Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 24
24 Föstudagur 26. nóvember 1982 ' ] Mönnum hefur orðið tíðrætt, f Á um vantraustsumræðurnar á ^' Alþingi á dögunum, líklega mest af því að nú fékk þjóðin ekki bara að heyra hvernig slíkar um- ræður fara fram heldur einnig að sjá. „Fjallræða" Vilmundar Gylfa- sonar hefur orðið mönnum um- ræðuefni og ber flestum saman um að Vilmundur hafi þarna fiskað mörg atkvæðin hvernig svo sem ræðan nýtist honum að 5 mánuðum liðnum þegar gengið verður til kosninga. Það er því mál manna að öfugt við aðra flokka landsins eigi Bandalag jafnaðarmanna senni- lega auðveldara um þessar mundir að krækja í atkvæðin en fram- bjóðendur á lista flokksins. Það kann þó að breytast... í. | Og enn um vantraustsum- f J ræðurnar. Það hefur vakið at- hygli hversu veikum tals- mönnum Sjálfstæðisflokkurinn tefldi fram í umræðunum, og hafa ýmsir sjálfstæðismenn látið þau orð falla að allar vonir flokksins um meirihluta í næstu kosningum hafi þarna fokið út í veður og vind. í sölum Alþingis hefur verið hent gaman að orðum Guðrúnar Helga- dóttur, sem hún missti út úr sér þegar Egill Jónsson frá Seljavöllum sté í pontu og byrjaði að tala: „Það er alveg sama hvað hann Egill segir - hann lítur alltaf út eins og fram- sóknarmaður... r'l Próft j ö rsm á I Sjálfstæðis- f'J flokksins og Alþýðuflokksins -X'eru mjög í brennidepli um þessar mundir. Hjá Sjálfstæðis- flokknum þykir sýnt að þeir Geir Hallgrímsson, Albert Guðmunds- son, Birgir ísleifur Gunnarsson og Friðrik Sóphusson séu sem næst bókaðir í fjögur fyrstu sætin en nánast allt geti gerst í næstu sætum þar á eftir. En dyggir sjálfstæðis- menn vonast hins vegar til að af næstu þremur sætum komi eitt í hlut annars hvors verkalýðsleið- togans sem í prófkjörinu keppa, eitt í hlut kvennanna sem keppa og eitt til ungu mannanna. Þetta yrði óskaniðurstaðan, en eins og menn eru farnir að þekkja úr prófkjörs slagsmálum liðinna ára kemur hún sjaldnast upp... Hjá Alþýðuflokknum verður f'l líka hart barist og fæstir munu treysta sér til að spá um það hvort þeirra Jóhönnu Sigurðar- dóttur eða Jóns Baldvins hreppir tyrsta sætið þar. Lengst af var talið nokkuð víst að Agúst Einarsson, gjaldkera flokksins og fyrrum þing- mann hans, mætti nokkurn veginn bókaíþriðja sæíið því að hann er í miklu áliti meðal hinna almennu flokksmanna.Hann kann hins vegar aðgjalda þess að hann er ekki eins þekkt andlit og helsti keppinautur hans,Bjarni Guðnason prófessor, þ.e.a.s. verði mikil þátttaka í próf- kjörinu og margir utanaðkomandi kjósi, enda er Bjarni sagður hafa gripið til þess ráðs til að bæta víg- stöðu sína að virkja þann hóp manna sem á sínum tíma fleytti Jósteini Kristjánssyni upp í efstu hæðir borgarstjórnarlista Fram- sóknarflokksins í Reykjavík. Flest- ir þessara baráttumanna Bjarna (og Jósteins) munu upprunnir í Knattspyrnufélaginu Víkingi ... M Rimlarokk fanganna á Litla- f J Hrauni hefur verið kynnt víða ■/ að undanförnu og hefur einn liðsmanna hljómsveitarinnar, Rúnar Þór Pétursson, sem afplán- að hefur sína sekt, farið um og sungið lög af plötunni við undirleik af segulbandi. í vikunni átti Rúnar að koma fram ásamt Bergþóru Arnadóttur vísnasöngkonu á tón- listarkvöldi í Verslunarskólanum. Áður en til þess kom tilkynnti einn fulltrúi nemenda, að þeir kærðu sig ekkert um fyrrverandi fanga á skólaskemmtun. Þá hætti Berg- þóra Iíka við... JPlTil skamms tíma var stiga- f~ J gangurinn í Borgartúni 7, þar sem Vegagerð ríkisins og Saka dómur Reykjavíkur eru til húsa, með ljótari stigagöngum í Reykja- vík. Nú hefur orðið mikil breyting þar á til batnaðar. Þegar Rann- sóknarlögregla ríkisins var stofnuð upp úr rannsóknarlögreglunni í Reykjavík og flutti út úr húsinu var hafist handa við endurbætur á hús- næðinu. Meðal annars var lagt í að búa til nýtt handrið í stigagangin- um og klæða tröppurnar þar með fallega slípuðum steini, Ííkast til marmara. Tók heilt ár að koma þessum endurbótum í kring og kostaði það ómælt fé. En þegar öllu var lokið kom í ljós að verk- fræðingar Vegagerðarinnar höfðu ekki reiknað dæmið til enda. Marmarinn hækkaði tröppurnar svo mikið, að handriðið er of lágt. Er nú ekki nema fyrir handleggja- lengstu menn að styðja sig við handriðið á leiðinni upp og niður stigana. Aðrir verða að beygja sig niður... I Enn eru til kraftaverkamenn í /'JísIenskum viðskiptaheimi. • Ekki fer alltaf jafn mikið fyrir þeim í opinberri umræðu. Páll Jónsson, kenndur við Polaris, er ágætt dæmi um þetta. Hann er um- svifamikill kaupsýslumaður og gekk á sínum tíma til samstarfs við dry kkj arframleiðslufy rirtækið Sanitas. Samstarfið var að sögn fólgið í því, að Páll lánaði fé til reksturs fyrirtækisins og vildi gjarnan fá endurgreitt í hlutabréf- um. Smám saman lánaði Páll meira fé til Sanitas og einn daginn var hann orðinn handhafi meirihluta hlutabréfa í fyrirtækinu - því hann hafði jafnframt keypt hlutabréf, sem Sana á Akureyri átti í Sanitas. Þá tók Páll sig til og hreinsaði til á toppi Sanitas og stjórnar nú fyrir- tækinu sjálfur... lRáðningarsamningur Hrafns / ÍGunnlaugssonar sem leiklist- •y arráðunautur sjónvarpsins rennur út um áramótin. Hrafn mun ekki hafa í hyggju að sækja um endurnýjun á samningi sínum hjá sjónvarpinu heldur hyggst hann snúa sér alfarið að lausamennsku og e.t.v. setjast á nýjan leik við ritvélina sem hann hefur vanrækt síðustu árin... Frost og fönn eru engin fyrirstaða þegar ATLAS er annarsvegar. ATLAS snjóhjóibarðar: Minni bensíneyðsla, meiri ending og síðast en ekki síst, aukið öryggi fyrir þig, þína og þá sem á vegi ykkar verða. Á ATLAS eru þér allir vegir færir. Hjólbarðaviðgerð Jóns Ólafssonar við Ægissíðu sér um að selja og setja undir ATLAS snjódekk fyrir íbúa mið- og vestur- bæjar. SAMBANDIÐ ^ VÉLADEILD HJÓLBARÐASALA Höfðabakka 9 /-83490-38900 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.