Helgarpósturinn - 23.05.1980, Page 17
helgarpósturinh- Föstudagur 23. maí 1980
17
AD KOMA ÞEIM „RÉTTA”
TIL BESSASTAÐA
Kosningabarátta forsetaframbjóbendanna er ná hafin af fullum krafti, enda ekki nema rúmur mánuður
til kosninganna. Baráttuaðferöir þeirra viröast svipaöar, þaö eru haldnir fundir um allt land, gefnir út
bækiingar, auglýst I fjölmiölum og svo framvegis. A kjördag veröa siöan aö öllum llkindum stundaðar
hringingar og hin almenna kosningaþjónusta, eins og hún er kölluö. Helgarpósturinn spjallaöi viö „arki-
tekta” kosningabaráttunnar, —þá sem eru f forsvari stuöningsmanna frambjóöendanna.
Guöbjartur: „VIssi aö hann var
liötækur”
„Jú, eitthvaö fær maöur borgaö
fyrir þetta”, sagöi Guöbjartur
Gunnarsson, einn helsti stuön-
irigsmaöur Guölaugs Þorvalds-
sonar. „Viö erum tvö sem erum
hér allan daginn og erum á laun-
um.”
„Þetta starf er kynningar-
starf”, sagöi Guðbjartur. „Það er
fólgið 1 þvi aö koma upplýsingum
á framfæri, með fundarhöldum,
blaðaútgáfu, fréttatilkynningum
og fleiru þviumliku og siðan þessi
almenna framkvæmd kosning-
anna, skipulag i hverfum og svo
framvegis.
Guðbjartur kvaðst aldrei hafa
hitt Guðlaug fyrr en hann fór nú
að vinna að undirbúningi kosn-
inganna. „Ég taldi að sjálfsögðu
að hann væri liðtækur áður en ég
hitti hann, og siðan við kynntumst
erég viss um að hann mun standa
sig vel I embætti forseta nái hann
kjöri. Astæðan fyrir þvi að ég
stend I þessu er einfaldlega sú að
ég var á lausu, — ég hef unnið
„free-lance” vinnu hjá Sjónvarp-
inu. Ég vann fyrir Kristján Eld-
járn I siðustu kosningum, geröi
m.a. sjónvarpskynningarmynd
sem vakti athygli og hef reynslu i
þessum efnum”, sagði Guðbjart-
ur. — GA
Svanhlldur: „Aöallega aö tala I
slma”
„Ég er aðallega aö tala I sima”,
sagöi Svanhildur Halldórsdóttir á
kosningaskrifstofu Vigdisar
Finnbogadóttur. „Jú, ég er hér
allan daginn ásamt tveimur öðr-
um, og viö fáum borgaö fyrir”,
sagöi hún.
„Nú hef ég verið að vinna i þvi
að útbúa meðmælendalistann,
sem siðan verður sendur til kjör-
stjórnarinnar. Svo er þetta aöal-
lega vinna við að koma fólki sam-
■ ..." t
an, stofna nefndir, skipuleggja
ferðir, sjá um útgáfu blaðs og
fjölmiölahliðina. Allt þetta starf
er unniö af fjölda fólks, og mitt
starf er aðeins að vera tengiliður
millihópanna” sagði Svanhildur.
Hún sagðist hafa verið ein af
þeim sem upphaflega skoruöu á
Vigdisi að gefa sig fram, en
þekkti hana ekki frá fyrri tiö af
störfum hennar. Svanhildur vinn-
ur á Hagstofunni „og svo stjórna
ég heimili, sem er aö minum
dómi mikið starf, jafnvel þótt það
sé ekki alltaf talið til verka. Ég
þekki margt fólk, og þar nýt ég
þess að vera sveitakona að upp-
runa, er frá Laugum i Þingeyjar-
sýslu”, sagði Svanhildur. —GA
Frá kosningaskrifstofu Alberts I
HeykjaVlk. Þorvaldur Mawby,
skrifstofustjorinn, er viö borös-
endann
„Þetta er áhugastarf hjá mér”
sagði Indriöi G. Þorsteinsson,
kosningastjóri Alberts Guö-
mundssonar. „Þaö má reikna
meö aö mestallur júni fari I þetta
hjá mér, en aö sjálfsögöu mun ég
stunda mina vinnu samkvæmt
þeim samningum sem ég hef gert
þar að lútandi.”
Indriöi sagði starf sitt aöallega
fólgið i þvi aö leggja á ráðin um
hitt og þetta, og ferðast með Al-
bert og mæla fyrir munn stuðn-
ingsmanna hans á fundum.
Hann sagðist hafa þekkt Albert
áður en til þessara kosninga kom
og ástæðan fyrir þvi að hann gæfi
sig i svona starf væri sú aö hann
hefði trú á að „Albert geti gert
forsetaembættinu gott, sem
/reyndur stjórnmálamaður”. Ind-
riði sagöist ekkert hafa útá hina
frambjóðendurna að setja en
taldi Albert hafa nokkra sérstöðu
meðal þeirra, og þvl hefði hann
ákveðið að styðja hann.
Indriöi sagði fjölda fólks vinna
fyrir Albert, vlðsvegar um landið,
en skrifstofustjóri og einn helsti
skipuleggjandi kosningabarátt-
unnar hér i Reykjavik væri Þor-
valdur Mawby. — GA
Óskar: „Þekkti Pétur ekki neitt”
„Nei, ég þekkti Pétur ekki neitt
áður en ég fór aö vinna viö þetta”,
sagöi Óskar Friöriksson, kosn-
ingastjóri hjá Pétri Thorsteins-
syni. „Ég get hinsvegar sagt aö
mér llki mjög vel viö hann og þvi
betur sem kynnin aukast."
Óskar er starfsmaöur SAA og
er þar I launalausu frii meöan á
kosningabaráttunni stendur. „Ég
er á launum hérna já, já” sagði
hann. „Maður verður að lifa á
einhverju. Auk min er hér ein
stúlka á launum og viö erum hér
allan daginn.”
Óskar er vanur þvi að standa I
kosningabaráttu. „Ég hef staöið I
prestkosningum og þessum al-
mennu kosningum og það eru
eiginlega einu kosningarnar af
einhverri stærðargráðu sem fara
fram hér á íslandi. Ef þú ætlar að
leita að kosningavönu fólki
verðuröu þvi að leita til þess fólks
sem unniö hefur við pólitisku
kosningarnar. Þess vegna var
leitað til min.”
Að sögn óskars er vinnan við
þessar kosningar mjög svipuð
annarri kosningavinnu, „Þetta
starf er fólgiö i þvi að tala við fólk
og taka með þvl ákvarðanir um
hitt og þetta varðandi kosn-
ingarnar.” — GA
Sími86220
85660
Boröa-
pantanir
Sláttumenn á ferð:
„GRASIÐ
EKKI
NÓGU
HÁTT
ENNÞÁ”
Fólk er misjafnlega duglegt
að rækta garöinn sinn. Þess-
vegna er I flestum löndum
heims hægt aö kaupa garö-
yrkjumenn eöa aöra til aö taka
ómakiö af eigandanum. Hér á
landi tlökast þetta llka og nú I
vor hafa nokkrir aöilar auglýst
garösláttu og aöra hiröingu
garöa I dagblöðum.
Helgarpósturinn hringdi i eitt
þessara simanúmera og i ljós
kom að bak við þá auglýsingu
stóðu tveir menntaskólanemar,
Þorvaldur Ingvarsson og Stefán
Gunnlaugsson.
„Það er nú litið fariö að slá
ennþá” sagði Þorvaldur, „gras-
ið er einfaldlega ekki orðið nógu
hátt. Við höfum þó fengiö þó
nokkrar fyrirspurnir, þannig að
ekki er ástæða til annars en að
vera bjartsýnn.”
Að sögn Þorvalds eru þeir
félagar að ljúka stúdentsprófum
núna I vor og ætla sér að lifa af
Þorvaldur og Stefán og at-
vinnutækiö
sláttunni i sumar. „Verðið er
samkomulagsatriöi. Við miðum
við aö venjulegur garður kosti
15 þúsund og þá er innifalinn
slátta, rakstur og hirðing. Ef
garðurinn er stór hækkar verðið
náttúrlega og ef hann er litill
lækkar þaö. Og ef viö semjum
viö fólk um að sjá kannski um
garöinn allt sumariö, lækkar
verðið hlutfallslega mikið.”
Þeir Þorvaldur og Stefán eru
báðir reyndir sláttumenn og
hafa sin eigin tæki meðferðis.
Nú sem stendur eru það að visu
lánstæki, en fljótlega hyggjast
þeir fjárfesta i fullkomnum
sláttuvélum. —GA
I Við
kjósum
Albert
Gylfi Ægisson sjómaður
Guðbjörn Sævar hárgreiðslumeistari
Guðni Kjartansson iþróttakennari
Jóhann Ingi Gunnarsson iþróttaþjálfari
Kristin H, Waage húsmóðir
Pétur Kristjánsson söngvari
G. Rúnar Júliusson tónlistarmaður
Ólafur Laufdal forstjóri
Guðrún Valgarðsdóttir flugfreyja
Brynja Nordquist húsmóðir
Magnús Ketilsson verslunarmaður
María Baldursdóttir söngkona
Bjarni Bjarnason verslunarmaður
Magnús Pétursson iþróttamaður
Finnbogi Kjartansson augl.teiknari
Anna B. Eðvarðs skrifstofumær
Þórir Baldursson hljómlistarmaður
Engilbert Jenssen hljómlistarm. og söngvari
Ásgeir Sigurvinsson knattspyrnumaður
Marteinn Geirsson knattspyrnumaður
Bentína Björgólfsdóttir snyrtisérfræðingur
Magnús Kjartansson hljóðfæraleikari
Helgi Steingrimsson verslunarmaður
Svanlaug Jónsdóttir gjaldkeri
Ólafur Júliusson versiunarmaður
Jónas R. Jónsson hljómlistarmaður
Snorri Guðvarðsson söngvari
Ómar Einarsson framkvæmdastj. Æskulýðsráðs
Gunnar Þórðarson hljómlistarmaður
Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona
Skúli Gislason syningarmaður
Halldór Einarsson framkvæmdastjóri
Pálmi Gunnarsson söngvari og hljómlistarm.
Arni Þ. Arnason verslunarmaður