Helgarpósturinn - 25.09.1981, Page 26
26
Föstudagur 25. september 1981 Holrjr^rjlfícrf,i irinn
theatre,$mihhjng
OTOGRAPHY
ORTHERH EUROPEAN
DATELINE MATCHING SYS
«HBER NO 237184
m.nm
>, ' . vvv-v
NIN8LE00N L0N00N :
HEIGHT 5FT ÍIINS
AGE 28
HOWIES REAÐIHG,HUS
IHTERESTS THEATRE, C1
occuPATioM sEnfrrAp
Leitað lífsförunautar
1 mörgum erlendum blööum má sjá
auglýsingar frá hjónabandsmiðlunum og
eru þær viða allt að þvi eins umfangs-
mikiar og fasteigna- eða atvinnuaugiýs-
ingarnar I Mogganum á sunnudögum.
Þessa stundina hefur vist enginn atvinnu
af þvi að koma á hjónaböndum á tslandi
en á Englandi er þetta blómleg atvinnu-
grein. Hjónabandsmiðlanir skipta
hundruðum og starfshættir þeirra eru
eins mismunandi og stofurnar eru
margar.
1 augum margra er hjónabandsmiðl-
unin alger þrautalending og það er þvl
mikið vandræða-og feimnismál að leita á
náðir miðlaranna. En þeir eru orðnir
margir sem hafa fundið lífsförunaut i
spjaldskránni og þvi á þessi þjónusta
fullan rétt á sér.
Meöal ensku hjónbandsmiðlaranna er
misjafn sauöur i mörgu fé og nýlega fóru
stjórnvöld fram á að þeir stofni meö sér
samtök sem setji með sér starfsreglur og
siðareglur, ella veröi þeir að lúta strangri
löggjöf og sækja um starfsleyfi.
Þessi fyrirmæli eru fram komin vegna
þess aö margir telja sig ekki hafa fengiö
þá þjónustu sem þeir hafa greitt dýrum
dómum. Kvörtunarefnin voru helst þessi:
Menn greiddu gjöld sin, þetta 140 og allt
aö 5000 krónum en fengu ekki gefið upp
eitt einasta nafn. Iðulega voru gefin upp
nöfn fólks sem ýmist fannst ekki eða taldi
sig ekki vera lengur á skrá miðlunar-
innar. Þá var fólki stefnt saman á næsta
handahófskenndan hátt svo þaö hentaði
engan veginn hvert ööru. Loks voru menn
óánægðir með það að fá ekki greitt til
baka þegar engin fékkst þjónustan.
Dateline heitir ein þessara hjónabands-
miðlana. Hún er ein margra, þar sem við-
skiptavinirnir eru paraðir með hjálp
tölvu, og þetta er sú miðlunarstofan sem
auglýsir hvað mest. Þeir hjá Dateline
halda þvi'kotrosknir fram að opinbert að-
hald og eftirlit verði þeim til góðs þvi aö
þá linni gagnrýni á starfsemi þeirra.
Dateline var stofnað árið 1966 og starfar
að bandariskri fyrirmynd, gefur út sér-
stakt timarit, efnir til hópferða fyrir ein-
hleypinga og rekur sérstaka skemmti-
staði. Auk stofnandans starfa þar 16
manns. Meira að segja siminn er tölvu-
væddur þannig að viðskiptavinurinn les
óskir sinar beint inn á tölvu.
Þeir sem óska að komast á skrá hjá
Dateline þurfa aö Utfylla sex siðna spur-
ingalista, prentaöan i litum með forsiðu-
mynd af lukkulegu pari að sötra kampa-
vin.
Listinn skiptist i nokkra kafla. I fyrsta
kafla greinir umsækjandi frá sjálfum sér,
kynferði, hæð, þyngd, atvinnu, þjóöerni,
trúarbrögðum o.s.frv. og lýsir óskum
sinum um það hvernig félaga hann (hún)
óskar sér. Annar kafli veitir persónulýs-
ingu. Þar á að svara spurningu eins og
þessari: Éger talinnþrasgjarn, og krossa
við svörin: Já, nei, veit ekki.
Að siðustu á aö leysa myndþraut sem er
fólgin i þvi að raða hringjum, h'num og
punktum þannig að úr þvi verði ákveönar
myndir. Með þessu móti má útiloka brjál-
æðinga að sögn.
Þegar Bstinn hefur verið útfylltur á að
greiða 800 krónur og sfðan velur tölvan
• sex persónur sem eiga að henta manni.
Vilji roskinn maður komast I kynni við
skólastúlku velur tölvan handa honum
skólastúlku sem vill kynnast rosknum
manni.
Sé ekki unnt að uppfylla óskir umsækj-
anda er hann strax látinn vita af þvi. Ef
fyrstu sex nöfnin henta ekki velur tölvan
sex ný og þannig er haldið áfram þar til
annaðhvort tölvan eöa umsækjandinn
gefst upp.
Hjónabandsmiðlun Idu Reynolds er
með allt öörum hætti. Hún fullyrðir að
allir fari ánægðir frá sér, alveg eins og
Karl prins og lafði Di (rétt eins og hún
hafi komið þeim saman).
A skrifborði Idu eru tveir spjaldskrár-
kassar og þegar kona kemur i viðtal til
hennar segir hún eitthvað á þessa leið:
„Hérerég með42ja ára Bandarikjamann
með finar tekjur. Hefurðu áhuga?”
Algengt er að fólk greiöi 700 krónur við
skráningu og skuldbindi sig til að greiða
þá upphæð tifalda ef þjónustan ber þann
árangur að ósköpin endi með hjónabandi.
Það kvað vera m jög algengt að fólk, sem
kynnist fyrir meðalgöngu hjónabands-
miðlunar, giftist ekki heldur sé i óvigðri
sambúð.
Sumar miðlanir gera kröfur til við-
skiptavina sinna. Þar á meðal er
Forstjóramiðlunin. Þátttökugjaldið er i
fyrsta lagi fjallhátt og þar með útilokast
margir. Gerðar eru kröfur um menntun,
atvinnu og siðfágun. Þeir sem komast á
þannan ffna lista geta valið „niður fyrir
sig” en þeir sem neðareru geta ekki valið
„upp fyrir sig”.
Kynvillingar eiga sina miðlun og þar er
ekki verið að gera stifar kröfur. Menn
þurfa aðeins að senda ljósmynd af sér og
hún er siöan látin ganga hringinn þar til
einhver slær til. Þessi þjónusta kostar 225
kr. en 70. kr. aukalega ef menn vilja ekki
gefa upp nafn sitt heldur láta senda skila-
boð.
Greinilegt er að margir hafa trú á
þessari þjónustu og einhver hlýtur
árangurinn aö vera. En ógerningur er að
komast að þvi hve margir láta skrá sig
hjá hjónabandsmiðlurum og hve margir
þátttakenda giftast aö lokum. Þeir hjá
Dateline þykjast eiga þykkar möppur
með þakkarbréfum frá fólki sem kynnst
hefur fyrir tilstilli tölvunnar, og oft fá þeir
senda væna geira úr brúðarkökum.
Dateline telur að um 15000 hjónabönd
frá árinu 1966 séu fyrirtækinu að þakka.
Við siðustu tölvuútskrift voru 43,722 á
skrá hjá fyrirtækinu. 52% karlar og 48%
konur. Karlmenn undir 25 ára aldri eru
fleiri en konur en við 40 ára markið eru
konur orðnar miklu fleiri.
Heather Jenner rekur hjónabands-
miðlun í London auk 13 útibúa utan höfuð-
borgarinnar. Hún fullyrðir að hjónabönd
vegna milligöngu hennar séu að jafnaði
eitt á dag.
Katherine Allen leggur áherslu á að hún
reki hjónabandsmiðlun, ekki kynningar-
þjónustu. Á spjaldskrá hennar eru að
jafnaði um 700 manns, þar af fimm
hundruð sem hafast eitthvað að (250
karlar að eitast við 250 konur eða öfugt).
Hún hefur af þvi nokkrar áhyggjur hve
fáirskjólstæðingar hennar giftast, eða um
sjö af hundraði, en þeir hafa lika skuld-
bundið sig til að borga henni 700 krónur ef
til hjónabands kemur.
Skyldi ekki vera grundvöllur fyrir
svona þjónustu á Islandi? Er það ekki
liður i örtölvubyltingunni að tölva velji
mönnum lífsförunaut? Tölvan gæti þá
gert upp söluskatt til rikisins jafnóðum.