Helgarpósturinn - 30.03.1983, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 30.03.1983, Blaðsíða 3
3 ýi irinn MiövikudsQur 30. msrs 1983 ,,Bissnisskeimur af hugsjónastarfi“ Helgai----- posturinn Blað um þjóðmál, listir og menn- ingarmál. Ritstjórar: Árni Þórarinsson og Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórnarfulltrúi: Guðjón Arngrímsson. Blaðamenn: Guðlaugur Bergmundsson, Ömar Valdimarsson, lllugi Jökulsson Útlit: Kristinn G. Harðarson. Ljósmyndir: Jim Smart. Dálkahöfundar: Hringborð: Auður Haralds, Birgir Sigurðs- son, Heimir Pálsson, Hrafn Gunnlaugsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Jónas Jónasson, Magnea J. Matthíasdóttir, Pétur Gunnarsson, Sigríöur Halldórs- dóttir, Sigurður A. Magnússon. Listapóstur: Heimir Pálsson, Gunnlaugur Ástgeirsson, Sigurður1 Svavarsson (bókmenntir & leiklist), Sigurður Pálsson (leiklist), Árni Björnsson (tón- list,) Sólrún B. Jensdóttir (bókmenntir & sagnfræði), Guðbergur Bergsson (mynd- list), Gunnlaugur Sigfússon (popptónlist), Vernharður Linnet (jazz), Árni Þórarins- son, Björn Vignir Sigur- pálsson, Guðjón Arngríms- son, Guðlaugur Berg- mundsson, Jón Axel Egilsson (kvikmyndir). Utanlandspóstar: Erla Sigurðardóttir, Danmörku, Adolf H. Emilsson, Svíþjóð, Inga Dóra Björnsdóttir, Bandaríkjun- um, Helgi Skúli Kjartansson, Bretlandi, Ólafur Engilbertsson, Spáni. "Erlend málefni: Magnús Torfi Ólafsson. Skák: Guðmundur Arnlaugsson. Spil: Friðrik Dungal. Matargerðarlist: Jóhanna Sveinsdóttir. Stuðarinn: Helga Haraldsdóttir og Páll Pálsson. Útgefandi: Vitaðsgjafi hf. Framkvæmdastjóri: Bjarni P. ■Magnússon. Auglýsingar: Inga Birna Gunn- arsdóttir. Innheimta: Guðmundur Jó- hannesson. Dreifing: Sigurður Steinarsson. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Lausasöluverð kr. 20 Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík. Sími: 81866. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 38. Símar 81866 og 81741. Prentun: Blaðaprent hf. Enginn dregur í efa að Samtök áhugamanna um áfengisvandamál- ið hafi unnið bæði gott og fórnfúst starf frá því þau voru stofnuð fyrir nokkrum árum. Samtökin hafa komið á fót meðferðarstofnunum fyrir áfengissjúklinga, sem virðast hafa skilað miklum árangri, en ef til vill er mesta afrek þeirra það að þau hafa átt verulegan þátt í að breyta viðhorfum almennings til drykkju- sýki. Þetta böl sem svo margir íslendingar eiga við að stríða er ekki lengur feimnismál i þjóðfélag- inu. En öllu má ofgera. í inniendri yfirsýn Helgarpóstsins í dag er fjallað um landssöfnun SÁÁ sem miðar að því að safna fé til að reisa sjúkrastöð fyrir alkóhóUsta, en þessi söfnun hefur sætt mikilli gagnrýni að undanförnu. Það er sem kúnnugt er fyrirtækið Frjálst framtak sem annast hefur fram- kvæmd söfnunarinnar, og eins og einn viðmælenda Helgarpóstsins orðar það, þá hefur þátttaka fyrir- tækisins leitt til þess að á söf nunina hefur komið „ bissniskeimur“, sem stingur i stúf við það hugsjónastarf sem í raun er verið að vinna. Kostnaður hefur einnig farið upp úr öllu valdi að mati sama manns, sem er stjórnarmaður i SÁÁ, þó framkvæmdastjóri söfnunarinnar haldi því fram að kostnaðurinn sé alls ekki óeðlilega mikill. Þessi hiutir eru matsatriði. Það sem aftur á móti er nokkuð Ijóst er að aðferðirnar við söfnunina hafa valdið því að SÁÁ mæta nú í fyrsta sinn andbyr meðal almennings. Það sem einkum hefur farið fyrir brjóstið á þeim sem gagnrýna söfnunina er að samtökin virðast beinlínis ætlast til þess að þeim sé lagt lið, en hingað til hafa líknar- samtök verið öllu hógværari í fjár- öflunarherferðum sínum. Enda þótt málefnið sem SÁÁ berjast fyr- ir sé vissulega brýnt, þá geta sam- tökin ekki krafist þess að allir hafi sama áhuga á því og þau, og fjár- upphæðin sem farið er fram á má ekki hærri vera.Afleiðingarnar eru nú að koma í Ijós - mörgum finnst sem SÁÁ og Frjáist framtak hafi rekið þessa söfnun með frekju og yfirgangi, og þó ekki verði lagður dómur á það hér er sýnt að úr því að svo margir verða til að gagnrýna hlýtur eitthvað að vera bogið við framkvæmdina. í innlendri yfirsýn Helgarpósts- ins er einnig vakin athygli á því að satt að segja er ástand áfengismála í töluvert betra horfi hér á íslandi en annars staðar í heiminum. Þetta þýðir auðvitað ekki að ekki beri að gera ennþá betur, en hins vegar leið- ir þessi staðreynd hugann að því hvort hamagangurinn í SÁÁ undan- farið hafa ekki orðið til að skyggja á önnur mikilvæg mál sem enn frekar þarfnast úrlausnar. Það má ekki gerast, og hvað sem öðru líður verða SÁÁ-menn að vara sig á því að áróður þeirra fari ekki að verka öfugt. Helgarpósturinn hefur frétt að nú hafi verið stofnuð óformleg samtök, Vamarsamtök drykkju- manna, sem beita muni sér fyrir aukinni drykkju í landinu, og þó ekki beri að taka þá félagsstofnun mjög hátiðlega segir hún þó sína sögu. SÁÁ mega vara sig á því að kollkeyra sig ekki á dugnaði og áhuga. Attu prógramm? Alkunna að einstakling- ar drabbast niður undir of miklu álagi. Fitugt úrsér- sprottið hár, augu úr fókus, fylling dottin úr tönn. Niðurdrabbið smit- ast í hús og muni: ekki skipt um gangperu misser- um saman, útiljósið búið að vera ónýtt síðan á við- reisnarárunum, sprungið rör í kjallara. Undir of miklu álagi koðnar ein- staklingurinn niður í skammtímamarkmiðum, hringboróió í dag skrifar Pótur Gunnarsson tærnar verða hans fram- tíðarsýn. Hvað um þjóðir? Hvernig standa perur og útiljós íslendinga? í vik- unni las ég í viðtali við náttúrufræðing að ísland væri á góðri leið með að fara í vaskinn. Af þeim 60—70 þúsund ferkíló- metrum af grónu Iandi sem landnámsmenn hrepptu við landnám, hafi 35 til 45 þúsund km2 breyst í gróðurlausa auðn. Eftir 1100 ára byggð í landinu sitjum við uppi með minna en 20% þeirra landgæða sem hér voru við upphaf landnáms. Ef allt væri í orðu ætti mikill hluti íslensks láglendis að vera skógi og kjarri vaxið. Jáfn- skjótt og land er girt og. hlíft við ágangi búfjár, tek- ur gróðurinn þessa stefnu. Þetta uppblásna íslenska melarokk sem blasir við út um gluggann í dag er af- bökun og alls ekki í sam- ræmi við gróðurmögu- leika. Með markvissri beitarstjórnun, sáningu, áburðardreifingu og skóg- rækt væri á undraskjótum tíma hægt að snúa vörn í sókn. ,AHt og sumt sem þarf er að líta upp og hefjast handa. Stjórnmálaflokkar eru nú óðir að senda út pró- grömm sín og uppskriftir, innan skamms ganga hæst- virtir kjósendur í kjörbúð- ir og velja sér pólitík til næstu fjögurra ára. Okkur skilst að leiðin út úr ógöng- unum sé línudans yfir hengiflugi, mikið liggi við að lóðin á vogarstönginni verði stillt af nákvæmni ef ekki eigi að sjá í iljar línu- dansaranum í hyldýpið niður. Einn vill setja þak á erlendar skuldir, annar gólf á niðurgreiðslur og. þriðja innrétta kvist í vísi- töluna. í fljótu bragði sýn- ast mér prógrömmin eink- um snúast um tvennt: fulla vinnu og arðbæran at- vinnurekstur. Ég get ekki að þvi gert, alltaf þegar ég heyri minnst á fulla at- vinnu dettur mér í hug ævi- langt fangelsi. Eru helgis- pjöll að spurja: fulla at- vinnu til hvers? Margir prógrammsemjendur virðast ekki eiga aðra ósk heitari en sjá núverandi róluvallalið marséra inn í álbræðslur framtíðarinn- ar. Þótt ekki liggi í augum uppi hvers vegna verið er að reka með bullandi tapi álfabrikku sem slokrar í sig helminginn af rafmagni landsmanna undir kostnaðarverði, er við- kvæðið jafnan: hún veitir atvinnu. Heldur uppi mannskap sem aftur borg- ar skatta til ríkis og bæja. í síðustu viku gat að heyra eftirfarandi frá starfs- mönnum álversins í Straumsvík: „Menn eru hræddir hérna, við erum beittir heraga eins og í Póllandi. Menn eru farnir að mæta veikir í vinnuna..“ „Okkur er hótað brottrekstri hér á staðnum ef við opnum munninn". „Yfirmennirnir hafa algjörlega hundsað hina mannlegu og félags- legu þætti, þá skiptir engu hvort við erum daúðir eða lifandi“. Ker voru látin ganga opin og óvarin, ryk- mökk lagði um kerskál- ann, grár ryksalli yfir öllu og í þessu andrúmslofti höfðu starfsmenn unnið að meðaltali 60 klst. á viku síðustu mánuði. Er það þetta sem átt er við með fullri atvinnu? Eða eru það frystihúsin þar sem fólkið stendur í slabbi upp í klobba og lítur ekki upp nema á þorrablót- um og þegar frambjóðend- ur ganga í salinn og láta svo lítið að lyfta upp einum þorski: Voruð þið að fá á hann? Kunningi minn, sem fór í viðskiptafræði, réði sig að frystihúsi úti á landi. Mig minnir það hafi verið á Langafirði. Allt í rúst og átti að koma rekstrinum aftur á rekspöl, hann hafði próf upp á það. Fjöldi manns rambaði á barmi at- vinnuleysis, ríkisstjórnin blakkmeiluð og bankinn veitti lán. Þegar vinurinn svo ætláði að fara að annast reksturinn, greiða laun og skuldir, komu eigendur og sögðu: Heyrðu vinur, þú ert ekki hér til að ráðstafa peningum... og skiptu síð- an fénu bróðurlega á milli sín (þetta voru systkini) og veittu hvert í sín hliðar- fyrirtæki og heimilishald. Þegar allt var komið í strand á nýjan leik var bankinn víst eitthvað sár og hingað en ekki lengra og síðast voru allir þingmenn kjördæmisins komnir í spilið og: „Á að eyðileggja atvinnuuppbyggingu á Langafirði?". r Anægjulegustu tíðindi sem undirritaður rakst á í dagblöðum síðustu viku var viðtal við forstöðu- mann fyrirtækis sem sér- hæfir sig í örtölvubúnaði fyrir frystihús. Þar er lýst byltingu sem innleiðsla tölvuvoga hefur haft í för með sér: betri nýtingu hrá- efnis og aukin afköst verkafólks. Hafin er fram- leiðsla flokkunarvéla sem tákna fyrstu skrefin í átt til tölvustýrðra iðnróbóta sem að endingu munu leysa mannshöndina af hólmi. Við núverandi fyrir- komulag boða þessi lausnarorð upplausn og atvinnuleysi, ekki einasta fyrir frambjóðendur sem hefðu ekki lengur frysti- húsaliðið til að taka í spað- ann á, heldur heilu byggðarlögin sem byggja afkomu sína á frystihúsa- vinnu. Spurningin er hvort yfirvofandi tæknibylting á að skapa frítíma eða at- vinnuleysi. Verðugt verk- efni íslenskra stjórnmála ætti aö vera að búa í hag- inn fyrir sjálfstýringu vinnunnar með því að setja allar helstu framleiðslu- greinar undir félagslega stjórn. Það væri pólitík! í stað þess að færa til sömu kúlur á sama teini, spurja: hvernig getur framleiðslan' gert okkur kleift að eiga frí, liggja í kelerí, annast börnin, stoppa i vanþekk- inguna, útvíkka skynjun- ina og hlakka til ellinnar?

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.