Helgarpósturinn - 19.01.1984, Page 27
ari öfl en Árvakur hf., útgáfufyrir-
tæki Morgunblaösins, Frjáls fjöl-
miðlun hf., útgáfufyrirtæki DV,
Samband íslenskra samvinnufé-
laga, Almenna bókafélagiö og
sjálf Reykjavíkurborg! HP hefur
góðar heimildir fyrir því að þetta
mál hefur komið ýmsum algjörlega
í opna skjöldu og þykir í meira lagi
vafasamt, ef ekki siðlaust, að borg-
arfélag taki þátt í jafn viðkvæmum
bisniss og fjölmiðlun er, með öflum
af þessu tagi. Virðist ljóst að með
þessu stefnir í sömu hægriblokkar-
myndun á sviði elektrónískrar fjöl-
miðlunar og orðið hefur á blaða-
markaðnum. Davíð borgarstjóri
mun rökstyðja þátttöku borgarinn-
ar með því að þarna muni henni
sparast talsverður kostnaður við
gerð kynningarmynda og annars
sliks, en ljóst þykir að þetta nýja
veldi bíður eftir því að útvarpslögin
verði rýmkuð þannig að unnt verði
að setja á fót útvarpsstöð og kapal-
sjónvarpsstöð. Þetta nýja fjölmiðl-
unarbandalag, sem er hlutafélag
upp á 12 millj. kr. með 2ja millj. kr.
hlut hvers, mun vera í tengslum við
Indriða G. Þorsteinsson og heyrir
HP að hið gamla fyrirtæki Indriða
og Jóns Hermannssonar, ísfilm,
muni leggja til nafnið. Litlar líkur
eru á öðru en þetta mál verði knúið
í gegn í borgarráði á næstu dögum
og varla hefur annarri eins sprengju
verið varpað inná fjölmiðlunarvíg-
völlinn í langan tíma ...
D
WtB orgarskrifstofurnar með
Davíð Oddsson að yfirboðara
reiddu út litlar sjö hundi uð þúsund
krónur á dögunum. Má rekja þau
fjárútlát beint til illfærðar nnar sem
verið hefur á götum Reykjavíkur
undanfarið. Varan er nefnilega ný-
tískulegur jeppi að Mitsubishi gerð
og höfum við það eftir borgarritara
LAUSNÁ
SPILAÞRAUT
Suöur spiladi tígli, sem noröur tók meö
kóng og lét meiri tígul. Þannig fór spiliö
einn niöur, þuí einn slagur tapaöist í
huerjum lit.
En efuiö hugsum okkur aö spaöa sexiö
sé látiö ígosann, þá getursuöur ekki tekiö
á ásinn og þá ueröur noröur aö spila aftur
át. Þá losnar uestur uiö tígul úr boröi í
laufiö og uinnur spiliö.
En takiö eftir einu enn. Ef 'noröur lœtur
upphaflega út spaöa sjöiö, þá er spiliö
óuinnandi.
NOACK
MFGEYMAR
FYRIR ALLA BÍLA OGTÆKI
Saansku bilalramjelóendu/nif VOLVO. SAAB og SCANIA
nota NOACK latgeyma vegno kosta þema.
að ástæða kaupanna sé sú nauðsyn
að borgarstjóri komist klakklaust
staða á milli ef veður gerir vont. . .
Þ
ær fréttir berast frá LR að
leikfélagið hafi ráðið þá Svein-
björn I. Baldvinsson og Sigurð G.
Valgeirsson blaðamann hjá DV til
að skrifa farsa. Hljóðar starfssamn-
ingurinn upp á sex vikna ráðningu
hvors um sig ...
ótt skammt sé síðan Magn-
ús Jónsson bankastjóri Búnaðar-
bankans féll frá er þegar farið að
ræða um hugsanlegan eftirmann
hans í bankastjóraembættinu. Það
eina sem telja má fullvíst í því sam-
bandi er að það verður sjálfstæðis-
maður sem tekur við embættinu. í
fyrstu var ekki talið ósennilegt að
það yrði Matthías Á. Mathiesen
sem léti þá af ráðherraembætti og
rýmdi í leiðinni fyrir Þorsteini
Pálssyni flokksformanni. Matthías
mun hins vegar ekki hafa áhuga á
bankastjóraembættinu og vill frem-
ur bíða þess að bankastjórastaða
losni við Seðlabankann. 'Þá mun
þeirri hugmynd einnig hafa skotið
upp að Matthías Bjarnason fengi
embættið og Þorsteinn þá ráðherra-
embætti hans, en eftir síðustu frétt-
um að dæma mun þó ekki verða
svo. Þykir Friðjón Þóröarson al-
þingismaður og bankaráðsmaður í
Búnaðarbankanum lang líklegasti
„kandidatinn" í bankastjóra-
embættið og mun það ekki vera á
móti skapi hans að losna úr stjórn-
málaþrasinu og fá svo valdamikið
embætti sem bankastjóraembættið
er í raun. En líka gæti komið upp
nafn bankamanns einsog síðast í
Búnaðarbankanum, þar sem er Jón
Adolf Guðjónsson, aðstoðar-
bankastjóri og gegn sjálfstæðismað-
ur. Flestir veðja þó á Friðjón . . .
Rakarastofaa Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
cö
u>
0
£
Geysir
o
&>
0
3
s>
Borgartúni 24 — 105
Reykjavík lceland —
Tel. 11015
Leigjum út nýja Opel
Kadett, Mazda 323 og
Daihatsu-bíla.
Sækjum og sendum.
Símsvari allan sólar-
hringinn.
EUROCARD
kreditkortaþjonusta
rekari átök innan SH eru sögð
yfirvofandi eftir uppsögn Þor-
steins Gíslasonar hjá Coldwater.
Munu nokkrir aðilar innan SH hafa
lagt á það áherslu að fá Þorstein til
þess að draga uppsögn sína til baka
og halda áfram starfi sínu, en þeir
urðu undir. Munu þá sumir hafa haft
áhuga á því að ráða Þorstein Þor-
steinsson (son Þorsteins Gíslason-
ar) í framkvæmdastjórastöðuna, en
það fékk ekki hljómgrunn. Er talið
líklegt að þeir stjórnendur SH sem
urðu undir i þeim átökum muni iila
sætta sig við það, og þá einkum Eyj-
ólfur Isfeld Eyjólfsson. Herma
heimildir að ekki sé ólíklegt að
hann sendi stjórninni uppsagnar-
bréf áður en langt um líður, en hann
hefur lengi haft orð á því að hætta
og einu sinni sagt upp formlega, en
hætt við. Átök eru nú sögð hörð
milli Eyjólfs og ^þeirra ísbjarnar-
bræðra, Jóns og Vilhjálms Ing-
varssona, sem eru sterkir áhrifa-
menn í SH . . .
^^£n þótt Þorsteinn Gíslason
hætti hjá Coldwater verður hann
vart á flæðiskeri staddur. Ýmsir að-
ilar í fiskiðnaði vestra munu hafa
áhuga á að notfæra sér starfskrafta
hans, og heyrum við að þar séu Ný-
fundnalandsmenn fremstir. Ein-
hver klásúla í ráðningarsamningi
Þorsteins mun þó koma í veg fyrir
að hann geti starfað fyrir aðra á
þessu sviði fyrr en eftir tiltekinn
tíma . . .
ryggingaeftirlitið hefur sent
fimm tryggingafélögum bréf þar
sem félögunum er gert skylt að upp-
fylla ákveðnar kröfur ef þau eiga að
halda starfsleyfi. HP hefur nöfn fjög-
urra þeirra; Trygging hf, Almenn-
ar tryggingar, Ábyrgö og And-
vaka. Segja menn í „bransanum"
að samkeppnin fari vaxandi meðal
tryggingafélaga og fyrirsjáanlegt að
mörg þeirra rambi á barmi gjald-
þrots á árinu .. .
u
lfar Þormóösson fékk
sendan innborgunargíróseðil frá
Rithöfundasambandi Islands nýver-
ið. Ulfar settist niður og skrifaði
sambandinu bréf þar sem hann
sagði að stéttarfélag sitt hefði
hvorki æmt né skræmt þegar hann
sem ritstjóri Spegilsins hefði verið
dæmdur fyrir klámog guðlast og
þurft að þola mikið efnahagslegt
tjón af þeim sökum. Hann ætti því
ekki samleið með Rithöfundasam-
bandi sem léti sér tjáningarfrelsið í
léttu rúmi liggja. Þ. S§. des. barst
Úlfari svarbréf frá RitJíöfundasam-
bandinu undirritað M formanni
þess, Nirði P. Njardvík, þar sem
segir að bréf Úlfars hafi verið tekið
fyrir á stjórnarfundi og ásökunum
bréfritarans vísað á bug. Njörður
sagði í bréfinu að aðild félagsmanna
Rithöfundasambands íslands væri
bundið við bókmenntasköpun en
störf Úlfars hefðu verið tengd rit-
stjórn og útgáfu. Spegillinn félli því
ekki undir bókmenntasköpun og
snerti þvi verksvið annarra stéttar-
félaga svo sem Blaðamannafélags
íslands og samtaka útgefenda. Auk
þess kom fram í bréfinu að Úlfar
hefði hvorki beðið né óskað eftir
stuðningi Rithöfundasambandsins á
sínum tíma þegar Spegilsmálið var í
deiglunni. Ýmsum rithöfundum
þykir nú bréf Njarðar skjóta skökku
við, sérstaklega með tilliti til þess að
Rithöfundasambandið samþykkti á
stjórnarfundi að senda Jaruzelski
bréf til Póllands þar sem harmað
var að hershöfðinginn hafði lagt
niður pólska rithöfundasambandið.
Þetta taldi Rithöfundasamband ís-
lands skýlaus brot á mannréttind-
um og ógnaði listrænni sköpun rit-
höfunda. Bréfið til Jaruzelski var
birt í fréttabréfi RÍ 12. des. Kurr er
kominn í hóp rithöfunda sem telja
að það væri nær fyrir stjórn RÍ að
verja hagsmuni og tjáningarfrelsi
eigin félaga áður en stéttarfélagið
færi að berjast fyrir tjáningarfrelsi í
Póllandi. . .
Nú er hægt að gera góð kaup
Okkar árlega búta- og afsláttarsala-
stendur yfir.
Teppabútar af öllum mögulegum
stæröum og gerðum meö miklum
afslætti og fjölmargargerðirgólfteppa
á ótrúlega góöu veröi.
BYGGlNGAVÖRURl
HRINGBRAUT120
Ðyggingavörur
Gólfteppadeild
Símar Timburdeild
28600 Málningarvörur og verkfæri
28603 Flisar og hreinlætistæki
28605
Hringbraut 120 (Aðkeyrsla frá Sólvallagötu)
21
KL
Opið FÖSTUDAGA
LAUGARDAGA KL;1Q - 1A
Hrútspungar
ndabaggi
hvalur
smjör
viöasulta
ringukollar
'Armúla og
hangikjöt
blóömör
lifrarpylsa
harðfiskur
hákarl
rúgbrauö
bAðum búðum
: 10 - 16 Á Eiðistorgi
ÁRMÚLA 1a EIÐISTORG111
HELGARPOSTURINN 27’