Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 26.11.1982, Blaðsíða 21
manna sem ég hef unnið fyrir hjá Samtökum endurhæfðra mænuskaddaðra. Ein stúlka vinnur fyrir mig í þessu, en að öðru leyti eru það bara vinir og vandamenn sem hringja til vina og vandamanna. Eini raunverulegi kostnaðurinn er við bækling sem var prent- aður í 8400 eintökum og sendur út í pósti. Jón Magnússon: „Ég fer hefðbundnu leiðina í prófkjörinu - sem felst í símhringingum, bæklingum og bréfum til þeirra sem eru í SUS,þar sem égvar formaður. Svo og auglýsingar í blöðum, sem hafa bæst við frá síðustu prófkjörum. Ég náði samkomulagi um afnot af skrifstofu í Hafnar- strætinu, sem var að koma úr leigu og hef hana frítt. Þar hef ég einn fastan starfsmann, sem ég greiði örlítil laun, undir Dagsbrúnar- taxta, en auk þess hefur komið töluvert af sjálfboðaliðum, um eða yfir 40 manns einn daginn. Símakostnaður dreifist á ýmsa aðila sem bjóðast til að hringja fyrir mig úr eigin símum. Gróft reiknað er kostnaðaráætlun uppá um 60 þúsund, þar af prentun 20 þúsund, auglýsingar 20 þúsund og annar kostnaður 20 þúsund. Peningarnir koma frá ýmsum stuðningsaðilum. “ Ágúst Einarsson: „Þetta byggist á símhringingum, nokkrum bréfum til stuðningsmanna og fáeinum aug- lýsingum. Ég hef ekkert launað starfslið, aðeins aðstöðu á skrifstofu minni í Hraðfryst- istöðinni. Ég stefni að því að þetta kosti ekki meira en svona 20 til 25 þúsund krónur.“ Guðmundur H. Garðarsson: „Starfsmenn við prófkjör mitt eru aðeins nánasta fjölskylda mín og systir mín. Þetta er allt unnið í sjálfboðavinnu. Starfið felst í því að reyna að hafa samband við þá sem maður þekkir á flokksskránni. Ég get ómögulega reiknað út hvað þetta kemur til með að kosta.“ Elín Pálmadóttir: „Ég hef ekki neitt starfsfólk á launum, held- ur fæ aðstoð systkina og vina og aðstöðu eftir skrifstofutíma hjágóðum manni, þar sem við erum til viðtals. Ég hef sent sjálfstæðisfólki bréf, en hef nánast ekkert hringt. Þetta hefur kostað sáralítið. Björg Einarsdóttir: „Vinnuaðstaða mín er í Brekkugerðinu og þar eru þau gögn sem við frambjóðendur fáum í hendur frá skrifstofu flokksins og símar. Öll vinna er unnin af sjálfboðaliðum og er að mestu leyti fólgin í símtölum, þar sem minnt er á prófkjörið og hvatt til þátt- töku í því. Lagt er til að kjósa 10, fulla tölu, þar af minnst fjórar konur, ennfremur for- ystu flokksins og ætla fyrir eðlilegri endurnýj- un. Frá okkur hringir fólk aðeins í kunnuga. Kostnaður er nær eingöngu fólgin í aug- lýsingum, útgáfu vinnubæklings og smávegis rekstrarkostnaði. Við Esther Guðmunds- dóttir höfum þessa aðstöðu saman og erum sammála um þann málflutning sem greint var frá. Ég mun sjálf standa straum af kostnaðin- um og veit ekki betur en Esther geri það einnig." Ragnhildur Helgadóttir: „Mín starfsemi miðar að því að ég nái sam- bandi við alla sem ég þekki og að þeir nái síðan samböndum við þá sem þeir þekkja. Þetta byggist allt á þeim persónulegu sam- böndum sem ég hef aflað mér í gegnum tíðina. Hjá mér er stúlka frá fimm til tíu á kvöldin en að öðru leyti er vinnan unnin af vinum og vandamönnum. Kostnaðurinn er lítill, enda hefur þetta verið stutt törn.“ Margir kallaðir - fáir útvaidir Á yfirstandandi þingi eiga sjálfstæðismenn sex þingmenn úr Reykjavík, Geir, Gunnar Thor, Friðrik, Albert, Birgi ísleif og Pétur Sig. Sem kunnugt er gefur Gunnar ekki kost á sér nú, þannig að þar losnar eitt sæti ef reiknað er með að Sjálfstæðisflokkurinn haldi akkúrat sínu. Forysta flokksins, form- aðurinn Geir og varaformaðurinn Friðrik hljóta að teljast nokkuð öruggir í örugg sæti, og einnig Birgir ísleifur. Varla eru heldur miklar líkur á að Albert falli, en sæti Péturs er meira spurningamerki, vegna þess að hann er jú á þingi vegna „velvilja“ Ellerts Schram, sem gaf honum eftir sæti sitt síðast. Það er því ljóst að baráttan í Sjálfstæðisflokknum stend- ur fyrst og fremst um eitt til fjögur sæti, þ.e. fimmta, sjötta, sjöunda og áttunda sætið á listanum. Um þessi sæti berjast af fullum krafti um fimmtán manns. Því þó 28 séu á listanum er augljóst að hluti þeirra leggja ekki þunga áherslu á að komast í eftirsótt sæti. í Alþýðuflokknum er þessu öfugt farið. í síðustu kosningum fékk flokkurinn þrjá menn kjörna hér í Reykjavík, Benedikt Gröndal,Vilmund Gylfason og Jóhönnu Sig- urðardóttur. Nú er aðeins Jóhanna eftir, en Jón Baldvin tók sem kunnugt er sæti Bene- dikts. Þau tvö munu fyrst og fremst berjst um efsta sætið á listanum, og Ágúst Einarsson og Bjarni Guðnason unt þriðja sætið. Einum of? Þessi tæplega milljón króna slagur fyrir prófkjör flokkanna tveggja snýst því í raun aðeins um fjögur til átta þingsæti. Er þetta ekki einum of langt gengið? Er ekki með þessu fyrirkomulagi verið að útiloka hinn „al- menna mann“ frá því að hafa nokkra mögú- leika. Eru það ekki peningaöflin sem farin eru að ráða þessu? „Mér finnst þetta að verða alltof mikið af því góða,“ sagði Elín Pálmadóttir. „Kostn- aðurinn við þessa baráttu fer alltaf vaxandi, en maður er neyddur til að vera með.“ Guðmundur H. Garðarsson tók nokkuð í sama streng og Elín, en benti á að „miðað við hvernig flokkarnir höfðu þróast var þessi breyting nauðsynleg." Ágúst Einarsson sagði hinsvegar að þegar skotið væri yfir markið kæmi það alltaf í ljós. „Fólk gerir sér grein fyrir þegar slíkt gerist og ég held að fram- bjóðendurnirgæti sín á því. En auðvitað er sú hætta fyrir hendi að þetta ýti undir illdeilur í flokkunum, þó ég hafi á tilfinningunni að yfirstandandi barátta sé rekin af miklum heiðarleik og vinsemd.“ Jón Magnússon kvaðst hafa talið það óheppilegt að fara yfir í auglýsingarnar í blöðunum, „en spurningin er þá líka sú hvort lýðræðið sé jákvætt, því þetta er einn af fylgi- fiskum þess. Svo má benda á að nálægðin við kjósendur hér er svo mikil að hér er ekki hætta á að búinn verði til frambjóðandi úr engu.“ Bjarni Guðnason var akkúrat á önd- verðum meiði, og sagði að það yrði að varast peningalýðræði eins og það sem er í Banda- ríkjunum. „Það væri hægt að búa til nýjan Nixon hvar sem er og hvenær sem er - með peningum er hægt að villa mönnum sýn.“ Jón Baldvin sagði prófkjörsbaráttu eins og þá sem stunduð hefur verið að undanförnu sér- staklega mikilvæga fyrir flokk sem sjálfur hefur ekkert auglýsingaapparat. „Hann verður að ná til fólks, og prófkjörin ná aðeins til fólksins ef mikil þátttaka er í þeim. Próf- kjör geta verið bæði góð og vond. Það sem er vont við ameríska kerfið er að þar eru það forréttindi auðkýfinga að vera í framboði. En ég þykist hafa sýnt það í þessari kosningabar- áttu að þetta er gerlegt fyrir menn sem ekki eru neinir auðkýfingar.“ npCfÓDRðRINN’ W Hverfisgötu 34 - Reykjavík Simi 14484 - 13150 Vegg- og gólfdúkur DLW vegg- og gólfdúkarnir. Heimsfræg gæðavara. Úrval allra nauðsynlegra verkfæra og áhalda til dúklagninga. Thomson hreinsilögur - hreinsar upp gamla dúka. Sofix bón gerir gamla dúkinn sem nýjan - nýja dúkinn enn betri. Úrval af málningu og málningarvörum. 50 ára þjónusta í sölu vegg-og gólfefna. Valin gæðavara vönduð vinnubrögð + leiðbeiningar og góð ráð = ánægjulegur árangur Lítið við, verið velkomin.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.