Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 25.09.1981, Qupperneq 25

Helgarpósturinn - 25.09.1981, Qupperneq 25
helgarpásturinn STOFNAÐI HUÓMSVEIT með því að auglýsa íMöðunum Stuöarinn rakst á nokkuð óvenjulega auglýsingu i einu siðdegisblaðanna, fyrir u.þ.b. hálfum mánuði. í henni stóð: Vantar 3—4 stráka i ný- bylg juhljómsveit. Upplýs- ingar i sima... og innan sviga var kvenmannsnafn. Stuðarinn hringdi á staðinn og var svo heppinn að hitta akkúrat á stelpuna sem auglýsti eftir strákunum. Hún vildi alls ekki láta nafn sins getið, hvað þá að hún vildi láta taka af sér mynd. Það kom bara ekki til greina. ,,Eg kæri mig ekkert um slíkt", sagði hún. Nú en af þvi að Stuðarinn skilur allt, þá var náttúrlega ekkert annað við þessu að gera en að skella sér út i spurning- arnar við stelpuna sem er 16 ára. Fáar stelpur sem vilja gera svona lagað — Hvernig datt þér í hug að auglýsa í blöðunum eftir hljómsveitargæjum? ,,Mig langaði einfaldlega til þess að fara að spila i hljomsveit". — Spilar þú sjálf á hljóð- færi? ,,Nei, ég syng bara". — Voru margir strákar sem svöruðu auglýsing- unni? ,,Já þeir voru þó nokkrir en eg hef engar tölur yfir þa". — Af hverju auglýstir þú eingöngu eftir strákum? ,,Bara, það eru svo helv... fáar stelpur sem vilja gera svona lagað". — Þú hefur gengið frá því vísu? „ Já". — Og ertu nú búin að stofna hljómsveit? „Já, nokkurn veginn". Öðruvísi klæðnaður og hugsunarháttur — Ertu pönkari? Umsjón: Jóhanna Þórhallsdóttir ,, Já". — Af hverju segir þú að þú sért pönkari? „Bara, ég er kannski öðruvísi en aðrir. Ég klæði mig öðruvísi og huga öðru- vísi". — Hvernig hugsar þú? „Hvernig ég hugsa? Það er svo helv... langt mál að greina frá því". — Þú vilt kannski ekkert tjá þig um það mál? „Jú, jú, ég mundi vilja tjá mig um þaðef ég nennti því, en ég nenni því ekki", sagði stelpan að lokum. Stuðarinn óskar henn til hamingju með hljómsveit- ina. Það er óskandi að við fáum fljótlega að heyra i hljómsveit hennar. Og hér sjáum viö starfsfólk Arsels. Þiö getiö þekkt forstööumanninn á vinkinu. Boðorðið er að vinna með unglingunum, en ekki fyrir þá — segir Valgeir Guðjónsson, forstöðumaður Arsels Aöur en viö kveöjum Arsel þykir okkur rétt aö tala viö Val- geir Guöjónsson, en hann er for- stööumaöur þessa félagsheimilis. Valgeir er fús til viöræöu og viö komum okkur notalega fyrir I herbergi starfsmannanna, og ég hef samtaliö (eins og góöum blm. sæmir...) — Nú er alltaf veriö að mata unglingana. Ætlið þið að gefa þeim tækifæri til aö vera skap- andi? „Já.þaðerætlunin.Boðorðið er aö vinna með unglingunum, en ekki fyrir þá. Krakkarnir eru orðin vön boöum og bönnum alls staðar i kringum sig — kennarar, foreldrar, lögreglan o.s.frv. Svo er alltaf hætta á að þeir sem mest kveður aö fái að njóta sin, en hinir falli i skuggann. Við verðum lika að gefa þeim gaum sem ekki eru alltaf i fremstu viglinu”. Aðstaða fyrir alla að blóta félagsmálaguðinn — Hvernig verður starfseminni háttað? „Eins og i hinum félagsmiö- stöðvunum munum við byggja að verulegu leyti i hópastarfi. Við höfum nú þegar opiö tvö kvöld i viku, en opnu kvöldunum-fjölgar þegar hóparnir eru komnir á skrið. — Annars er þessi æsku- lýösstarfsemi bara hluti af þeirri starfsemi sem fram fer i húsinu. Hér er aðstaða fyrir ibúa hverfis- ins til að blóta félagsmálaguðinn. S.s. iþróttaaðstaða, fundaað- staða, aðstaða fyrir skáta og þróttmikil fræösla, danskennsla, tónlistarkennsla, tómstundastarf á vegum æskulýösráös og náms- flokkarnir veröa hér með full- oröinsfræðslu. Svo er hér kaffi- stofan ein sú vistlegastá”. Húsnæðið ætti ekki að vera þrándur í götu...... — Þið eruð að reyna að fá alla aldurshópa i húsiö? „Já, en það er erfitt að finna dæmi þess að þaö hafi tekist. En ef það er ekki hægt hér, þá er ég hræddur um að það þurfi eitthvaö að breyta sjónvarpsdagskránni. Fjölskyldan hittist núorðið bara viö matarboröið og til aö horfa á sjónvarpið. Ef það væri hægt að fá fjölskylduna saman hingað, þá væri það af hinu góöa. Það er voöaleg veiki þegar börn skamm- ast sin fyrir foreldra sina. En þetta er auðvitaö aðeins ein af þessum snjöllu hugmyndum. Bara það aö fá þá sem vaxnir eru uppúr giftingarfötunum til að notc húsið, væri á við meðalstóra virkjun á Austurlandi”; — Og hvernig ætlið þið að fá eldra fólk hingað? - „Það er best að segja ekki neitt. Ég er ekki meö nein undra- lyf og býst ekki við að geta mátað með snjöllum leik. En húsnæðið á a.m.k. ekki að geta orðið þvi þrándur i götu aö hér geti blómg- ast þróttmikið starf”. — Þú ert ekkert oröinn leiður á unglingunurh? „Ekki enn”, segir Valgeir og bætir við brosandi; „þetta eru svoddan öðlingar”. En nú er kominn timi til að kveðja Arsel. Ég stekk inn i bilinn og ek sem byssubrennd i Vesturbæinn. iPOSTUR OG SIMIi Halló Stuðari! Mig langar til aö biöja þig aö gefa mér adressu aö einhverjum pennavinaklúbbi ( U.S.A. eöa á Astraliu. Hvað er synthesizer? A plöt- :unni Plágan meö Bubba Iviorthens stendur Synthesizer Tómas Tómasson. Getiö þið á Stuðaranum ekki haft viötal við BARA-flokkinn á Akureyri: (Simleiðis eöa einhvern veg- inn). Það væri alveg frábært þvi Bara-flokkurinn er frábær hljómsveit. Þá er ekki meira i fréttum. Good by x21 eöa Veiga I ★ ★ Sæl vertu nú Veiga min I! Þakka þér fyrir bréfið. Ég er enginn sérfræðingur i adressum iU.S.A. og Ástraliu, endlthef ég ekkert þvælst um á þeim slóð- um. En hvað gerir maður ekki fyrir ykkur? Auðvitað reddaði égeinniadressu i U.S.A. sem ég vona þá að þú notfærir þér. En hún hljóðar svona: World Pentall 1690 Como Ave. St. Paul Mm. 55108 U.S.A. Hvað er synthesizer spyrð þú. Synthesizer er hljómborð með fjölda takka. Með þvi að stilla takkana á mismunandi hátt er hægt að ná ótrúlega mörgum hljóðum úr hljóðfærinu. Allt frá þvi hljóöiö sem myndast er saumnál dettur uppi eldgos og sprengingarhljóö. Synthesizer er t.a.m. mikið notaður i bió- myndum. Þegar að dyr opnast heyrist iskur sem búið er til i synthesizer o.s.frv. Menn hafa verið aö velta fyrir sér islensku orði yfir hljóðfærið og hafa nöfn eins og hljóðgerfill heyrst, en ekki verið mikið notað sökum stirðleika orðsins og svuntu- þeytirsem mér finnst nú algjört bla bla. Svo er þetta með Bara- flokkinn sem er nú aldeilis skemmtileg hljómsveit. Málið er einfaldlega það að við erum nýbúin að birta siðuviðtal við hljómsveitina svo ekki þykir rétt að birta annað á næstu dög- um a.m.k. S" _jazzBaLL©ccskóLi búpu iJ , Classical Technique — Jazz — Modern — rn (D Pas de Deux — Show business — Point. —-j Innritun hafin . < r\ 1 Kennsla fer fram í Suðurveri, Stigahlíð 45, (efri w sal). Framhaldsflokkar. Byrjendaflokkar - f\J Upplýsingar og innritun kl. 10 til 17 daglega. Ath.: SÍMINN ER 31899. c njpg !X»l8qq©TiDazzDr

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.