Helgarpósturinn - 13.11.1981, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 13.11.1981, Blaðsíða 21
21 hal/jarpn^tl trinrf ðstudágur 13. nóvember 1981 ,,Um samskipti tveggja einstaklinga'' — segir Guömundur Magnússon um leikrit, sem verið er aö æfa í Þjóðleikhúsinu „Leikritiö fjallar um samskipti tveggja einstaklinga og erfiöleika þeirra aö ná saman, almennt séö. Þar viö bætist, aö annar einstakl- ingurinn er á hjólastól. Aö ööru leyti er þetta ekki frábrugöiö samskiptum tveggja enstakl- inga”, sagöi Guömundur Magnússon leikari, þegar hann var beöinn um aö segja frá efni leikrits, sem veriö er aö æfa I Þjóöleikhúsinu um þessar mundir. Leikrit þetta heitir Uppgjöriö, eöa hvernig ung kona kemst i vanda og gerir upp hug sinn, og veröur frumsýnt i lok þessa mánaöar. Uppgjöriö veröur ekki tekiö til sýninga á sviöum Þjóöleikhúss- ins, a.m.k. ekki fyrst um sinn, heldur er þvi ætlaö aö fara á vinnustaöi og i skóla. Tildrögin aö gerö þess voru þau, aö Sveinn Einarsson Þjóöleikhússtjóri haföi samband viö Guömund Magnús- son, Sigmund Orn Arngrimsson, sem leikstýrir verkinu, og Gunnar Gunnarsson rithöfund, og baö þá aö útbúa farandverk. Gunnar skrifaöi siöan ramma aö verkinu og var hann lagöur fyrir Svein, sem var honum sam- þykkur. Siöan sátu þremenning- arnir og pældu i verkinu i tyær vikur. Upphaflegi ramminn geröi jafnvel ráö fyrir tveim leik- urum til viöbótar viö Guömund, en á endanum varö þaö bara einn, og þaö er Edda Þórarinsdóttir, sem leikur á móti Guömundi. Hvað vakir fyrir hópnum meö þessu leikriti? Þvi svarar Sig- mundur Orn: „Viö ætlum ekki aö setja á sviö vandamálaleikrit. Þetta er leik- sýning, sem á aö vekja til um- hugsunar og vekja umræöur. Það á aö vekja til umhugsunar um samskipti manna, hvort heldur þeir eru hreyfihamlaöir, eða ekki.” Eftir sýningar eru aöstand- endur tilbúnir til umræöna um verkiö og þau vandamál, sem þaö fjallar um. Guömundur Magnússon hefur ekki leikið á leiksviöi i fjöldamörg ár og var hann spurður að þvi hvernig þaö væri aö fara aö leika aftur. ,,Ég er helvíti nervös yfir aö fara aö standa aftur á sviöinu, þaö er viss spenna i þessu. Þaö er mjög gaman að því hvernig þetta hefur verið unniö, og nervositetiö er ekki fyrir vinnunni, heldur fýrir sýningunni.” Guömundur er sjálfur lamaöur og er i hjólastól. Hann var þvi spuröur hvort hann væri kannski aö leika sjálfan sig. „Nei, ég er ekki aö leika sjálfan mig, þetta er ekki min saga. Það eina, sem viö eigum sameigin- legt, er að viö erum báöir lamaöir eftir slys.” Sigmundur Orn vildi taka þaö fram, aö vinna viö þetta verk heföi veriö mjög lærdómsrfk fyrir hann, þvi menn færu aö hugsa allt ööru vlsi um þessi mál. Auk þeirra, sem áöur eru nefndir, kemur Karólina Eiriks- dóttir viö sögu, þvi hún semur tónlistina viö verkiö. Guðmundur Magnússon og Edda Þórarinsdóttir á æfingu á Upp- gjörinu. Af útkjá!kafó!ki Guðmundur G. Hagalin: Þar verpir hvitur örn (skáldsaga). Almenna bókafélagið, Reykja- vik 1981. F’yrsta bók Guðmundar G. Hagalin, Blindsker, kom út árið 1921 þannig að hann hefur nú skeiðað um ritvöllinn i full sex- tiu ár. Ekki hef ég tölu á öllum ritum hans en vist er að hann á sér dyggan lesendahóp sem fagnar útkomu hvers nýs verks frá hans hendi. Titilinn að nýj- ustu skáldsögu sinni sækir Guð- mundur i kvæöaflokkinn Annes berjist i bökkum, en engan hafa þeirklerkinn. Þegar þeim berst siðan bréf frá sjálfum biskupn- um um að til boða standi skosk- ur prestur, John MacKormick að nafni er blásið til safnaðar- fundar. A þessum fundi kynnist lesandinn ibúunum vel. Karl- mennirnir eru af öllum gerðum en hugsunin jafnan ofurseld bú- skapnum og virðingin helguð karlmennskunni. Konurnar eru skörulegar og standa við hlið karla sinna rignegldar i hlut- verk sitt. Og undir kraumar Bókmenntir eftir Sigurð Svavarsson og eyjar eftir Jónas Hallgrims- son, fyrstu visuna um Horn- bjarg: Yst á Hornströndum heitir Hornbjarg og KÓpatjörn: þeir vita það fyrir vestan, þar verpir hvitur örn. Aður hefur Guðmundur gefið út bók sem þiggur nafn af næst siðustu linunni. Þessi nýjasta skáldsaga Guð- mundar gerist á útkjálkabyggð á norðanverðum Vestfjörðum (Hornströndum) á striðsárun- um „þegar Kurkhil, Hrósveltog Stalin vorli að berjast saman gegn Hitler og þýsku ófétun- um”. Það er ekki ýkja fjöl- mennt samfélagið sem Hagalin lýsir og feigðardómurinn hefur verið kveðinn upp yfir þvi. Per- sónurnar sem höfundur lýsir eru dæmigerðar fyrir hann harðgert fólk og lifsreynt er hefur mótast af harðneskjulegu sambýlinu við hina óvægnu náttúru.Sérkennilegtfólker ber sérkennileg nöfn kjamsar á skondnu vestfirsku talmáli og lætur gjörðir sinar mótast af lifsfilósófiu útkjálabúans. Þeir eiga snorturt guðshús þarna fyrir vestan þótt flestir mannleg náttúra eins og jafnan hjá Hagalin. Þjóðerni prestsins leiðir talið fljótt að skoskum hrútum og smalahundum enda slik kvik- indi liklegri til að bæta hag fólksins en predikanir kenni- mannsins. Þegar klerkur birtist kemur fljótt i ljós að hann fellur ikramið. Viðfyrstu messu rotar hann nefnilega uppivöðslu- saman útsendara alheims- kommúnismans á staðnum og eftir það á hann greiða leið að hjörtum safnaðarbarna sinna. Það er fjörlega og spaugilega sagt frá i Þar verpir hvitur örn. Höfundur er fyrst og fremst að bregða upp mynd af samfélagi og fólki sem hann dáir, ekki að boða og predika. Hins vegar er það alveg ljóst að hann kyndir undir goðsögnina um hið kjarn- mikla alþýðufólk sem lifir i sátt við náttúruna og á sama hátt eru þéttbýlissvæðin iverustaðir spillingar. Það er greinilega ekki meining höfundar að tala til þeirrar kynslóðar sem undir- ritaður tilheyrir, enda tel ég vist að þessi skáldsaga gleðji þann lesendahóp sem þegar tilheyrir Guðmundi, en stækki hann trauðla! S.S. (@aíkrp lækjartors ú (Mlerp ilækjartors \7a Nýja húsinu Lækjartorgi 2.hæð jSimi 1-53-10 m ÍNýja húsinu Lækjartorgi 2.hæð Simi 1-53-10 “1 SÝNINGARSALUR: HLJÓMPLÖTUVERSLUN: Myndlistarsýning Haukur Hall I trölla höndum Haukur sýnir 38 myndir (kol og blýantsteikn.) ásamt einu skúlptúr verki — Tröllalúku. Viðfangsefni Hauks er einkum íslenskar þjóðsögur,sér í lagi trölla sögur. Sýningin stendur yf ir 7.—22. nóv. '81. Opið kl. 14—22 alla daga. Ath. Við mælum með kaf f inu i Kaff itorgi á sömu hæð. Sérverslun með íslenskar hljómplötur Bráöum koma blessud jólin börnin fara að hlakka til Góða plötu á grammófóninn gjarnan þá ég eiga vil Þeir sem kaupa islenskar hljómplötur, hafa kynnst þvi hvað það getur verið erfitt að hafa upp á vissum plötum. Þessu höfum við reynt að bæta úr, með þvi að safna öllum fáan- legum islenskum hljómplötum á einn stað. 1 dag býður GalleryLækjartorg upp á landsins mesta úrval is- lenskra hljómplatna—yfir 400 plötuheiti. Sparaðu þér sporin og littu fyrst inn til okkar — það borgar sig ÍSLENSKAR HLJÓMPLÖTUR Á GÓÐU VERÐi Póstsendum um land allt

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.