Helgarpósturinn - 08.03.1984, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 08.03.1984, Blaðsíða 28
ÍELfiðleikar Arnarflugs hafa mjög vaxið að undanfömu. Flug fé- lagsins í Lýbíu og Nígeríu er m.a. hætt og verkHhi ekki komin í stað- inn. Trúnaðarmenn ríkisstjómar- innar, sem meta eiga hvort veitt skuli umbeðin ríkisábyrgð á lán til félagsins, munu vera mjög á báð- um áttum, enda ekki séð að félagið eigi veð fyrir upphæðinni... A mánudag verður væntan- lega tilkynnt hver verður eftirmað- ur Guðrúnar Jónsdóttur í emb- ætti forstöðumanns Borgarskipu- lags (sjá Yfirheyrslu). Nafn hins heppna verður Þorvaldur S. Þor- valdsson arkitekt... Y ■ msar hugmyndir em nú ræddar meðal stjómarflokkanna um hvernig fylla eigi í stóra gatið í fjárlögunum (sjá Innlenda yfirsýn) og munu menn ekki á eitt sáttir um hvaða leiðir beri að fara. Hafa sjálf- stæðismenn einkum staðnæmst við hækkun á söluskatti, eða þá skyldusparnað, en framsókncir- menn munu hafa meiri áhuga á að hækka tekjuskattinn og þá í 54% í hæsta skattþrepinu í stað 44% eins og hann er nú. Sú hugmynd mun einnig eiga nokkum hljómgmnn í Sjálfstæðisflokknum en einstakir þingmenn hafa lýst yfir mikilli and- stöðu sinni og þó einkum Gunnar G. Schram, sem v£ir ákafur tals- maður þess fyrir kosningarnar að tekjuskattarnir yrðu lækkaðir. Al- bert Guðmundsson fjármálaráð- herra knýr fast á um að því verði ekki frestað lengi að finna ríkis- sjóði nýja tekjustofna og er talið líklegt að málið komi fyrir Alþingi þegar í næstu viku, hvort sem stjórnarflokkamir verða búnir að koma sér saman um leiðir eða ekki s ^^Ftjórnarnefnd ríkisspítalanna tók núna í vikunni afstöðu til um- sókna um yfirlæknisstöðu krabba- meinsdeildar Landspítalans. Tveir krabbameinssérfræðingar sóttu um stöðuna, þeir Þórarínn Sveinsson og Snorri Ingimars- son. Hlaut Þórarinn yfignæfandi stuðning í stjórnamefndinni en læknaráð Landspítalans mun hcifa metið báða umsækjenduma ágæt- lega hæfa til embættisins... B Tiist er við því að ársþing Hcindknattleiksscimbcuids íslands, sem haldið verður áður en langt um líður, verði allstormasamt. Mikii óánægja mun ríkjandi meðal handknattleiksmanna með störf núverandi stjómar sambandsins og þá einkum framkvæmd móta sem verið hefur í miklum molum. Bæði hafa leikir farið fram með hálfgerðri leynd og eins mun fram- kvæmd keppni yngri flokkanna 28 HELGARPÓSTURINN hafa verið með miklum brotcdöm- um. Talið er líklegt að handknatt- leiksmenn reyni að finna sér nýjan formann í stað FriSriks Guð- mundssonar, en fáir munu fúsir til þess að taka starfið að sér... |f fi! xakvennalistakonur gefa út fréttabréf sem dreift er í allstóm upplagi. í nýlegu fréttabréfi var for- síðumynd af Alþingishúsinu og vakti það athygli að í stað skjaldar- merkisins sem þar trjónir var kom- ið nýtt merki og við nánari skoðun mátti sjá að þar var um merki lesbía að ræða! Þegar þetta upp- götvaðist - of seint - varð uppi fótur og fit í kvennaframboðinu og mun hafa komið á daginn að þær sem hönnuðu forsíðuna tóku tákn lesbía í misgripum fyrir kvenna- táknið. Og auðvitað hlakkar í karl- pungum um allan bæ ... || ^■^m páskana verur haldin hér umfcuigsmikil friðarvika, sem að stendur mikil breiðfyiking ýmissa félaga og Scimtaka. Meðal þess sem er á dagskrá friðarvikunnar er pall- borðsumræða um stöðu friðar- mála í heiminum, sem halda á í Norræna húsinu. Þeir sem að vik- unni standa hafa boðið til þessarar umræðu fulltrúum stórveldanna tveggja, Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna, og hefur boðinu verið komið á frarnfæri við sendiráð ríkj- anna í Reykjavík. Eftir því er beðið með eftirvæntingu hvort unnt verði að koma heimsfriðnum í heila höfn í Norræna húsinu um páskana. Til þess að stjóma um- ræðunni þarf auðvitað vanan sáttasemjara og óumdeildan. Ekki veit HP hver verður fyrir Vcilinu, en nafn Guðlaugs Þorvaldssonar, sáttcLsemjara ríkisins, hefur verið nefnt... ■I ótt nú sé sparnaði í ríkis- rekstrinum óspart haldið fram, finnst margt matargatið þar og ýms- ar fjárveitingar sigla þar í gegn án þess að haft sé hátt um þær. Þann- ig heyrist nú að sjávarútvegsráðu- neytið hafi ákveðið að styrkja út- gáfu blaðsins Fiskifréttir um litlar 100 þúsund krónur á mánuði og mun Halldór Ásgrímsson hafa lagt blessun sína yfir það, enda er sonur samflokksmanns hans, Tómasar Ámasonar, Eiríkur Tómasson lögfræðingur; stjóm- arformaður blaðsins. Jafnframt var svo ákveðið að blaðið skyldi unnið og prentað í Prentsmiðjunni Eddu sem er eins og flestir vita ein af greinunum á meiði þeirra fram- sóknarmanna... Y ■ msir aðilcir í kvikmyndagerð, einstaklingar og fyrirtæki, stórar auglýsingastofur og fleiri aðilar eru um þessar mundir að íhuga að koma sér upp sameiginiegri eftir- vinnslustöð fyrir myndefni sitt, hvort heldur er á filmu eða mynd- böndum. Yrði þetta fyrirtæki til mótvægis við „risann” Saga Film, þar sem fyrrnefndir aðilar hafa áð- ur haft viðskipti... Öldin okkar 1971-1975 ÖLDIN OKKAR 1971-1975. Gils Guðmundsson tók saman. Helstu at- burðirþessara ára eru raktir í hinu lif- andiformi nútíma fréttablaðs: Þorska- stríð, Vestmannaeyjagos, heimsmeist- araeinvígi í skák, þjóðbátíð, þólitískar sviþtingar og kvennafrí svo fátt eitt sé talið. Ekki skal gleyma þeim smáu og sþaugilegu atvikum sem kryddaþjóðlíf- ið á hverjum tíma. Allt erþetta sagan í fjölbreytileika sínum. ALDIRNAR eru nú í tólfbindum og gera skil sögu þjóðarinnar samfellt í 475 ár. Enginn íslenskur bókaflokkur hefur öðlast slíkar vinsœldir. ALDIRN- AR — LIFANDI SAGA LIÐINNA AT- BURÐA í MÁLI OG MYNDUM. Sígilt verk sem ekki má vanta í bókaskáþinn. Athugið hvort nokkurt fyrri bindanna vantar. Þau eru: ÖldJn sextánda I II 1501—1600 Öldin sautjánda 1601—1700 Öldin átjánda I II 1701—1800 Öldin sem leið I-II 1801—1900 Öldin okkar I-IV 1901—1970 AUK hf. Auglýsingastofa Kristinar 83 83 121 Reykjavik Sími 12923-19156

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.