Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 7
Andrés Sigurvinsson og Magnús Ragnarsson í hlutverkum sínum í fyrsta verkefni Stúdentaleikhússins. Stúden ta/eikhúsið rís upp frá Stúdentaleikhúsið vaknar til lifs- ins í dauðabúðum nasista. Lífgjaf- inn er bandarískt leikrit, „Bent“, eftir Martin Sherman og verður það frumsýnt í Tjarnarbíói mið- vikudaginn 1. desember kl. 20. Verkið fjallar um líf og örlög fólks, þegar nasistar voru að kom- ast til valda í Þýskalandi. Fyrri hluti þess gerist daginn eftir nótt hinna löngu hnífa, þegar nasistar gerðu út af við „kynvillingaklíku“ Erics Rörn^og síðari hlutinn gerist í Dac- hau og sýnir hið lagskipta helvíti, sem þar var. En hvers vegna þetta leikrit sem fyrsta viðfangsefni leikhússins eftir áratuga dvala? Því svarar einn úr hinum rúmlega 50 manna hóp, sem Stúdentaleikhúsið er, Einar Guð- jónsson: „Astæðan er fyrst og fremst sú, að þetta er allt öðruvísi leikrit. í stefnu skrá Stúdentaleikhússins segir að það eigi að taka fyrir þau verk, sem dauðum atvinnuleikhúsin myndu ekki taka. Við töldum okkur einnig ráða við þetta. Það hlýtur að skírskota til allra tíma, sem gerðist í Þýskalandi nas- ismans og í öllu krepputalinu nú, höfðaði það mjög sterkt til okkar,“ segir Einar. Rúnar Guðbrandsson þýddi verkið, en Inga Bjarnason leikstýr- ir. Helstu hlutverkin eru í höndum Andrésar Sigurvinssonar, Árna Pálssonar og Magnúsar Ragnars- sonar, en alls taka um 50 manns þátt í sýningunni. Sýningardagar verða föstudagar, sunnudagar, mánudagar og miðvikudagar. Stúdentaleikhúsið fékk styrk frá háskólanum til að standa straum af kostnaði við sýninguna, sem einnig er fjármögnuð með sölu styrktar- korta. Sýningar verða út desem- ber ef viðtökur verða eins og að- standendur gera sér vonir um. „Ógeðslega fríkuð stuðbók'' Páil Pálsson: Hallærisplanið Skáldsaga fyrir börn og fullorðna (102 bls.) Iðunn 1982 í hallærisplaninu segir frá 15 ára unglingum í Reykjavík. Sögu sviðið er heimilið, skólinn, sjoppan, partý hjá kunningja og loks göturnar og Planið. Sagan gerist á einni viku eða svo en þó gerist stærsti hluti hennar á föstudegi og fram yfir miðnætti. þegar þau vönguðu fyrst og ætl- uðu að stinga af inn á vinnustofu kennara en voru svo óheppin að koma þar að leikfimikennaran- um berum og stranga sögukenn- aranum lítt klæddum á næsta leiti. En því miður voru Stína og vinkona hennar svo óheppnar að vera of legi á sólbaðsbekk, svo þær urðu léttgrillaðar og komust ekki í partíið á föstudeginum, - algjör bömmer fyrir Eika. Þær persónur sem leiddar eru fram í bókinni eru ósköp venju- legir unglingar. Sú mynd sem rM<)Jcvnenn/it eftir Gunnlaug Ástgeirsson Aðalpersónan í bókinni er Eiríkur sem er 15 ára og er í ní- unda bekk. Hann býr með for- eldrum sínum og eldri systur í Hlíðunum. Reyndar koma þau ekki mikið við sögu. Pabbinn er ekki annað en athugasemdir um fréttirnar á bak við Morgunblað- ið á matmálstímum. Mamman kemur svolítið meira við sögu, en er þá ekki nema svipmynd. Sama er að segja urn systurina sem er dæmigerð óþolandi stórasystir. En það er ekki heimur full- orðna fólksins sem ætlunin er að lýsa í þessari bók heldur veröld nútíma unglinga í Reykjavík. í þeim tilgangi fylgjum við Eiríki eftir og félögum hans, Ævari, Sigga og Halla. Einnig koma nokkrar stelpur við sögu, mest Stína sem Eiríkur er skotinn í. Þau gera samning um að vera saman, á föstu, eftir skólaballið höfundur gefur okkur af þeim er sönn, eða að minnsta kosti alveg nógu sönn til þess að bregða upp trúlegri mynd af veröld unglinga í Reykjavík. Vandamál þeirra spanna allt frá því að redda sér brennivíni í Ríkinu yfir í að losna við graftarbólur, og frá ástinni yfir í hvaða aðferð dugi best til að slá pabba um hundraðkall. Ein- hverjum kann að þykja partí- lýsingin ótrúleg -. en hvað gerist ekki þegar pabbi og mamma eru í útlöndum og táningarnir halda partí.Og ef einhverjum þykir lýs- ingin á lífinu á Planinu óféleg þá ætti sá hinn sami að virða það fyrir sér í rólegheitum - og án hneykslunar. Því þetta eru krakkar, táningar, sem eru að reyna að skemmta sér, finna form til að veita óeirðinni og ólgunni sem í þeim býr útrás og hvaðan hafa þau fyrirmyndirnar. Nema Kettir í veiðihug. Þannig lítur upp- hafið að kafianum um köttinn út í nýju dýrabókinni. Góður þriller af gamla skó/anum Sjúkur spítali Regnboginn: Britannia Hospital. Bresk. Árgerð 1982. Handrit: David Sherwin. Aðalhlutverk: Malcom McDowell, Leonard Rossiter, Graham Crowden. Leikstjóri: Lindsay Anderson. Tvær af fyrri myndum hins breska Lindsay Anderson öðluðust gríðarlegar vinsældir hér á landi, fyrst If og síðan O Lucky Man, báðar með Malcom McDowell í aðalhlutverkinu. Hér eru þeir aftur samankomnir, og taka fyrir heilbrigðiskerfið, kóngafólkssnobberí, fjölmiðla og verkalýðsbaráttu í einum ■ „pakka“. Myndin gerist á einum merkisdegi í sögu Britannia spít- alans og lýsir algjöru upplausnar- ástandi sem skapast þegar drottn- ningarmóðirin ætlar að koma í heimsókn. Myndin er öll í Lindsay Anderson stílnum, - dá- lítið sundurlaus, ágætlega geðveik á köflum, mjög ýkt, fyndin hér og þar, ógeðsleg þar og hér, — blanda af horror, vísinda- skáldskap, þjóðfélagádeilu og gríni. Gallinn er sá að þetta er svosem ekkert mjög frumlegt lengur, og sumar hugmyndirnar eru reyndar ansi útjaskaðar. Það breytir ekki því að Britannia Hospital er þokkaleg skemmtun, sumar týpurnar eru óborganlegar og leikur yfirhöfuð góður. Úti í Englandi stuðaði myndin víst marga, einkum það háð sem sneri að konungsfjölskyldunni, ímynda ég mér en hér uppá ís- landi stuðar hún fáa er ég hrædd- ur um. Og þá fer mesta púðrið úr henni. En samt: Góð skemmtun, og svo er minnst á ísland. - GA hvað að munurinn er sá að hinir fullorðnu hafa vemdaða drykkju- staði þar sem þeir eru ekki til sýnis fyrir þá sem eiga leið hjá. Sagan er sögð út frá Eiríki og er sögumaður ævinlega í nánd við hann, en er lítt virkur og hverfur á bak við söguna. Sagan er því eiginlega sögð innanfrá heimi unglinganna en kemur ekki að honum utanfrá. f rauninni er allt sem gerist næsta eðlilegt, það veldur söguhetjum okkar aðeins mismunandi miklum vand- ræðum. Sennilega er það sá mæli kvarði semunglingarleggjahelst á atburði sem gerast í kringum þá. Það sem er þó skemmtilegast við þessa bók er hversu vel höf- indunum tekst að kallafram and- rúmsloftið í kringum unglingana í stílnum, sérstaklega þó í samtöl- unum sem eru fjölmörg í bókinni. Það er fullt samræmi milli sögu- efnisins, persónanna og stílsins. Að vísu er unglingamálfarið ýkt nokkuð, en það gerir aðeins bragðið af bókinni sterkara. Þegar ég var nýbúinn að lesa bókina komst 14 ára vinkona mín í hana og það er ekki að orðlengja það að hún lagði hana ekki frá sér fyrr en hún var búin að lesa hana alla. Þegar ég spurði hvort þetta væri satt, þá hélt hún nú aldeilis að svo væri og þegar ég spurði hvernig bókin væri var svarið: „Ógeðslega fríkuð stuðbók."^ G.Ást. w gelrsson I um- sögn sinnl um Hallærisplanið. Páll Pálsson - „Það sem er þó skemmtilegast við þessa bók er hversu vel höfundinum tekst að kalla fram andrums- loftið I kringum unglingana í stílnum...", segir Gunn- laugur Ást- Lítii gáta fyrir fullorðið fólk: Hvað eiga eftirtalin dýr sameigin- legt: Kýrin, kindin, geitin, svínið, hesturinn, hundurinn, köttúrinn og hænan? Þau eru húsdýrin okkar, og allan fróðleik um þau má finna í nýút- kominni bók, „Húsdýrunum okk- ar“ eftir þá Stefán Aðalsteinsson og Kristján Inga Einarsson, sem bóka- útgáfan Bjallan gefur út. „Húsdýrin okkar“ er „fræðslu- bók fyrir börn“, eins og Kristján Ingi orðar það. Annars vegar bygg- ir hún á texta, sem Stefán hefur skrifað um dýrin og hins vegar á litmyndum, sem Kristján Ingi hef- ur tekið af þeim í þeirra rétta um- hverfi. „Tilgangur okkar með þessari bók var að koma til móts við börnin | og gera góðar bókmenntir fyrir Guðjón Amgrimsson og Jön Axel Egilsson den) en hann dvelur á heimilinu um stundarsakir vegna nýaf- staðins magauppskurðar. Afinn er fyrrverandi Áfríkuljósmyndari og Philip heldur dýragarð í her- berginu sínu, þrátt fyrir asma (?). Útkoman verður sú að afinn kaupir meinlausan snák í gull- fiskabúð og sendir strák eftir ger- seminni. Vinnukonan sendir bíl- stjórann eftir vini sínum Jacmel (Klaus Kinski) sem er stórglæpa- maður, að sjálfsögðu, og ætla þau þrjú að ræna stráksa. Nú fer allt í handaskolum Æað kemur nefnilega í ljós að gull- fiskasalinn selur líka baneitraða mömbu (Svarta mamban), svart- an snák og af einskærri tilviljun er gullfiskasalinn á sjúkrahúsi þegar Philip kemur í búðina. hér en þar, og Susan George, sem verður fyrir biti snáksins og er synd að hún skuli hverfa svo snemma úr myndinni. í myndinni er einnig tæpt á ýmsum atriðum sem maður held- ur að muni síðar koma í ljós, t.d. móteitrið gegn biti snáksins, sem ekki má gefa fólki með ofnæmi (t.d. asma), gefur ýmislegt til kynna. Þessi atriði eru ekki nýtt og þegar myndin er brotin upp í lokin eru notuð sömu gömlu úr- ræðin, reyndar í frábærri töku og klippingu og endirinn gefur til kynna að hættan sé ekki liðin hjá. En þrátt fyrir allt getur maður litið fram hjá vanköntum, því spenna, kvikmyndataka og klipp- ing er með eindæmum góð. JAE Húsdýrin okkar: Al/t, sem þú vi/dir vita... þau. Börn fóru meira í sveit hér áður fyrr, en núna sjá borgarbörn- in dýrin bara út um bílrúðuna“, segir Kristján Ingi. Texti bókarinnar er miðaður við 6-10 ára börn og ætti hún því að koma skólabörnum í góðar þarfir, þar sem vönduð íslensk dýrabók hefur ekki verið til fram að þessu. „Ég vil hvetja foreldra, afa og ömmur að gera öllum börnum kleift að eignast þessa bók. Hún á Stefán Aðal- steinsson höfundur texta. Kristján Ingi Einarsson höfundur Ijósmynd- anna. erindi til allra barna, sem hætt eru að komast í nána snertingu við dýr- in“, segir Kristján Ingi. - GB Bíóhöllin: Snákurinn (Venom). Árgerð ný. Leikstjóri: Piers Hag- gard, Handrit: Robert Carring- ton eftir sögu Alan Scholefield, Aðalleikarar: Klaus Kinski, Nicol Williamson, Oliver Reed, Ster- ling Hayden, Lance Holcomb og Susan George. Hér er kominn góður þriller af gamla skólanum. Spennan er byggð upp hægt og sígandi og helst allan tímann. Tilvalin af- þreying í skammdeginu. Philip (Lance Holcomb) er sonur ríkra hjóna í London. Móðir hans ætlar að skreppa til Rómar að hitta föður hans, sem rekur hótelkeðju. Auðvitað sjá vinnukonan (Susan George, núna í Tilhugalíf) og bílstjórinn (Oliver Reed) sér leik á borði að ræna stráknum. Fyrst verður að plata afann á brott (Sterling Hay- Það er ekki vert að rekja sögu þráðinn frekar. Reyndar má minnast á lögreglustjórann, leikinn af Nicol Williamson (The Human Factor) sem er mun befri

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.