Helgarpósturinn - 23.05.1980, Blaðsíða 28
__helgarpásturinn_ Föstudagur 23. maí 1980
HEMPELS
þakmálning.
Gerð fyrir skipsskrokk
enboóinþérá
þiikináln ingarverói.
Hvaó hef ur þú
út úr því?
Skipamálningu er ætlaö að standast
særok, nudd, frost, snjó og fugladrit
meö öllum þeim eyöandi efnum sem í
því eru. Þess vegna teljum viö aó betra
efni fyrirfinnist ekki á íslensk húsaþök.
S/ippfé/agið íReykjavíkhf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi
Símar 33433 og 33414
9 Nti um nokkurt skeið hefur
rikt upplausnarástand á ritstjórn
dagblaðsins Visis og má reyndar
segja að þar hafi ekki rikt sam-
felldur friður, allt frá þvi upptir
sauð með eigendum blaðsins og
Jónasi Kristjánssyniog Sveini R.
Eyjólfssyni, og Dagblaðið fædd-
ist. Upp á siðkastið hafa margir
af reyndustu blaðamönnum Visis
tinst i störf á öðrum vettvangi
eins og fram hefur komið og nú
undanfarna daga hefur staðið yfir
á blaðinu deila sem a.m.k. um
tima bauð heim fjöldauppsögnum
á ritstjórn. Upphaf hennar mun
hafa verið auglýsingakálfur frá
samtökunum Viðskipti og verslun
sem birtur var i blaðinu i s.l. viku.
Auglýsingadeild Visis mun hafa
krafist þess að þessar fjórar aug-
lýsingasiður yrðu settar upp með
sama hætti og sama fyrirsagna-
letri og venjulegar fréttasiður.
Útlitsteiknarar Visis og ritstjórn
töldu þetta með öllu fráleitt og
óviðeigandi að þurrka þannig tit
hefðbundin mörk fréttasiðna og
auglýsingasiðna, jafnvel þótt
kálfurinn yrði að ööru leyti auð-
kenndur sem auglýsing. Davií
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri og Hörður Einarsson
stjórnarformaður og fyrrum rit-
stjóri studdu hins vegar sjónar-
mið auglýsingadeildarinnar.
Um þetta mál var haldinn mikili
hitafundur sem lauk með algjör-
um vinslitum milli ritstjórnar og
framkvæmdastjórnar. ólafui
Ragnarsson, ritstjóri hefur verið
með uppsagnarbréfið tilbúið i
vasanum undanfarna daga og
krafist skýlausrar yfirlýsingar
útgáfustjórnar Visis um að rit-
stjórn bíaðsins fái að vinna sin
störf i friði fyrir fjármálastjórn-
inni. Legið hefur i loftinu að i kjöl-
far uppsagnar hans segðu helstu
burðarásar ritstjórnarinnar,
Elias Snæland Jónsson, rit-
stjo'rnarfulltrúi og Sæmundur
Guðvinsson, blaðamaður einnig
störfum sinum lausum svo og út-
litsteiknarar þess og hugsanlega
fleiri blaðamenn. Algjör einhugur
mun vera um þetta mál meðal
starfsmanna ritstjórnar og Ellcrt
B. Schram, ritstjóri sem nti er
staddur i Bandarikjunum hefur
tilkynnt samstöðu með sjónar-
miðum hennar. Helstu eigendur
Visis hafa verið að reyna að bera
klæði á vopnin undanfarið og áttu
málin að skýrast nú undir helg-
ina. Undarlegt hvað ófriðurinn
ætlar iengi að loða við Visi...
9 Sex ár eru nú liðin siðan
bankamálanefnd gerði að tillögu
sinni að Útvegsbankinn og
Btinaðarbankinn yrðu sameinað-
ir. Sú tillaga náði ekki fram að
ganga sökum andstöðu Fram-
sóknarmanna og forystumanna
bændasamtakanna. Málefni Út-
vegsbankans eru nú komin á svo
alvarlegt stig að Tómas Arnason
telur sig knúinn til að gera eitt-
hvað i málinu. Herma sögusagnir
að hann hafi nti i huga að leggja
til sameiningu Útvegsbankans og
Landsbankans en þó þannig, að
ýmsir af „verri” viðskiptavinum
Útvegsbankans verði látnir flytja
viðskipti sin i Búnaðarbankann.
Til að greiða fyrir málinu verði
Búnaðarbankanum svo veitt
heimild til gjaldeyrisviðskipta.
Þéssum „pakka” fylgir lika.að
sögn, að bankastjórum Útvegs-
bankans verða tryggðar nýjar
stöður og Seðlabankinn fær hús
Útvegsbankans við Lækjartorg...
# Og meira tir bankaheiminum:
A sinum tima kom hér upp svo-
kallað ávisanakeðjumál og vakti
mikið umtal. Siðan hafa mál af
þvi tagi að mestu horfið úr sög-
unni, en eftir þvi sem við heyrum
hefur nú skotið upp kollinum ann-
ars konar „keðjumál” sem for-
stöðumenn bankanna hafa nokkr-
ar áhyggjur af. Þetta eru svo-
kallaðar vixlakeðjur og byggjast
á eftirfarandi: Fyrirtæki i versl-
un og viðskiptum lána iðulega
viðskiptavinum sinum vöru gegn
afborgunarkjörum á svokölluðum
viðskiptavixlum. Bankarnir
Kaupa siðan þessa viðskiptavixla
af fyrirtækjunum og hafa flest
fyrirtæki ákveðinn vixlakvóta hjá
viðskiptabanka sinum i þessu
skyni, þ.e. að bankarnir kaupa af
fyrirtækjunum viðskiptavixla
upp að ákveðinni fjárhæð i hverj-
um mánuði. Nti eru fyrirtækin
mismunandi, þannig að eitt fyrir-
tæki er með aðalsölutimann að
vetrarlagi meðan annað selur
mest að sumarlagi. Fyrirtækið
með vetrarsöluna fyllir þannig
kvóta sinn á þeim árstima meðan
fyrirtækið með sumarsöluna nýt-
ir kvóta sinn að sáralitlu leyti.
Þess vegna hafa skapast aðstæð-
ur fyrir þessi tvö óliku fyrirtæki
að versla með vixlakvóta hvors
annars, þannig að yfir vetrartim-
ann lánar sumarsölufyrirtækið
vetrarsölufyrirtækinu af ónýttum
vixlakvóta sinum með viðskipta-
vixli. Þessi viðskiptamannavixill
getur allt eins verið til persónu-
legra nota forsvarsmanns vetrar-
sölufyrirtækisins, t.d. til bila-
kaupa eða byggingaframkvæmda
og hann fær þarna lánsfjármagn
á hagstæðustu kjörum — á venju-
legum vixilvöxtum sem eru hinir
lægstu sem um er að ræða á lána-
markaðinum nú. Að sumarlagi er
þessu hins vegar öfugt fariö — þá
endurgeldur vetrarsölufyrirtækið
forstöðumanni sumarsölufyrir-
tækisins greiðann og lánar honum
af vixlakvóta sinum. Erfitt mun
að stemma stigu við misnotkun af
þessu tagi, amk. hjá hinum stærri
bankafyrirtækjum þar sem öll
viðskipti af þessu tagi fara i gegn-
um tölvur og litið eftirlit haft með
þeim...
# Visir er um þessar mundir að
vinna skoðanakönnun um fylgi
við forsetaframbjóðendurna.
Stuðningsmenn Guðlaugs Þor-
valdssonarbinda miklar vonir við
þessa skoðanakönnun og vilja
jafnvel halda þvi fram að tirslit
forsetakosninganna ráðist i
henni. Telja þeir að verði niður-
staða hennar hin sama og i Dag-
blaðskönnuninni, sem sýndi að i
baráttu stefndi milli Guðlaugs og
Vigdisar Finnbogadóttur, þá
muni Visiskönnunin leiða til þess
að margir kjósendur sem hafi
fram til þess verið annað hvort
hallir undir Albert Guðmundsson
eða Pétur Thorsteinsson, fylkja
sér á bak viö Guðlaug i sjálfri úr-
slitaorustunni...
# Kosningabarátta fyrir for-
setakosningarnar i næsta mánuði
hefur hingað til verið fremur hóf-
stillt og drengileg. Nú er hins veg-
ar að verða þar breyting á. I röð-
um fylgismanna einhvers fram-
bjóðandans virðist sem farið sé
að gæta verulegrar örvæntingar
út af þvi fylgi sem Vigdis Finn-
bogadóttir sýnist njóta. þvi að
einhverjir hafa brugðiðá það ráð
að dreifa um Breiðholtið nafn-
lausu og svæsnu rógsbréfi. Við
verðum að vona að málstaður
mótframbjóðenda Vigdisar sé
sterkari en svo að grlpa þurfi til
meðala af þessu tagi i þeirri bar-
áttu sem framundan er...
# Hljómplötufyrirtækið Steinar
h.f. er að stækka við sig. Fyrir-
tækið hefur hingað til fengist við
útgáfu á islenskum hljómplötum
og innflutning á erlendum og er
aö hálfu I eigu Steinars Berg, og
hálfu i eigu Karnabæjar. Nú er
verið að ganga frá samningum
þess efnis að Steinar h.f. kaupi
þrjár hljómplötuverslanir Karna-
bæjar í Reykjavik. Verslanir
þessar, sem eru við Laugaveg,
Austurstræti og i Glæsibæ, verða
þvi i eigu Steina h.f. og stjórnað af
starfsfólki þess fyrirtækis, sem
reyndar hefur annast öll innkaup
verslananna um árabil og stjórn-
að þeim af meira eða minna
leyti...
# Sjálfsævisaga Tryggva
Emilssonar, verkamanns sem nú
er öll komin út i þremur bindum
samtals er þegar komin i röð si-
gildra bóka islenskra. En Tryggvi
hefur lagt stund á aðrar greinar
bókmennta en ævisöguritun og
m.a. hafa komið út eftir hann
ljóðabækur. Helgarpósturinn
heyrir núna að fyrir næstu jól
standi til að út komi hjá Máli og
menningu safn nýrra smásagna
eftir Tryggva og verður vafalitið
fróðlegt að sjá hvernig smá-
sagnaformið hentar þessum
aldna rithöfundi...
# Þá hefur heyrst að annar af
nýráðnum leikhússtjórum Al-
þýðuleikhússins Lárus Ýmir
Óskarsson verði ráðinn leikstjóri
annarrar þeirra tveggja bió-
mynda i fullri lengd sem styrki
fengu úr Kvikmyndasjóði nú i
vor, — Konu eftir leikriti Agnars
Þórðarsonar sem þeir Ernst
Kettler og Páll Steingrimsson
standa að...
# Við sögðum frá þvi á dögun-
um að alla útgerðarráðsmenn i
Bæjarútgerð langaði með frúm til
Pórtúgal að sækja nýja togarann,
sem þar verður afhentur næstu
daga. Nú hefur hins vegar fengist
úr þvi skorist hverjir fara og að
áhöfn togarans kemst fyrir. Hinir
útvöldu útgerðarráðsmenn eru:
Björgvin Guömundsson, Kristvin
Kristvinsson og Ragnar Július-
son, allir með eiginkonur en að
auki framkvæmdastjórar fyrir-
tækisins...