Helgarpósturinn - 26.11.1982, Side 10
Jazznafnarnir ka/last á
Guðmundur Ingólfsson: Nafna-
kall; Blús fyrir Birnu; Some of
these days; Lover Man; Nafnakall
II; Round about Midnight; Nafna
kall I; Mávaskelfir; Vem kan
segla förutan vind?; Glórey; Þey
þey og ró ró.
Guðmundur Ingólfsson: píanó,
rafpíanó og harmoníka; Guð-
mundur Steingrímsson: tromm-
ur; Pálmi Gunnarsson: kontra-
bassi og bassagítar; Björn Thor-
oddsen: gítar.
Nýlega kom út fyrsta sólóplata
Guðmundar Ingólfssonar píanó-
leikara og nefnist Nafnakall. Það
er hnyttinn titill, þeir nafnar Ing-
ólfsson og Steingrímsson hafa
bæði kallast á í tónlistarlegum
skilningi um langa hríð og einnig
gæti nafnið átt við söng og hróp
þeirra félaga í einu verki plöt-
unnar.
Það er sjálfsagt fleirum farið
eins og undirrituðum að hafa
fyrst komist í nána snertingu við
jazz við að hlusta á leik þeirra
félaga á ýmsum stöðum á höfuð-
borgarsvæðinu síðustu 4-5 árin;
Á næstu grösum, Stúdentakjall-
aranum, Djúpinu og Félagsstofn-
un stúdenta. Þegar Jazzvakning
hóf að kynna fyrir íslendingum
það sem gerðist best á alþjóð-
legum vettvangi í þessari tónlist-
argrein, voru það Guðmundarnir
sem sýndu hvað mesta
þrautseigju í heimatrúboðinu,
hinu innlenda grasrótarstarfi. Að
leika jazz á íslandi hefur verið og
er hugsjónastarf og því hefur
reynt töluvert á úthald jazz-
leikara, það er ekki alltaf gefið
mál að innkoman dugi fyrir flutn-
ingi á hljóðfærunum! Auk þess
að kynna íslendingum lifandi
jazz hafa þeir nafnar rekið
óformlegan jazzskóla og þar hef-
ur margur hljóðfæraleikarinn
fengið drjúga tilsögn og þjálfun,
ekki síst í því að bjarga sér þegar
engin nótnablöð eða bækur hafa
verið við hliðina og eyrað eitt ver-
ið eftir til bjargar. Á plötunni
Nafnakall leika tveir stúdentar úr
jazzskóla Guðmundanna, Björn
Thoroddsen á gítar og Pálmi
Gunnarsson á bassa.
Guðmundur, Garner
og Monk
Fyrsta lagið á plötunni er Blús
fyrir Birnu. Guðmundi Ingólfs-
syni hefur löngum verið hlýtt til
blússins og þeir ekki margir í ís-
lensku jazzlífi sem slegið hafa
bláa tóna af meiri innlifun og
færni. Stefið hefst á átta takta
trommueinleik í latneskum anda,
síðan kemur stutt laglína sem
endar í sameiginlegu spili píanós
og kðntrabassa og eru þar þrí-
und, fimmund og sjöund allar
lækkaðar eins og vera ber í bláu
stefi. Björn Thoroddsen tekur
fyrsta sóló, prýðilega fingrafimur
að vanda en ögn frasakenr.dur.
Pað skortir heldur ekkeit á
fingrafimi hjá höfundinum og
hann á prýðilegan leik í Birnur
blúsSome of these days er augljós-
lega tileinkað einum af eftirlætis-
meisturum Guðmundar, Erroll
Garner. Þrátt fyrir að ásláttur
nótnanna sé mjög í anda Garn-
ers, er þó píanóleikurinn mjög
Guðmundarlegur. Reyndar
finnst mér honum takast hvað
best upp í þessu lagi hvað píanó-
leik snertir, því þrátt fyrir fyrr-
nefnda Garnerstælingu koma
fram helstu kostir Guðmundar
sem píanóleikara;fyrirhafnarlaus
sveifla, mikill kraftur, óvæntar
áherslur og fallegt lýriskt spil.
Burstaleikur Guðmundar
Steihgrímssonar er öruggur og
smekklegur. Það eina sem
skyggði aðeins á þetta lag er
hversu hrátt bassasándið er, en
það er reyndar víðar á plötunni.
Mýkra bassasánd hefði farið bet-
ur, ekki síst þar sem fyrir kemur
að manni finnst að maður sé að
hlusta á rafbassa.
Tvö síðustu lögin á hlið 1 eru
ballöðurnar Lover Man og Ro-
und about Midnight. (Nafnakalli
II reyndar skotið inn á milli). Ro-
und about Midnight er vel heppn-
að, fullt af krafti og ljóðrænu.
Einnig er það mjög persónulega
spilað og á einstöku stað breytt út
af hljómum höfundarins og er
það vel gert og gefur þessari
úgáfu þess aukinn lit. Lover Man
finnst mér aftur á móti ekki eins
vel heppnað. í sjálfu sér er ekkert
út á píanóleikinn að setja, en þeg-
ar leiknir eru standardar sem þús-
undir jazzleikara hafa hljóðritað,
þá skiptir höfuðmáli að lagið sé
túlkað á persónulegan hátt og því
gefið nýtt líf. Mér finnst það ekki
takast sem skyldi, lagið verður
Föstudagur 25. nóvember 1982
SpSsturinn.
Guðmundur Ingólfsson -
fær loksins að teygja dálítið
úr sér á nýju sólóplötunni.
dálítið dauflegt og bassinn er ekki
nógu ákveðinn.
Harmonikkutregi
Á annarri hliðinni er fyrst laga
Nafnakall I eftir Guðmund Ing-
ólfsson. Það er í fönkuðu þeli sem
Guðmundur bregður stundum
fyrir sig. Byrjunin er mjög í
bræðingsstíl en í sólóum nálgast
það meira höfuðstraum jazzins.
Björn Thoroddsen á ágætt sóló,
hann er orðinn mjög öruggursól-
óisti með prýðis tækni. Máva-
skelfir er blússtef eftir Björn.
Byrjun stefsins er parkerísk og
ekki ólagleg, en áframhaldið
hefði mátt vinna betur. Máva-
skelfir er hið hressasta stykki og
svíngar vel, þeir Guðmundur og
Pálmi ýta sólóistunum ágætlega
áfram.
Vem kan segla förutan vind er
það lag plötunnar sem greip mig
sterkast. Máske er það vegna
harmoníkufortíðar undirritaðs;
allt um það, Guðmundur túlkar
þetta vel þekkta lag af sársauka
og trega á harmoníkuna og má
mikið vera ef allir hvarmar verða
þurrir þegar eigendur Nafnakalls
hafa hlustað á þessa gömlu
þjóðvísu í meðförum Guðmund-
ar. Glórey skrifast á Guðmund
Ingólfsson og Pálma Gunnars-
son, blúskennt og afslappað
verk. Höfundarnir fremja báðir
einleik, Guðmundur á ágætt sóló
og fer jafnvel aðeins út fyrir og
Pálmi á gott bassasóló, hleypur
upp G strenginn og spilar af ást-
ríðu; hvort tveggja og einkum
það síðarnefnda eru einkenni
góðra bassaleikara. Leikur
Pálma á plötunni er traustur og
þó hann hafi leikið mest á raf-
bassa, leikur hann á kontrabassa í
öllum lögum utan einu. Það er
merkjanlegt meira „drive“ í raf-
bassaleik hans enn sem komið er,
en slíkt er ekki nema eðlilegt.
Bassagangar hans eru smekk-
legir, hann hefur melódíska hugs-
un, en mætti á stundum spila
ákveðnar.
Þey þey og ró ró er síðasta lag
plötunnar og leikur Guðmundur
það á harmoníku. Eins og í
þjóðvísunni fer hann nærfærnum
höndum um nikkuna og nær sér-
deilis þokkafullum trega út úr
þessu foma sveitaballahljóðfæri.
í heild er Nafnakall prýðilega
vel heppnuð plata. Þar fær Guð-
mundur Ingólfsson loksins að
teygja dálítið úr sér og ræður kór-
usafjöldanum sjálfur! Hann kann
að hafa verið ögn kraftmeiri á
Jazzvöku (enda ,,live“) en á þess-
ari plötu sýnir hann ýmsar óvænt-
ar hliðar sem koma skemmtilega
á óvart. Sólóplata Guðmundar
Ingólfssonar er fengur sveiflu-
unnendum sem munu örugglega
fjölmenna í hljómplötuverslanir
og kaupa sér ágæta jazzplötu, vel
upp tekna og í smekklegu hulstri.
Á mótum /jóðsogsögu
Þegar tilkynnt var um úrslit í
bókmenntasamkeppni AB í vor
vakti það nokkra forvitni mína að
vita hverskonar verk það væri
sem fékk aðra viðurkenningu og
bar það undarlega nafn Vor-
ganga í vindhæringi. Það lá ljóst
fyrir að hinar bækurnar sem við-
urkenningu fengu voru skáldsaga
og ljóðabók, en um þessa bók var
sagt að hún væri á mörkum ljóðs
og sögu og hefur hún það að
undirtitli í útgáfunni. Vindhær-
ingar er samkvæmt orðabók
Menningarsjóðs vindhár, gisið
gras og þá vitum við það.
En hverskonar bók er þetta
þá?
Ég skal játa strax að það er alls
ekki auðvelt að gefa lýsingu á því.
Ef byrj að er á efninu þá er efni-
viðurinn í þessari bók bernsku-
minningar höfundar frá því fýrir
u.þ.b. 40 árum. Það er þó ekki
hann sjálfur sem er aðaðviðfangs-
efni heldur miklu fremur það
sem hann sér og skynjar í kring-
um sig. Sögumaður er yfirleitt
lítið áberandi, hverfur stundum
alveg á bak við hlutlæga frásagn-
araðferð, en á öðrum stöðum
kemur hann beint fram og talar í
fyrstu persónu. Efnið er því fyrst
og fremst einskonar svipmyndir
af fólki og atburðum sem fest
hafa í minni barnsins. Ekki er um
að ræða söguþráð eða samfellda
frásögn sem nær í gegnum alla
bókina, en þó má segja að afinn
sem kemur víða við sögu sé eins-
konar burðarás fyrir verkið, enda
endar það með því að honum er
fylgt til grafar.
A bókarkápu er þess getið að
ýmsar persónur muni koma kunn-
uglega fyrir sjónir þeim sem til
þekktu á Oddeyri á þessum
tíma. Ekki skal ég um það dæma
því ég er með öllu ókunnugur á
þessum slóðum; en hitt er víst að
persónurnar verða manni kunn-
ugar og jafnvel nákomnar af
þeim svipmyndum sem brugðið
er upp af þeim í bókinni.
En það er ekki efnið sem gerir
þessa bók að jafn aðlaðandi lestri
og raun ber vitni. Það er stíll
verksins og tjáningaraðferðin
sem höfundur beitir sem lyftir
verkinu langt uppyfir venjulegar
minningabækur.
Á mörkum ljóðs og sögu þýðir
í þessari bók að höfundur beitir
tjáningaraðferð ljóðsins án þess
að segja skilið við söguna. Meg-
ineinkenni þess sem ég kalla tján-
ingaraðferð ljóðs er að sagt er frá
í knöppum stíl og myndrænum,
þar sem ekki er verið að útskýra
Sr. Bolli
Gústavsson -
fallegt og
vel unnið
verk
Vorganga í vindhæringi
... á mótum Ijóðs og sögu
150 bls.
Aimenna bókafélagið 1982
alla hluti til hlítar, brugðið upp
myndum þar sem lesandanum er
ætlað að skynja mun meira en
liggur á yfirborði textans. Að
mörgum hlutum er rétt aðeins
vikið, nógu mikið til þess að les-r
andi fær skýra hugmynd um það
sem er að gerast en þó ekki meira
en svo að lesandi verður að virkja
ímyndunarafl sitt til þess að fylla
myndina.
Verkinu er skipt niður í tuttugu
kafla. Þeir eru misfast tengdir, en
eiga það flestir sameiginlegt að
sjónarhornið er drengsins sem
segir frá, stundum er hann áhorf-
andi en annarsstaðar þáttakandi í
því sem er að gerast. Sumir kaflar
eru settir upp eins og Ijóð, en
aðrir eru með blandaða uppsetn-
ingu, eru að nokkru leyti settir
upp sem ljóð og að nokkru leyti
sem lausamálstexti. Lausamáls-
textinn er ekki eins samþjapp-
aður og ljóðtextinn, þó hann beri
samt að verulegu leyti svipuð ein-
kenni. En það verður jafnframt
að taka það fram að þeir textar
sem settir eru upp eins og ljóð
ganga aldrei svo langt að verða
hrein ljóðræn tjáning, eru ein-
hversstaðar nærri því sem kallað
hefur verið ljóðsaga eða „opið
ljóð“.
Innan hvers kafla er fyllilega
röklegt samhengi í frásögninni
þannig að hver kafli myndar eina
samstæða heild, frásögn af atviki
eða atburðarás sem sögumaður
hefur orðið vitni að. Síðan raðast
þessir kaflar saman þannig að á
endanum höfum við nokkuð
skýra mynd af þeirri veröld sem
sögumaður okkar er að segja frá.
Það er með þessum hætti að verk-
ið hefur eðli sögunnar, frásagnar-
innar.
Það ætti að vera Ijóst af fram-
ansögðu að efnismeðferð, tján-
ingaraðferð og stíll þessa verks er
allt fremur óvenjulegt. En það
sem er meira um vert er að höf-
undi tekst ákaflega vel að sam-
ræma allt þetta svo að úr verði
fallegt og vel unnið verk, sem ég á
von á að flestir geti haft ánægju af
að lesa.
ÚTVAIM’
Föstudagur
26. nóvember
10.30 Það er svo margt að minnast á. Endur-
minningin á fullu, leitin til liðins tíma, veg-
leiðin langa inn í óminnishegrann góða.
11.30 Frá Norðurlöndum. Boggi Kjærn sér um
sósudramatískan þátt. Frændur eru frænd-
um verstir.
17.15 Nýtt undir nálinni. Kristín Björg Þor-
steinsdóttir kynnir nýjar plötur. Sæt stelpa
Stina.
21.45 Viðtalsþáttur. Stökkvarinn mikili að
austan ræðir við kuldabola frá Hornafirði.
01.10 Á næturvaktinni. Neisko. Sigmarkominn
með næturútvarpið. Og Ása með.
Laugardagur
27. nóvember
11.20 Hrímgrund. Solla Halldórs sér um krakk-
ana á meðan mamma skreppur í bæinn og
kaupir sér ilmara fyrir veisluna í kvöld. Hun
er nú ekki fertug á hvetjum degi.
13.? Helgarvaktin. Adda Karis og Hrói höttur
bjarga andans fátæku fólki frá volæði helg-
arinnar, tóminu mikla. Skemmtilegt lólk og
upplífgandi.
13.35 Iþróttaþáttur. Hermann Gunnarsson trufl-
ar Öddu á miðju skeiði, en honum fyrirgefst
nú allt. Hann er svo skemmtilegur.
16.40 íslenskt mál. Verkfæri mitt. Ósköp er ég
lélegur verkamaður. Enda rak drottinn mig
úr vingarðinum. Ég var alltaf fullur.
19.35 Á tali. Ég hringi bara seinna. Djölull getur
þetta iið talað mikið og sagt ekki neitt.
23.00 Laugardagssyrpa. Þeir lifa líka enn. Palli
og Goggi. Gort.
Sunnudagur
28. nóvember
10.25 Út og suður. Friðrik Páll laðar og lokkar
yfir fjollin blá og firðina gráu.
11.00 Messa. Jón bóndi á Dalabúinu messar í
Laugarneskirkju. Fína fólkið mætir ekki
vegna veðurs. Þeirfyrstu verða síðastir og
hinir á undan.
14.00 Ur öskunni í eldinn. Já. Leikrit. Eftir ein-
hverja ranakonu:
16.20 Heimspeki forn-Kínverja. Ragnar Bald-
ursson talar í þriðja og siðasta sinn. Þögnin
er gulls igildi.
18.00 Þaðvarog. Þráinn að verða vinsælli og
vinsælli með hvetjum þættinum. Getur það
verið. Já. Það var og.
20.00 Sunnudagsstúdió. GunnaBirgis attur
eftir langt me. Hún var hjá Palla á morgn-
ana. Hér er hún ein á kvöldin. Vávávává!
sjoraxi1
Föstudagur
26. nóvember
20.45 Á döfinni. Eru þeir nú ekki enn dauðir?
Eins og konungurinn sagði: ekkert er nýtt
undir hennar hátign! Annars er þetta ágæt-
ur þáttur, dulbúnar auglýsingar. Auglýsing-
ar fátæka mannsins, sem þeir riku stelast
líka í.
21.00 Prúðuleikararnir. Þeir ekki heldur! Hvað
er að þessari þjóð? Ekki furða þó kreppa sé
á meðal vor! Ég gæti....ég segi nú ekki
meira.
21.35 Kastljós. Skyldu rafhlöðurnar vera i góðu
lagi? Kemur allt I Ijós. Vertu bara rólegur.
Tvær stelpur sjá um þátt með innlendum
og eriendum fréttum. Vonandi eru þær
a.m.k. sætar.
22.45 Á glapstigum (Badlands). Bandarísk bíó-
mynd, árgerð 1973. Leikendur: Martin
Sheen, Sissy Spacek, Warren Oats. Leikr
stjóri: Terrence Malick.Gætið að börnum
yðar, uppalendur landsins. Þessi mynd er
alls ekki við þeirra hæfi. Hún fjallar um
morð.
Laugardagur
27. nóvember
16.30 íþróttir. Ég sá Bjarna Fel í sjónvarpinu á
mánudagskvöld.
18.30 Riddarinn sjónumhryggi. Life is for liv-
ing. Senjor Donkíkóti fylgir þeim ágæta
kæk alveg út í ystu æsar. Enda maðurinn
spænskur og ódauðleg pappirsfígúra.
Hvort hann er fígúra eða ekki er ekki mitt
mál.
18.55 Enska knattspyrnan.
20.40 Löður. Dagarnir freyða og mennirnir með.
Maðurinn er dauður, blés enda I trompett í
frístundum sinum og skrifaði bækur þess á
milli. Góður maður og góður þáttur. Dálitið
obskúrt!
21.15 Ævintýri i seðlaprentsmiðjunni (Who’s
Minding the Mint). Bandarísk bíómynd,
árgerð 1967. Leikendur: Jim Hutton, Milton
Berle, Dorothy Provine. Leikstjóri: Howard
Morris.Gamanmynd. Óþverri. Peninga ■
lölsun og innbrot I seðlaprentsmiðju. Hryl I
ingur. Samt má skemmta sér konunglega.
22.55 Regnfólkið (The Rain People). Banda-
rísk kvikmynd, árgerð 1969. Leikendur:
Shirley Knight, James Caan, Robert Du-
vall. Leikstjóri: Francis Coppola.Ef ég man
rétt er þetta algjört rugl. Kona yfirgefur
mann og hittir annan. Sænska línan ræður
þó ekki ríkjum.
Sunnudagur
28. nóvember
16.00 Sunnudagshugvekja. Kræklingurinn
krækir í sneið af lambi guðs. Hvar er
Sigmar?
16.10 Húsið á sléttunni. Nei, nei, nei, nei, nei,
nei! Himinninn er blár. Sléttan er hvít. Er
biblíufélagið orðið að þrýstihópi? Ég
gæti....
17.05 Grikkir hinir fornu. Þessi þáttur er um
hugsuði. Þeir höfðu ekkert annað að gera
þessir bjálfar. Hugsa, hugsa.
18.00 Stundin okkar. Sýnt frá fjölskylduskemm-
tun Bryndisar og Jóns Baldvins um daginn.
I love sundays.
20.40 Sjónvarp næstu viku. Jafn yndislegt og
venjulega.
21.05 Glugginn. Listir og menningarmál. En
tjoldin eru alltaf fyrir þessum giugga og að
auki hlerar fyrir utan. Ekki gott til frásagnar,
en sannleikurinn samt.
22.00 Stúlkurnar vlð ströndina. Nýr flokkur.
Vimma hefur loks tekist að ginna kvenna-
framboðið. Berar píur veifa pálmagreinum
yfir höfði höfðingjans. Áfram Vimmi.
Franskur myndaflokkur um líf og örlög þriggja
kynslóða fransks fyrirfólks. Rosalega
spennandi. Leikstjórinn heitir Nina Com-
panez. Hún er sko örugglega ekki hrein-
ræktuð eins og Pjakkur.