Helgarpósturinn - 29.02.1980, Side 12
DATSUN
SENDI
BIFREIÐ
# Burðargeta 1200 kg.
# Hliðarhurð æt/uð fyrir /yftara
með bretti.
# Véiin er 2 / (1982 c.c.J 75 Din. ha.
og eyðslan er ótrúiega iítii.
# Verð um kr. 5.700.000 (tii einkanota)
Dieselvél (eins og í Datsun leigubif- Verð um kr. 6.280.000.-
reiðum) Kjörinn fyrir t.d.:
Hæð undir lægsta punkt 21/5 cm. heildsölu- iðn- og útgerðarfyrirtæki.
PICK-UP
Burðargeta 1200 kg
Verð um kr. 4.080.000
Bíllinn sem bregst þér ekki — enda mest seldi pallbíllinn ípicK-up)
á íslandi undanfarin ár
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Sími 33560
Föstudaqur 29. febrúar 1980 HnllJ^rpn<^+l irínn
Að búa til
vandamál og
leysa þau
Um sápuóperur
og langlífa myndaflokka
eftir Guðjón Arngrímssson
Myndaflokkar eru afar algengt
efni I sjónvarpi. Þaö vita allir
sem setiö hafa eina kvöldstund
framan viö tækiö. Viö lauslega
talningu kemur til dæmis f ljós aö
i vikunni sem nú er aö líöa eru um
15 myndaflokkar f islenska sjón-
varpinu, og þá eru fréttir og
veöurfregnir og álfka fastir þætt-
ir, ekki taldir meö.
Margir þessara þátta, og tals-
vert stór hluti myndaflokka
almennt eru fræösluþættir, sem
stundum eiga ekki annaö sam-
eiginlegt en nafn og timalengd.
En aörir, og þeir sem hér eru til
umfjöllunar eru leiknir mynda-
flokkar um lif ákveöinna leikinna
persóna.
Ntlna eru nokkrir slikir á dag-
skrá Islenska sjónvarpsins.
„Dýrlingurinn” er á þriöjudög-
um, „Fólkiö viö lóniö” á miöviku-
dögum, „Spitalalif” á laugardög-
um (þeim þætti var reyndar aö
ljúka f bili) og „Húsiö á sléttunni”
og „1 Hertogastræti” á sunnudög-
um.
Sumir þessara þátta, t.d.
„Spitalalif” eru ekki framhalds-
þættir i beinum skilningi, þaö er,
hver þáttur er sjálfstæö eining.
Umgjöröin er sú sama, en at-
buröir eru prjónaöar af fingrum
fram. Þættir eins og „Spitalalíf”
hafa gengiö árum saman i banda-
risku sjónvarpi, og framleiöend-
ur hafa þurft aö „skrifa burt”
hinar og þessar persónur sem
voru meö I byrjun, vegna þess aö
leikararnir hafa þurft aö sinna
öörum verkefnum. Aörar breyt-
ingar hefur sömuleiöis þurft aö
gera.
Sami þátturinn í 25 ár
1 islenska sjónvarpinu hafa
þættir ekki gengiö lengi ef miö er
tekiö af öörum löndum. Til dæmis
var þátturinn Crossroads á
dagskránni hjá ITV stööinni I
Bretlandi þrisvar i viku. Þar er
hann búinn aö vera I 25 ár, hvorki
meira né minna. Aörir breskir
Íiættir sem veriö hafa á skjánum
engi eru Coronation Street og
Emmersdale Farm. Allir þessir
þættir teljast vera sápuóperur, en
sápuóperur höfum viö lslend-
ingar veriö blessunarlega lausir
viö.
Oröiö sápuópera varö til i
kringum heimilisvandamálaþætti
sem sýndir voru siöarihluta dags,
vegna þess aö sápu-
framleiöendur, sem vildu ná
athygli húsmæöra fjármögnuöu
gerö einstakra þátta, gegn aug-
lýsingum sem skotiö var inn i
þættina. Sápuóperur eru fastur
liður á sjónvarpsdagskránni
beggja vegna Atlantshafsins og
eru einkum ætlaöar heimavinn-
andi húsmæörum. Operur þessar
eru yfirieitt mjög óvandaöar og
nánast móögun við húsmæöra-
stéttina.
í mars hefst sýning á mynda-
flokknum „Soap” I islenska
sjónvarpinu, og þar gefst landan-
um tækifæri á aö kynnast sápu-
óDeruforminu. Þáttur þessi er
reyndar skopstæling á hinum
dæmigerðu sápuóperum, og i
honum skýtur upp öllum hugsan-
legum vandamálum sem ein
fjölskylda getur átt viö aö etja.
Þaö er einkenni á dæmigeröum
sápuóperuþætti: Höfundarnir
koma hetjum sinum i erfiöa
aöstæðu, og siöan útúr henni
aftur. Búiö.
„Undir sama þaki”
Eini islenski framhaldsmynda-
flokkurinn til þessa, Undir sama
þaki, flokkast vart undir sápu-
óperu vegna þess aö hann var
aöeins sex þættir, en þar var
næstum allt sem til þarf. Mátu-
lega stór hópur fólks sem býr i
sambýli. Meö slikan efniviö er
hægt að leika sér takmarkalltið,
og spinna endalaus vandamál upp
og leysa þau jafnéöum.
„Þaö er ekki út I loftiö aö jafn
mikið er gert af framhalds-
myndaflokkum og raun ber
vitni”, sagöi Egill Eövarösson
dagskrárgeröarmaöur hjá sjón-
varpinu i samtali viö Helgarpóst-
inn.
„Þetta er ákaflega heppilegt
form fyrir sjónvarp, og kemur
litiö viö pyngjuna. Myndaflokkar
eru ódýrir i framleiöslu, vegna
þess aö hægt er aö notast aftur og
aftur viö sömu umgjöröina og
fólkiö sem vinnur aö þáttunum
þjálfast og getur unniö mjög
hratt. Stofnkostnaöurinn verður
hverfandi litill miöaö viö þaö efni
sem unniö er”.
Egill, sem var einn aöstand-
enda „Undir sama þaki” er
dálitiö undrandi yfir aö Islenska
sjónvarpiö hefur ekki gert meira
af sliku. „Viö geröum á sinum
tima 6 þætti á þremur vikum og
vorum tilbúnir aö halda áfram.
Þættirnir fengu þokkaiegar
viötökur og fyrir mjög óverulegar
fjárhæöir heföi veriö hægt aö gera
mun meira viö þá sviösmynd og
persónur sem þarna höföu veriö
skapaöar”.
Nýr islenskur
framhaldsþáttur
Helgarpósturinn haföi sam-
band viö Hinrik Bjarnason og
í