Helgarpósturinn - 22.01.1982, Qupperneq 28
• Siðdegisblaðið nýja hefur
mátt ganga i gegnum langar og
strangar fæðingarhriðir. Lengi
vel gekk erfiðlega að breikka
þann hóp manna sem vildu ráðast
i útgáfu þessa blaðs og aðallega
var af kratiskum uppruna i byrj-
un og virkja sterk öfl með annan
pölitískan bakgrunn. Enn nú virð-
ist vera að rofa til og boltinn að
byr ja að rúlla. V iö heyrum að ein-
hverjir ungir athafnamenn, sum-
ir hverjir tengdir Sjálfstæðis-
flokknum, hafi sýnt nýja siðdeg-
isblaðinu áhuga og séu því ekki
fráhverfir að leggja i fyrirtækið
töluverðan pening. A sama tima
muni kunnir peningamenn sem
sagðir eru standa Framsóknar-
flokknum nærri, vera að ihuga
það sama. Fari svo að báðir þess-
ir aðilar helli sér i slaginn höfum
við heyrt að einhverjir málsmet-
andi Allaballar hafi gefið i skyn
að þeir muni ekki láta sitt eftir
liggja.Ástæðan fyriráhuga þessa
mislita hóps er sögð af sama toga
— þeir ætla sér ekki að græða
heldur segjast vilja skapa ein-
hvers konar mótvægi við veldi
Morgunblaðsins og DV, sem þeim
mun öllum þykja standa fyrir æði
tM-öngan hagsmunahóp innan
Sjdlfstæðisfiokksins. Takist að ná
saman öllum þessum óliku hóp-
um um nýtt blað er fengið hið
þverpólitiska litróf, sem stefnt
varað iupphafi, ogörugglega það
fjármagn sem átti að byrja með
og vel það...
• Albert Guömundsson er sagð-
urhalda núuppi miklu sjónarspili
og hefur lýst þvi yfir við kjör-
nefnd sjálfstæðismanna i Reykja-
vik að hann ætli ekki að taka sæti
á lista flokksins i borgarstjómar-
kosningunum. A Alþýðublaðinu i
gærlætur Alberteins og hann hafi
ekki áðurheyrt á þetta minnst og
að enginn hafi talað við hann.
Þetta eru látalæti, þvi að Helgar-
pósturinn veit að maður hefur
gengið undir manns hönd til að fá
Albert ofan af þessari ákvörðun.
Nú siðast i gær munu þeir hafa
ræöst við Olafur B. Thors, for-
maður kjörnefndar, og Albert.
Sumir vilja meina að allt þetta
sjonarspil Alberts snúist raun-
verulega um það að honum verði
lofað forsetastölnum i borgar-
stjórn til að mýkja hann og
tryggja að hann verði áfram i
framboði fyrir flokkinn i Reykja-
vik...
• Þótt prófkjör framsóknar-
manna i Reykjavik verði nú um
helgina, verður ekki sagt að mik-
ið hafi farið fyrir prófkjörsbarátt-
unni i þjóðlifinu. Fróðir segja að
helst sé lifsmark að finna hjá öld-
ungnum siunga Eysteini Jóns-
syni. sem fari hamförum i siman-
um fyrir Gerði Steinþórsdótturog
láti hann sér ekki nægja nema
ótviræðar stuðningsyfirlýsingar
við Gerði eða hrein afsvör....
® Að öðru leyti virðist prófkjörs
barátta fram'sóknar helst eiga sér
stað i kjaftadálki Dagblaðsins og
Visis, þarsem gjarnan er sagt frá
glæsiveislum einstakra fram-
bjóðenda og bilaleiguakstri úr
boðum eða frá stórfundum i,Jtát-
inuhúsum”. I þessum sama dálki
hefur hinsvegar einatt áður verið
sagt frá skondnum tilsvörum
Jónasar Guðmundssonar, stýri-
manns og eins frambjóðandans i
profkjörinu, svo að þeir fram-
bjóðendurnir sem harðast hafa
orðið úti i söguburðinum munu
hafa lagt saman tvo og tvo og
rakið sögurnar umsvifalaust til
Jónasar. Segja þeir Jdnas nota
siðan Indriða „Svarthöföa” Þor-
steinsson sem ritstjórnarsendil
með klausurnar inn i blaðið.Sum-
ir þessara frambjóðenda munu i
upphafi hafa ætlað að hafa Jónas
ofarlega á blaði hja sér og si'num
stuöningsmönnum en hafa nú
strengt þess heit að söguburður-
inn verði Jónasi dýrkeyptur i
prófkjörinu...
• Prófkjörsspádómargerastnú
tiðir m anna á meðal. Við sögðum
i siðasta blaði frá frambjóðend-
um i'prófkjöri krata í Revkiavik
Nú eru getspakir menn og glögg-
farnir að raða þessum frambjóð-
endum upp, og heyrum við, að
miðað við fjölgun borgarfulltrúa
og óbreytt fylgi Alþýðuflokksins
fái hann þrjá menn inn. Þar er
talið annað hvort þeirra Sjafnar
Sigurbjörnsdóttur og Bjarna P.
Magnussonarverði i efsta sæti og
næsta, en siðan komi Guðriður
Þorsteinsdóttir, formaður jafn-
réttisráðs og kvennatromp
flokksins i þessu frófkjöri. t þetta
baráttusæti eru þó einnig taldir
koma til álita Sigurður E. Guð-
mundssonog Bragi Jósepsson....
• Kvennaframboðið i Reykja-
vik er nú komið með fastan
starfsmann á skrifstofunni i
gömhi Hótel Vik, og er það Krist-
ín Ástgcirsdóttir, fyrrum blaða-
maður á Þjóðviljanum sem erþar
ihálfu starfi. Ekki mun af veita,
þvi einhver deyfð er sögð rikja i
herbúðum kvennaframboðsins
þessa dagana, þótt auðvitað geti
úr þvi' ræst...
• Þótt ólafur Jóhanncsson, ut-
anri'kisráðherra, hafi tekið af
skarið að nú skuli oliutankarnir
umdeildu reistir i Helguvik, þá
hefur Svavar Gcstsson ekki gefið
upp alla von um að Allaböllum
takist að bregða fæti fyrir Ólaf i
þeim áformum. Svavar er nefni-
lega sem félagsmálaráðherra yf-
irmaður skipulagsstjóra rikisins
og bak við tjöldin er hann sagður
vera að reyna að koma þeirri
málsmeðferð um kring i rikis-
stjórn að ekkert verði samþykkt i
málinu nema það hafi farið i
gegnum sérstaka samstarfsnefnd
á vegum skipulagsstjóra, þar
sem i skulu eiga m:a. sæti fulltrú-
ar nærliggjandi byggðarlaga, og
verði ekki full komin eining i
þessari samstarfsnefnd, skuli
málið fara fyrir félagsmálaráð-
herra til endanlegrar ákvörðun-
ar. Kunnugir þykjast hins vegar
hafa vissu fyrir þvi að Svavar sé
þegarbúinn að koma þvi svo fyrir
að óhjákvæmilega lendi einn
Allaballi i' samstarfsnefndinni,
sem muni aldrei samþykkja
Helguvikurframkvæmdina, svo
að hann komi þannig til með að
hafa siðasta orðið. Óli Jó. er hins
vegar sagður ætla að halda si'num
kúrs og hefur gengið þannig frá
hnútum að tankarnir i Helguvik
verði nákvæmlega jafn stórir og
tankarnir á Vellinum sem nýju
tankarnir eiga að leysa af hólmi,
svo að Allaballar geti ekki haldið
þvi fram að verið sé að auka
hernaðaraðstöðu á Vellinum...
® Stcingrimur Hermannsson
hefur staðið i ströngu eins og
varla hefur farið fram hjá nein-
um og núna siðast er hann að
basla við að berja nýju efnahags-
málatillögurnar hennar Gunsu i
gegnum þingflokk sinn. Þar mun
hann ekki sist mæta fyrirstöðu
hjá samráðherra sinum Tómasi
Arnasyni og varaformanninum
llalldóri Ásgrimssyni, sem eru
sagðir allt annað en ánægðir. Til
aðmynda munu þeirvera æfirúti
Steingrím út af þvi að við fisk-
verðlagsákvörðunina á hann að
fyrra bragði að hafa heitið full-
trúum fiskverkenda mánaðar-
legu gengissigi. Mun máliðvera i
þvi fólgið að fiskverkendur voru
áður með afurðalán sin i erlendri
mynt en á lágum vöxtum en fengu
þvi hins vegar breytt i innlenda
mynt. Um leið stórhækkuðu hins
vegar vextirnir. I hita fiskverð-
lagsins á Steingrimur hins vegar
að hafa lofað fiskverkendum þvi
til að knýja fram einingu i yfir-
nefndinni, að þeir fengju þennan
vaxtamismun milli afurðalán-
anna fyrr og nú bættan með 2 og
1/2 prósent gengissigi á mánuði.
Og þar kom hann heldur betur við
kauninn á bankamálaraðherran-
um og formanni bankaraðs Seðla-
bankans, þeim Tómasi og Hall-
dóri...
• Við heyrðum þessa sögu að
vestan. Þaðan foru einhverjir
skipstjórnarmenn tilEnglands og
lögðu þá m.a. leið sina tii Hull til
að skoða þessi 5 notuðu bresku
skip sem Steingrimur hefur verið
að leggja blessun sina yfir aö
verði keypt til aðskiljanlegra
staða á landinu. Og mikil ósköp —
Vestfiröingarnir segjast svo sem
hafa gengiðfram á fimm ryðgaða
kláfa i einum dokknum sem þeim
var vi'sað á en það sem þeim þdtti
þó merkilegra var að fyrir fram-
an þá tróndi glæsilega lysti-
snekkja og bar það táknræna
heiti: Danny Boy...
• Við heyrum að Vigdfs Finn-
bogadóttirforsetihafi farið nokk-
uð ævintýralega ferð norður i
Þingeyjasýslu til að fylgja öldn-
um ættingja eða vini til grafar. 1
samræmi við hirðsiðina mun for-
setaskrifstofan hafa hringt i
sýslumann og Oskað eftir þvi að
hann sækti forsetann á flugvöll-
inn. Þegarhins vegar vélin lenti á
vellinum I Aðaldal kom upp úr
dúrnum að sýslumaður hafði
gleymt forsetanum, svo að Vig-
disi hefði orðið strandaglópur á
velllinum, ef góðviljaðir menn
hefðu ekki skotið undir hana fari
á áfangastað. En ævintýrið var
ekki þar með búið. Vigdis gisti
siðan eina nótt á hótelinu á Húsa-
vik. Þessa sömu nótt urðu tveir
ungir menn á kenderii i bænum
uppiskroppa með áfengi svo að
þeir áttu ekki betra ráð en að
brjótast inná hótelið tilaðná sér i
meira. Ogvitimenn —þarna sem
þeir rogast með nýjar birgðir á
leið út úr húsinu, þurfa þeir ekki
endilega að ganga fram á forseta
Islands — i morgunslopp. Segir
sagan að svo hafi piltunum
brugðið viðþessa sjón að þeir hafi
kastað frásér þýfinuog siðan sést
i hæla þeirra út um næstu opnu
gátt...
ljóst orðið að breska hljómsveitin
Human Lcague komi til Islands
og haldi hljómleika 1. april næst-
komandi, ef hentugt húsnæði
finnst. Diskótekið Broadway mun
út úr myndinni vegna of litillar
lofthæðar. Er Háskólabió talið
koma einna helsttil greina. Þá er
vitað að hljómsveitir eins og Bad
Manners, TenpolcTudorog UB 40
vilja koma hingað. Þessi mál og
fleiri af svipuðu tagi skýrast þeg-
ar Stcinar Berg, forstjóri Steina
hf. kemur aftur af alþjóðlegu
músikkaupstefnunni MIDEM,
sem nú stendur yfir i Cannes...
• Islenskir djassunnendur geta
farið að hlakka tii vorsins þvi I
byrjun april verður haldinn kon-
sert, sem á eftir að liða mönnum
seint úr minni. Það er avant
garde sveitin Art Enscmble of
Chicago, með þá Lester Bowie,
Joscph Jarman.og Malachi Fav-
ors.ibroddi fylkingar, sem ætlar
að blása fyrir okkur. Að venju er
það Jazzvakning, sem stendur
fyrir þessu...
Það hefur áður komið fram
að nokkuð los hefur komist á Dag-
blaðs/Vísis-liðið eftir sameining-
una óvæntu og ýmsir þar á rit-
stjórn sagðir hafa verið að lita i
kringum sig eftir vænlegri vinnu-
stöðum. Og nú mun afráðið að
Sigurður Svcrrisson, einn af
helstu fréttahaukum blaðsins,
ætlar að færa sig um set og fara i
erlendar fréttir hjá Morgunblað-
inu...
16 -19 ára” eöa 7 - 9%, en einnig
varð umtalsverð fækkun lesenda
sem starfa við sjávarútveg. En
einn hópur erþó tryggur og dygg-
ur Þjóðviljalesandi og jafn stór
sem fyrr, — opinberir starfs-
menn. Og segiðsvo að rikisstyrk-
urinn geri ekki gagn....
• Ekki varð Geysisferðin þeim
Dagblaðsmönnum til fjár. Sig-
urður Greipssoni Haukadal sem
ætlaði að framkalla gosið mun i
fyrsta lagi hafa talið sig þurfa um
100 kg. af sápu til að fá Geysi
gamla til að sýna sig en sagan
segiraðþeir Hörður Einarssonog
Svcinn R. Eyjólfsson hafi ekki
timtað kaupa nema 60 kiló, enda
grænsápa nokkuð dýr. Sem var
svo sem allt i lagi, þvi að Geysir -
þurfti ekki nema 40 kik) þegar til
kom. Enþaösem verra var fyrir
Dagblaösmennina: Þegar þeir
komu i Haukadalinn — hver var
þarþá ekki fyrir annar en einmitt /
erkifjandinn Arni Johnsen i
ásamt fleiri Moggamönnum — HBjj
staddir þarna af einskærri tilvilj- H
un. Og hvemig sem þeir reyndu,
gátu þeir Dagblaðsmenn ekki
hrisst Moggann af sér og árang-
urinn sást i blööunum á miðviku-
daginn var, þar sem Mogginn
skartaði árla morguns stórri for-
siðumynd og opnugrein með við-
tölum við málsaðila svo að Dag-
blaðið varð að láta sér nægja
minni forsiðumynd og aðeins
klausu á bak. Liklega fer þetta á
söguspjöld blaðamennskunnar
sem eitt af m einlegustu skúbbum
hennar —en „skúbb” þýðir á fag-
máli að vera fyrstur með frétt-
ina...
® Blaðaútgáfa virðist ætla að
blómstra eitthvað áfram, þótt
viða sé basl i þeirri grein. Ekki
sist virðist sem sérritaútgáfa sé
að taka fjörkipp hérlendis ekki
siðuren erlendis, og til dæmis lifa
hér núna tfmarit um matargerð-
arlist og hárgreiðslu. Um nokkurt
skeið hefur komið hér út sam-
nefnt ritum hús og hibýli, nú sið-
ustuárinf veglegu formihjáSam
sf. Eftir þvi' sem við heyrum er i
bigerð að láta Hus og hibýli ekki
vera eittum hituna á þessu sviði
öllu lengur, og er Gcstur ólafs-
son.arkitekt sagður undirbúa út-
gáfu nýs rits af þessu tagi i' sam-
vinnu við fleiri arkitekta....
• Söfnunin til styrkar Pólverj-
um hérlendis gekk vel eins og
fram hefur komið. Þannig söfn-
uðust um sex milljónir króna á
vegum Iljálparstofnunar kirkj-
unnar. Það hefur hins vegar vak-
ið nokkra furðu til hvers þessum
milljónum var varið, en um það
mun Hjálparstofnunin hafa haft
samstarf við norska kollega, —
keypt var lúxusálegg af ýmsu
tagi oná brauð. Þykir það skrýtin
sending til brauðlauss lands...
• Poppáhugafólk getur átt von
á glaðningi á næstunni. Nú mun
® Ýmsir fastir greinahöfundar
gamla Dagblaðsins.sem nú heitir
Dagblaðið & Visir eru afar
óánægðir um þessar mundir. Hef-
ur jafnan gengið treglega fyrir
það fólk að innheimta laun fyrir
sin störf, en þó aldrei eins og nú.
Við heyrum að enn eigi sumir eft-
iraðfá greiðslur fyrir nóvember-
mánuð, og einnig leiðréttingar á
launum ágúst, september og
október. Ekki er vitað hvað veld-
ur, nema hvað sitthvaö er sagt
týnast i samruna tveggja bók-
halda...
• Fátt bar til tiðinda á ráð-
stefnu um málefni Þjóðviljans
um siðustu helgi, enda tilgangur-
inn trúlega ekki sist sá að leyfa
taugatrekktu starfsfólki að rasa
út. Þókom þar framm.a.að blað-
ið hefur tapað um þúsund áskrif-
endum á þremur árum og skyldi
maður ætla að það eitt væri næg
ástæða til einhverra breytinga á
blaðinu. Gisli B. Björnsson, aug-
lýsingaforstjóri m ,m. gerði á ráð-
stefnunni samanburð á lesenda-
könnunum frá i fyrra og 1978.
Kom þar til dæmis i ljós að lestur
Þjóðviljans fór minnkandi i' flest-
um þeim lesendahópum sem
flokkaðir voru eða um 3 - 4%.
Mest var lesendafækkunin i' hóp-
unum „húsmæður” og „ungt fólk
® Við hér á Helgarpóstinum er-
um hálf hissa á öllum þessum lát-
um idagspressunni útaf Gcysiog
gosinu f honum. Þótt við séum
ekki nema vikublað, sögðum við
samt frá þessu þegar fyrir tveim-
ur mánuðum, ef við munum rétt.
Að visu var þá menntamálaráðu-
neytið ekki formlega búið að
kæra skoruframkvæmdina
en það fór ekkert á milli mála að
þeir voru móðgaðir i mennta-
málaráðuneytinu. Megum við
lika minna á að við sögðum frá
þvf í byrjun nóvember að kunnur
athafnamaður og listunnandi
væri búinn að kaupa Lifshlaup
Kjarvals og hefði hug á því að
Reykjavikurborg gæti eignast
verkið eins og nú hefur verið að
koma fram ifréttum. Við gátum
ekki nefnt Þorvald Guðmundsson
þvi að hann var i útlöndum á
þessumtima en málið var afgreitt
sem slúðursaga með þvi að Morg-
unblaðið birti frétt og lét Guð-
mund i Klausturhólum skrökva
þvi að sér að ekkert væri hæft i
þvi að Lifshlaupið væri selt. Eða
eins og við höfum alltaf sagt — oft
er svokölluð „ábyrg” frétta-
mennska ekki annað en skálka-
skjól fyrir vonda fréttamennsku
og þar af leiðandi óábyrga...