Helgarpósturinn - 19.01.1984, Page 3

Helgarpósturinn - 19.01.1984, Page 3
hellisbúar, steinaldarfólk og hvatirnar eru frumstæðar: Karlarnir eru að vlsu ekki með kylfuna á lofti en þeir taka stelpurnar hálstaki og þær sparka ( þá.“ Úff! Dans- ararnir heita Jon Elías Jóns- son, Karóllna Porter (já, dóttir Coles), Rúrik Vatna- son og Þórunn Dögg Árna- dóttir. Kolla og Hebba reka Dans-Nýjung, einn þessara nýju dansskóla, sem hafa stokkiö inn á auglýsingaslð- ur dagblaöanna slðustu mánuöi. „Fönkí, diskó og djass, það er l(nan,“ segir Kolla. Þær Kolla og Hebba voru danskennarar hjá Heiðari Ásvaldssyni, en svo kastað- ist I kekki með þeim og Heiðari. Þær sögðu upp og stofnuðu Dans-Nýjung I haust. Heiðar hefur átt bágt með sig I samkeppninni og reynt að skjóta á þær stöll- ur I auglýsingum. „Þetta er nánast atvinnurógur hjá honum,“ segir Kolla. Það eru ný verk I smfðum hjá sýningarhópnum, segir hún. „Við reynum að gera öðruvfsi hluti en aðrir og gera betur en aðrir," segir Kolbrún Aðalsteinsdóttir. ★ XmæMz&ííiZ Smartmynd Djassað diskófönk „Við höfum enga þörf fyr- ir erlenda krafta I þessu — við getum gert þetta sjá!f,“ segir Kolbrún Aðalsteins- dóttir,annar höfundur Cobra-dansins, sem nú er sýndur flestar helgar á skemmtistaðnum Holly- wood. „Við Hebba sömdum Cobra upphaflega fyrir 13 dansara og þannig var dansinn upphaflega sýndur á Broadway, en við þurftum að minnka hópinn niður I fjóra til að geta sýnt I Holly- wood. Þessir krakkar hafa æft I mörg ár og hafa feng- ið brjálæðislega góðar við- tökur. í dansinum eru þau Hvað er sjálfstyrking? Q Ýmisskonar námskeið hafa verið mikið auglýst I dagblöðunum þessa fyrstu daga ársins og greinilegt að þörfin er óskapleg og fram- boðið ekki minna. Ein aug- lýsing I Mogganum vakti forvitni okkar — þar var auglýst námskeið I svokall- aðri sjálfstyrkingu (assert- iveness training) og skrifuð fyrir því Anna Valdimars- dóttir sálfræðingur, mennt- uð frá Osló og Seattle I Bandaríkjunum. „Markmið þessara nám- skeiða er að efla sjálfs- traust og draga úr kvíða sem margir finna fyrir I samskiptum sínum við ann- að fólk,“ segir Anna. „Enn- fremur er reynt að þjálfa upp ákveðna leikni I um- gengni við annað fólk. Það er fjallað um ýmsa þætti mannlegra samskipta og dagleg vandamál sem hver maður kannast sjálfsagt meira eða minna við úr eig- in lífi, til dæmis hvað valdi kvíða I mannlegum sam- skiptum og hvernig hafa megi hemil á kvíða. Við ræðum um tilfinningar eins og sektarkennd og reiði, hvernig megi tjá reiði án þess að hafa eyðileggjandi áhrif á sambandið við aðra. Við förum líka I ýmis atriði sem gera fólki auðveldara að halda uppi samræöum og svo má lengi telja.“ „Nei, hér á landi hefur ekki verið mikið um að sál- fræðingar störfuöu svona á eigin vegurn," segir Anna. „En það er mikil eftirsókn eftir þessu og greinilega þörf fyrir svona rekstur." ★ AÐ BLÓTA ÞORRA PANTIÐ NÚ TÍMANLEGA í SÍMA 17758 Naustið endurvakti fyrir um það bil 28 árum þann fá- gæta, gamla og góða sið að bjóða íslendingum sannan þorramat á þorranum. Við höf um alla tíð lagt metnað okkar (að hafa þorramat- inn sem allra bestan, enda er hann orðinn heimsfræg- ur — að minnsta kosti á íslandi. Nú enn einu sinni gengur þorrinn I garð og við förum að gera allt klárt í húsinu fyrir okkar árvissu matargesti í Naustinu. Ennfremur höfum við nú ákveðið að bjóða öllum tækifæri til að njóta þorrabakkanna okkar. NYTT- NYTT- NYTT Já, nú geta allir pantaö þorrabakka Naustsins og feng- ið þá senda heim í eigin boð og veislur stærri og smærri. Fyrir sérveislur er jafnvel hægt að fá matinn i trogunum okkar vinsælu. I bökkunum okkar eru allir þorraréttirnir svo sem: hvalur, hákarl, hangikjöt, rófu- stappa, sviðasulta, harðfiskur, lundabaggar, bringu- kollar og hrútspungar o.fl. o. fl. Verðið fyrir manninn á Nausts-þorrabakkanum, þessum líka gæða bakka — orn hinum eina sanna, er aðeins kr.OOU. * ekki mikið miðað við gæði. Hefurðu skellt þér í Leikhúskjallarann á nýja árinu? Nei, ég hef nú ekki farið, ekki enn sem komið er, en kannski ég drífi mig einhvern daginn. — Hvernig viðtökum áttu von á þar? Bara góðum, held ég. Staðurinn hefur fengið heil- mikla auglýsingu út á þessa episóðu alla saman. — Varla er það neitt sérstaklega góð auglýsing. Nei, kannski ekki. En segja menn ekki líka að allt umtal sé auglýsing? — Hvernig hefur þetta mál allt og eftirleikurinn lagst í þig? Þetta hefur vægast sagt verið mjög óskemmtileg reynsla, sem ég vildi helst gleyma sem fyrst. Helst vildi ég geta visað þessu öllu út i hafsauga. Það er ekkert grín að fara í mál við lögregluna. — Sérðu eftir að hafa farið með þetta mál í blöðin? Nei, það er svo langt frá þvl að ég sjái eftir því. Þessi umræðasem þaðskapaði hefurbæði verið nauðsynleg og holl. Þó verður það að segjast, að mér finnst stund- um eins og þetta sé of mikiö til að leggja á einn mann, að standa í þessu. Allt umtalið; maður er að heyra ótrú- legustu kjaftasögur um sjálfan sig, og það er allt annað en gaman, get ég sagt þér. — Hvers konar kjaftasögur eru þetta? Þetta er alls konar drulla. Ég hef til dæmis heyrt að ég sé orölagöur ofbeldismaður hér I bænum! Ég veit ekki hvort þessum sögum er dreift skipulega, en það viröast greinilega vera einhverjir sem vilja sverta nafn mitt sem mest þeir mega slðan málið kom upp. Auðvit- að vildi ég vera laus við svona lagað og það sem meira er: Mín persóna er algjört aukaatriði I þessu máli. Það skiptir ekki máli hver á I hlut, löggan hefur ekkert leyfi til að berja fólk, hvorki ofbeldismenn né aðra. — Hvernig fannst þér umræöuþátturinn um málið i sjónvarpinu? Mér fannst lögreglan bíta þar hausinn af skömminni meö þvf að halda áfram að verja þessa menn. Mér dett- ur ekki I hug að I lögreglunni séu starfandi fúlmenni upp til hópaen það eru til óvandaðir menn þarna innan um. Þaðerklárt mál. Lögreglan hefurtalað mikiðum að þetta sé ójafn leikur I fjölmiðlunum, þvl að lögreglu- mennirnir mega ekki tjá sig. Ég skil þetta nú ekki almennilega. Hvers vegna var lögreglumönnunum sem áttu I hlut ekki einfaldlegaleyft að tjásig?Gat lögreglu- stjóri ekki heimilað þeim það? — Finnst þér fjölmiðlar hafa fylgt þessu máli nógu vel eftir? Mér finnst umfjöllunin hafa verið helst til mikil ef eitthvað er, of mikiö um sparðatíning um ekki neitt, síð- andómsrannsókninvarákveðin. En þettaernú kannski ósanngjarnt af mér. Hlutlausu vitnin I þessu máli hefðu kannski aldrei komið fram ef þetta hefði ekki oröið blaðamál. Og upplýsingar I fjölmiðlum um það hvernig RLR stóð að rannsókninni urðu til þess að krafan um hlutlausa rannsókn var gerð og tekin til greina. Það var raunar grein Helgarpóstsins að þakka. En ég er mest hissa á þvl hvernig rannsóknarlögreglustjóri hefur sloppið með fréttatilkynningu sína. Það er full ástæða fyrir hann að biðjast afsökunar á henni. Hún var ótrú- lega hlutdræg. Það hefði verið gaman að sjá hvers kon- ar tilkynningu hlutlaus aðili hefði sett saman úr þeim gögnum sem rannsóknarlögreglustjóri vann úr. — Hvenær heldurðu að þú farir svo aftur í Kjallar- ann? Ætli ég fari ekki bara næst að sumarlagi. Frakkalaus. ________-H.T Skafta Jónsson þarf vart að kynna. Fjölmiðlar hafa gert hand- töku hans í Leikhúskjallaranum aðfaranótt 27. nóvember sl. ítar- leg skil, svo og kæru hans ó hendur þremur lögreglumönnum fyrir barsmíðar og annað harðræði við handtökuna. Mólið var fyrst rannsakað hjó Rannsóknarlögreglu ríkisins, en sú rannsókn hefur þótt orka tvímælis. Sakadómur Reykjavíkur byrjaði að rannsaka mólið upp ó nýtt í vikunni, að beiðni ríkissaksóknara. Skafti er 28 óra, blaðamaður hjó Tímanum og býr í Reykjavík. HELGARPOSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.