Helgarpósturinn - 08.03.1984, Síða 21
Italskt rit um norrænar bókmenntir
Nýlega er komið út hjá ítalska
forlaginu Giardini Editori e
Stampatori í Pisa safnrit sem hef-
ur að geyma fyrirlestra um nor-
rænar bókmenntir milli heims-
styrjaldar og nefnist La letteratura
dei paesi scandinavi nel periodo
fra le due guerre. Voru fyrirlestr-
arnir fluttir á sjöttu ítölsku ráð-
stefnu um norrænar bókmenntir
sem haldin var í Pisa dagana 24.
til 26. janúar 1983. Norræni
menningcirsjóðurinn styrkti út-
gáfu ritsins með 30.000 dönskum
krónum auk þess sem mennta-
málaráðuneyti einstakra Norð-
urlanda lögðu fram fé til útgáf-
unnar. Ritið er 200 blaðsíður og
kostar 25.000 lírur eða kringum
150 danskar krónur.
Eftirtaldir höfundar eiga efni í
ritinu: Sigurður A. Magnússon,
Peter Madsen og Sven Möiler
Kristensen frá Kaupmannahöfn,
Ingemcir Algulin frá Stokkhólmi,
Bengt Landgren frá Uppsölum,
Helge Rönning frá Osló, Atle
Kittang frá Bergen, Merete Kjöller
Ritzu frá Flórens, Randi Moen frá
Bologna, Birgitta Ottoson Pinna
frá Flórens, Inge Lise Rasmussen
Pin frá Siena, Anna Maria Paroli
Clausen og Jörgen Stender Clau-
sen frá Pisa, og er sá síðastnefndi
ritstjóri verksins.
Meðal höfunda sem fjallað er
um í bókinni eru Halldór Lax-
ness, Þórbergur Þórðarson,
Gunnar Gunnarsson, Guðmund-
ur Kamban, Paul la Cour, Knut
Hamsun, Sigrid Undset, Elin
Wágner, H.C. Branner, Aksel
Sandemose, Nordahl Grieg, Lud-
vig Nordström, Otto Gelsted, Pár
Lagerkvist, Eyvind Johnson,
Harry Martinson, Artur Lund-
kvist, Ture Nerman, Erik Blom-
berg, Stellan Arvidson, Torgny
Segerstedt, Hjalmar Gullberg,
Johannes Edfelt, Amulf Över-
land, Herman Wildenwey, Martin
A. Hansen, Karen Blixen, Hans
Kirk og Hans Scherfig.
Björgvin Gylfi
í Nýlistasafninu
Björgvin Gylfi Gunnarsson (f.
1951) heldur sýningu í Nýlista-
scifninu v/Vatnsstíg (Living Art
Museum) dagauia 9.-18. mairs. Á
sýningunni eru keramikverk,
teikningar og ljósmyndir.
„Við skoðun sýningarinnar ber
að líta á öll verkin í samhengi,”
sagði listamaðurinn. ,Jlvert verk
á sér samsvörun í hinu daglega
lífi og samanstendur af tugum
eininga. Þessar einingar mynda
ramma endurtekningar og stöðl-
unar, líkt og menningarheimur-
inn einkennist ai ákveðinni end-
urtekningu athafna, leikja og
tákna. Svo sem hinar ýmsu ietur-
gerðir, getur hin mismunandi
niðurröðun samræmdra eininga
borið í sér og miðlað mismun-
andi mikilvægum upplýsingum.
Verkin em flutningshæf mynd-
ræn stafrófslíki, óbundin ákveð-
inni staðlaðri túlkun. Skoðandi á
að hvíla hugann, leita skilnings á
grundvelli eigin reynslu og túlk-
unar myndræns tálmmáls.
Sýning byggist á aðgreiningu
skapanda verksins, skoðanda
verksins og verksins sjálfs. Þrí-
hymingur gagnkvæmrar skoðun-
ar milli þessara aðila krefst sam-
eiginlegs skilnings og túlkunar á
táknum hversdagsins. Sé skiln-
ingurinn sameiginlegur fellur að-
greiningin um sjálfa sig og skap-
andi, verk og skoðandi em orðin
ein heild.”
NOACK
RAFGEYMAR
FYRIR ALLA BÍLA OG TÆKI
Saensku biialramleiðendumir VOLVO. SAAB og SCANIA
nola NOACK talgeyma vegna Vosta þeirra.
A rrVCTD Bílaleiga !/.♦, Ijló I Oll\ Carrental
B WWW* m Miuva CCMB Xi <m Mlll <■< 1» Hlll ■«
—jlT_ _ r \
Borgartún 24 (hom Nöatúns) Sími 11015, á kvöldin 22434.
Sækjum — Sendum — Aðeins að hringja — Nýir og sparneytnir bílar.
Tegund og árgerð daggj. Kmgj.
Lada 1500 station árgerð 1984. 500 5,00
Opel Kadett (framdrif) árgerö 1983. 600 6,00
Lada Sþort jeppar árgerð 1984. 800 8,00
Allt verð er án söluskatts os bensins.
Góöir gestir Arnarhóls!
Vid höfum tekiö í notkun nýjan
stórkostlegan
sérréttamatseöil
Sýnishorn:
Hreindyra-pate meö heitu giófu ponnubrauöi
Reyksoöinn regnbogasilungur
meö hvitlauksspmatsósu og kartóflugratini
Ali-ond með appelsinuhjúp
Kaffi og konfekt kókur
HELGARPÓSTURINN 21