Helgarpósturinn - 07.01.1983, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 07.01.1983, Blaðsíða 10
Föstudagur 7. janúar 1983 -fö($sfurinn 10 Mæddar mæðgur Bára Magnúsdóttlr I hlutverki Silju I verki Nínu Bjarkar - heilladrýgra hefði verið að takmarka umfjöllunina betur, segir Sigurður m.a. í umsögn sinni. Þjódleikhúsið (litlu sviðið) sýn- ir Súkkuludi handu Silju eftir NCnu Björk Árnadóttur. Leikstjóri: Mariu Kristjánsdóttir. Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir. Lýsing: Sveinn lienediktsson. Tónlist og flutningur: Egill Ólafsson. Leikendur: Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Inga Bjarnason, Btira Magnúsdóttir, Anntt Kristln Arngrímsdóttir, Sigurður Skúla- son, Þórhallur Sigurðsson, Ellert A. Ingimundarson, Guðjón /’. Pedersen og Jón S. Gunnarsson. ettlr Sigurð Svavarsaon Nína Björk Árnadóttir hefur samið leikrit fyrir útvarp, sjón- varp, hrúður og svið sem eru fjöl- breytileg að efni og gerð. Fyrsta leikritið hennar var frumsýnt árið 1969 og alls eru verkin orðin 8 talsins. Því miður þekki ég ekki nægilega til fyrri verka skáldsins og get því ekki boriö þetta nýja verk saman við önnur. í Súkkulaði handa Silju segir frá einstæðri móður, önnu, sem býr með dóttur sinni Silju. Sam- skipti þeirra mæðgnanna eru þvinguð, þær fjarlægjast stööugt hvor aðra og geta vart lengur ræðst við. Þær eiga sér báðar athvarf meðal kunningja sem líkt er kom- ið fyrir og áhorfandanum birtast tveir andstæöir hópar. Anna og vinkonan Dollý stunda „Ekkju- bæ“ og fleygja sér fyrir karlhrúta sem misnota þærog svtvirða á all- an hátt. Milli helgarfyllería vinna þær stöllur störf sem lítils eru virt. Silja er orðin leið á skólanum og telur sig finna útveg meðal ung- linga sem flýja á vit dóps og kom- múnulifnaðar. örn og Bangsi skilja bömmer Silju mun betur en móðirin. Auk þessa fólks kemur við sögu dularfull persóna, Hin konan, sem virðist eiga að vera e.k. útvíkkun á Önnu-ofan viö allt jarðneskt basl. l’ær Anna og Silja eru vissu- lega dæmi úr raunveruleikanum, þó heimarnir tvcir séu talsvert ýktir. Anna gerir sér smám saman grein fyrir þeim vítahring sem hún er stödd f en það reynist henni crfitt að brjótast út úr hon- um.m.a. vegna þess að Silja er ekki fús til hjálpar og Dollý er fyrirmunað að skilja hana. Silja getur bent móður sinni á ýmislegt sem betur mætti fara en leiðin sem hún sér til lausnar er full- komlega úr tengslum við veru- leikann. Silja segir einhverju sinni við móður sína: „Ég fyrirlít þig ekki, ég vorkenni þér“. Raunin er hinsvegar sú að fyrir- litningin og vorkunnin blandast á einhvern hátt og á það jafnt við um viðhorf Silju til móðurinnar og öfugt. Vegna þessa eiga mæðgurnar aldrei möguleika á að ná saman f verkinu og Nína Björk leiðir skjólstæðinga sína til dramatískrar lausnar sem er skrambi frumleg hvað sem öðru líður. Ekki veit ég af hverju hin áleitnu umfjöllunarefni verksins sncrtu mig jafn lítið og raun ber vitni. E.t.v. felst svarið í því að viólíka vandamál hafa verið til „Verkin eru byggð á pólitískum plakutum frá þcssari öld, t.d úr rússnesku byltingunni, Þýskalandi stríðsáranna og plakötum, sem maður sér af þjóðarleiðtogum f dag.“ Þetta sagði Jón Óskar myndlist- armaður, þegar hann var spurður um sýningu, sem hann opnar í dag, föstudag, f Visual Arts Gallery við Woosterstræti í SoHo í New York, en Jón sýnir þar ásamt tveim öðr- um listamönnum. meðferðar í svo mörgum verkum á síðustu árum, próblematíkin er hreinlega orðin þreytandi. Vita- skuld er ekki hægt að ætlast til nákvæmrar krufningar á jafn víðáttumiklum vanda og stöðu verkakonunnar einstæöu í stuttu leikverki, en ég er ekki frá þvf að heilladrýgra hefði verið að tak- marka umfjöllunina betur, færast minna í fang. Atriðin eru svo stutt og lauslega tengd að myndin verður yfirborðsleg. Hitt er svo annað mál að inn á milli voru at- riði sem komu sterkt út og eru býsna haglega gerð leikhúslega. Þau eru einfaldlega ekki nægilega mörg til að sýningin í heild geti talist sigur. I’að er greinilcgt aö Nína Björk stendur heil á bak við önnu, Silju og Dollý. I’eim er lýst af nærfærni og nokkrum skilningi þó höfund- ur treysti sér ekki til að vísa þeim veg út úr ógöngunum. Körlunum sem stunda Ekkjubæ er aftur á móti lýst sem algerum úrhrökum. Þeir umgangast konur af full- komnu virðingarleysi, kúga þær kynferðislega og vorkenna sjálf- um sér. Heldur finnst mér þetta nú ódýrt. Varla eru þeir síður þrælar kynhlutverkanna og vart hljóta þeir mikla sælu f Ekkjubæ. Strákarnir sem reykja með Silju njóta meiri samúðar. Þeir bera meiri virðingu fyrir tilfinningun- um og meðal unglinganna ríkir samkennd sem haldið er fram sem andstæðu hcims fullorðna fólksins. l’eirra ógæfa felst í því að flýja vandamálin í stað þess að takast á við þau, cn sennilega er nú skárra að flýja en að verða sanidauna. María Kristjánsdóttir stýrir leikhópnum í þessu verki og gerir þaö vel að mínu mati. Sum- Jón Óskar sagði, að oftast væri sami svipur á þjóðarlejðtogum, þegar birtar væru myndir af þeim, sama hver einstaklingurinn er og tímabilið, sem hann lifði á. l’á ímynd sé reynt að skapa, að þessir menn liti björtum augum til fram- tíðarinnar og yfir þeim er hafður cinhver dýrðarljómi. „Ég er að reyna að ná því and- rúmslofti fram í myndunum", sagði Jón Óskar. Myndirnar eru unnar á þann ar sviðslausnirnar eru bráðsnjall- ar s.s. kórinn sem karlarnir mynda. Skipulag var einnig gott. En leikstjóri lendir í vandræðum með að tengja milli atriða og raunar cr Agli Ólafssyni og flygl- inum falið aö sjá um þá hliö. Egill gerir þetta vel eins og hans er von og vísa, en sumstaðar eru teng- ingarnar þó vandræðalegar og verður það að skrifast á reikning höfundar, Hin konan sem áður var minnst á er afskaplega vand- ræðaleg. Hún cr e.k. draumsýn er hittir önnu jafnan eina og talar til hennar upphafið og ljóðrænt. Hins vegar myndast aldrei neitt samband milli þeirra og Anna tckur að því er virðist lítið mark á henni. (E.t.v. skilur verkakon- an ekki Ijóðinl?) Hin konan virk- ar því nánast sem hallærislegur útúrdúr sem verkið gæti vel verið án. I’órunn Magnea leikur Önnu. í upphafi var hún ögn óörugg en styrktist er á leið og dró upp mjög eftirminnilega mynd af vaxandi þunglyndi og síðan örvílnan per- sónunnar. Ung og óreynd stúlka Bára Magnúsdóttir lék hina 15 ára gömlu Silju og gerði það vel. Snöggar skapgerðarbreytingar sýndu að Bára er gædd ríkum hæfi- leikum. Samleikur hennar og ung- linganna tveggja, Guðjóns og Ellerts, var einkar trúverðugur. I’ó fannst mér höfundur ýkja málfar unglinganna um of. Anna Kristín Arngrímsdóttir átti þó eftirminnilegustu mannlýsing- una. Hún lék Dollý af gáska án þess að húmorinn væri nokkurn tíma yfirdrifinn og bar ferskan blæ með sér sem var vel þeginn. Aðrir leikendur náðu ekki að sýna neitt sérstakt enda gáfu hlut- verkin litla möguleika. Jón Óskar hátt, að fyrirsætum er stillt upp og þærsíðan málaðar, ásamt veggnum á bak við þær og teknar af þessu ljósmyndir, sem síðan eru stækk- aðar uppí 3x2 m. Myndröðin heitir „Clarification'*. ■ Þetta er þriðja sýningin, sem Jón Oskarheldur í New York, en þar hefur hann verið við nám undan- farin rúm tvö ár. Sýningin stendur til loka janúar. „Byggð á póli- tískum plakötum frá þessari öld" — segir Jón Óskar um verk, sem hann sýnir í New York um þessar mundir sjoxvAirr Föstudagur 7. janúar 20.40 Á dötlnnl. Hvað gæti það verið annað en timburmenn og áramðta- og þrettánda- þynnka? Ég spyr þvi ég veit ekkl. 20.50 Prúðulelkararnlr. Peim vegnaði vel I Holl- ywood hér á dögunum. Þeir eru orðnir „rich and lamousÞeir eru hins vegar alltaf jaln helviti leiðinlegir. 21.15 Erlendar fréttamyndlr. Fyrri myndin er við hseli Blöndalsbræðra og segir þar frá . ævlntýrum Ivans IvanóvitsJ meðal alþýðu Afganistans. Síðari myndin er við allra hæfi og seglr frá Palestinumönnum og þeim ó- réttl, sem þeir eru beittir al þjóðum helms. Sumum alla vega. 22.10 Maður allra tlma (A Man for All Seas- ona). Bresk biómynd, érgerð 1966, gerð eftir samnefndu leikriti Roberls Bolt. Leikendur: Paul Scolield, Wendy Hiller, Susannah York, Robert Shaw, Orson Wel- les. leikstjóri: Fred Zinneman. England á 17. öld. Hinrlk éttundi á I dellum við kansl- ara sinn Thomas More vegna kvennamála hins fyrrnefnda og ákvörðunar hans um að segja ensku klrkjuna úr lögum víð páfa- dóm, Scofield fékk óskarinn og myndln er öll eftir þvl: Stórgóð mynd með alveg mak- alaust góðu handritl. Unun fyrlr eyru og augu. Laugardagur 8. janúar 16.30 Iþróttlr. Áramótaskautahlaupið hans Bjarna er betra en gönuhlaup ráðherrans. 18.30 Stelnl og Olll. Nýr og gamall þáttur um kappana góðu Gög og Gokke eða Laurel og Hardy. Það er gaman að hlæja á nýju ári. 18.50 Enska knattspyrnan. Nýr bolti á nýju ári, 20.35 Löður. Bandarlskur gamanmyndallokkur um viðbjóðslegt fólk. Erða nú óeðli. 21.00 Grlnlelkarinn (The Comic). Bandarísk bíómynd. árgerð 1969. Leikendur: Dick Van Dyke, Michele Lee, Mickey Roonoy. Leikstjóri: Carl Reiner. Góð og skemmtileg mynd um gamanlelkara, sem lifði sitt leg- ursta á tíma þöglu myndanna. Þögnln er gulls.,..Siðan komu talmyndir og þá fór nú að halla undan fæti. Dick er góður. 22.35 lllur grunur (Shadow of a Doubt),. Bandarlsk blómynd, árgerð 1942. Lelkendur: Joseph Cotten, Teresa Wright, MacDonald Carey, Leikstjðri: Altred Hitc- hcock. Ekta Hltchcock-spenna I gamla góða stllnum. Ung stulka grunar Irænda sinn um að vera morðingia kátu ekkjunnar. Frábær frammistaða allra aðila. Gott kvöld I vændum. Sunnudagur 9. janúar 16.00 Sunnudagthugvekji. Bragi Skúlason prestur tlytur vekju. Vaknlð börnln mln. 16.10 Húslð og hundakofinn. Gamansöm ádeilumynd um besta vln barnanna, hund- Inn Hemma. Þetta er fyrrl hluti myndarinnar og segir þar frá hvolpallfi. 16.55 Um Ijóamyndun. Ekkl er þetta nú fyrir James Robert Smart, frænda Billy. Hann er of klár. 18.00 Stundln okkar. Barnavinlrnir bestu segja okkur skemmtisögur. 20.35 Sjónvarp næatu viku. Hver og hver og vill og verður? Ekkl ég sagöi litla gula hænan. 20.50 Kona er nefnd Golda. Slðari hluti þessar- ar ágætu myndar um þessa ágætu og sterku konu. Ingrid Bergman leikur aðal- hlutverkið og Alan Glbson stjórnar. 22.20 Pétur I tungllnu (Plerrot lunalre). Tón- verk eftir Arnold Schúnberg. Kammersveit Reykjavlkur leikur undir stjórn Paul Zukof- sky. Éinsöngvari er Ruth L. Magnússon og Hjálmar H. Ragnarsson flytur formálsorð. Stórkostlegt verk I aldellis frábærum llutn- Ingl. Dásemd frá Llstahátlð 1980. Guð- dómlegt, IITVAKP Föstudagur 7. janúar 9.05 Morgunatund barnanna. Else Chappel hefur samið söguna Llf, sem hér verður flutt I Islenskri þýðlngu. Hvað er nú Llflð? 10.30 Það er avo margt a6 mlnnaat A. Torfi Jónsson minnlst gömlu gððu daganna. Ó, þið landsins fornu guðir! 11.30 Frá Norðurlöndum. Boggi Kjarnastaöur segir molbúasögur, 15,00 Mlðdeglstónlalkar. Tsjoppln og Sjúmann eiga verk á þessum leikum. Varla gat það orðið betra. 16.40 Lltll barnatimlnn. Heiðdis úr firöinum tyrir norðan heldur attur af litlu ormunum. 17.00 Með á nótunum. Ragnheiður Davfðsdóttir lelkur létta tónlist og leiðbeinir vegtarend- um I gegrtum skafla. 20.40 Kvöldtónlelkar. Jussl Bjðrling og flelri góðlr koma hér vlð sögu. 01.10 A næturvaktlnnl. Slgmar er búlnn að jafna slg eftir puttaskurðinn, Hæ Sigmar. Gleðllegt ár. Laugardagur 8. janúar 9.30 Óskalög ajúkrahúaanna. Guðmundur Jónsson syngur Byggjum batri borg á grunni Daviðs og en sú náð að eiga Albert. Gamla fólkið tekur undir af hellum hug. 11.20 Hrlmgrund. Slgga Eyþórs blandar létt fyrlr börnin. Hún segir fréttir og sögur, en hvað eru fréttlr annað en skemmtilegar sögur, elns og t.d. af gengislellingum og annarri óáran. 15.10 I dægurlandl. Svavar Gests kemur okkur á sporið enn einnar milljónaupptökunnar. 16.40 lalenakt mál. Jón Aðalsteinn Jónsson seglr okkur sögur af frímerkjasöfnurum, 17.00 Hl)ómspegill. Grænumýrarmaðurinn úr Skagafirðl kynnir okkur Ijúfllngslög sln og mln og þln. 18.00 Helmþrá. Geirlaug Þorvaldsdóttir les Ijóð Óttars eftlr Örn Snorrason. 19.35 A tall. Eg er löngu hættur að standa I þessu. 23.00 Laugardagsayrpa. Páll og Þorgeir (i staf- rófsröð) kynna og segja plötur. Sunnudagur 9. janúar 10.25 Út og auður. Ég er viss um, að Friðrik Páll ætlar að ferðast um suðræn sólarlönd bara til að strlða okkur I þessu fjandans veðri. 11.00 Messa. Neskirkja var það heillin. 13.10 Frá llðlnnl vlku, Péll Heiðar Jónssonætl- ar að skemmta okkur litla stund og rifja upp syndir okkar. 14.30 Fúe er hver tll fjárlns. Alla vega vantar mig tilfinnanlega té. Leikrlt eftir Erlc Saw- ard I leiksljórn Ævars Anda Kvaran. 15.15 P.D.Q.Bach. Tónskáldlð, sem gleymdlst og áttl það sklllð. Spennandi verkeln! fyrlr veðurfræölnginn og vlni hans. 16.20 Frönek tónllst siðarl tlma. Guðmundur Jónsson píanólelkari heldur erlndi I fyrra 8inn. 18.00 Það var og. Hann er nú meiri hrakfalla- bálkurlnn þessl Þráinn Berteisson. Eða ýk- Ir hann svona stórlega. Eigum við ekkl að setja hann a þrykk? 19.25 Velatu svarlð? Er það vesllngs bóndinn elna ferðina enn? 23.00 Kvöldstrenglr. Helga All Baba plokkar og stangar.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.