Helgarpósturinn - 25.09.1981, Qupperneq 27
halrjarpnirínn Föstudagur 25. september 1981
Og eina feröina enn mun nú hefjast um-
ræöa um fjárlög — umræðan um tekjur og
gjöld rikisstjóös. Raunar er gerö fjárlaga,
umræður og breytingar á þeim i meðförum
þingsins og siöan afgreiðsla þeirra og
framkvæmd, i gangiallan ársins hring. Það
er ekkert smámál, að stemma af tekjur og
gjöld rikisins, þannig að allir fái sitt og ekki
verði tekið of mikið af hinum og þessum og
fá út niðurstöðuna: hallalaus fjárlög. i
reynd hefur fjárlagafrumvarp rikisstjórn-
arinnar, sem venjulegast er lagt fram á
fyrsta eða fyrstu dögum þingsins á haustin,
ekki staðist i framkvæmd. Af þeim sökum
eru svonefnd fjáraukaiög inni myndinni.
Ragnar Amalds.
íhaldssamur Ragnar við
gerð fjárlagafrumvarpsins
Þaueru framlögð og afgreitt, þegar ijóst er
að áætlanir fjárlagafrumvarpsins ganga
ekki fyllilega upp, og hnika þar fjármagni
milli liða þegar framkvæmdin á fjárhags-
árinu sýnir þörf á sliku.
V* að er ljóst, að þegar fjárlagafrumvarp
er tekiö saman fleiri mánuöum áöur en það
kemur i framkvæmd, þá getur ýmislegt
breyst i millitiöinni. Óvæntir gjaldaliðir
koma upp og aðstæður breytast. Þvi er þörf
olnbogarýmis — möguleikana á tilfærslum
og breytingum á sjálfu fjárhagsárinu.
Fjáraukalögin eiga að skapa stjórnvöldum,
rikisstjórninni, þennan möguleika. Hins
vegar hefur framkvæmdin verið sú, að
rikisstjórnin hefur óhikað ávisað peningum
umfram heimildir I fjárlögum og siðan
fengið þessar tilfærslur samþykktar eftir á
— i fjáraukalögum. Fengið syndakvittun
þingsins.
En litum til liðandi stundar. í allt sumar,
—• eins og hin fyrri ár, — hefur fjármálaráðu
herra og aðstoðarfólk hans i fjármálaráðu-
neytinu með dyggum stuðningi fjárlaga og
hagsýslustofnunar unnið grunnvinnu að
gerð f járlaga. Málin ganga þannig fyrir sig,
að fjármálaráðherra óskar eftir fjárhags-
áætlunum og fjárþörf ráðuneytanna og
rikisstofnananna fyrir næsta almanaksár.
Þar er venjulegast smurt vel á enda gengið
\ ........... .... ■■ ......— ...........
Kauphöllin I Wall Street og verkalýðs-
sambandið AFL-CIO keppast við að lýsa
með sem afdráttarlausustum hætti van-
trausti og vantrú á stefnu rikisstjórnar
Ronalds Reagans Bandarikjaforseta. A
vegum AFL-CIO kom milli fjórðungur og
þriðjungur milljónar manna hvaðanæva úr
Bandarikjunum saman á útifund i siðast-
liðinn sunnudag I hjarta Washington.
Gengið var til þinghússins og ræðumenn
fordæmdu rikisstjórn og þingmeirihluta
fyrir að ætla að ráða fram úr fjármála-
erfiðleikum á kostnað fátækasta hluta
þjóðarinnar. Fjölmenni var meira á fund-
inum en þekkst hefur áöur viö svipuð tæki-
færi i höfuðborg Bandarikjanna.
út frá þvi að f járlaga — og hagsýslustofnun
skeri duglega niður — sem hún og gerir.
Eftir að niðurskurðartillögur hagsýslu-
stofnunar liggja fyrir, þá kallar fjármála-
ráöherra á alla ráðherrana á sinn fund —
einn i einu — og lýsir niðurskurðartillögum.
Siðan makkar hver ráðherra um sig við
fjármálaráöherra og ýtir á fyrir hönd sins
ráðuneytis. Eftir það samkrull gengur siö-
an fjármálaráðherra frá ramma fjárlag-
anna fer á vit rikisstjórnarinnar og þar er
þæft um málin á nokkrum fundum, þar til
fjárlögin fá heillega mynd.
Þetta er gangur mála i stórum dráttum
og þessi undirbúningsvinna fyrir fjárlög
1982 hefur þegar farið fram. Fjárlögin
komin i og úr prentun og liggja á borðum
ráðherra að langmestu leyti.
ú hefð hefur komist á, hér á iandi og I
allflestum þingræðislöndum, að farið er
með fjárlög sem trúnaöarmál — og þá er
átt við trúnaðarmál i þess orðs fyllstu
merkingu — þar til þau liggja i frum-
varpsformi á borðum þingmanna á fyrsta
degi þingsins. Einhver leki virðist þó hafa
komist að fjárlagafrumvarpinu að þessu
sinni.
Það er i sjálfu sér ekki nýtt, að einhverjir
þættir fjárlagafrumvarpsins fari á kreik,
áður en ætlast er til. Það var t.d. nefnt við
mig, að á viðreisnarárunum hefði Fram-
" ■------ '"1
Mannfjöldinn á útifundi AFL-CIO i Wash-
ington á sunnudaginn á Mall andspænis
þinghöllinni.
Reagan reynir að
bæta um betur
Rúmri viku fyrir útifundinn lét Rea-
gan það beras,t út af rikisstjórnarfundi, að
þar hefði hann áfellst kaupsýslustéttina,
sér i lagi háborg hennar, kauphöllina i Wall
Street, fyrir að hlaupast undan merkjum og
bregða fæti fyrir stjórnarstefnu sina i staö
þess aö styðja hana með ráðum og dáð, eins
og hann hafði vænst-Kenndi Reagan þver-
móðsku kaupsýslumanna og skammsýni
um verðfall á hlutabréfamarkaöi og met-
háa vexti, sem hvorttveggja er þveröfugt
við þá efnahagsþróun sem Reagan og sam-
starfsmenn hans spáöu I sigurvimu um mitt
sumar.
Þá var það siðasta verk þingsins fyrir
þinghlé að samþykkja tillögur Reagans um
lækkun tekjuskatts um fjórðung á þrem
árum og 35 milljaröa dollara niðurskurö á
fjárlögum fjáriagaárið sem hefst 1. október
i haust. Þótti undrum sæta, hve létt Reagan
veittist að koma málum þessum frám á
þingi, þar sem stjórnarandstöðuflokkurinn
demókratar hefur riflegan meirihluta i
Fulltrúadeild.
En öðru var nær en atvinnulif og kaup-
sýsla tækju tilætlaðan fjörkipp viö að sjá
fram á lækkun skatta og stórminnkuð um-
svif rfkisins i félagsmálum og eftirlitsstarf-
semi hins opinbera. Hlutabréfamarkaður-
inn hefur undanfarna mánuði veriö á niður-
leiö, vextir á bestu kjara lánum hafa hald-
istum og yfir 20% og skuldabréfamarkaður
liggur fyrir þá sök I roti. Töluglöggir kaup-
sýslumenn sáu i hendi sér strax i sumar, aö
dæmi Reagans og manna hans gengur ekki
UPP, og það hafa þing og stjórn nú oröiö aö
viðurkenna á haustdögum.
s
Skattalækkunin ásamt hækkun út-
gjalda til landvarna hefur i för meö sér, að
þrátt fyrir 35 milljarða niðurskurð er þegar
fyrirsjáanlegur greiðsluhalli á fjárlögum
sem nemur 22 milljörðum umfram 42.5
milljaröa, sem stjórn Reagans hafði gert
ráð fyrir. Slikt hefði i för meö sér, að fyrir-
heit forsetans um hallalaus fjárlög 1984
væri fokið út I veður og vind. Lántökur
rikisins til að fjármagna hallann yröu svo
aðgangsfrekar á lánsfjármarkaöi, aö engin
leið yrði að hnika vöxtum niöur á við.
Siöustu vikur hafa Reagan og ráðherrar
hans mátt fást viö það vandamál, sem þeir
héldu sig hafa leyst um mitt sumar, fjár-
lagadæmi rikisins. Sú uppákoma hefu’r ekki
orðið til að efla traust manna á rikisstjórn-
inni, hvorki i Wall Street né Main Street
Nú liggur niöurstaðan fyrir. Reagan hefur i
sjónvarpsræöu tii landslýðsins, tilraun til
að endurtaka sjónvarpssigurinn frá i
sumar, sem átti mestan þátt i að þingmenn
reyndusthonum þá svo auðsveipir, lýst yfir
að nú þurfi þingið aö taka fram niöur-
skuröarhnifinn á ný og stýfa af fjárlög-
unum 16 milljaröa dollara I viöbót. Nemur
þá niðurskurðurinn alls 51 milljarði.
sóknarflokkurinn, sem þá var i stjórnar-
andstööu, fengið haldgóðar upplýsingar um
fjárlagafrumvarpið, áður en það var gert
opinbert. Hafi framsókn þá haft flokksholla
menn i lykilstöðum embættismannakerfis-
ins — sér i lagi innan fjármálaráðuneytis-
ins — og þeir verið trúir sinum flokki og lát-
ið hann fylgjast með gangi mála.
E n nóg um það. Og þó. Þrátt fyrir við-
ræðugóða stjórnarliða, var enginn þeirra
fáanlegur til að gauka aö mér gullkornum
úr fjárlagafrumvarpi Ragnars Arnalds. Al-
mennar upplýsingar eins og „stefnum að
hallalausum fjárlögum”, og „viðleitni til
sparnaðar i rikisútgjöldum”, „Ragnar ver-
iðmjög aðhaldssamur við gerð fjárlaganna
og ekki látið undan áleitni þrýstihópa og
ráðherra i peningaþörf”, „ábyrgt frum-
varp” voru meðal þeirra svara sem ég
fékk. — Rýrar upplýsingar það.
Menn i forystusveit stjórnarandstæöinga,
sögðust engar haldbærar upplýsingar hafa
fengið um hina ýmsu þætti frumvarpsins.
„Ég hef enn engar áreiðanlegar upplýsing-
ar i höndunum,” sagði einn þingmaður Al-
þýðuflokksins, ,,en eins og fram hefur kom-
ið i blööum, þá eru nokkur atriði komin
fram i dagsljósið. Mér þykir þvi ekki ótrú-
legt að á næstu dögum verði fleiri punktum
lekið, þótt þaö stangist á viö viðteknar
venjur um meðferð fjárlagafrumvarpsins
áður en þaö er formlega lagt fram.”
Stjórnarandstæðingar sögðu þaö ekki hafa
komið sér á óvart, að gert væri ráð fyrir
framlögum til flugstöðvarbyggingarinnar á
Keflavikurflugvelli i fjárlagafrumvarpinu.
I blöðum hefur þvi verið slegið fram að 10
milljónum króna verði varið til flugstöðv-
arinnar samkvæmt frumvarpinu. Stjórnar-
liðar sögðust ekki getað neitað þvi að sann-
leikskorn væri að finna i þessum blaða-
fregnum. „Það segir þó ekkert, þótt þessi
heimild sé inni frumvarpinu,” sagði þing-
maður Alþýðuflokksins. „Ég á eftir að sjá
Alþýðubandalagið samþykkja, að þessir
peningar verði notaðir til þeirra hluta. En
það er rétt að minna á það, að ef ekki verð-
ur ráðist i framkvæmdir fyrir 1. október á
næsta ári við flugstöðina, þá fellur fjárveit-
ing Bandarikjaþings til þessara fram-
YFIRSÝN t
Nú er sýndur nokkur litur á að lækka
ráögerð landvarnaútgjöld, en mestalla
fúlguna á að spara á félagsmálaliöum, sem
Reagan var búinn að lofa aö snerta ekki
við, sér I lagi bótum almannatrygginga og
ýmsum eftirlaunasjóðum. Stærstu upphæð-
irnar á að spara með þvi aö fresta greiðslu
dýrtiöaruppbótar á tryggingabætur um
þrjá til sjö mánuöi frá þvi sem lög mæla
fyrir. Með þessu móti hyggst Reagan halda
fast við fyrri markmiö, greiðsluhalli fari
ekki yfir 42.5 milljaröa á næsta f járhagsári
og hallalaus rikisbúskapur veröi kominn á
1984.
Þótt Reagan geröi ekki tillögur sinar
formlega opinberar fyrr en i gær, voru þær
kunnar I stórum dráttum fyrir helgi. Kaup-
hallarmenn i Wall Street brugöust við á
þann veg, aö veröhrun hélt áfram dag frá
degi og jókst frekar en sljákkaði. Var.svo
komið I gær, aö kauphallarverölag var I
heild oröið lægra en fyrir ári siöan, batinn á
fyrra misseri ársins eyddur.
K
■ %aupsýslumenn eru vantrúaðir á að
Reagan veitist eins auðvelt að koma þess-
um niöurskuröarskammti fram á þingi og
hinum fyrri. Til þess eru margar ástæður.
Pólitiskar afleiöingar niðurskurðarins á
framlögum til félagsmála eru að byrja aö
koma I ljós. Þegar skólar hófust kom til
dæmis á daginn, aö til að fullnægja niður-
skurði Reagans á fjárveitingu til skólamál-
tiöa höfðu þær ekki aðeins verið hækkaðar I
veröi, heldur gæði matarins keyrð niður úr
öllu valdi. Til aö mynda var úrskuröaö að
tómatsósusletta eða hnetusmjörsklatti
skyldu teljast grænmetistegund og soja-
baunamauk reiknast kjötréttur.
Viðbrögð almennings við sparnaðarráð-
stöfunum I framkvæmd hafa oröiö til þess,
að þingmenn eru tregari en áður til niður-
skuröar, sér i lagi á eins viðkvæmum liö og
almannatryggingum. Hefur Pete Dome-
nici, formaður fjárlaganefndar öldunga-
deildarinnar og flokksbróðir Reagans,
kunngert að meirihluti þingmanna telji að
mun stærri hluti sparnaðar en forseti vill
verði að koma af herútgjöldum, og þyrma
27
kvæmda úr gildi. Ég óttast þvi, að þessar 10
milljónir I flugstöðina, séu aðeins sýndar-
mennska ein.”
að hefur vakið athygli margra, aö
Ragnar Arnalds, hefur verið fljótur að setja
sig inn i hlutverk fjármálaráðherra og
tamið sér þá ihalds- og aðhaldssemi, sem
virðist óhjákvæmilegur fylgifiskur
embættisins. Eða eins og einn þingmaður
meðal stjórnarandstæðinga sagði: „Það er
mesta furða hvað Ragnar hefur staðið sig
vel, betur en flestir áttu von á. Ekki sist
þegar litið er á fo.rtið hans sem stjórnmála-
manns og menntamálaráðherra, þar sem
hann lagði það ekki i vana sinn að velta
krónunum milli handanna. Nú er öldin hins
vegar önnur og hann fallinn i sama jarðveg
og fyrri fjármálaráðherrar. Nú eru honum
orð eins og sparnaður, aðhaldssemi og var-
kárni i meðferð peningamálanna, töm á
tungu. Hann er orðinn góður embættis-
maður, og jafnframt lélegur Alþýðubanda-
lagsmaður, en þar á bæ er óábyrg fjár-
málastjórn landlæg. Það á að eyða og eyða,
en minna hugsað um tekjurnar. Ragnar er
orðinn meiri Matti Matt (Matthias A
Mathiesen fyrrum fjármálaráðherra i
Geirsstjórninni) i sæti fjármálaráðherra,
enMattiMattsjálfur. Oger þá mikið sagt.”
Og að lokum örlitið meira um Ragnar:
Stjórnarliði sagði mér að mikið kapp heföi
verið lagt á að hraða gerð fjárlagafrum-
varpsins á siðustu vikum og langir og tiðir
og strangir rikisstjórnarfundir haldnir i þvi
sambandi. Og ástæður þessarar snöfur-
mannlegu afgreiðslu? Jú Ragnari hefur
ekki tekist að komast i leyfi nú i sumar.
Þess vegna var frumvarpsgerðinni hraðaö
svo Ragnar fengi frið. Nú er stund milli
striða hjá honum þar til þing hefst og hann
getur þvi tekið undir, þótt seint sé, og
sönglað: ,,Ég fer i friið”. Það verður þó
aðeins skammvinnt logn á undan stór-
viðrum þeim, sem væntanlega munu leika
um þingsali, þegar umræðan um fjárlaga-
frumvarpið fer i fullan gang.
eftir
Guómund
•Arna
Stefánsson
eftir
Magnús
Torfa
Ólafsson
3
beri félagsmálaliðunum sem þvi nemur. Er
haft eftir þingmönnum, aö þegar frumvörp
sem heimila aö verja þvi fé sem á fjár-
lögum stendur koma til meðferöar, verði
frumvarpið sem heimilar landvarnaráöu-
neytinu fjárútlát geymt þangað til siðast,
svo þingmenn þurfi ekki að eiga nein eftir-
kaup viö forsetann.
|En Reagan þarf að kljást við fleiri úr
stuðningsmannahóp sinum en þingmenn og
fjármálajöfra Wall Street. Upp er komin
togstreita um sál forsetans meðal lærifeðra
hans i efnahagsmálum, hagfræðinga sem
bera fram tvær ósættanlegar fræöikenn-
ingar.
Það eru annars vegar lærisveinar Mil-
tons Friedmans með peningamagnskenn-
ingu sina. Þeir ráða feröinni I fjármála-
ráöuneytinu I stjórn Reagans, og undan
þeirra rifjum er runnin hækkun vaxta til aö
halda peningamagni I skefjum.
A öndveröum meið eru framboðshag-
fræðingarnir, sem aðhyllast kenningu Art-
hurs Laffers. Stórfelld skattalækkun Rea-
gans i þvi skyni aö örva atvinnulifið er tekin
beint úr þeirra kokkabókum. Framboðs-
hagfræöingarnir halda þvi nú fram, aö
vandi Reagans sé i þvi fólginn, aö hann sé
ekki nógu eindreginn og samkvæmur sjálf-
um sér I eftirbreytni viö kenningar Laffers,
heldur hangi enn hálfur 1 úreltum og óraun-
hæfum friedmanisma.
Laffer og talsmenn hans innan þings og
utan hafa komist að þeirri niðurstöðu, að
ráðiö til að hafa stjórn á peningamagninu
sé bæði einfalt og gamalkunnugt, taka upp
á ný guilinnlausn gjaldmiöilsins. Gull-
tryggður dollar er lifakkeri peningakerfis-
ins, segja þeir, eitthvað annaö en rausið I
friedmanistum, sem ekki geta einu sinni
skilgreint hvað peningamagnið sé, sem þeir
ætla sér að hafa stjórn á.
Reagan má ekki i svipinn vera að þvi að
skera úr þessari deilu velunnara sinna á
sviði æðri hagspeki, en hefur sett nefnd I
málið. Hún er að hefja opinberar vitna-
leiðslur um hlutverk gulls i hagkerfinu.