Helgarpósturinn - 26.11.1982, Síða 16
FROSTI-
og fleira um kvikmyndagerð
„Kvikmyndin mikill
hluti af fólki”
Inga Dóra las „Bogann“ .... og Jórunn, „Baristtil sigurs“
vantar handrit
Við ræddum svo heilmikið um
íslenskar kvikmyndir og Helgi
sagði m.a. um álit sitt á þeim:
„Margar íslenskar myndir eru
mjög fallegar, tökurnar eru góðar
en það vantar alveg handrit, það
vantar tilfinnanlega handrita-
gerðamenn" ..„það er líka oft
gengið út frá því að maður þekki-
söguna sem myndin er gerð eftir,
og það er kannski þess vegna sem
þessar myndir ganga t.d. ekki í út-
löndum.“
réttur maður á réttum stað
Stuðarinn slær botninn í samtal-
ið með því að spyrja um framtíðar-
horfur og óskir Helga: „Kvik-
myndin sem miðill er mikill hluti af
fólki“ segir hann bjartsýnn. „En
þetta er auðvitað mikið undir
heppni og tækifærum komið,
maður veit aldrei hvort maður er
réttur maður á réttum stað.“...
Stuðarinn vonar það og þakkar
fyrir sig og sína...
Friðgeir judokappi
Friðgeir Eyjóifsson er 13 ára,
Reykjavíkurmeistari í júdó í flokki
45 kíló og undir.
Stuðarinn hitti Friðgeir og
spurði hann aðeins út í júdóið. „Ég
byrjaði fyrir ári síðan, ég fór með
bróður mínum sem er 15. Annars
getur maður byrjað 7 ára í júdó...“
„Eg æfi með Armanni og kenn-
arinn er japanskur, soldið strang-
ur, en mjög flinkur".
Friðgeir er rétt að byrja þó hann
sé orðinn Reykjavíkurmeistari,
hann er alveg harður á að halda
áfram og verða íslandsmeistari
seinna meir..
Svo að lokum vill Friðgeir hvetja
alla til að fara í júdó, því það er góð
íþrótt.
Hvað finnst ykkur um það??
segir Helgi Márf
Stuðaraviðtali
Frosti heitir ný íslensk kvikmynd
sem sýnd var í Regnboganum fyrir
stuttu. Stuðarinn hitti einn af for-
svarsmönnum myndarinnar Helga
Má, og spjallaði við hann um aðalá-
hugamálið, kvikmyndagerð. Helgi
Már er Hafnfirðingur.
byrjaði snemma
Helgi sagðist snemma hafa byrj-
að að hugsa um kvikmyndir og allt
sem tengdist þeim. Smám saman
hefði þetta þróast þannig að hann
fór að gera sínar eigin myndir
ásamt fleirum úr Hafnarfirði.
„Þetta hefur ekki verið mjög
kostnaðarsamt hingað til, en við
gerum auðvitað kröfur og viljum
alltaf ganga lengra“.
verðlaunamyndir
Helgi Már hefur unnið að nokkr-
UPPOG
A fostudaginn verður haldinn
stórkonsert í Hafnarbíói. Fram
koma Hjörtur Geirsson trúba-
dor, Jói á Hakanum (Ananas-
menning), Trúðurinn (rétt
stilltur), Hin konunglega flug-
eldarokkhijómsveit, Vonbrigði,
og Þeyr (endurnærðir).
Það sem venjulega rennur í
rikissjóð á svona hljómleikum,
fer núna í ferðasjóð hreyfi- og
þroskaheftra. Félagsmenn fá
20% afslátt.
OFAN
um myndum og flestar þeirra hafa
■fengið einhver verðlaun.
Verðlaunamyndirnar eru m.a.
„Fyrsta ástin“ og „Voðaskot", sem
báðar hlutuverðlaun á kvikmynda-
hátíðum-SÁK (samtökum áhuga-
manna um kvikmyndagerð).
Frosti frábrugðinn
Frosti er frábrugðin fyrri mynd-
unum. „'Hér er það súrrealisminn
sem ræður ferðinni, en hann hefur
alltaf heillað mig“. Það má eigin-
lega segja að hún sé æfing í með-
ferð myndmáls“, útskýrði Helgi
Már. „í henni er eiginlega verið að
kanna hvað maður kemst af með í
kvikmynd". „Við tókum skot og
skot, röðuðum þeim svo saman,
settum tónlist inní og útkoman
varð Frosti“ (myndin er öll tekin í
frosti eins og nafnið ber með sér).
til Danmerkur
Síðastliðið sumar var haldið nor-
rænt kvikmyndahátíðamót í Dan-
mörku. Helgi Már átti þar tvær
myndir, Frosta og Óskabarn. Þær
fengu báðar verðlaun, og Frosti
m.a. fyrir myndatöku.
... og Rómar
„Mig langar mikið á kvikmynda-
háskója í Róm“. „Ég fór þangað í
vetur sem leið og skoðaði skólann,
og leist stórvel á“, „en mér liggur
ekkert á, mig langar að gera svo
margt annað líka“.
vinna og læra
„Svo er náttúrulega mjög lær-
dómsríkt að vinna við gerð kvik-:
mynda“. „Ég vann dálítiið við trún-
aðarmál í sumar (íslensk kvik-
mynd sem verður sýnd bráðlega)
og mér fannst það mjög áhugavert,
og ég vildi gjarnan gera meira af
því“.
JÓL ABÓKAGAGN RÝNI
Inga Dóra og Jórunn heita gagn-
rýnendur Stuðarans að þessu sinni.
Inga Dóra er í 9. bekk og bókin
sem hún las heitir Boginn og er
eftir Bo Carpelan, frægan finnskan
höfund.
Boginn
Boginn er eyja í finnska skerja-
garðinum, og þar býr þroskaheftur
strákur með mömmu sinni. Sagan-
segir frá þessum strák og sambandi
hans við annan strák sem er í sum-
arfríi á eynni. „Bókin er æðislega
vel skrifuð og flottar lýsingar í
henni, en söguþráðurinn er samt
ekki mjög spennandi" sagði Inga
Dóra. „Ég held að hún sé betri fyrir
yngri krakka.“
Barist til sigurs
Þá er að vita hvað Jórunni fannst
um sína bók. Það er bókin Barist til
sigurs, eftir hollenskan höfund,
Jan Terlouw sem hefur fengið
fjölda verðlauna.
Þrátt fyrir öll verðlaunin var Jór-
unn ekkert yfir sig hrifin: „Mér
fannst hún ágæt, en ekki alveg
nógu skemmtileg“. Jórunn sagðist
ekki vera vön að lesa svona bækur.
„Þetta er eiginlega ævintýrasaga,
hún fjallar um strák sem þarf að
leysa 7 þrautir til að verða kóngur í
Katóríu. „Hún höfðar eiginlega
ekki til mín, ég vil frekar lesa
eitthvað meira spennandi“.