Helgarpósturinn - 20.02.1981, Page 11
halrjrirpn^tl irinn Föstudagur 20. febrúar 1981.
— Fótk sá grunsamlega
menn á hverju strái og til-
kynnti lögreglu. Þegar þeir
grunsamlegu náöust síðan,
þá kom oft fyrir að þar
fóru óeinkennisklæddir
lögreglumenn í leit að
Náttfara. —
heyra þrusk inni úti á svölum eöa
uppi á þaki hjá sér og þar færi
vafalaust Náttfari og hygði á
innbrot. Lögreglan haföi i ýmsu
aö snúast vegna þessara tilkynn-
inga og þær voru ófáar fýluferö-
irnar sem lögreglan fór vegna
slikra tilkynninga sem orsökuö-
ust vegna imyndunar eöa tauga-
veiklunar fólks.
t>á var og ekki minna um þaö,
aö fók geröi lögreglunni viövart
vegna grunsamlegra mannaferöa
i götunni eöa garðinum hjá sér.
Voru sumar næturnar þannig, að
svo virtist sem Náttfari væri á
feröinni nákvæmlega á sömu
minútunni i Vesturberginu og úti
á Seltjarnarnesi. Flestum þess-
ara tilkynninga varö þó lögreglan
aö sinna öryggisins vegna og oft
kom á daginn, aö þeir grunsam-
legu menn sem þarna voru á ferli,
voru engir aörir en óeinkennis-
klæddir lögreglumenn i leit aö
Náttfara. Og á meðan allt þetta
stóö yfir, hélt Náttfari kyrru fyrir
heima hjá sér og hafðist ekki aö.
Aðfaranótt föstudagsins 6.
ágúst komst þó á hann hreyfing á
nýjan leik — og þá svo um mun-
aði. Þá fór hann i sinn siðasta inn-
brotaleiöangur og jafnframt þann
árangursrikasta, þvi i þessari
ferö braust hann inn á hvorki
meira né minna en sex staði. Og
eftir ránsfenginn góða úr verslun
0. Ellingsen beindi Náttfari æ
frekar kröftum sinum að fyrir-
tækjum, enda meiri fjárvon á
slikum stöðum, en i heimahúsum.
En þessa nótt byrjaöi hann á þvi
að klifa upp á svalir og inn um dyr
Vöruhappdrættis StBS i Suöur-
götunni og braut þar upp skrif-
borð og peningaskáp, en fann aö-
eins 3.600 gkr. Þaöan fór hann inn
i tvö hús ofar i Suöurgötunni,
sem eru i eigu Krabbameinsfé-
lags Islands. Olli hann þar nokkr-
um spjöllum, en 7.600 krónur fann
hann þar i peningum og haföi meö
sér.
Úr Suöurgötunni hélt Náttfari
siöan á Vesturgötuna og þar inn
um glugga á skrifstofu heildsölu-
fyrirtækisins P. Ingvarssonar og
vann þar ýmis spell, en fjármuni
fann hann enga. Þá leit hann
einnig inn i vörugeymslu fyrir-
tækisins I. Pálmasonar og aö auki
inn i verslunina Stokkinn, sem er i
sama húsi, en haföi ekkert fémætt
á braut.
Inn um bak-
glugga á útsýn
En heldur betur datt Náttfari i
lukkupottinn, þegar hann fór inn
um bakglugga á feröaskrifstof-
unni Útsýn, viö Austurstrætiö.
Komst hann inná einkaskrifstofu
Ingólfs Guðbrandssonar forstjóra
með því aö brjóta upp dyr,
sprengdi siöan upp tvær skrif-
borösskúffur og fann þar umslög
full af erlendum gjaldeyri. Kom
hann sér siðan út með fenginn
sömu leiö og hann kom. Lætur
nærri að Náttfari hafi þarna kom-
ist yfir rúmlega 1,6 milljónir gkr.
i erlendum gjaldeyri af ýmsum
tegundum.
En þetta varö lokapunkturinn á
innbrotaferli Náttfara. Viku siðar
var hann handtekinn og fljótlega
viöurkenndi hann brot sin, þegar
lögreglan tók að yfirheyra hann.
Gripinn
af tilviljun
Er Helgarpósturinn haföi sam-
band við rannsóknarlögregluna
og bað hana aö rifja upp Nátt-
faramáliö og þá fyrst og fremst
hvernig lögreglan heföi náö að
góma manninn, var þvi svaraö
til, aö rannsóknarlögreglan gæti
ekki skýrt fjölmiölum frá þvi
hvernig unnið væri aö sakamál-
um sem þessum. Eftir upplýsing-
um sem Helgarpósturinn hefur
aflað sér eftir öörum leiöum, mun
þaö hafa verið hending ein að
Náttfari náöist. Náttfari var þá 25
ára gamall og haföi ekki komiö
nálægt neinum afbrotum svo vit-
að væri i nokkur ár, en þrivegis
hlotiö dóm og fangelsisvist vegna
þjófnaöa á árunum 1969 og ’70.
Mun nafn Náttfara hafa komið
upp viö rannsókn málsins, en
hann ekki talinn liklegur vegna
5—6 óflekkaöra áraá þessu sviöi.
Það geröist hins vegar, aö Nátt-
fari var kallaöur fyrir rann-
sóknarlögregluna vegna tékka-
máls, sem taliö var aö hann heföi
komiö nálægt. 1 þeim yfirheyrsl-
um munu Náttfarainnbrotin hins
vegar hafa veriö opnuö og eftir
nokkrar vifilengjur hafi Náttfari
tekiö að játa. Þá munu og fótspor
sem fundust i glugga feröaskrif-
stofunnar Otsýnar og voru eftir
Náttfara, koma heim og saman
við sérkennilegt munstur á skóm
sem sá grunaöi átti. Þegar
hringurinn lokaöist um Náttfara
og hann byrjaði aö játa, mun
hann hafa verið samvinnuþýður
við lögreglu og skýrt frá gjöröum
sinum skilmerkilega og án
undanbragða.
Sat Náttfari siöan i gæsluvarö-
haldi frá 12. ágúst til 11. okt. 1976
og dómur i máli hans gekk 30.
desember sama ár. Var Náttfari
dæmdur i 18 mánaöa fangelsi og
skyldi greiöa þær upphæöir sem
hann haföi tekiö ófrjálsri hendi og
einnig fyrir þau spjöll sem hann
haföi unniö á eignum manna á
ferðalögum sinum. Einhverju
góssins gat hann þó skilaö aftur,
eins og mestum hluta gjaldeyris
írtsýnar, en öðru haföi hann fyrir-
komiö. Var upphæöin sem hann
skyldi greiöa i tæpar 1,2 milljón
gkr. og skal minnt á aö þaö var á
verölagi ársins 1976.
Er nú frjáls maður
Helgarpósturinn telur ekki
ástæöu til aö greina frá nafni
Náttfara. Hann hefur þegar tekiö
út sina fangelsisrefsingu, en er nú
laus á skiloröi eöa til reynslu. I
næsta mánuöi mun hins vegar
þessu skilorðseftirliti ljúka og þá
Náttfari fyrrverandi alfariö frjáls
maöur. Hann hefur algjörlega
óflekkaö mannorö frá þvi þessir
atburöir geröust og stundar nú
sjósókn á Vestfjöröum.
Aö sögn lögreglunnar þekkjast
ekki mörg dæmi sviplik þessu,
þar sem innbrotsþjófi tekst aö
halda út jafnlengi á þessari braut
og Náttfari og jafnframt stunda
hana jafnstift. Engar stórfúlgur
haföi þó Náttfari út úr þessum
vafasama leik sinum — ef til vill
eitthvað i kringum 3 milljónir
gkr. ársins 1976.
Viltu eld?
Innbrotsþjófar eru ekki óþekkt
fyrirbæri á tslandi og veröa ekki.
Hins vegar hefur lögreglan
sjaldan eöa aldrei staðið jafn ráö-
þrota og gagnvart þjófnuöum
Náttfara, þvi hann var einkar bi-
ræfinn en fór samt ofuryarlega
að öllu þvi sem hann tók sér fyrir
hendur og var á bak og burt þegar
lögreglan var kvödd til. Afbrota-
menn af ýmsu tagi eru þó ekki
alltaf jafnfljótir af brotastaö. 1
lokin skal sögð saga i þvi sam-
bandi af brennuvarg einum sem
mjög hafði sig i frammi fyrir
nokkuö mörgum árum. Hann
haföi kveikt i viös vegar i bænum
á nokkrum vikum, þegar lög-
reglan haföi loks hendur i hári
hans. Þegar slökkviliösmönnum
var siöar sýnd mynd af brennu-
vargnum, þá könnuöust þeir
strax viö hann. Hann haföi nefni-
lega oftar en ekki veriö á bruna-
staö og fylgst með slökkviliös-
mönnum i baráttu við eldinn.
Meira aö segja, sögöust slökkvi-
liösmennirnir muna eftir þvi, aö
þegar stund heföi veriö milli
striöa I slökkvistarfinu og menn
hvilt sig og fengið sér sigarettu,
þá heföi brennuvargurinn jafnan
veriö fljótur aö gripa til kveikjar-
ans og bjóöa þeim eld!
— Náttfari hef ur tekið út
sinn dóm og stundar nú
sjósókn. —
Skiðagallar i herrastærðum......................... kr. 604,-
Skiðagallar i dömu- og unglingastærðum ............ kr. 400,-
Skiðagallar i barnastærðum ........................ kr. 331,-
Skiðavesti barna ................................ kr. 149,-
Vélsleðagallar..................................... kr. 536,-
Herraúlpur, „Duffy’s”,........................... kr. 493,-
Herraúlpur frá Marks & Spencer.................... 4cr. 597,-
Dömujakkar frá Marks & Spencer..................... kr. 545,-
Dömuúlpur, „Duffy’s”,.............................. kr. 480,-
Barnaúlpur, „Duffy’s”,............................. kr. 266,-
Ungbarnagallar, heilir ogtviskiptir, verðfrá ...... kr. 212,-
Athugið að framvegis verða beinir simar í verslunina:
Busahold ——■ Gijafavara •••••••••••••••••••••••••• 22114
Fatnaður — Skór...................... 12723
Raftæki — Ferðavörur — Leikföng........16441
Verslunarstjóri...................... 26414
DOMUS
^Radíóstofan hf
Þórsgötu 14 ■ Sími 14131:11314
Upphituð öryggishús fyrir allar
gerðir véla
Hvert kerji hannað
eftir aðstœðum
Fyrir: Verslanir, verksmiðjur, fisk
vinnshistöðvar, fiskiskip, útísvæði ojfi.
14 gerðir sjónvarpsvéla jyrir
mismunandi aðstœður
SP 1820 þarf 90 lux lýsingu, vinnur
vel við dagsbirtu
SP 1920 þarf 0,9 lux, fyrir lítið Ijós,
t.d. sícemmtistaði/útisvaeði
LL 779/AX-ISIT
þarf 5,4x104 lux
VM-9CX 9H
monitor
Einnig til 15"
og 19" monitorar
fyrir tölvur
LL 779/AX þarf
0,1 lux. mjög
litla lýsingu