsins er þegar bú-
ið að ákveða. Hvort sem það
verður drengur eða stúlka, skal
það heita Constance.
• Christina Onassis segir: „Það
er Sergei að þakka, að ég er
kona sem blómstrar.” Hjóna-
kornin voru nýlega i Paris, sér til
hvildar og hressingar. Þau
bjuggu i ibúð Christinar, sem er
við eina af snobbuöustu götum
borgarinnar. Þau spóka sig um i
Mercedes, sem Grace af Monaco
lánaði þeim og borða hjá Max-
im’s með öllu hinu rika fólkinu.
Þess á milli labbar Serguei með
hundana sina tvo um skuggsæla
laufsali Parisar. Hjónakornin eru
fremur fámál um sina hagi. Það
eina sem Sergei fæst til aö segja
er, að Christina vinnur mikið.
DATSUN160J
Eigum óráðstafað örfáum bilum
úr næstu sendingu.
Látið ekki bíða að festa ykkur einn
af þessum eftirsóttu bilum.
Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita
allar upplýsingar um bílinn og greiðslukjör
Sparið með þvi að kaupa Datsun
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Símar 33560 og 37710