Helgarpósturinn - 20.02.1981, Qupperneq 15
15
helgarpósturinn
Föstudagur 20. febrúar T981.
SÖFNUN
BÓKALESTUR
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri Reykjavik
TRYGGVABRAUT 1d SKEIFAN 9
S. 2171S 23515 S. 31615 86915
Mesta úrvallö, besta þjönustan.
Vlö útvegum yöur afslátt
á bllalelgubilum erlendls.
við nýjan grunnskóla á Akranesi, Grunda-
skóla er laus til umsóknar.
Umsóknafrestur er til 1. mars. Upplýs-
ingar gefur formaður skólanefndar i sima
93-2326.
Skólanefnd.
Galdrakarlar
Diskótek
Hafa lesið saman í fimmtán ár
Veitingahúsiö í
GLÆSIBÆ
Akraneskaupstaður
Staða skólastjóra
Lestur er án efa vinsælasta
tómstundaiökunin hér á landi. Aö
minnsta kosti er lestur meöal
þess sem flestir telja upp, þegar
þeir eru spurðir um áhugamál.
En auövitaö er ekki sama hvaö
eða hvernig er lesiö. A dögunum
fékk blaðamaður Helgarpóstsins
tækifæri til að kynnast óvenjulega
skemmtilegri lestraraðferö. Hér
er um aö ræða bókmenntaklúbb 9
kvenna, sem flestar hafa haldið
hópinn i 15 ár meö mánaöarlegum
fundum 9 mánuöi ársins.
Þessar konur eru þær Ragn-
heiður Viggósdóttir, Sigrún
Sigurbergsdóttir, Guörún Guö-
mundsdóttir, Þorbjörg Gisla-
dóttir Þórunn Jónsdóttir, Þórdis
Kristjánsdóttir, Erna Matthias-
dóttir, Katrín Egilsdóttir og
Jenna Jónsdóttir.
Milli funda lesa konurnar allar
sömu bækumar eöa aö minnsta
kosti sama höfundinn. Þegar þær
svo hittast, lesa þær upphátt
valda kafla eöa ljóö og ræöa svo
um bókina og höfundinn. Aöeins
einu sinni á ári bregöa þær út af
vananum, þvi á fyrsta fundinum
eftir jól lesa þær valda kafla úr
jólabókunum og segja stuttlega
frá þeim. Þannig kynnast þær
mjög fljótt nýjustu bókunum
hverju sinni.
1 þetta sinn haföi svo viljað til
að janúarfundurinn féll niöur, en
annars kemur ekki fyrir að sleppt
sé fundi.En núna var febrúar-
fundurinn sem sagt notaöur til aö
ræöa nýjar bækur og kenndi þar
margra grasa. Þarna mátti sjá
Heimkynni við sjó eftir Hannes
Pétursson. Hvað segja bændurnú
eftir Jón Bjarnason, Þaö á aö
dansa eftir Heinesen, Grikk-
landsáriö eftir Halldór Laxness,
Konur skrifa til heiöurs önnu Sig-
uröardóttur, Jónas og Fjölni eftir
Vilhjálm Þ. Gislason 99
ár — sögu Jóhönnu Egilsdóttur,
Haustviku eftir Áslaugu Ragnars,
og svo mætti lengi telja.
Þarna eru Islenskir höfundar i
meirihluta, en i klúbbnum er lika
talsvert lesiö af þýddum bókum.
Meðal þeirra erlendu höfunda,
sem teknir hafa verið fyrir má
nefna Camus, Ditlevsen, Singer,
Jersild og Heinesen, en bækur
hans eru lesnar jafnóðum og þær
koma Ut.
Á leslistanum er lika mikið af
þjóölegum fróöleik og ljóöum. Til
dæmis lásu þær allt, sem út hefur
komiö eftir Snorra Hjartarson
fyrir nokkrum árum og i fyrra
lásu þær verölaunabókina.
Nokkrum sinnum hafa rithöf-
undar komiöá fundina og er reynt
aö fá slika heimsókn minnst einu
sinni á vetri. Meöal þeirra sem
komiö hafa hingað til eru Þor-
steinn Valdimarsson, Guö-
mundur Hagallin, Einar Bragi,
Jón Ur Vör, Stefán Júliusson og
Gisli Ástþórsson. Þeirútskýra þá
sum verka sinna fyrir konunum
og svara fyrirspurnum.
Konurnar kváöust efast um að
þær myndu hafa sig i að lesa jafn
mikiö og þær gera, ef klúbburinn
kæmi ekki til. Þaö örvaöi veru-
lega til lestrar, þegar einhver
benti á skemmtilegt lesefni og
þegar kafliúr bókinni væri lesinn.
Þá festi þaö betur i minni að ræöa
um höfundinn og bókina og ekki
sakaði aö fá mismunandi sjónar-
miö fram. KlUbburinn er oft bú-
inn aö fjalla um bók áöur en rit-
dómur um hana er birtur og þá
hafa konurnar gaman af aö bera
saman eigiö álit og gagnrýnand-
ans.
Fundirnir eru haldnir á heim-
ilum kvennanna til skiptis og
ræöur sú, sem á aö halda hann
næst, hvað lesið er í þaö sinnið.
En stundum bregöa þær þó útaf
og lesa eitthvaö sem tengist liö-
andi stund. Þannig hafa þær
stundum lesið greinar og kvæöi
um voriö á þeim árstima, á ári
trésins leituöu þær fanga langt
aftur i timann og lásu ýmislegt
sem ritaö hefur veriö um tréð. Og
á þjóöhátiöarárinu 1974 var lesiö
mikiö af þjóölegu efni og sögu
þjóðarinnar. Þá, eins og viö ýmis
önnur tækifæri kom hver með þaö
af gömlum, fágætum ritum sem
hún á.
„Ætlunin er að prófa hvort ég
get lifað af hobbýinu”, sagði
Steinþór Ingvarsson i íslenska
frimerkjabankanum i samtali við
Helgarpóstinn.
Steinþór stofnað fyrirtækið
fyrir fáeinum árum, en það er
ekki fyrr en nú, sem hann sinnir
þvi á venjulegum vinnutima.
„Þetta byrjaði einnig, að ég
safnaði sjálfur frimerkjum og is-
lenskum jólamerkjum. Svo voru
menn farnir að koma til min og
biðja mig að útvega sér ákveðin
merki og þetta svona smá-vatt
upp á sig. Ég ætlaði hreint ekki að
fara út i þessa verslun”.
Það fyrsta sem Steinþór sér-
hæfði sig i voru jólamerkin. Núna
kvaðst hann vera kominn með
nokkuð góðan og viðfeðman lager
i þeim og taldi hann sig geta út-
vegað flest þeirra merkja, sem
gefin hafa verið út.
Jólamerki voru fyrst gefin út
hér á landi árið 1904 á vegum
barnahælisins Karitas. Þetta
merki var i rauninni danskt, en
var gefið út hér. Arið 1913 tók svo
Barnauppeldissjóður Thorvald-
sensfélagsins viö og A vegum
þess félags er enn gefiö út jóla-
merki árlega. Næst kom Fram-
tiðin á Akureyri um 1934, en sið-
ustu 20—25 árin hafa ein ellefu
félög bæst viö.
,,Þaö er vaxandi áhugi á þess-
ari söfnun”, sagði Steinþór. ,,Og
ekki aðeins hér á landi, þvi
nokkrir safnarar á hinum
Norðurlöndunum safna islensk-
um jólamerkjum. Islendingar
safna hins vegar ekki mikið er-
lendum merkjum, þaö er helst aö
færeysku jólamerkin veki hér
áhuga”.
Steinþór er meö skrifstofu sina i
(M)
Borða-
pantanir
Sími86220
85660
UNGUERSK
HdTÍÐ
AÐ HÓTEL LOFTLEIÐUM
17.-22. FEB.
' y Viö mælum meö:
í VÍKINGASAL
ngversku skemmtikvöldi. Mikill og góöur
matur.Sigaunahljómsveit ásamt söngkonu.
Matseölar veröa númeraöir og dregiö veröur
úr vinningum á hverju kvöldi. - Siöasta kvöldið
veröur svo dregiö um ferö til Ungverjalands.
í BLÓMASAL
Ungverskum sérréttum á kalda
boröinu i hádeginu.
Sigaunahljómsveit leikur.
I VEITINGABUÐ
Ungverskum rétti á boöstólum á vægu veröi.
Boröapantanir fyrir Vikingasal og Blómasal
isimum 22-3-21 og 22-3-22 Veriö veikomin,
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
Steinþór á nýju skrifstofunni.
ÁHUGAMÁLIÐ
VARÐ AÐ
AÐALSTARFI
Rætt við Steinþór Ingvarsson i
íslenska frimerkjabankanum
Nýja-bióhúsinu og þar hyggst
hann fyrst og fremst reka póst-
verslun, en fólk getur þó lika
komið á skrifstofuna.
Auk jólamerkjanna og fri-
merkja selur hann mynt af ýms-
um gerðum, aöallega þó erlenda.
Hann ætlar að vera með pönt-
unarþjónustu fyrir þá sem safna
mynt, enda er fjölbreytnin slik,
að tæpast er unnt að hafa alla
mynt á lager.
„Bresku heimsveldispening-
arnir eru vinsæl söfnunarmynt”,
sagði Steinþór. „Þessir peningar
eru gefnir út um allt heimsveldiö i
sömu stærð og með sama gildi.
Stjórnvöld á eyjunni Mön eru
einna iðnust við að gefa út nýja
mynt og nota til þess hin marg-
vislegustu tilefni. Eins er viða
mikið gefið út af gullmynt, sem
margir hafa áhuga á að safna. í
Kanada er til dæmis gefinn út á
hverju ári 100 dollara gullpen-
ingur. Slikur peningur er góð
fjárfesting, en safnari selur hann
bara aldrei. Það er nefnilega
helsta einkenni safnara, að hann
lætur helst aldrei frá sér það sem
hann einu sinni hefur náð i”.
Bókmenntaklúbburinn kemur saman mánaðarlega allan veturinn til að ræða bækur og höfunda.