Helgarpósturinn - 19.01.1984, Page 28
anum: Líkur eru á því að einveldi
íslenskra Aðalverktaka á Kefla-
víkurflugvelli sé að ljúka. Aðalverk-
takar hafa einir séð um allar verk-
takaframkvæmdir á Vellinum síð-
ustu áratugi. Eftirfarandi aðilar eiga 1
í Aðalverktökum: Sameinaðir verk-
takar hf. 50%, Reginn 25% og ís-
lenska ríkið 25%. Sameinaðir verk-
takar hf. voru eiginlega Verktaka-
samband þeirra tíma og upphaflega
var dæmið hugsað þannig að S.V.
byðu ýmis verkefni Bandaríkja-
manna út. Hins vegar hafa íslenskir
Aðalverktakar lokast eftir að eignir
þess jukust og vilja sitja einir að
Kananum. Verktakasamband Is-
lands hefur reynt á undanförnum
árum að sprengja einræði Aðal-
verktaka. Allar verktakafram-
kvæmdir á Keflavíkurflugvelli eru
háðar samþykki utanríkisráðherra
og hefur hann endurnýjað leyfi ís-
lenskra Aðalverktaka árlega allt frá
stofnun þeirra. Verktakasambandið
boðaði fyrst fund í ársbyrjun 1978
með Einari Ágústssyni um aðild
fleiri verktaka að framkvæmdum á
Vellinum og hefur síðan þrýst á um
málið hjá öðrum utanríkisráðherr-
um. Verktakasambandið bindur nú
sterkar vonir við að Geir Hall-
grímsson bindi enda á einræði
Aðalverktaka og samnmgar verði
gerðir við fleiri verktaka eða verkin
boðin út. Verktakasambandið skír-
skotar í þessu sambandi m.a. til
ályktunar SUS í haust um að fram-
kvæmdir á Vellinum yrðu opnar
öðrum verktökum en íslenskum
Aðalverktökum . ..
N
■ ýtt fjölmiðlunarveldi er í
uppsiglingu hérlendis — svo mikið
veldi reyndar að það virðist nánast
ósigrandi. Með þetta mál er farið
sem mannsmorð og ekki að ófyrir-
synju. Það liggur nú fyrir borgarráði
Reykjavíkur sem algjört trúnaðar-
mái. Hvers vegna borgarráði? Von
að spurt sé. Tillaga um stofnun nýs
fjölmiðlunarveldis á sviði mynd-
banda, sjónvarps og útvarps er
komið fyrir borgarráð að undirlagi
meirihluta sjálfstæðismanna undir
forystu Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra. Hugmyndin er sú að aðild að
þessu nýja fyrirtæki eigi ekki veik-
FOSSAR
þeir finna ávallt hagkvæmustu leiðina
Reynsla Eimskips og stöðug endurnýjun í
flutningstækni tryggir viðskiptavinum okkar
fullkomið öryggi í hvers kyns flutningum.
Sérhæfður skipakostur Eimskips annast
einingaflutning, gámaflutning, frystiflutning,
kæliflutning og stórflutning á skjótan og
hagkvæman hátt. Traustir starfsmenn
móttökuhafnanna ásamt vönduðum
flutningstækjum í landi sjá til þess að varan
kemur heil heim í hlað - á réttum tíma.
Fossarnir-farsællflutningurum allan heim.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100
*
28 HELGARPÓSTURINN