Helgarpósturinn - 07.01.1983, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 07.01.1983, Blaðsíða 3
3 'mf^SW// /Wnr^^uds^rJA janúarj^9^ JpiSsturinn Blað um þjóðmál, listir og menn- ingarmál. Ritstjórar: Árni Þórarinsson og Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórnarfuiltrúi: Guðjón Arngrlmsson. Blaðamenn: Guðlaugur Bergmundsson, Óm- ar Valdimarsson, Þorgrlmur Gestsson Útllt: Kristinn G. Harðarson. Ljósmyndir: Jim Smart. Sterkir menn Svo ber við um þessar mundir, að íslands óhamingju verður allt að vopni. Erlend skuldasúpa þykknar með hverjum degi sem liður, og cf svo fer fram sem horfir, verður þess ekki langt að bfða, að hún verði komin f einn graut - óætun. Útlitið f efnahagsmálum þjóðarinn- ar er dökkt. En það er dökkt vfðar. Veðurgoðin hufa reiðst okkur og sent yfir landið fiður úr sængunt sfnum f meira magni en oft áður, svo bifreiðir okkar sitja fastar f sköflum og ekki sést á milli húsa. ísland er undir oki og bök okkar eru bogin. Táp og fjör og frfskir menn, finn- ast hér á landi enn, segir gamall húsgangur, sem hefur stappað stálinu f Islendinga margan fimb- ulveturinn. Oft var þörf fyrir frfska menn og sterka á þcssu landi, en nú er nauðsyn. Og þessa sterku mcnn eigum við. Um tvo þeirra er fjallað í Hclgarpóstinum f dag. Jóhannes Nordal scðlabanka- stjóri er sterki maðurinn í íslensku efnahagsiífi og þar með í íslensku þjóðlffi, þvf hugir okkar snúast ineira cn flestra unnarra um fjár- mál, stór scm smá. Jóhannes er f nærmynd Helgarpóstsins, þar sem samstarfsmenn hans og aðrir þeir er hafu haft af honum einher ky nni í gcgnum tíðina lýsa ntanninum á bak við tilkynningarnur um geng- isiækkanir. Skúli Öskarsson fyrrum kraftlyft- ingamaður er í yfirheyrslu Heigar- póstsins, þar sem hann rekur á- stæðrunar fyrir því að hann hættir 1 nú allrl keppni cftir glæsilegan feril sein sterkasti maður landsins. Þcssir stcrku ntcnn - hvor á sfnu sviði - minna okkur á það, að nú f upphafi nýs árs ber öllum sterkum mönnum landsins, hvar scm þeir hafa haslað sér völl, aðsnúa bökum santan til þess að iyfta okkur upp úr þeini mikla öldudal, sem landið er nú f. Með samstilltu átaki þeirra, og okkar hinna, sem minna megum okkar, geta íslendingar rétt úr kútnum og gcngið aftur beinir f baki á vettvangi þjóðanna. íslend- ingar eru sterkir. En ekki nægir okkur að vera sterkir. Við verðum að hafa vit til þess að beita kröftum okkar á já- kvæðan hátt í uppbyggingu lands- ins. Því miður sýnir nýstofnað kvennaathvarf okkur, að svo er þó ckki alltaf. L innlendri yfirsýn Helg- arpóstsins kemiir frant, að aðsókn- in að kvcnnaathvurfinu er mciri en nokkurn óraði fyrir. Þeir sterku menn virðast því til, sem niisnota þannig náðargjalir náttúrunnar. ísiendingar, tími mikilla átaka er i'ramundun. Hnyklum vöðvanu og reiðum hnefa okkar til höggs - gegn samciginlcgum óvini þjóðarinnar, ytri áföllum. Dálkahöfundar: Hringborð: Auöur Haralds, Birgir Sigurðs- son, Heimir Pálsson, Hrafn Gunnlaugsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Jónas Jónasson, Magnea J. Matthíasdóttir, Sigríð- ur Halldórsdóttir, Sigurður A. Magnússon. Listapóstur: Heimir Pálsson, GunnlaugurÁst- geirsson, Jón Viðar Jónsson, Siguröur Svavarsson (bók- menntir & leiklist), Árni Björnsson (tónlist), Sólrún B. Jensdóttir (bókmenntir & sagnfræði), Guð- bergur Bergsson (myndlist), GunnlaugurSigfússon (popptón- list), Vernharður Linnet (jazz). Árni Þórarinsson, Björn Vignir Sigurpálsson, Guðjón Arngríms- son, Guðlaugur Bergmundsson, Jón Axel Egilsson (kvikmyndir). Erlend málefni: Magnús Torfi Ólafsson. Skák: Guðmundur Arnlaugsson. Spll: Friðrik Dungal. Matargerðarlist: Jóhanna Sveinsdóttir. Stuðarinn: Jóhanna Þórhallsdóttir. Utanlandspóstar: Erla Sigurðardóttir, Danmörku, Inga Dóra Björnsdóttir, Banda- ríkjunum, Helgi Skúli Kjartans- son, Bretlandi. Útgefandl: Vltaðsgjafl hf. Framkvæmdastjóri: Bjarni P. Magnússon. Auglýsingar: Inga Birna Gunn- arsdóttir. Innhelmta: Guðmundur Jó- hannesson. Drelfing: Sigurður Steinarsson. Gjaldkerl: Halldóra Jónsdóttir. Lausasöluverð kr.15. Ritstjórn og auglýsingar eru að Síðumúla 11, Reykjavík. Simi: 81866. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Hverfisgötu 8-10. Simar 81866, 81741 og 14906. Prentun: Blaðaprent hf. „En ef við sjá um sólskins blett í heiði, að set jast allir þar og gleðja ossM Aldrei er maöur sljóari en á nýársdag og hundsama um jafnréttismál. Eitt órétt- lætismál kemur sarnt uppf liugann og það er afhverju þykir óviðeigandi að konur kiiupi sér rakettur að fíra upp á gamlárskvöld í staðinn fyrir aö hanga útí glugga með smábörnunum og reka þau eldri frá úrlega sirkusn- ■um: „þið gerið það fyrir liann pabba ykkar að horfa á flugeldana". Þó held ég að ekki sé til sú kona sem vildi missa af að sjá eigínmanninn útum gluggann með rakettu pokann sinn, viskíá- byrgðarsvipur framan f hon- um, með úttroðna vasana af bengaleldspýtum. Mér . er I fersku rninni heimilisfaðir, mjög ábyrgur á svipinn sem rak allt sitt hyski útf glugga að horfa á sig fíra. Sem frúin stendur glottandi að horfa á skemmtun þessa sér hún rakettuna stoppa þrjá fjöra metra uppí lofti, snúa til jarðar og stefna beint á bónda sem stóð og góndi þangaðtil rakettan lenti f öðru brennivínsglampandi auganu á honum. Bóndi rekur upp gól rnikið og hleypur f hringi útf bylnum og svo einsog eldibrandur f áttina inn, er þá ekki vöru- bíllfastur: skafli í tröðunum heima hjá honum, og er ekki að spyrja aö þvf, bóndi hleypur beint á annað horn- ið á vörubílspallinum og steinliggur mcð annað augað hálfa leið inni haus, hitt langleiðina utá kinn. Islenskasta skenrmtun árs- ins og sú ómengaðasta af er- lendum áhrifum er gamlárs- kvöld. Þessi nótt hefur yfir sér einhvern hindurvitna- blæ, það er skylda að vaka hana alla og drekka brenni- vfn.syngjaogsjásýnir. Einn eða tvo þekki ég sem sjá eitthvað gleðilegt á hverri nýársnótt. Til dæmis í þess- um dúr: „Sem ég geng út að míga uppúr lágnættinu og stend undan vindi verður mér litið uppf Hlemmidal og sé ég cinkennilegan bjarma, sem ég stend þarna, birtast ekki f bjarmanum átján ber- brjósta ljóshærðar og stefna allar á mig". Eða svona: „Sem ég er að ganga útí fjár- hús sem lýsist allt upp af tunglí mér verður litið á ána, sé ég ekki hvar stfga uppúr henni tvær átján ára berbrjósta og sindrar á þær allar, og ég svo bergnuminn að ég var ekki með sjálfum mér fyrr en ég finn að ég er kominn útí ■niðja hlandforina. Hvarf mér þá sýnin". En það er ekki öllum gefið að sjá allt berbrjósta. Sumir sjá bara fylgjur og framliðna í vissum fatnaði. Einsog Bjarkmundui bóndi f Hosu: „Eg er rétt sestur undir beljuna og finnst kýrin eitthvað óróleg. Sé ég hvar eitt fjóshorniö lýsist upp. Ég rýni í hornið og sé að þar er kominn Gím- ur á Hlandstöðum og er í gráu sparifötunum sem þeir jörðuðu hann í". En mörg- umerekkigefiðað sjá, hvað sem þeir drekka af brenni- víninu. Sérstaklega sjá kvenmenn illa. Þær ruglast í hæstalagi á árstfðunum og er það ekki amalegt þegar skít- mánuöirnir eru allir eftir. 'Samanber konan sem skreiö undan sóffaborðinu klukk- an tvö á nýársdag og útá hlaö, horföi dreymin fram- fyrir sig og tautaði: „Mikið er vornóttin fögur". * I rammfslcnskan áramóta- fagnað þarf þetta: Vænan ofanbyl, brennivín og söng- þol. Framanaf er sungið magnþrúngið, álfa-og ára- mótalög, og þegar líöa tekur á losnar um hefðbundna laga valiö. Alltaf veröur ein- hver árvökull að gæta þess að „Nú árið er liðið" sé sungiö með hæfilegu milli- bili. En þcgar hestakonufé- lagið fcr að syngja „hæ hö jibbíjæ og það er kominn seytjándi..." bregðast skyggnu hlaðmígararnir við af karlmennsku og taka þær í bóndabeygju útí skafl að hressa upp á minnið f sval- andi ofankomunni. En það þarf rneira en skafbyl að þagga niður í vanadísunum fögru, því einsog segir í kvæðinu: „Þó líði dagar og líði nætur, má lengi rekja gömul spor. Þó kulinn næði um daladætur þá dreymir allarumsólogvor". Þæreru ekki fyrr búnar að klóra framan úr sér hrímkleprana og finna eynalokkinn útí hlandfor að þær eru farnar að dansa „tvö og tvö" hver um aðra þvera. Líður svona þessi álfaskemmtun við söng og glens og gaman þangað til einhverjum þrautgóðum og þétturn í lund dettur í hug að skreppa út að taka sólar- hæðina. Og semég er lif- andi, það er kominn Nýárs- dagur. Ólafur Liljurós ætlar aö fara að drífa sig heim að fá sér kríu og argar um leið og hann snarar sér í annan gúmmfskóinn: „Freyja hvar ertu helvftis byggkjan þín?" Fósturlandsins Freyja skríð- ur um undir húsgögnum að leita að veskinu sínu og svara um hæl (bandaskó- inn): „ég ek ckki með þér drukknum Ólafur, heldur labba ég, þó það kosti mig lífið á sjálfa nýársnótt". Segir ekki af samskiptum þeirra hjóna frekarþennan morgun. Og varla næstu hundrað og ellefu morgna fyrr en á þeim hundraðasta og tólfta, þá vaknar Ólafur einsog það sé tekið í öxlina á honum og rödd sern hvíslar dýrðin, dýrðin og honum finnst einsog hann sjái fugl fljúga fyrir í einkennilega björtum og hlýjum bjarma. Gleðlegt ár. SH

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.