Helgarpósturinn - 31.07.1981, Qupperneq 27
haljarpr,'*, .rinr, ■ FðstudagOr 31. juli 1981
27
ÚR HEIMS VÍSINDANNA
Umsjón: Þór Jakobsson
Isaac Newton — var hann á undan?
... eða var það Gottf ried Wilhelm von Leibniz?
Uppgötvanir og heiðurinn
Stundum hefur leikiö vafiá þvi,
hvaða vi'sindamaður eigi að
hljóta heiöurinn af þvi aö hafa
verið fyrstur á ferðinni með til-
tekna vísindalega uppgötvun. NU
á dögum mikillar vfsindastarf-
semieru menn tiltölulega snöggir
að koma verkum sinum á
framfæri, en áður fyrr gat slikt
dregist af ymsum ástæðum.
Bæði fyrr og siðar hefur það
komið fyrir aö mikilvægri hug-
mynd skytur samtimis niður i
kollinn á tveimur eða fleiri mönn-
um, sem glima við sömu gátuna.
Þetta er eðlilegt og oftast skipta
menn heiðrinum með sér i sátt og
samlyndi. Stundum fer þó allt i
bál og brand, klögumálin ganga á
víxl, áhugamenn um sams konar
visindaleg vandamál verða harð-
svíraðir keppinautar og erfða-
fjendur i stað þess að taka upp
eða halda áfram fræðilegum um-
ræðum.
Snillingsævi.
Frægustu deilur þessa eðlis
urðu um aldamótin 1700. Siðustu
áratugina fyrir þau aldamót var
ein af grundvallargreinum stærð-
fræðinnar sett á laggirnar, diffur-
og tegurreikningur (differensial-
og integralreikningur). Eins og
flestum er kunnugt, sem gengið
hafa i' menntaskóla, eru aðferðir
þessar mjög mikilvægar i mörg-
um greinum stærðfræði- og
náttiíruvfsinda.
Að þeirri stökkbreytingu i
framþróun náttUruvisindanna,
sem uppgötvun þessi var, stóðu
tveir jöfrar andans, Englend-
ingurinn Isaac Newton og þýski
heimspekingurinn Gottfried Wil-
-helm von Leibniz. A myndunum
sjáum við þá i finu fötunum,
þykkir lokkar hárkollunnar pryða
höfuð og herðar á miöaldavisu,
friðsælt yfirbragðið ber vitni um
sjálfstraust þess sem hefur farið -
með sigur af hólmi og hafinn er
yfir smámunina.
Enginn getur greint i þessum
tigulega svip, að hver hefur sinn
djöful að draga þrátt fyrir allt:
sjálfan sig. Þrátt fyrir frægð og
frama i lifenda lifi áttu þeir sin
svörtu skeið þessir leiðtogar
okkar í leit að sannleikanum,
smáræði vex þeim i augum,
hégómlegar hvatir raska ró
þeirra, ti'minn og dýrmætir
vinnudagar riðlast í áhyggjum,
gremju og lamandi þunglyndi.
Þessa i'milli rofar til og leyndar-
dómar nátlUrunnar eru afhjúp-
aðir einn af öðrum : snilligáfan er
að verki — og skilningur mann-
kynsins á umhverfinu verður ekki
hinn sami eftir, heldur sannari og
dýpri.
Newton eöa Leibniz?
Newton og Leibniz eru báðir
upphafsmenn diffur- og tegur-
reikningsins, en hvor var á
undan? Um það var deilt árum og
jafnvel áratugum saman á sinum
Uma og skiptust menn i hat-
rammar fylkingar, annars vegar
fylgjendur Newtons og hins vegar
þieir, sem aðhylltust Leibniz.
Voru þeir siðarnefndu aðallega á
meginlandinu.
Siðasta áratuginn hafa komið
Ut tvær athyglisverðar bækur,
sem fjalla um þessar sögufrægu
deilur. Þær styðjast við nýkann-
aðan efnivið frá þessu timabili og
hafa þær vakið mikið umtal hjá
áhugamönnum um sögu visind-
anna. Fram til þessa hefur al-
mennt verið álitið, að höfuð-
persónur leiksins, þeir Newton og
Leibniz.hafii' rauninni verið hálf-
gerðir statistar á sviöinu — ef
ekki, þá hafi þeir kannski frekar
reynt að skakka leikinn og latt
hirðmenn sína gífuryrðánna. En
nU er að sjá, að þeir hafi verið
þeim mun ötulli að tjaldabaki og
lagt á ráðin af miklum klókindum
sér til framdráttar, — likt og ráð-
rikur kirkjuhöfðingi, sem halda
vill virðingu sinni.
Saga sjálfrar uppgötvunar-
innar virðist nU nokkuð ljós.
Newton var fyrri til og vann hann
Ef þið eigið leið um Hvalfjörð er sjálfsagt
að koma við í
SÖLU-
SKÁLAMUM
Okkar ágætu afgreiðslumenn sjá um að láta olíur og bensín
á bílinn, og á meðan getið þið fengið ykkur hressingu.
— Við bjóðum:
Kaffi — Te — Ö/ — Gosdrykki — Samlokur — Smurt brauð
— Nýbakaðar skonsur — K/einur — Pönnukökur o. fl.
meðlæti — Heitar pylsur — Og siðast en ekki sist
GOTT VIÐMÓT - VER/Ð VELKOMIN
Olíustöðin Hvalfirði - Sími 93-5124
verkið á arunum 1664 til 1666'.
Það var um niu árum áður en
Leibniz uppgötvaði aðferðirnar
óháður árið 1675. Hins vegar var
Leibniz á undan að gefa Ut hug-
smið si'na, þ.e.a.s. árið 1684, en 20
ár liðu enn þar til Newlon lét
prenta sinar uppgötvanir. Viö
þessa óreglulega forsögu bæUst
sU vitneskja að Newton sendi
Leibniz tvær stærðfræðilegar rit-
gerðir árið 1676. Einnig hafði
Leibniz lesið stærðfræðihandrit
eftirNewton i stuttri heimsókn til
London þessi árin. Vist er þó að
ritgerðir þessar fjölluðu ekki um
þessar miklu uppgötvanir, sem
hér er sagt frá. En aðgangur
Leibniz að ritum hins og dráttur-
inn á Utgáfu verka Newtons olli
óvissunni siðar og ásökunum á
báða bóga um hugsmiðarstuld.
Guðs eini heilagi.
Hinum bitru deilum er lýsl i
bókunum tveim (,,A Portrait of
Isaac Newton”, endurUtgáfa 1979
hjá New Republdck Books, og
Philosophers at War”, gefin Ut
árið 1980 af Cambridge Univer-
sity Press). óvæntar hliöar á
mikilmennunum koma i ljós.
Newton virðist haldinn árásar-
hneigö. Hann virðist hneykslast á
keppinaut sinum að gerast svo
diarfur að eigna sér einstæöar op-
inberanir Sir Isaacs sjálfs.
Ýmisiegt styrkir Newton i trU
sinni á yfirnáltúrlegar gáfur
sinar. Var hann kannski ekki
fæddur á jóladaginn? Dó ekki
faöir hans áður en sonurinn,
Isaac fæddist? Það var haft fyrir
satt að sá drengur sem missir
föður sinn fyrir fæðingu, hann
fengi yfirnáttUrlegar gáfur i
vöggugjöf.
Þrátt fyrir áhættu mun Sir
Isaac hafa efast um guðdóm JesU
Krists. Ekki er þó þar með sagt
að Guðhafisetið eftir einn og syni
sviptur, þvf að undirskrift á latinu
hefur fundist á dálitlu blaði, sem
nokkuð djúpt var á i skjölum
snillingsins: ,,Isaacus Neutonus
— Jeova sanctus unus”, sem Ut-
leggst: „Isaac Newton — Guðs
eini heilagi”.
Já, þvi ekki það, annað eins
hefur þótt vert athugunar. Hver
talar? Höfundur lögmálsins um
aðdráttaraflið, sem alls staðar
rikir, i smæstu ögnum og um óra-
viðan stjörnugeiminn, hugsuður-
inn, sem Albert Einstein taldi
engan fremri hafa verið i inn-
lifun, nær leyndardómum sköp-
unarverksins.
Hinn
vinsæli
Thor
kominn
aftur
Heilsölubirgðir:
Xco hf.
Símar 27979 og 27999