Helgarpósturinn - 03.08.1979, Page 15
HP-mynd: Friðþjófur
15
Föstudagur 3. ágúst 1979
„Bjóðum allt gott
fólk velkomið”
Tennislþróttin er á uppleið á tslandi I dag. Hver veit, kannski Islenskur Björn Borg veröi á toppnum inn-
an fárra ára.
i „ríkinu”. Viöskiptavinur verslar fyrir helgina. islendingar munu vera Ihaldssamir I sinum áfengis-
kaupum og velja yfirleitt sömu tegundirnar. Er Islenski svarti dauöinn þar fremstur I flokki?
Hvaö léttari vinin varðar, þá
voru seldir 233.515 litrar af rauö-
víni árið 1978 og 134.777 litrar af
hvitvini. Saint Emilion, Sangre
brava og Rubino eru þær rauö-
vinstegundir sem seljast best, en
Trés Torres og Lasalle eða
Kristjáns bróöir eins og það er
tiðast nefnt, hvað hvitvinið varð-
ar.
Af Vermouth seldust samtals
268.822 litrar. Martini-Bianco er
vinsælast með 114.397 flöskur og
Martini sveet með 62.266 flöskur.
Af Martini dry seldust 30.319
flöskur og Dubonnet 24.606 flösk-
ur. Bitter Campari fór i 83.489
flöskur.
Islendingar þjóruðu 106.671
litra af Sherry. Þar var Bristol
Cream með 47.874 flöskur og
Cream de Terry meö 22.764
flöskur.
78.723 1 likjörslltrar yljuðu
landsmönnum. Caina, auk
bananailkjöra og piparmyntu-
likjöra frá Bols voru vinsælast-
ir. Meðaltalsstyrkleiki likjöra er I
kringum 36%.
Að lokum má geta þess að
11.963 litrar af koniaki fóru yfir
búðarborðið i rikinu á sföasta ári.
Þar er franska merkið Courvois-
ier hvað vinsælast.
Að drekka sig fullan
Að sögn starfsfólks áfengis-
verslunarinnar er ekki mikill
munur á áfengiskaupum lands-
manna eftir árstiðum. Fyrir jól
og páska verður þess þó vart að
meiri sala er á léttari vinum.
Fyrir verslunarmannahelgi t.d.
er aftur meiri sala I sterkari vin-
um.
Það er þó ljóst að það eru
sterku vinin sem eru á toppnum
yfirleitt. Brennivinið islenska er
þar langvinsælast og skammt á
eftir kemur Vodka.
Þetta rennir stoöum undir þær
fullyrðingar, aö Islendingar
drekki sjaldnar heldur en abrar
þjóðir, en skvetti meiru i sigþeg-
ar þeir eru að á annað borð.
—GAS.
Eddu-hótelið húsmæðraskólanum Laugarvatni:
— segir hótelstjórinn
„Reksturinn hefur gengiö alveg
ljómandi vel, þaö sem af er sumri
og mikill fjöldi feröamanna hefur
sótt okkur heim,” sagöi Sigur-
björg Magnúsdóttir hótelstjóri
Eddu hótelsins á húsmæöraskól-
anum Laugarvatni, er blaöið
ræddi viö hana I vikunni. Laugar-
vatn er I alfaraleið og tvö Eddu
hótel eru á staönum, I mennta-
efri aldur. Unga kynslóðin sést
litið, hefst kannski frekar við I
tjöldum.”
Hótel Edda á húsmæðraskólan-
um stenst fyllilega samanburð
við 1. klassa hótel hér á höfuð-
borgarsvæðinu. Þar er boðið upp
á veislumat i hádeginu og á
kvöldin og fólki stendur opið að fá
sér létt vin með matnum ef þvi
Mikið annrlki hefur veriö á Eddu hótelunum á Laugarvatni I sumar.
skólanum og eins og áður sagöi I
húsmæðraskólanum.
Sigurbjörg sagði að það væru
mest útlendingar sem gistu
hótelið i miðri viku, en íslending-
um fjölgaði um helgar. Þó væru
erlendu gestirnir yfirleitt alltaf i
meirihluta. Undanfarnar helgar
hefðu verið mjög góðarog allt yfir
fullt. Það færi hins vegar mikið
eftir veðri og vindum hver að-
sóknin væri.
Hótelið opnaði 11. júni siðastlið-
inn, en Sigurbjörg sagði að lands-
menn hefðu vart tekið verulega
við sér fyrr en i þessummánuði.
Að sögn Sigurbjargar væri það
mjög algengt að fólk, þá aðallega
úr Reykjavik, kæmi á föstudags-
kvöldi og gisti siöan tvær til þrjár
nætur yfir helgi.
„Aöallega eldri kynslóðin"
„Það er nú aðallega eldri kyn-
slóðin sem hingað kemur,” hélt
Sigurbjörg áfram. „tslending-
arnir eru yfirleitt á miðjum aldri,
en útlendingarnir oftast komnir á
býður svo við að horfa. Þá er op-
inn bar fyrir hótelgesti.
Mikið rennerí
„Mjög algengt er að fólk sem
býr hér i tjöldum, sumarbústöð-
um, eða einfaldlega á hér leið um,
stoppi hjá okkur og fái sér að
borða hjá hjá okkur góðan mat,”
sagði hótelstjórinn. „Við bjóðum
að sjálfsögðu allt gott fólk vel-
komið.”
Tveggja manna herbergi með
baði kostar 10 þúsund krónur á
nóttina.
Ekki þarf að lýsa fyrir Islend-
ingum þeim möguleikum sem
Laugarvatn býður upp á fyrir
ferðamenn. Þar er sundlaug,
gufubað og bátaleiga svo aðeins
eitthvaðsé talið. Ekki má gleyma
náttúrufegurð Laugarvatns, sem
hýsir túrista á sumrin, en skóla-
fólk á veturna, en þar er
menntaskóli, gagnfræðaskóli,
húsmæðraskóli og iþróttakenn-
araskóli.
— GAS
Tennislþróttin er geysivinsæl
vlða um heim. Eins og flestum
er kunnugt eiga frændur okkar
Svíar, fræknasta iþróttamann-
inn I þessari grein. Þaö er
undrabarniö Björn Borg. MiII-
jónir manna iöka þessa
skemmtilegu iþrótt sem á
margan hátt svipar til badmint-
on, sem við tslendingar þekkj-
um vel.
En einhverra hluta vegna, er
tennis litt stundað hér á landi.
Fyrr á þessari öld var spilaður
tennisbæði hjá KR og IR, en frá
1940 hefur tennisspaöinn legið
óhreyfður hjá Mörlandanum. I
ferðalögum á sólarströndum
hafa Islendingar talsvert leikið
tennis og haft gaman af.
Nú loksins virðist komin
nokkur hreyfing á tennismálin
hér á iandi. íþróttafélag Kópa-
vogs (1K) sem er tiltölulega
ungt félag, hefur stofnað tennis-
deild. I þessari deild eru um 70
meðlimir þar af um 30 virkir
tennisleikarar.
„Vaxandi áhugi”
Helgarpósturinn hafði tal af
formanni deildarinnar, Jóhanni
Þór Arnarsyni og leitaði frétta
af tennisþróuninni hér á landi.
„Það er greinilega vaxandi
áhugi fyrir tennisiþróttinni á Is-
landi. Þaö er mikið hringt i okk-
ur og spurt um iþróttina og að-
stöðuna. En það er einmitt að-
staðan sem stendur okkur fyrir
þrifum. Við höfum aögang aö
tveimur tennisvöllum hér i
Kópavogi, en þeir eru á opnu
svæði og þvi oft notaðir af
krökkum I fótbolta eða öðrum
leikjum. Við eigum þvi stundum
undir högg aö sækja með að fá
afnot af völlunum,” sagði Jó-
hann.
Jóhann Þór Arnarson bætti
þvi við aö þeir IK menn gerðu
sér stórar vonir um bætta tenn-
isaðstööu á næsta ári. Heföu
þeir fengið munnlegt loforö fyr-
ir Iþróttasvæði i Kópavogi, þar
sem þeir myndu þá setja upp
tennisvelli. Þá heföu einnig bæj-
aryfirvöld gefið vilyrði fyrir
völlum við einn skólann i bæn-
um. Þetta stæði þvi að öllum lik-
indum til bóta á næstunni.
IK hélt tennismót siðastliðið
haust og mun halda annað nú
fljótlega. Að sögn Jóhanns væri
það sérstaklega eftir mótin sem
áhugi almennings á Iþróttinni
blossaöi upp.
,, Bakter ían heltekur
mann”
„Margir hafa haldiö þvi fram
að islensk veðrátta henti ekki
fyrir þessa iþróttagrein. Við
höfum þó komist að raun um að
slikt er ekki rétt. Það er mögu-
legt að spila tennis úti I grenj-
andi rigningu og roki og á vet-
urna er hægt að leika innan-
húss„” sagöi Jóhann. „Það er
með þessaiþrótteins ogmargar
aðrar, að þegar maður er byrj-
aður á annað borð, þá gjörsam-
lega heltekur bakterian mann.”
Að lokum sagði Jóhann Þór
Arnarson formaður tennisdeild-
ar IK: „Þaö tekur að minnsta
kosti ein 10 ár að ná þessari
iþróttagrein upp. Við komum j
ekki til meðaö standa jafnfætis
nágrannaþjóöum okkar hvaö
getu varðar fyrr, en að þeim
tima liðnum. En við flýtum okk-
ur hægt áhugamennirnir um
tennis, þvi við vitum að Iþróttin
er á uppleiö og mun sanna gildi
sitt. Það geta allirleikið tennis,
jafnt ungir sem gamlir og það er
kannski þaö skemmtilega viö
þessa iþrótt.”
- QAS.
HOTEL BORG
í fararbroddi
Opið í kvöld og laugardagskvöld
frá kl. 9—3
Sunnudagskvöld opiö fram eftir nóttu.
Mánudagskvöld opið til kl. 1
Diskótekið Dísa leikur gömlu og nýju dansana
og lög eftir vali dansgesta.
Matur framreiddur frá kl. 18 öll kvöld.
Besta dansstemningin í
borginni er á BORGINNI
Borðið - Búið - Dansið
A HÓTEL BORG
íþróttagrein sem gleymst hefur hér á landi:
VAXANDI ÁHUGI Á TENNIS