Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 17
BYGGINGARHAPPDRÆTTI SATT ‘82 VERÐLAUNAGETRAUN - SEÐILL 1 Dregið út vikulega úr réttum svörum —ath. rétt svör þurfa að hafa borist innan 10 dagafrá birtingu hvers seðils. HVAÐ HEITA ÞESSIR TÓNLISTARMENN ?????? Vinningar í boði 1. Kawai kassagítar frá hljóðfærav. Rín. Verðmæti kr. 2580.- 2-5. 5 stk. nýjar íslenskar hljómplötur: Magnús Eiríksson Smámyndir, útg. Fálkinn Jakob Magnússon Tvær systur.útg.steinar Þorsteinn Magnússon Líf.úta- GRAMM Sonus Future - Þeir sletta skyrinu ... útg. Hljóðriti dreif. Skífan Verðmæti um kr. 1500. HEILDARVERÐMÆTI VINNINGA SAMTALS KR; 8.580.- rlpSsturinn. Föstudagur 26. nóvember 1982 Myndirnar hér að ofan eru af þekktum tónlistarmönnum sem allir eru meðlimir í SATT (Samband Alþýðutónskálda- og Tónlistarmanna). Ef þið vitið nöfn þeirra, skrifið þá viðeigandi nafn undir hverja mynd. Fyllið síðan út í reitinn hér fyrir neðan; nafn sendanda, heimilisfang, stað.símanúmer. Utanáskriftin er: Gallery Lækjartorg Hafnarstræti 22 Rvík. sími 15310. Látið 45 kr. fylgja með og við sendum um hæl 1 miðaí Byggingarhappdrætti SATT (ðregið 23. des.). ATH: Rétt svör þurfa að berast innan 10 daga frá birtingu hvers seðils en þá verður dregið úr réttum lausnum. ALLS BIRTAST 4 SEÐLAR FYRIR JÓL. (Dregið 23. des. 82) NAFN HEIMILI- STAÐUR- SÍMI -- Þú mátt senda inn eins marga seðla og þú vilt. Kr. 45 þurfa að fylgja hverjum seðli og þú færð jafnmarga miða ( Byggingar- happdrætti SATT senda um hæl. JÖLAGJÖFIN í ÁR ER ÍSLENSK HLJÓMPLATA +- MIÐI í BYGG- INGARHAPPDRÆTTI SATT. Utanáskrift: Gallery Læjartorg Hafnarstræti 22 Rvík. sími 15310 ViNNINGAR í BYGGINGARHAPPDRÆTTI SATT: 1. Renault 9 kr. 135.000,- 2. Fiat Panda kr. 95.000.- 3. Kenwood og AR hliómtækjasamstæða kr. 46.000,- 4-5. Úttekt í hljóðfæraversl. Rín & Tónkvísl að upph. kr. 20.000,- samt. kr. 40.000,- 6. Kenvwood ferðatæki ásamt tösku kr. 19.500.- 7. Kenwood hljómtækjasett í bílinn kr. 19.500,- •27. Úttekt í Gallery Læjartorgi og Skífunni-islenskar hljómplötur að upph. kr. 1.000.- kr. 20.000,- Verömæti vinninga alls kr. 375.000,- (Ath. verðmæti vinninga miðað við apríl 1982) Fiat Panda: Verðmæti í dag 121.000.00 Stina segir... Vitið þið, hver munurinn er á kapítalísku þjóðfélagi og kommún- ísku? Jú, í kapítalísku þjóðfélagi arðræna þegnarnir hver annan. í kommúnísku þjóðfélagi er þessu þveröfugt farið. Virðingu fleiri þjóðþinga en Alþingis hefur verið stefnt í hættu. Þannig gekk einhverntímann yfir þingmenn á breska þinginu, þegar Winston Churchill, sem þá var forsætisráðherra, var óvenju drukkinn eitt sinn á þingfundi. Stóð þá upp kvenkyns þingmaður úr Verkalýðsflokknum, stór og þrekin, sem kölluð var þingmanna á milli „Battling Bessie“. Hún sagði við forsætisráðherrann: „Herra Churchill, hvað á þessi hneisa að þýða? Þér vafrið hér um sali löggjafasamkundunnar útúr- drukkinn, sjálfum yður og þinginu til skammar!" Churchill stóð á fætur, riðaði ei- lítið, en drafaði svo fram svar sitt: „Frú mín kær! Það er rétt, að ég er fullur. Þér eruð ljót! En, kærafrú, í fyrramálið verð ég allsgáður...." Svo var það ljóðskáldið, sem ný- lega hafði gefið út þriðja og lang- samlegasta leiðinlegasta ljóðasafn sitt. Hann hafði þungar áhyggjur af því, að ekki birtist orð um verk hans á prenti, og leitaði til skáld- bróður síns, eftir ráðleggingum og hughreystingu. — Hvað á ég að gera, elsku vin- ur, það ríkir algert þagnarsamsæri um bókina mína! Vinur hans hugsaði sig um, en svaraði svo: — Taktu þátt í því, elskulegur. Menntamálaráðuneytið auglýsti stöðu lausa til umsóknar um dag- inn og margir sóttu um. Nefnd gaf umsögn um umsækjendur, en síð- an fór málið til ráðherra. Einn umsækjenda, sem talinn var með hæfari mönnum til starf- ans, var spurður, hvort hann teldi sig eiga góða möguleika á að ná embættinu. Hann svaraði: — Ráð- herra gæti valið verri mann til starf- | ans, og ég held hann geri það. Gyðingur var í húsnæðisleit í Þýskalandi, og leitaði til húsamiðl- \ ara, sem tjáði sig fúsan að útvega j honum húsnæði. — En fyrst verð ég að spyrja þig : nokkurra spurninga. Sú fyrsta er, : hvaða trúflokki tilheyrið þér? — Ég er gyðingur. — Fyrirgefið, en við höfum ekk- ert húsnæði á lausu eins og er. Gyðingurinn leitaði víðar, en ; allsstaðar var hann spurður um trúna, og allsstaðar var honum i neitað. Að lokum gafst hann upp, og ákvað að ljúga til um trúarbrögð sín. Hann mætti hjá húsamiðlara, sem spurði um trúarbrögð hans. — Ég er kristinn. -í — Já, þá eru það nokkrar spurn- ingar um kristinfræði. Hver var Jesús? — Sonur Guðs. — Gott. Hvar fæddist hann? — í Bethlehem. — Gott. Hvar í Bethlehem? — í fjárhúsi. — Gott. Af hverju fæddist hanní fjárhúsi? — Af því hann var Gyðingur og fékk ekki almennilegt húsnæði. Og leigjandinn, sem eftir þrjú ár var orðinn þreyttur á kuldanum, og fór til leigusalans. — Ég kom út af gluggunum í íbúðinni. — Já, einmitt. Hvað með þá? — Gætirðu ekki látið setja í þá rúður fyrir veturinn? HVERJU \ iir™ OPID PRÓFKJÖR Alþýðuflokksins 27. og 28. þ. m. Ágúst Einarsson útgerðarmaður Baráttumaður ábyrgðar og skýnsemi í atvinnumálum Ágúst á erindi á Alþingi Styðjum Ágúst í prófkjörinu jSÍMI18977 Studningsmenn

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.