Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 23
Jp&sturinn!^±^L 26. nóvember 1982 ^ Þrátt fyrir fjárþöng láta þeir f' \ hjá Námsgagnastofnun ekki Si deigan síga. Nýlega var Karl Jeppesen settur forstöðumaður Fræðslumyndasafns ríkisins, sem nú er deild í Námsgagnastofnun. Hann tók við af Sveini Pálssyni sem hefur látið af störfum fyrir aldurs sakir eftir margra ára starf þar, fyrst sem aðstoðarmaður, síðast forstöðumaður. Við þennan til- flutning á Karli yfir í Fræðslu- myndasafnið losnaði staða yfir- manns Námsgagnamiðstöðvarinn- ar, sem hann sá um að skipuleggja og koma í gang. Starfræksla Náms- gagnamiðstöðvarinnar virðist hafa gengið nokkuð vel þetta fyrsta ár, en þangað komu m.a. allir þeir 1500 grunnskólakennarar sem sóttu sumarnámskeið á síðastliðnu sumri og notfærðu sér þá aðstöðu sem þar er, til að kynna sér nýjung- ar í námsgögnum og eigin náms- gagnagerð. En Karl er aftur kominn í uppbyggingastarfið. Hlutverk hans er að sjá um mynd- bandavæðingu Fræðslumynda- safnsins, en gömlu filmurnar þar eru orðnar úr sér gengnar og lítil endurnýjun hefur orðið á þeim. En fjárhagsvandræði Námsgagna- stofnunar geta sett strik í reikning- inn þannig að fyrst um sinn verði Karl Jeppesen að láta sér nægja að grisja filmusafnið af ónýtum og úr- eltum myndum og reyna að gera sitt besta til að halda í horfinu þar til úr rætist í fjármálunum... Framkvæmdastjóraskipti /■ Jverða von bráðar á Þjóðvilj- anum. Eiður Bergmann mun vera að hætta eftir langa og dygga þjónustu en í hans stað sest ung kona í framkvæmdastjórastólinn, Guðrún Guðmundsdóttir, ekta- kvinna Ásmundar Stefánssonar, forseta Alþýðusambandsins... Nýir tímar, nýir menn Sjálfstæðismenn hafa að undanförnu horft til fram- tíðarinnar og valið unga menn til ábyrgðarstarfa. Geir H. Haarde er 31 árs gamall hagfræðingur og formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. I því starfi og öðrum sem hann hefur gegnt hefur hann notið vinsælda og virðingar þeirra sem til þekkja, fyrir hæfni og dugnað. Geir hefur víðtæka þekkingu á þjóðmálum. Festa hans og lipurð munu koma að gagni á Alþingi. -1 Styðium Geir H. Haarde í prófkjörinu Veljum þlngmenn framtídarinnar i Stuðningsmenn GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM Frost og fönn eru engin fyrirstaða þegar ATLAS er annarsvegar. ATLAS snjóhjólbarðar: Minni bensíneyðsla, meiri ending og síðast en ekki síst, aukið öryggi fyrir þig, þína og þá sem á vegi ykkar verða. Á ATLAS eru þér allir vegir færir. Hjólbarðaviðgerð Jóns Ólafssonar við Ægissíðu sér um að selja og setja undir ATLAS snjódekk fyrir íbúa mið- og vestur- bæjar. SAMBANDIÐ VÉLADEILD HJÓLBARÐASALA Höfðabakka 9 r 83490 -38900

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.