Helgarpósturinn - 25.09.1981, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 25.09.1981, Blaðsíða 24
Föstudagur 25. september 1981 helgarpÓSÝUhnn Þá mun Nýja Kompaniiö hafa leikiö djass i Arseli siðasta sunnudag. En Nýja kompanliö skipa þeir: Sigurður Flosason, Sveinbjörn I. Baldvinsson, Jó- hann G. Jóhannsson, Tómas R. Einarsson og Sigurður Valgeirs- son. Munu þeir félagar vera að kynna djassinn frá ýmsum tima- bilum og segja sumir, að ekki muni af veita.þar sem djassvit- und unglinganna sé ekki á hærra stigi en svo, að þeir þekki varla be-bop frá free-djass. Nóg um það; þeir sem hafa áhuga á að kynna sér djassinn betur, er bent á að Nýja Kompaniið verður i Tónabæ 27. þessa mánaðar og i Þróttheimum 4. október. Og Stuð- i arinn getur lofað hinni bestu skemmtan.... Kristbjörg og Þorbjörg ffla tónlistina i Arseli Björgvin og Ósk máttu ekkert vera að þvi að ..Viö sitjum hér og ræðum mikilvæg málefni’’ i botn. tala við Stuðarann. sögðu þær Gunna, Hanna og Helga. BLA BLA B Það eru vafalaust margir sem halda að poppskribentar séu menn sem ekkert bitur á. En annaö kom á daginn, þegar Páll Pálsson, poppskribent Helgarpóstsins.kom skriðandi upp tröppurnar á Siðumúla 11, grátklökkur með bauga undir augunum. Hann var að tilkynna ritstjórn að hann treysti sér ekki að skrifa dóma um plötu Jakobs Magnússonar, ,, A Historic Glimpse Of The Future”. Og ástæðan fyrir sálarástandi Páls var: Andvökunótt við að reyna að finna eitt jákvætt lýsingarorö um þessa plötu. Gróskan i nýbylgjunni er alveg ótrúiega mikil um þessar mundir hér á Islandi, og maður er fyrir löngu hættur að kippa sér upp við fregnir af nýstofnuðum nýbylgju- hljómsveitum. Stuðarinn kom við um daginn i nýstofnuðum klúbbi NEFS og hlustaði á hljómsveit- irnar Purrk Pillnikk og Q4U,sem væri svo sem ekki i frásögur fær- andi, nema sökum þess að sviðs- framkoma Q4U var einkar lifleg. 1 hljómsveitinni eru tvær stelpur, og gerði önnur þeirra sér litið fyrir og svipti nokkrum klæðum i hita spilamennskunnar og stóð á sviðinu i nokkurs konar nærbux- um, sokkum og sokkaböndum einum fata. Ekki er að spyrja að þvi að athæfi þetta vakti mikla hrifningu áheyrenda og áhorf- enda. Enda við Frónbúar ekki vanir grófum uppátækjum sem þessu. Þetta dugði þó ekki til að vekja hrifningu mina á tónlist- inni, þvi hún var ekki eins mögnuð. En fyrst við erum nú að tala um þessa tónleika,má bæta þvi við að Purrkurinn var ákaf- lega skemmtilegur, og er það fyrst og fremst söngvaranum Einari að þakka. Þarf hann ekki að tina af sér spjarirnar til að ná hylli áheyrenda... Og talandi um islenska tónlist: Núeruskallapoppararnir Gunnar Þórðarson og Jóhann Helgason að huga að breiðskifu. Ekki munu þeir þó gefa út eina saman, heldur sinn hvora. Jói Helga ætl- ar þó fyrst að koma með tveggja- laga plötu með hitlögum. Stuðar- inn hefur hlerað að þau muni vera i ætt við lagið hans Jóa G. „Don’t Try To Fool Me”. Það er Steinar h/f sem gefur þessar plötur út.... Visnavinir eru nú að hefja starfsemi sina eftir sumarfriið. Stuðarinn hefur haft spurnir af þvi að visnavinurinn Guðmundur Arnason sé i þann veginn að kýla á breiðskifu með ljúfum melódi- Margrét og Þuriður... hafa áhuga á dansi, skiðum og borðtennis. Hér svarar Bessi samviskusamlega spurningum blm. Tröllum og tjúttum — í nýju félagsmiðstöðinni Arseli Enn ein félagsmiðstöðin hefur risið upp á höfuðborgarsvæðinu: féiagsmiðstöðin Arse'I. Stuðarinn fór I könnunarieiðangur þangað eitt kvöldið, hafði hierað að það ætti að vera opið hús, með diskó- teki. Það var ekki laust við að Stuðarinn væri svolitið spenntur þetta kvöldið. Bæði var það nú að billinn, sem aka átti frá Vestur- bænum uppIArbæ, varljóslaus að aftan og með sprunginn hljóðkút. (Ekki það að billinn sé bara svona og ekkert við þvi að gera, heldur einungis smá trassaskapur að vera ekki búinn að gera við hann) og svo er ailtaf svo gaman að fara I nýjar félagsmiðstöövar. Jæja, nema hvað. Billinn komst óséður af lögginnu i Arselið og Stuðarinn læddist framhjá tveim- ur dyravörðum, sem spurðu ekki um passa. Já, það er munur að vera orðin þrettán.... Bæði ég og Stuðarinn vorum boðin velkomin og við okkur blasti i einu orði sagt FRABÆRT HÚSNÆÐI. Við Stuð- arinn löbbuðum nokkra hringi um Selið og dáðumst að herbergjum, húsbúnaði og blómaskreytingum. Þaö lá viö að maður óskaði þess aö vera orðinn ungur I annað sinn. (He! He!) Ánægðar með Ársel Allt i einu vorum við komin inni borðtennisherbergi,og án þess að fá nokkuð við ráðið farin að spjalla við tvær 15 ára stelpur, Margréti og Þuriði,sem sögöust báöar vera úr Arbæjarhverfinu. — Komiði oft hingað? ,,Já, eins oft og við getum. Við erum mjög ánægðar með stað- inn.” — Hvað gerðuð þið áður en Ar- sel varðtil? „Við héngum bara heima, fór- um stundum i göngutúra og úti sjoppu.” — Hver eru áhugamál ykkar? „Dans, skiði og borðtennis” — Hvað er svona gott við Arsel? „Það eru spiluð góð lög i diskó- tekinu, og hér getum við spilað borðtennis og svona ýmislegt, hitt krakka...” sögðu stelpurnar. Nýkominn af skátafundi á efri hæðinni Við vildum ekki tefja þær um of við borðtennisið, svo við snerum okkur að honum Bessa, sem sat á eina ónotaða tennisborðinu i saln- um. Hann er 14 ára og býr i Ar- bænum. — Hvað ertu að gera núna? „Ég er eiginlega nýkominn nið- ur. Ég var hérna uppi á efri hæð- inni á skátafundi.” — Hvaðer gert á skátafundum? „Við vorum bara að tala sam- an, annars erum við að fara að taka á móti nýliðum.” — List þér vel á Ársel? „Já, staöurinn er alveg frábær. Þetta er eini staðurinn sem mað- ur getur farið á, þegar maður er búinn að læra heima.” — Hvaö er það skemmtilegasta sem þú gerir? „Það er körfubolti.” — En það leiðinlegasta? „Skólinn” sagði Bessi. Stuðar- inn varð svo hissa á þessu svari að hann haföi engu við að bæta, heldur stóð upp og fór. Viðviljum líka vera með Tvær stúlkur komu askvaðandi og sögðu: „Ætlarðu ekki að tala við okkur?” Jú,auðvitað var ekk- ert sjálfsagðara. — Hvað segiði, filiði staðinn? „Já, bæði tónlistina sem er spil- uð hérna og krakkana sem koma hingað.” — Hvað heitið þið? „Kristbjörg og Þorbjörg, við erum báðar 13 ára.” — Og hvað gerðuð þið áður en Arsel varð til? Þ: „Ég var alltaf I Jóker. Bæði fór ég þangaö til að spila á leik- tækin og til að hitta kunningja.” K: „Ég gerði ekkert sérstakt.” — Ætlar þú að halda áfram að fara i Jóker? „Ja.... kannski.... það er ekkert ákveðið.” Foreldrarnir alltaf að banna manni — Ætlið þið að stunda Arsel? „Já, við ætlum alltaf að koma þegar það er opið.” — Ætlið þið ekki að reyna að fá foreldra ykkar með? „Nei, það kemur sko ekki til greina. Þeir hefðu örugglega ekk- ert gaman af að koma hingað,og við mundum heldur ekki vera eins frjálsleg ef þeir væru með. Þeir eru lika alltaf að banna manni eitthvað.” Viödillum okkur Og nú rakst ég á Björgvin sem er 14 ára og Ósk 12 ára alveg að verða 13. Þau skemmtu sér alveg konunglega i Arseli eins og allir hinir og ætluðu að koma eins oft og þau gætu. — Hvað geriði hérna? „Við dillum okkur og tölum við aðra krakka.” sögðu þau. — Hver eru ykkar áhugamál. Björgvin,sem varla mátti vera aðþviað tala viðmig^sagðist vera ihljómsveit, en ósk var ekki viss. „Það er svo margt sem kemur til greina.” Og ég leyfði þeim að fara, þau máttu greinilega ekkert vera að þessu. Strákarog jafnréttismál Ég labbaði mér uppá næstu hæð, eða réttara sagt þar næstu, og i einu horninu þar satu þrjár stelpur, þær Gunna 15 ára, Hanna 16 ára og Helga 16 ára. — Hvað segið þið gott? „Allt þetta fina.” — Hvað er verið að gera? „Við sitjum hér og ræðum mik- ilvæg málefni? — Eruð þið kannski að ræða um stráka? „Meðal annars.” — Og jafnréttismál? „Já,” segir Gunna og bætir við „við erum á móti þeim.” — Hva!! Hanna: „Mér finnst alveg sjálf- sagt að það sé jafnrétti, karlkynið á ekkert að ráða öllu.” — Já, nú list mér betur á ykk- ur.... „...Annars vorum við ekkert að tala um stráka, við vorum að tala um frekjuna I foreldrunum.” Væntumþykja foreldranné getur farið útí öfgar — Eru nú foreldrar orðnir frek- ir? „Já, þeir skilja ekki þarfir okk- ar. Við viljum fara út og skemmta okkur og ráða okkur sjálfar. En þau vilja passa okkur einum of mikið. Auðvitað þykir þeim væntum okkur, en það getur farið úti öfgar, eins og annað.” — Jæja, en hvað finnst ykkur um Arsel? „Það er gaman að sitja hér og tala saman, i stað þess að vera heima og rifast við foreldrana,” segja stelpurnar að lokum.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.