Helgarpósturinn - 12.06.1981, Síða 9
halDarpn*H irinn F8studa9ur 12. júni iwn
9
VETTVANGUR
Ivar hlújárn og allar kelllngar
Rdaekka, þar heföi veriö jöfn-
uður, samhjálp og lifsf ylling.
Ekki þarf aö orölengja það, aö
svo miklu leyti sem tölur mega
sin einhvers. þá voru þessar
kenningar sannanlega rangar.
Pétur og Walter Scott
Pétur Pétursson, þulur, skrifar
grein i Helgarpóstinn og finnur að
þvi, að st jörn Alþýöuhússins skuli
hafa leigt kjallara undir þvi húsi
undir rekstur veitingahúss. Það
fer i taugarnar á Pétri að
veitingahúsið skuli vera fint og
vandað. Hann sér i rómantiskum
hillingum þá daga þegar þetta
Það er lifsskoðun út af fyrir sig
að það eigi helzt ekki aðrir að fara
út að borða eða i leikhús en Rolf
Johansen og Erlendur i SÍS, hlut-
skipti verkalýðsins eigi að vera
að standa fyrir utan
leikhúsdyrnar og selja eldspýtur.
Menn geta séð slikt i róman-
tiskum hillingum og talið slikt
skerpa stéttarvitundina.
Ég, fyrir einn, er ósammála
þessu. Min jafnaðarstefna er
meðal annars su, ao neyzlustig
eigi að vera hátt, úrval mikið og
gæði mikil, og launakjör slik að
allir geti veitt sér og sinum vel.
Og það sem meira er, ég tel slika
lifsskoðun engin svik við
EKKI BARA FYRIR ROLF-
HELDUR FYRIR ALLA
Danielle Mitterrand, eiginkona
nýkjörins Frakklandsforseta, tók
virkan þátt i kosningabaráttu
með karli sinum. Hún brýndi
mjög fyrir löndum sinum að
„sósialismi er ekki
fátæktarstefna”. Hvað þýðir, að
sósialismi sé ekki fátæktar-
stefna? Það þýðir einfaldlega að
þegar kjörin batna, meðal annars
og ekki sizt fyrir tilverknað
sósialista sjálfra, þá er eðlilegasti
hlutur i heimi að einnig breytist
smekkur og lífsstill hvers konar.
Hins vegar eru þeir jafnaðar-
menn til sem skynja ekki slika
þróun. Og jafnvel þó svo þeir
skynji hana þá hafa þeir imugust
á henni. Slikir menn sjá i hylling-
um baráttu kreppuáranna. Þeim
þykir — einkum vegna þess að
timinn hefur ruglað þá svolitið i
riminu — sem fátæktin hafi verið
fögur, atvinnuleysið
mannbætandi. Og vist er i slikum
kenningum sá sannleikskjarni að
oft herða erfiðleikar fólk og kalla
fram i' þvi' hina beztu eiginleika.
Minningarnar um þessi ár verða
að sárum söknuði.
Það er alkunn skynvilla i sagn-
fræðum að þegar mwinum mis-
h’kar eitthvað eða hafa réttmæta
skömm á einhverju i samtiðinni,
þá leita þeir ekki að lausnum i
framtlðinni, heldur rómantisera
fortiðina. Þannig fórst mörgum,
sem sáu réttilega grimmdina og
misréttið í iðnbyltingunni brezku
á frumbýlingsárum hennar. Þeir
tóku að sjá I hillingum gamla
landbúnaðar- og lénssamfélagið.
Upp úr þessu fæddist heil
hugmyndaf ræði manna sem
trúðu þvi statt og stöðugt að i þvi
samfélagi hefðu allir kallar verð
hús var reist — og saknar þess
sárlega að þeir timar séu liðnir.
Þegar Alþýðuhúsið var reist
var hér viðvarandi kreppa.
Verkafólk hafði litil sem engin
réttindi, var háð kúgunum at-
vinnurekenda. Atvinnuleysi var
sifellt á bak við hornið. Verka-
launum var á þann veg háttað, að
þau rétt dugðu fyrir brýnustu lífs-
nauðsynjum, ef þau hrukku þá til.
Þessir timar eru að þó nokkru
leyti blessunarlega hðnir. Ekki
sizt fyrir tilverknað verkalýðs-
hreyfingarinnar og bein og óbein
áhrif flokka hennar hafa efnaleg
kjör i landinu stórbatnað. Það er
rómantisk skynvilla að afneita
þessum staðreyndum. Þegar
talað er um bein áhrif stjórn-
málaflokka launafólks er átt við
þáttöku i' rikisstjórnum, starf i‘
verkalýðshreyfingu. Þegar talað
er um óbein áhrif er til dæmis átt
við það að ihaldið sá sig knúið til
að stofna bæjarútgerð og taka
þátt i að stofna almannatrygg-
ingar.
Verkalýðshreyfingin hefur litið
á það sem höfuðhlutverk sitt að
stuðla að bættum kjörum félags-
manna sinna. Auðvitað hefur þvi
miðað misjafnlega, og oft bein-
llnis illa, ef miðað er við
almennar tækniframfarir. Hins
vegar neitar þvi væntanlega
enginn — og þá varla Pétur þulur
— að shkar framfarir hafa átt sér
stað. Og þegar slikar breytingar
eiga sér stað, þá breytast venjur
og neyzlusmekkur manna —
hvort sem þeir starfa með huga
eða höndum. Baráttuvettvangur-
inn færist til. Gallar samfélagsins
eru i veigamiklum atriðum aðrir
en þeir voru á kreppuárunum.
fortiðina.
Eneinmittþað er hktmeð þeim
Pétri þul og Walter Scott að á
sama tíma og samtlðin fer i
taugarnar á þeim, með réttu eða
röngu, þá gefa þeir alfarið
villandi upplýsingar um fortiðina.
Scott vissi ekki betur, — en Pétur
þulur á að vita betur.
óleyfileg skekkjumörk
Þaö hefur verið reistur glæsi-
legur matstaður I Alþýðuhúsinu
viðHverfisgötu Það út af fyrir sig
er ekkert stórmál. Hinsvegar
mun það svo, að þau sem þennan
stað reka eru ekki rikisfólk, held-
ur fólk, sem áður starfaði á veit-
ingahúsum hér i borg, en lögðu
mikið undir til þess að geta rekiö
htinn, eigin stað og leigja þessa
aðstöðu til nokkurra ára. Það er i
hæsta mátarangláttað viljagera
þennan rekstur tortryggilegan.
Þetta húsnæði vará sinum tima
reist með höröum og vinnulúnum
höndum vinnandi fólks. En sann-
leikurinn er samt sá aö i tlmans
rás, þegar fleiri reistu hús til
samkomuhalds af ýmsu tagi, þá
uppfyllti þetta húsnæði engan
veginn þærkröfur, sem fólk gerði
tilsliks húsnæðis. Það varniður-
nýttog heldur ósjálegt. Til dæmis
hafði Alþýðuflokkurinn að veru-
legu leyti flutt starfsemi sina i
annað og hentugra húsnæði.
En það, út af fyrir sig, er
kannski ekki kjarni málsins.
Kjarni málsins er sá málflutning-
ur Péturs þuls, að þeir jafnaðar-
menn til að mynda, sem gera
miklar neyzlukröfur, ekki aðeins
fyrir sfna hönd heldur og fyrir
hönd annarra, hafi snúið baki við
mai s.j
'ennur j
<9*5 Sfc,
“I® 58 ár
jsiensks
°«.Iatóv»rt*Jdn,'r
.•vSbST /rkam ant
£yÖjendj
uppruna sinum og svikið fortið
sina.
Þetta eru, að minni hyggju,
voðalega vitlausar kenningar. En
það verður samt að segjast að að
baki þessari kenningu býr
hfsskoðun, sem fleiri hafi en
Pétur. Ég held að Pétri þyki það
ekki einasta þyersögn, að verka-
maður geti verið efnaður, honum
finnist það rangt svo ekki sé
dýpra tekið f árinni.t hans huga á
verkamaðurað eiga rétt til hnifs
og skeiöar. Það eitt er róman-
tiskt, það eflir móralinn, það er
eins og það var i gamla daga.
Bæöi siðferðis- og stéttarvitund
verður sterk við slikar aðstæður.
1 Straumsvik hins vegar vinna
verkamenn sem hafa góð laun,
búa vel, eiga góða bila, fara til
Spánar og taka virkan þátt i
menningarlifi. 1 raun finnst Pétri
það vera svik við fortiöina, plebe-
jismi — dæmi um slævða stéttar-
vitund.
Það sem menn almennt kalla
framfarir — með réttu eða röngu,
finnst Pétri þul að visu vera efna-
legar framfarir, hann viður-
kennir það sennilega, en siðferði-
leg afturför. Heimur versnandi
fer, það eru einkunnarorð þess-
arar útgáfu af Ihaldsmönnum
allra tima.
Nú væri allt þetta saklaust hjal,
ef hér væri við Petur þul einan að
eiga. Ensvo er aldeilis dcki. Það
er lifsskoðun fjölmargra, það er
stjdrnmálaskoðun, að „verka-
lýður”, „launamaður” eigi sam-
kvæmt skilgreiningu að búa við
lágt neyzlustig, frumstæöa
neyzlu. Það sé stéttarleg dyggð. 1
þvi sé fólgin sönn hamingja. Mér
er nær að ætla aö þeir sem hafa
farið með forustu i Verkamanna-
félaginu Dagsbrún um f jörtiu ára
skeið séu þessarar skoðunar. Þar
fara núorðið fullorðnir
heiðursmenn sem litra róman-
tiskum augum kreppuárin og
Grimsstaðarholtið eins og það
var. Arangurinn ef meðal annars
sá, aðDagsbrúnarmenn hafa ekki
fengið réttláta hlutdeild i þeim
efnalegu og tæknilegu fram-
förum,sem átt hafa sér stað siðan
á kreppuárunum. Kannske hefur
það skerpt stéttarvitund ein-
hverra. En mér er samt nær að
ætla, að til litils hafi verð barizt,
að miklu betur hefði mátt gera ef
menn hefðu þrusaö minna um
fortiöina og hugað meira að
framtiðinni.
Við Pétur þulur erum báðir
jafnaðarmenn, hvor með sinu
nefi. En jafnaöarstefna má ekki
vera og á ekki aö vera fátæktar-
stefna. Fátækt er ekki keppikefli i
sjálfu sér, jafnvel þó svo viö
slikar aöstæður komi margir
beztu eiginleikar mannskepn-
unnar 1 Ijós. Hlutverk okkar á
ekki að vera að beina
þjóðfélaginu til baka — jafnvel þó
svo fortfðin hafi verið virðuleg
um margt. Það er ekkert rangt
eða stéttfjandsamlegt við það að
verkamaðurinn drekki gott vin úr
dýru glasi — ef hann hefur gaman
af þvi. Það er svo sem enginn
mælikvarði, hvorki til eða frá. —
Nci, hlutverk okkar á þvert á
móti að vera, að sivaxandi auður
skiptist nokkurn veginn jafnt.
Vilm undur G ylf ason.
leikrit, og vilja þvi láta
L/ setja lögbann á þáttinn.
Umsjónarmenn
þáttarins telja þetta hins vegar
ekki vera leikrit heldur einskonar
myndverk þjóðsöguna og þar af
leiðandi ekkert koma hagsmun-
um leikara við. Hér eru þvi um að
ræða tvö sjónarmið* hvort telja
beri þetta myndverk eða leikrit,
og nú er bara að sjá hvort leikar-
ar fá sitt fram...
• Sjónvarpsmenn og útvarps-
ráðsmenn vita ekki almennilega
hvað á þá stendur veðrið um
þessar mundir. Staða dagskrár-
fulltrúa við frétta-og fræðsludeild
sjónvarps hefur hingað til ekki
verið talin hin eftirsóttasta við þá
stofnun, þvi að engin rosalaun eru
þar i boði. Engu að siður hefur 21
umsókn borist um þetta starf sem
lcsnaði þegar Baldur Hermanns-
son flutti sig um set og gerðist
dagskrárgerðarmaður I stað
Karls Jeppersens. Umsækjendur
um starfið eru flestir ungir að ár-
um og með litla reynslu, en þó eru
á meðal þeirra nokkrir nafnkunn-
ir menn, þeirra á meðal Böðvar
Guðmundsson, skáld, Guðmund-
ur Ingi Kristjánsson, fréttaþulur
á sjónvarpinu og nú afleysinga-
maður á fréttastofu útvarps, og
Guðlaugur okkar Bergmundsson
blaðamaður á Helgarpósti — in
absentia þessa stundina, meðan
hann hjálpar við að koma Gisla
Súrssyni á filmu...
• Og enn ein uppsagnarfréttinn
úr sjónvarpinu, þar sem reynt
starfsfólk hverfur nánast burt i
viku hverri. Nú hefur Björn Bald-
ursson, dagskrárritst jóri sagt
starfi sinu lausu og hættir i haust.
Sagt er að ástæðan fyrir uppsögn
Biörns, sem unnið hefur við sjón-
varpið I um sex ár, séu launa-
kjör, og hyggst hann halda i betur
launað starf á hinum almenna
vinnumarkaði...
• Sigmari B. Haukssyni út-
varpsmanni dettur ýmislegt i hug
og hefur áhuga á mörgu. Eins og
útvarpshlustendur hafa tekið eft-
ir hefur Sigmar verið f jarverandi
úr Vettvangsþætti þeirra Astu R.
Jóhannesdótturum skeið og ölaf-
ur Ragnarsson útgefandi hlaupið
i skarðið. Eftir þvi sem við heyr-
um er Sigmar i viðskiptaferð i
Saudi-Arabiu. Og hvaða viðskipti
eru það? Jú, Sigmar er sagður
standa i samningaviðræöum við
Arabana um kaup á gangstéttar-
hellum héðan! Mun Sigmar hafa
stofnað fyrirtælfi um þetta hellu-
mál með Eiriki Tómassyni lög-
fræðingi. Það er ekki að spyrja að
hugmyndaflugi Framsóknar-
manna...
• t vikunni var skýrt frá þvi
hverjir fá hin árlegu starfslaun
listamanna. Eftir þvi sem
Helgarpósturinn hefur fregnað
fer þvi hins vegar fjarri að um
þessa úthlutun hafi rikt eining.
Mun verulegur ágreiningur hafa
orðiö á fundi úthlutunarnefndar-
innar fyrir siðustu helgi milli
Thors Vilhjálmssonar, rithöfund-
ar annars vegarogþeirra Runólfs
Þórarinssonar.fulltrúa i mennta-
málaráðuneytinu og Magnúsar
Þórðarsonar, framkvæmdastjóri
hins vegar. Samkomulag tókst að
visu um ýmsa listamenn, en mik-
iðósættivarð vegna annarra. Er
þetta i fyrsta skipti sem ekki tekst
að ná samkomulagi i nefndinni og
greiða þarf atkvæði um ákveðna
menn. Mun Thor Vilhjálmsson
hafa gert athugasemdir við það
m.a. að eldri og ráðsettari lista-
menn skuli ganga fyrir yngri
mönnum sem eru að reyna að
koma undir sig fótunum. Aðal-
hvellurinn mun hafa orðið út af
veitingu sex mánaða starfslauna
til Jóhannesar Helga sem þegar
nýtur fimm mánaða starfslauna
úr launasjóði rithöfunda og er þar
með hæst styrkti listamaður
landsins með ellefu mánaða laun
alls, og ennfremur urðu miklar
deilur um þriggja mánaða starfs-
laun til Aslaugar Ragnars. Fleira
varð þó að ásteytingarsteini en
þessi tvö, og er sagt að Thor hafi
gengið af fundi i mótmælaskyni
eftirað hafa krafist þess að boðað
yrði til blaöamannafundar vegna
þessara deilna, en meðnefndar-
menn hans höfnuðu þvi...
® Stjórn Flugleiða kom saman
til fundar i gær og var fjallað um
tillögur bandarisks ráðgjafafyrir-
tækis um framtið Atlantshafs-
flugsins. Þær tillögur munu
ganga úr á það, að stofnað verði
sérstakt flugfélag með Luxem-
borgarmönnum, nánar tiltekið
Luxair, og Cargolux, um þetta
flug. Ekki var talið að þessi til-
laga fengi hljómgrunn i stjórn
Flugleiða i gær...
I framhaldi af frásögn blaðs-
ins af málefnum Iscargo má bæta
við að Martin Petersen, fyrrum
Flugleiðamaöur sem gerðist
markaðsráðgjafi hjá Iscargo, er
hættur störfum og mun hyggja á
stofnun innflutningsfyrirtækis.
Það er staða Martins sem viöræð-
ur hafa farið fram um að Guðni
Þórðarson taki við...
Sú skoðun er sögð orðin út-
breidd innan Sjálfstæðisflokks-
ins, að rikisstjórn Gunnars
Thoroddsen muni sitja út kjör-
timabilið eða tilársins 1983. Segja
kunnugir að likur bendi til að
Gunnar muni stila upp á að
tvennar alþingiskosningar fari
fram það ár. Hann muni verða i
framboði i þeim fyrri, en siðan
verði boðað til nýrra kosninga
siðar á árinu vegna stjórnar-
skrárbreytinganna og þá hyggist
Gunnar draga sig i hlé. Þannig
ætli dr. Gunnar að skrifa sitt
„grand exit” i þvi pólitiska leik-
verki sem hann hefur verið aðal-
persónan i um skeið...
• Töluverð ólga mun vera inn-
an Prentsmiðjunnar Eddunar
um þessar mundir. Nýr fram-
kvæmdastjóri, Þorbergur Ey-
steinsson, tók þar við völdum fyr-
ir nokkrum misserum, af Stefáni
Jónssyni, sem gegnt hafði fram-
kvæmdastjórastarfinu um árabil.
Siðan hefur gengið á ýmsu og ekki
allir verið á eitt sáttir um það
hvernig staðið hefur verið að
rekstri þessa forna vigis Fram-
sóknarmanna i borginni. Keypt
var skemma i Kópavogi af
Kristni Finnbogasyni og starf-
semi prentsmiðjunnar fluttþang-
að úr gamla Edduhúsinu i
Skuggasundi og jafnframt fjár-
fest i nýjum tækjabúnaði, sem
þykir hafa reynst misjafnlega.
Nú siðast heyrum við, að til sliks
ágreinings hafi komið milli fram-
kvæmdastjórans og yfirverk-
stjórans Kristins Sigurðssonar,
að hinn siðamefndi hafi yfirgefið
fyrirtækið i fússi og að i hans stað
sé búið að ráða hljómlistarmann-
inn kunna, Magnús Ingimarsson,
sem yfirverkstjóra...
• Lengi hefur Bjarni Pálsson
verið skólastjóri Héraðsskólans
aö Núpi i Dýrafirði. En nú hverf-
ur Bjarni á Núpi frá Núpi. Hann
hyggst hefja nám við viðskipta-
fræðideild Háskóla tslands næsta
vetur. Við skólastjórastörfum
tekur Ingólfur Björnsson sem
kennt hefur á Núpi um árabil...
Leiðrétting
t smáklausu i siöasta blaði var
sagt að Útsýn hefði komið til að-
stoðar farþegum á vegum Ferða-
skrifstofu Guðmundar Jónas-
sonar i Vin. Það er ekki rétt.
Þetta voru ekki farþegar á vegum
Guðmundar, sem ekki er með
ferðir til Austurrikis. Beðist er
velvirðingar á þessari villu.