Helgarpósturinn - 27.11.1981, Blaðsíða 11
_Jielgarpásturihnl tf$hu'<a&w'ir. növe^ér Wst
EFNI - VEGGFOÐUR
FATNAÐUR
GJAFAVÖRUR
Allt vörur frá LAURA ASHLEY
Nú vcljum viö saman efni, veggfóöur, teppi
og smáhluti, höfum allt I stil.
Allt eru þetta vörur frá LAURA ASHLEY.
Erum einnig meö fatnaö t.d. blússur, pils,
náttkjóla o.fl. Komiö og skoöiö nýjar vörur
frá hinu heimsþekkta LAURA
ASHLEY-fyrirtæki.
Skóiavöröustig 4. Simi 16646.
ÓÐA
Auglýsingasíminn er
81866
Helgarpósturinn Síðumúla 1 1
Skoöunarferö
ad Sultartanga
Skoðunarferð vegna væntanlegs útboðs lokuvirkja
Sultartangastíflu verður farin föstudaginn 4.
desember kl. 8 fyrir hádegi. Lagt ferður af stað frá
skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík.
Skoðuð verða m. a. lokuvirki að Hrauneyjarfossi.
Þeir, sem kynnu að hafa áhuga á að bjóða í smíði og
uppsetningu þessara mannvirkja eru beðnir að til-
kynna þátttöku sína á skrifstofu Landsvirkjunar fyrir kl.
16 þriðjudaginn 1. desember.
c
LANDSVIRKJUN
íhugunar er svonefndur ósýnileiki, sem
fullyrt er, aö unnt séaö ná. Til aö byrja meö
var þaö ein af þeim æfingum sem stund-
aðar voru hér á landi, en nú hefur hún veriö
af lögö. Viö spyrjum Sturlu hvers vegna.
—Það eru til margar æfingar til aö ná
samræmi hugar og likama. Ein af þeim er
að gera sig ósýnilegan. Þaö ætti aö vera
hægt, eins og þaö er hægt aö fljúga. En
raunar höfum viö aöeins heyrt oröróm um
þaö, en þetta gafst engan veginn hjá okkur.
Þess vegna verður þaö látiö biöa framtiö-
arinnar, segir Sturla Sighvatsson.
Þessi æfing eða „sútra”, er framkvæmd
þannig, aö settur er upp veggur úr bréfi.
Sföan er reynt aö ganga i gegnum þennan
bréfvegg þannig aö einhver hluti bréfsins
rifni ekki. En þetta hefur semsé ekki tekist
hér á landi, og þvi leggur fslenska
ihugunarfélagiö fyrst og fremst áherslu á
þaö sem taliö er vera aöal tilgangurinn meö
innhverfri ihugun, — að öölast sam-
ræmingu hugans, vingjarnleika, eölilegt
samband milli fólks og draga úr togstreitu.
Tortryggilegt
Þaö, aö ekki fæst opinber staðfesting á
þessum ytri auökennum innhverfrar ihug-
unar eins og flugi hlýtur aö gera þaö tor-
tryggilegt i augum „óinnvigöra”. Þaö
gegnir ööru máli um þá innri hugarró sem
fullyrt er aö unnt sé aö ná meö ihuguninni —
undirritaöur getur i þaö minnsta boriö um
það, aö þessir tveir viömælendur, sem
stunda innhverfa ihugun virka afskaplega
afslappaöir og eru þægilegir i umgengni.
Hvort jákvæöir kraftar geti haft áhrif á
samfélagið, jafnvel efnahagsmálin skal
hinsvegar látiö liggja milli hluta. En þaö
má ljóst vera, aö einmitt um þessar mundir
er litiö um slika krafta á sveimi!
Viðbót
Þegar litiö er yfir bæklinga og timarit frá
ihugunarhreyfingunni vekur þaö athygli
hvaö frágangur allur er iburöarmikill og
oröfar hátiölegt. Textir.n minnir á helgirit
ýmissa sértrúarsafnaöa. Þar er aö finna i
bland, „vitnanir” iökenda innhverfrar
ihugunar og niöurstööur úr, aö þvi er
viröist, hávisindalegum könnunum. I upp-
setningu eru gylltir rammar mikiö notaöir,
m.a. utan um aöal persónuna i þessu öllu
saman, Maharishi Mahesh Yogi, sem
gjarnan er nefndur „His Holyness”- „hans
heilagleiki”. Er þetta aö viti iökenda „hiö
eina rétta” — „patentlausn” á öllum
heimsins vanda?
—Ég er ekki svo þröngsýnn að segja, aö
þetta sé þaö eina rétta og nútimamaðurinn
trúir ekki á „patentlausnir”. En ég veit þaö
fyrir vist, aö þetta er skemmtileg heim-
speki og tæknin er nytsöm. Innhverf ihugun
fyrirskipar alls enga sérstaka lifnaðarhætti
né býbur mönnum aö haga sér yfirleitt
ööruvisi segir Ari Halldórsson
t þessu er alls konar fólk meö alls konar
sjónarmiö, og ég er t.d. sannfæröur um, aö
þieir sem eru kristnir styrkist i trúnni frek-
ar en hitt. Hinsvegar gerist þaö yfirleitt af
sjálfu sér, aö fólk dregur úr tóbaksneyslu
og áfengisneyslu, dregur sig mikiö út úr
skemmtanallfinu og lifir heilbrigöara lifi en
áöur, segir Ari.
„Réttur hvers manns"
-Astæöan fyrir þvi, aö Maharishi er
kallaöur „His Holyness” er sú, aö hann er
heilsteyptur maöur, sem er gæddur þessu
innra samræmi. Þaö er ómótaö i flestum,
ekki búiö aö draga þaö fram. Hann segir
sjálfur, aö þeir sem stunda innhverfa
ihugun nálgist þaö meira en áöur normal,
allir hinir ónormal.
En þaö er réttur hvers og eins, aö fullt
andlegt atgerfi hans sé dregib fram. Hann
heldur þvi fram, aö máltækið „það er
mannlegt aö gera mistök” eigi ekki rétt á
sér, enginn eigi aö þurfa aö gera mistök.
Þaö er hlutverk Islenska ihugunarfélagsins
að vekja löngun fólks til aö þróa vitundina.
Þess vegna mætti segja, aö sá sem er
haldinn „heilagleika” sé heilsteyptur
maöur, og þaö geti allir oröiö, er svar
Sturlu Sighvatssonar.
En hvaö kostar svo ab ná þessum
árangri? Samkvæmt upplýsingum Sturlu
er starfsemi félagsins fjármögnuö með
félagsgjöldum. Fyrir fulloröna nemur það
kr. 1.350 á ári, skólafólk greiöir kr. 440 á ári,
húsmæöur kr. 800, en fjölskyldugjald er kr.
1740 og þá skiptir ekki máli hvaö fjöl-
skyldan er stór.
Fyrir þetta gjald fá menn tilsögn i hús-
næöi Innhverfrar ihugunar, þar sem menn
geta komiö á hverjum degi. Auk þess ihuga
menn heima hjá sér, helst þegar þeir eru
nývaknaöir,yfirleitt i um 20 minútur i senn.
Námsgjaldiö rennur ekki bara i húsnæö-
iö. Kennarar fara til dæmis einu sinni á ári
til framhaldsmenntunar og endurhæfingar.
I þvi skyni er fimmti hluti gjaldsins lagöur
til hliöar jafnóðum. Og þaö er ekki bara
grunnfræösla sem félagsmenn fá. Þegar
þeir eru komnir vel af staö geta þeir komið
hvenær sem er og látiö kennara meta þann
árangur sem þeir hafa náö. Þessi þjónusta
fæst ævilangt, hvar sem menn eru staddir i
heiminum.
Sigvaldi Hjálmarsson rithöfundur er
liklega sá Islendingur sem hefur kynnt sér
mest austurlensk fræöi.
-Mér finnst þetta allt i lagi, þetta er not-
hæf aðferð og góö til þess aö vera almennt
stunduö, en þó ekki betra en hvaö annaö,
segir Sigvaldi um innhverfa ihugun.
Hann bendir á, aö til séu margir hópar
sem byggja andlega iökun sina á austur-
lenskri heimspeki. Þekktasti hópurinn hér
á landi fyrir utan „bitlayogann” er Anada
Marga.
— Það er þessum hópum sammerkt, aö
þeir telja sig allir vera meö þaö besta eöa
jafnvel hiö eina rétta i andlegri iökun, en
þaö er hæpiö aö tala um slikt i yoga, meöal
yoga á Indlandi er ekki álitið aö til sé „hin
eina sanna” leiö, heldur veröi hver og einn
aö fara sina leið.
Þessi yogi, Maharashim, er þekktur
meöal yoga á Indlandi en þykir ekki skara
neitt framúr, segir Sigvaldi Hjálmarsson
og bætir þvi viö, aö hann vilji siöur en svo
vera neikvæöur i garö iökenda innhverfrar
ihugunar.