Helgarpósturinn - 23.05.1980, Side 25
—he/garpósturinn., Föstudagur 23. maí 1980___________________________25
3. GREIN
Grein og myndir: Guðlaugur Bergmundsson
Viö Byltingarstreti hefur verift komift upp sölutjöldum þar sem seldar
eru póiitiskar bækur og kassettur
Þaft var ekki oft sem byltingarverðirnir sáust á almannafæri, en hér
eru þeir á gangi um miðborg Teheran meft blóm f byssuhlaupinu
kennisbúningur fyrir þær stúlkur
sem eru i hreyfingu þessari, og
gat ég ekki betur séö, en flestar
þessar slæftur væru i bláum lit.
Mér láöist hins vegar aö spyrja
hver ástæöan væri.
Þegar hlaupiö haföi veriö og
sungiö góöa stund, geröu Moudja-
hedínar sig lfklega til aö yfirgefa
lóö háskólans og fóru fylktu liöi
niöur Byltingarstræti, en þaö er
ein af þeim götum, sem liggja
meöfram háskólalóöinni. Héldu
menn áfram aö syngja og hróp-
uöu einnig vigorö, eins og aö þaö
ætti ekki aö vera meö neinar til-
slakanir viö Bandarikin, heldur
fara i striö viö þau. Á gang-
stéttunum þar sem göngumenn
fóru, haföi safnast saman mikill
mannf jöldi til aö fagna þeim. Þeir
voru þó ekki allir, sem geröu
slikt, þvi þarna voru lika nokkrir
sem steyttu hnefann framan i
göngumenn, og voru þar komnir
vinir okkar harölinumennirnir.
Eins og i göngunni miklu tveim
dögum siöar, var ég einnig aö
bjástra viö aö kvikmynda þarna
inni á háskólalóöinni. Vakti ég
fyrir þaö töluveröa athygli og var
yfirleitt hópur af li'önum i kring-
um mig og var mikiö spáö i þaö
hvaöég væri aö þvælast þarna, en
allir voru mjög ánægöir yfir þvi
aö ég skyldi mynda þarna. Að
sjálfsögöu lék mönnum forvitni á
aö vita hvað mér, útlendingnum,
fyndist um ástand mála i tran. Ég
svaraöi þvi eins og var, að ég
botnaði nú fremur litiö i þessu
öllu saman, allt væri^ svo
ruglingslegt. Þaö varö mer þvi
mikill léttir, þegar spyrill minn
sagði að ég væri ekki einn um
þaö, jafnvel Iranir áttuöu sig ekki
til fulls á þvi sem væri aö gerast.
Ég þurfti þvi ekkert aö skammast
min fyrir fávisku mina.
Hræ //taghout-anna"
Ég minntist áöan á ofsóknir á
hendur vinstri mönnum i háskól-
um landsins. Mér viröast þéssar
ofsóknir endurspegla aö ein-
hverju leyti ótta klerkastéttar-
innar viö aö missa stjórn mála út
úr höndunum, og þess vegna fari
þeir aö einhverju leyti inn á jafn
vafasamar brautir og fyrirrenn-
ari þeirra, Mohammed Reza
Pahlavi. Töluverð óánægja rikir
meðal menntaöri landsmanna á
vinstri kantinum. Þeim finnst
klerkarnir hafa svikiö þá og
byltinguna. Einhver sagöi viö
mig, aö á þvi ári sem klerkarnir
heföu setiö viö völd, heföu þeir
ekkert gert fyrir fólkiö.
Atvinnuástand i Iran er mjög
bágborið um þessar mundir, eins
og komiö hefur fram i fréttum
hér. Allir framleiösluatvinnu-
vegirnir starfa langt undir getu
og heita má að byggingar-
iönaöurinn hafi alveg stöövast.
Þegar ekiö er út úr Teheran til
norð-vesturs má sjá nýtt borgar-
hverfi, eöa öllu heldur nýja borg
rétt utan viö borgarmörkin. Séö
frá hraöbrautinni viröist borg
þessi samanstanda af blokkum
eingöngu og ekki venjulegum
blokkum eins og viö eigum aö
venjast hér, heldur hálfgerbum
ofvöxnum skrimslum. Þarna
voru þær svo tugum skipti og nær
allar tómar eöa hálf byggöar.
Verktakarnir, sem allir voru út-
lendingar, höföu yfirgefið landið
eftir byltinguna, en mér var sagt
aö til stæði aö ljúka viö fram-
kvæmdirnar. Hvenær þaö veröur,
veit enginn. A meöan veröur þessi
borg, sem fyrirhuguð var fyrir
þrjú hundruö þúsund Ibúa,
draugaborg.
„Stjórnvöld hafa enga stjórn á
efnahagsmálunum. Þau hafa
einkum reynt að tryggja stööu
sina pólitiskt, en látið efnahags-
málin sitja á hakanum og þaö
gengur ekki lengi”, sagði einn
Iranskur menntamaöur viö mig.
Hann bætti þvi viö, aö efnahags-
lifiö gengi fyrir hræjum „taghout-
anna”, en það er skammaryröi,
sem Khomeiny hefur notað yfir
þá sem stjórnuðu efnahagslifi
landsins á tima keisarans. Þaö
eru sem sé embættismenn fyrri
stjórnar, eöa þeir sem eftir sitja,
sem halda efnahagskerfinu gang-
andi að einhverju leyti. Þaö var
almennt álit þeirra, sem ég talaöi
viö, aö önnur bylting væri' óhjá-
kvæmileg, ef svo héldi fram sem
horfbi. Fólkið hefði séö, aö þaö
gæti steypt harbstjórum af stóli
og það muni þvi veröa gert aftur.
„I næstu byltingu veröa
„mollarnir” (prestarnir) teknir
og hengdir upp i næsta tré”, sagbi
einhver.
Fáfræði og svartur
markaður
Ólæsi er landlægt i tran sem og
fleiri löndum i þriðja heiminum.
Var það m.a. ein af ástæöunum
fyrir þvi, að keisaranum tókst aö
halda alþýöu landsins niðri jafn
lengi og raun ber vitni. Þaö hefði
þvi með réttu átt að vera eitt af
fyrstu verkefnum byltingarsinn-
aöra stjórnvalda að hefja lestrar-
kennsluherferö, til þess aö fólkið
gæti aflað sér þekkingar á sjálf-
stæöari hátt en að hlusta ein-
göngu á prestana og rikisfjöl-
miölana. Þegar ég spuröi um
þetta atriði, var mér sagt, aö i
upphafi hafi veriö fariö um þaö
mörgum og fögrum orðum að
kenna öllum aö lesa og skrifa, en
minna hafi verið um efndir. Efni
sjónvarpsins rennir svo stoðum
undir þann grun, að i þessu efni
hyggist stjórnvöld flýta sér mjög
hægt.Fáfræðin er jú eitt af betri
kúgunartækjum sem til eru.
Þaö er fleira en stjórnkerfiö og
efnahagskerfið sem ruglast viö
byltingar eins og þá sem gerð var
i tran. Ein þeirra afleiöinga sem
bæöi landsmenn og feröamenn
verða áþreifanlega varir viö, er
svartamarkaösbrask meö gjald-
eyri. A tima keisarans gátu þeir
sem áttu pening skipt eins miklu
og þeir vildu yfir I erlendan gjald-
eyri. Núverandi stjórnvöld hafa
hins vegar tekið upp svipaöa
stefnu og rikt hefur hér á landi,
þ.e. skömmtun á erlendum gjald-
eyri. Eftirspurn eftir honum er
hins vegar enn mikil og þvi
blómstrar svarti markaöurinn.
Markaöurinn sá fer hins vegar
ekki eins leynt og hér á landi.
Gjaldeyriskaupmenn hafa flestir
komiö sér fyrir á einu breiðstræt-
anna, sem skirt er i höfuðið á einu
af höfuðskáldum Irans, Fer-
dowsi. Þarna sitja þeir meb
skúffur fullar af dollurum, mörk-
um og pundum, og glerplötu ofan
á svo allt fjúki ekki fjandans til.
Þeir útlendingar sem leggja leiö
sina um þessa götu þurfa ekki að
hafa fyrir þvi aö bera sig eftir
björginni sjálfir, þvi eftirspurnin
er næg. Maður þarf bara aö
ganga á milli og vita hver býöur
best, og engum manni meö fullu
viti dettur i hug aö skipta ferða-
tékkunum sinum i banka, þegar
svarti markaðurinn gefur nær
helmingi meira. Þessi starfsemi
er aö sjálfsögðu ólögleg, en yfir-
völd viröast ekki hafa bolmagn til
aö koma i veg fyrir þessi við-
skipti. Jafnvel eitt Teheran dag-
blaöanna, sem gefiö er út á ensku,
gefur upp hvort tveggja, hina
opinberu gengisskráningu og
markaðsveröið.
Enn af myndum
Enn ein afleiöing byltingarinn-
ar er sú, aö skipt hefur veriö um
nöfn á mörgum götum og þá eink-
um þeim sem minntu á tilvist
fyrrverandi keisara. Pahlavi
breiðstrætiö hefur nú veriö skýrt I
höfuðiö á Mossadegh sem var for-
sætisráðherra snemma á 6. ára-
tugnum. Aryamehr stræti hefur
veriö endurskirt gata doktors Fa-
temi. Aryamehr var einn af þeim
titlum, sem keisarinn haföi tekið
upp og þýöir „ljós arýanna”, en
doktor Fatemi var ráöherra i
stjórn ofarnefnds Mossadegh, og
þannig mætti lengi telja.
Ég sagöi i fyrsta hluta þessara
pistla, að það fyrsta sem ferða-
langurinn ræki augun i, þegar
hann kemur á flugvöllinn i Teher-
an væri mynd af ayatollah Kho-
meiny. A göngu um borgina, fer
maður heldur ekki varhluta af
þessum myndum, þær eru bók-
staflega á hverju götuhorni, i
hverri verslun og opinberum
byggingum. Vitandi þaö, aö
keisarinn hélt mikiö upp á myndir
af sjálfum sér og fjölskyldu sinni,
spurði ég hvort þaö heföu getaö
veriö fleiri myndir af honum og
hans slekti. Jú, þaö var vist svo
og vel það. A undan hverri kvik-
myndasýningu i bænum voru
sýndar myndir af fjölskyldulifi
hans og þurftu kvikmyndahúsa-
gestir aö standa upp allir sem
einn i viröingarskyni viö „hinn
ástsæla leiötoga”. Ég veit ekki til
aö Khomeiny hafi gengiö svo
langt. En myndir af honum eru þó
komnar á einn staö, sem óneitan-
lega gefur visbendingu um hvert
stefnir, en þaö eru litil vasadaga-
töl. Þar hefur hann einnig fetað i
fótspor fyrirrennara sins.
Allar ferðir taka einhvern tima
enda og þar kom aö brottfarar-
degi mfnum. Eftir aö hafa farið i
gegnum tollskoöun (hún er lfka
fyrir farþega sem yfirgefa land-
ið) settist ég i biðsalinn og beiö
eftir þvi aö vélin færi. Þaö siöasta
sem ég sá áður en ég sté út úr
byggingunni var ljósmynd af
ayatollah Khomeiny.
anaa
125 P - 1500 1980
Ó TRÚLEG T VERÐ
Kr. 3.400.000.-
Til öryrkja:
Kr. 1.970.000.-
— Hámarkshraði 155 km — Bensineyðsla um 10 litrar per 100
km — Kraftbremsur með diskum á öllum hjólum —
Radial-dekk — Tvöföld framljós með stillingu — Læst bensin-
lok — Bakkljós — Rautt Ijós i öllum hurðum — Teppalagður —
Loftræstikerfi —Öryggisgler — 2ja hraða miðstöð — 2ja hraða
rúðuþurrkur — Rafmagnsrúðusprauta — Hanzkahlif og hilla—
Kveikjari — Litaður baksýnisspegill — Verkfærataska — Gljá-
brennt lakk — Ljós i farangurgeymslu — 2ja hólfa kaborator
— Synkronesteraður girkassi — Hituð afturrúða — Hallanleg
sætisbök — Höfuðpúðar — Bremsujafnari — Eins árs ábyrgð —
5 ára ábyrgð á ryðvörn.
Umboðið Akureyri: Vagninn s.f.
Furuvöllum 7, simi 96-24467
FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, simi 77200