Helgarpósturinn - 08.03.1984, Page 11
leita brýn málefni nútímans - fé-
lagsleg vandamál asfaltsins og
sitthvað sem lýtur að sálarlífi
þess nýja íslendings eftirstríðsár-
anna, já þá vill íslenskan stund-
um fara undan manni í flœmingi.
Til doemis er það mikil nýlunda
hér á íslandi að rœða hömlulaust
um kynferðismál og alltþað sem
kynferðislegt er og íslenskur
orðaforði ákaflega blankur að
tilbrigðum við allt það sem á út-
lensku nefnist; sexual, sex, sex-
ualitet og svo má lengi telja. Jú,
hlutirnir eru kyn- eitthvað, eða
kynferðislegir- eitthvað, en það
vill oft verða ósköp fátœklegt
þegar reynt er að útbúa skikkan-
lega lœsilegan texta. Það hljótið
þér, ágœtu konur sem skrifa um
mál kynja og kynferðis í tímaritið
Veru, að vita kvenna best.
Þetta er nú fyrst og síðast
ástœðan fyrir því að ég, vesl
blaðamaður og liðleskja í
kvennabaráttunni, tók uppá því
að berja saman „nýyrðið” „ást-
reitni’’ í tilefni af greininni um
„sexual harassment" eða kyn-
ferðislega áreitni á vinnustöðum.
Orðið var sumsé œtlað til brúks,
skammtímabrúks, yfir vandamál
sem enn hefur ekki hlotið verð-
uga nafngift á íslensku - enda
tekið fram í greininni að það vœri
aðeins notað þar til „eitthvað
heppilegra kœmi uppúr dúrn-
um”. Eg ætla sumsé ekki að
halda uppi stórum vörnum fyrir
orðið, en tel að ástreitni sú sem
fjallað var um i greininni sé alls
óskyld og raunar ranghverfan á
þeirri heiðríku ástleitni sem ríkti
á milli Dafnis og Klói í sveitasæl-
unni forðum. Hœngurinn er bara
þetta ógeðslega forskeyti kyn
Ástreitni, kynferðisleg áreitni á
vinnustöðum, er mál sem sáralit-
ið hefur verið rœtt hér á landi -
þetta fullyrti ég í greininni og full-
yrði enn, þótt vísast hafi ástreitni i
hinum víðfeðmari birtingar-
myndum verið rædd fram og aft-
ur. Þetta var líka skoðun fjöl-
margra kvenréttindakvenna sem
ég rœddi við; nefnum Kristínu
Astgeirsdóttur, Helgu Sigurjóns-
dóttur, Ingibjörgu Hafstað, Guð-
rúnu Ólafsdóttur (já, mamma
biður líka að heilsa, Helga).
Enda kom það á daginn að engin
þeirra gat bent mér á upplýsing-
ar eða efni á vísum stað um þessi
mál, heldur þurfti ég að leita
fanga í bandarískum timaritum.
Þær vissu heldur ekki til þess að
þau hefðu verið tekin sérstaklega
fyrir á fundum í Kvennafram-
boði, Rauðsokkahreyfingu eða
öðrum kvennasamtökum. For-
ystukonur í verkalýðshreyfing-
unni sem ég rœddi við könnuðust
varla við það að svonalagað
fyrirfyndist. Það ernú öll umrœð-
an, þrátt fyrir að „kynferðisleg
áreitni á vinnustöðum verði ekki
fráskilin kynferðislegri áreitni
alls staðar annars staðar í kring-
um okkur..."
Jafnréttissinnaðar
baráttukveðjur,
Egill.
Sören átti
frumkvæðið
í frásögn Helgarpóstsins í síð-
ustu viku af hinni miklu ensk-ís-
lensku orðabók sem væntanleg
er næsta haust og gefin verður út
af Bókaútgáfu Amar og Orlygs,
slæddust meinlegar villur. Sagt
var að Jóhann S. Hannesson, fyrr-
verandi skólameistari, hefði átt
frumkvæðið að vinnslu bókar-
innar og unnið að mestu einn að
henni frá árinu 1980 að efnisöfl-
un. Hið rétta er að frumkvæði
þessa máls átti Sören Sören-
son. Hann tók sig til er hann
komst á eftirlaunaaldur og þýddi
40 þúsund orða orðabók. Bóka-
útgáfan samdi síðan við Sören
um úgáfuna en réð jafnframt Jó-
hann S. Hannesson til þess að
búa handritið til prentunar og
stjóma því starfsliði sem ráðið
var auk Jóhanns til þess starfs,
sem staðið hefur síðan árið 1980.
Helgarpósturinn biður Sören
Sörenson velvirðingar á mistök-
unum.
á góma í þjóðmálaumræðunni.
Ekki er síst um að ræða atvinnu-
leysi meðal kvenna, sem einatt
f júka fyrst þegar harðnar á dalnum
hjá fyrirtækjunum. Þeir hjá Junior
Chamber em sagðir hafa talsverð-
ar áhyggjur af þessu og heyrir HP af
því að einn af JC-klúbbunum, JC
Borg, hafi gripið til þess ráðs að
stofna til nýrra atvinutækifæra fyr-
ir konur með allsérstæðum hætti.
A fundi hjá JC Borg, sem haldinn
var í veitingahúsinu 1 Kvosinni fyrir
skömmu, er sagt að fengnar hafi
verið gengilbeinur í kanínubúning-
um að hætti bandaríska Playboy-
klúbbsins. Ekki er að efa að kanín-
urnar hafi mælst vel fyrir hjá körl-
unum í klúbbnum, en þessi JC-
klúbbur er lokaður öðmm en körl-
um. Ekki er vitað hvort kanínumar
skemmtu sér jafn vel, né heldur
hvort þær em komnar með sér-
stakt stéttarfélag. Slíkt félag gæti
heitið Kanínur á fundi, skammstaf-
að KÁF ...
Leiðrétting
Fyrir slys í prentsmiðju féllu
niður fyrirsagnir á Hringborð Sig-
urðar A. Magnússonar og útvarps-
pistil Gísla Helgasonar í síðasta
HP. Fyrirsögn Hringborðsins var
Stóri bróðir stækkar og útvarps-
pistilsins Hrollvekja. Beðist er
velvirðingar á þessu.
L istahátíð verður haldin að
venju í Reykjavík næsta sumar og
menn eðlilega famir að velta því
fyrir sér með hvaða móti þeir lista-
hátíðarmenn hyggist gleðja augu
og eyru hátíðargesta. Enn mun efn-
isskrá hátíðarinnar vera óráðin að
miklu leyti, svör eða afsvör hafa
ekki enn borist, en þó munu tveir
stórviðburðir fastákveðnir: Ashk-
enasí snýr ciftur á Listahátið eftir
nokkurt hlé og ekki bara einn
Ashkencisí heldur tveir, því í fylgd
með þeim eina sanna Vladímír
verður elsti sonur hans, ,Janta-
píanóleikari" að sögn. Meðspilarar
þeirra feðga á tónleikum í Laugar-
dalshöll verða heldur ekki af lakara
taginu - hvorki meira né minna en
Sinfóníuhljómsveit Lundúna,
en Ashkencisí er einn cif stjómend-
um þeirrar sveitar.
Hinn stórviðburðurinn er á sviði
myndlistarinnar: þar er um að
ræða fimm íslenska myndlistar-
menn búsetta erlendis sem heim-
sækja gamla landið með myndverk
sín í farangrinum. Þar skal fyrstan
frægan telja Erró, en auk hans
kemur frá HoIIandi Sigurður Guð-
mundsson, frá Kalifomíu mynd-
höggvarinn Eyfells og frá New
York Louisa Matthíasdóttir...
NÓATÚNI 17 - SÍMAR 1-72-60 & 1-72-61
Nú er svínakjöt á
góðu verði
Aöeins
128
pr. kg.
Árbæjarmarkaóurinn
Símar 78200, 71200.
1/1 skrokkar tilbúnir
í frystikistuna.
Ekkert shampoo jafnast á við
EL’VITAL
frá
Afíar
vörur
markaðs verði
OPIÐ
Mánud.—fimmtud. 9—19.
Föstud. 9—20. Laugard. 9—16.
GLÆSILEGT URVAL HÚSGAGNA
Á TVEIMUR HÆÐUM --------
RAFTÆKJADEILD
II.HÆÐ.
Raftæki — Rafljós
og rafbúnaöur.
FLATEY II.HÆÐ.
Bækur, búsáhöld,
gjafavörur.
JL-PORTIÐ
TAU OG TÖLUR
SÍMI 23675.
ALUIGARNI
SIMI 20431
Muniö okkar hagstæöu
greiðsluskilmála
JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn
Jli
vtSA Jön Loftsson hf.
1,1)
' I' JU
J'JU
JiLiMT'
Hringbraut 121 Simi 10600
L’OREAL
rir sundiðkendur
alveg
frábært
avrrAL
BAISAM
EL«
5HAMPOO
SHAMPOO
afW
L'ORÉAL
HELGARPÓSTURINN 11