Helgarpósturinn - 08.03.1984, Page 23
HRINGBORÐIÐ
Mannsæmandi líf sf.
Til marks um breytiþróun tím-
ans er fjölskyldan ágætt viðmið.
Ferðalag okkar í tímanum líkist
oft dvöi í þotu. Við vitum að hún
geysist áfram en virðist samt
standa kjur af því að við höfum
ekki jörðina til að miða við. Öðru
hverju þyrlast fram hjá ský og
englar og veita okkur hugboð um
hraðann; á endanum höfnum við
kannski í annarri heimsálfu.
Með því að skoða fjölskylduna
nemum við hve ferð okkar er
hröð. Ótrúlegt að bara fyrir 15
árum hafi verið ríkjandi svonefnd
kjarnafjölskylda: maður, kona,
tvö börn. Maðurinn vann úti,
konan hugsaði um heimilið....
þetta hljómar eins og byrjun á
gömlu ævintýri. Ástcind í svipaðri
fjarlægð og orf og ljár sem enn
eru höfð um hönd í skurðum og
kargaþýfi en hafa vikið fyrir nýj-
um búskaparháttum. Hið algenga
í gær verður cúbínói á morgun.
Jafnvel þótt menn kysu að taka
upp fyrri hætti, gætu þeir það
ekki frekar en nútímabóndi kaem-
ist af með orf og ljá. Sá möguleiki
að ein fyrirvinna dugi meðal-
heimili til framfærslu heyrir til
undantekninga. Fyrir bragðið
hefur maðurinn færst nær kon-
unni í umsýslu bama og heimilis-
haldi, en konan þokast í átt til
karlmannsins i sköffun og þjóð-
lífsþátttöku. Menn greinir á um
eggið og hænuna í þessu bí-lífi:
var það af því að framfærslan
hafði hækkað í verði að tvo þurfti
til eða varð heimilisreksturinn
svona dýr af því tveir fóru út að
vinna?
Eins og fyrridaginn var það
bissnisinn sem fyrstur hætti að
klóra sér í hausnum og stökk á
köttinn: bókað að tvær fyrirvinn-
ur virkuðu neysluhvetjandi í öll-
um þeim þjónustu- og vélakosti
sem leysti húsmóðurina af hólmi.
Á endanum var bara ein stofnun
sem virtist ekki hafa merkt neina
breytingu, þar hélt kjamafjöl-
skyldan áfram að tróna í öndvegi
líkt og danska krúnan sem prýðir
gafl Alþingishússins 40 árum eftir
að sambandinu við Dani hefur
verið sagt upp. Alþingi hélt áfram
að skoða barnagæslu sem hverja
aðra lúxusdillu, ansaði ekki fæð-
ingarorlofi og þótt kvenfólk
stæði áfram í bameignum vom
menn ekkert að brjóta um það
heilann hvernig scunræmdist 9 -
5 útivinnu að vera með bam á
brjósti og annast hvítvoðung.
Ekki frekar en menn em sífellt að
grufla út í meyfæðingu Krists.
AfleiðingcUTicir vom ámóta og
ef íbúar Hringbrautar hefðu í
samskiptum sínum við götuna
tekið mið af umferðinni árið sem
10 bílar fóm um hana á dag.
Bömin hefðu gert hana að leik-
velli og fólkið hcift hana fyrir
göngugötu. Enda má segja að
umskiptatímabilið frá einni fyrir-
vinnu til tveggja hafi líkst stór-
slysi ef við höfum í huga sálar- og
sambúðarkreppur sem fólk fór í
gegn um.
I síðustu kosningum urðu svo
gagnger umskipti á kynferði og
aldri cilþingismanna að svo virð-
ist sem stjómunarapparatið sé
byrjað að fá á tilfinninguna þá
lifnaðcirhætti sem em ríkjandi í
landinu. Og mega ugglaust hcifa
sig alla við því nú er ekki einasta
vegið að kjcirncifjölskyldunni
heldur sjálfu hjónabandinu.
Mörgum kemur þetta í opna
skjöldu af því þeir töldu að
hjónabandið væri homsteinn
borgaralegra samfélagshátta. Þó
ætti að vera sýnt að þá fyrst fer
neysluhítin í gang þegar hver
fer að búa með sjálfum sér. Auk
þess hefur bameignum stórfækk-
að á Vesturlöndum og bamgóð
ástæða fyrir ævisambandi á und-
anhaldi. Sjálfvirkni í kjölfar tölvu-
væðslu virðist mæla með mann-
fækkun og loks er nútímamaður-
inn fyrst og fremst mótaður af
hugmyndafræði neyslunnar:
raunsær nautnaseggur sem er
öldungis framandi að leggja á sig
eitthvað sem færir honum engan
efnahagslegan ávinning. Einlífi
getur einfcddlega verið útfærsla
nútímamanns á þægilegu lífi.
Ekki þar með sagt að hjónaband-
ið verði skoðað sem aflóga góss
aftan úr fomeskju líkt og berklcir
og saggafull húsakynni. Það hef-
ur bara þróast frá því að vera
formið sem öllu mcinnlífi var
troðið í yfir í að vera einn cif
mörgum jafnréttháum sambýlis-
háttum.
Það er svo annar handleggur
að þessu breytingatímabili fylgír
hraðferð ákveðins þjóðfélags-
hóps inn í örbirgð sem fæsta
grunaði að öldin okkcir ætti eftir
að skrásetja. Einstæðar mæður
standa uppi eins og ekkjur eftir
styrjöld eða fárviðri. Á íslandi er
áttunda hvert bam á framfæri
einstæðrar móður. Og úr því
að meðaltalskarlmaður dugði
hvergi nærri til að framfleyta
meðalfjölskyldu er hægur einn
að reikna út hvemig konu reiðir
af í sama dæmi.
Að vonum bar þetta fólk á
góma við gerð síðustu kjara-
samninga. Þá kom í ljós að at-
vinnurekendur em ekki til viðtals
um að greiða þessu fólki lífvæn-
leg laun. Þá vantcir vinnucifl á 10 -
15 þúsund stykkið og varðar ekk-
ert um hvernig þessari vöm reið-
ir cif heima hjá sér. Ekki frekar en
viðskiptavinur skyndikonu getur
farið að bía baminu hennar,
hlaupa út í búð eða hlusta á sög-
ur af heilsufarinu. Málið er að það
geta ekki nema tiltölulega fáir
verið á mánaðarlaunum sem
nema 50 til 100 þúsund krónum.
Þar af leiðir af fjöldinn verður að
láta sér nægja 10 - 15 þúsund. Ef
fólk getur ekki klárað sig á þess-
um launum verður það bcira að
flytja heim til foreldra sinna, eins
og talsmaður vinnuveitenda
benti á. Eða segja sig til sveitar
eins og samkomulag varð um.
Fjármálaráðherrann útskýrði
nefnilega í þinginu að þessi rikis-
stjóm væri fyrst og fremst fyrir
fyrirtækin þótt almenningur nyti
að sjálfsögðu molanna sem hrytu
af veisluborðinu. Fólk verður
bara að skilja að áður en það get-
ur gómað molana verður veislan
að hcifa átt sér stað. Það dugir
ekki að bregða fæti fyrir þjóncina
þegar þeir em að bera inn krás-
irnar eða hleypa upp veislunni í
miðju borðhaldi. Eða eins og for-
maður Versluncirráðs lslands
benti á í ræðu sinni á aðalfundi
félagsins 29. febrúar:
Fullkomin heilsugæsla, al-
mannatryggingar, fjölbreytt
mennta- og menningarstarf-
semi og lengri frístundir
byggjast á þeim afrakstri,
sem atvinnulífið skapar."
í því sambandi var fróðleg
grein eftir Jóhönnu Sigurðcir-
dóttur alþingismann í Dagblað-
inu 24. febrúar sl. þcir sem hún
leiddi að því getum að árið 1983
hefðu fyrirtæki og einstaklingar
svikið rúma fimm miiljarða und-
an skatti eða 33% af áætluðum
tekjum ríkissjóðs árið 1984.
Og þá vom söluskattssvik ekki
meðtalin. (Af augljósum ástæð-
um hefur hinn almenni launþegi
ekki svigrúm til að stela undan
skatti frekar en nakinn maður að
smygla úlfalda í gegn um toli).
Ef einhverjum þykir hctrt undir
að búa, má benda honum á að
fyrir þinginu liggur ríkisstjórnar-
fmmvcup um að fjárfestingar í at-
vinnurekstri komi til frádráttcir
skattskyldum tekjum manna.
Stundum finnst manni ríkis-
stjórnin vera eins og yfirsetu-
maður í prófi sem af einskærri
samúð með tossunum reynir að
hvísla til þe' rétta svcirinu:
stofniði fyrirtæki! Þar með
kæmust þið á blað og fengjuð frá-
dreginn frá skatti þann kostnað
sem fylgir því að lifa: síma, bíl,
grænmeti....
Fyrirtækið gæti heitið Mann-
sæmandi líf sf. Hlutverk starf-
seminnar fæiist í ncifngiftinni.
Þjóðnýtt fyrirtæki sem þjóðin og
ríkið rækju í Scimeiningu. Þcir
myndi ríkisstjómin ekki taka um-
beðið fjármagn Námsgagna-
stofnunar og skera það niður um
helming en henda útþvældum,
úreltum, margnota kennslubók-
um í nemendur gmnnskólastigs.
Eða búa þannig að skólabóka-
söfnum að ef svo heldur fram
sem horfir verða þau stórkost-
lega aflögufær um bókahillur.
Hvað þá taka hús á heilbrigðis-
kerfinu eða sauma að gamal-
mennum, öryrkjum og ungling-
um.
Fullkomin heilsugæsla, al-
mannatryggingar, fjölbreytt
mennta- og menningau'starfsemi,
fleiri frístundir, sex mánaða fæð-
ingarorlof - mannsæmandi líf
yrði skoðað sem sjálfsagður und-
anfari gróskumikillar fram-
leiðslu.
erum flutt að
LAUGAVEGI 27
i’iiRMAxun • srnírnt
Sími 26850 OLAXSSHOL * LiTAXIR
MÁLNINGAR tilboð
NU geta allir farið
að mála
Hér kemur tilboð
sem erfitt er að
hafna
Ath.: Sama verð er í versluninni
og málningarverksmiðjum.
OPIÐ:
mánud. — fimmtud. kl. 8—18.
Föstudaga kl. 8—19. Laugard kl. 9—12.
r
HRINGBRAUT 120.
Byggingavörur
Gólfteppadeild .
Simar: Timburdeild................. 28-604
.28-600 Malningarvörur og verktaeri. 28-605
.' 28-603 Flisar og nreinlaetistæki.... 28-430
7Ef þú kaupir málningu fyrir 1.500 kr.
meir færðu 5% afslátt.
2Ef þú kaupir málningu fyrir 2.200 kr.
eða meir færðu 10% afslátt.
O Ef þu kaupir málningu fyrir 3.600 kr.
eða meir færðu 15% afslátt.
£ Efþú kaupir málningu i heilum tunnum,
* þ.e. lOOIitra, færðu 20% afslátt og i
kaupbæti frian heimakstur hvar sem er
á Stór-fíeykjavikursvæðinu.
Auk þess ótrúlega hagstæðir
greiðsluskilmálar.
HVER
BÝÐUR
BETUR?
BYGGINGAVORUR
HRlNGBRAUT 120 (Aðkevrsla frá Sólvahaqö