Helgarpósturinn - 08.03.1984, Page 24
SJÓRÆNINGJALEIKIR
MYNDBANDALEIGANNA
,,Höfundaréttarbrot með þeim hœtti að
fjölfalda og dreifa myndefni án leyfis höfunda
og án nokkurs endurgjalds til þeirra, eru ekki
lengur óþekkt fyrirbœri á íslandi. í skýrslu
myndbandanefndar frá 3. desember 1981
segir til dœmis, að hér á landi eigi sér nú stað
stórfelld brot á höfundarétti, bœði með upp-
töku á myndbönd, leigu myndbanda ogsíðast
en ekki síst með dreifingu efnis afmyndbönd-
um um myndbandakerfi. ”
- Þessi orð eru tekin upp úr forsendum
frumvarps til laga um breytingu á höfunda-
lögum, sem tekið verður til meðferðarAlþing-
is á allra næstu vikum. Frumvarp þetta var
unnið af höfundaréttarnefnd, sem Ingvar
eftir Sigmund Erni Rúnarsson mynd Jim Smart
að var fyrst eftir að Samtök
rétthafa myndbanda á ís-
landi (SRM) voru stofnuð í
nóvember 1982, að farið var að
beita löggjafarvaldið einhverjum
þrýstingi um afgreiðslu á nýjum
höfundaréttarlögum sem stöðv-
að gaetu stanslausa lögleysu á
þessu sviði. Nú bólar loks á sam-
þykki þeirra laga.
Innan vébanda SRM á íslandi
eru nær allir umboðsmenn dreif-
ingar- og sýningarréttar á mynd-
efni hérlendis. Gunnar Guð-
mundsson er lögfræðingur sam-
takanna og jafnframt fram-
kvæmdastjóri þeirra og segir
hann um tilgang félagsins:
„Hcinn er sá að sameina alla
rétthafa myndefnis í samtök sem
gæta hagsmuna og verndar á því
myndefni sem þeir hafa umboð
til að dreifa hérlendis. í því skyni
hefur margt verið gert, þótt sam-
tökin séu enn ung að árum. Það
hefur meðal annars verið farið í
alla landshlutatil að kynnaréttar-
stöðu umboðsaðila myndefnis.
Við höfum fylgst reglulega með
því efni sem hérlendis er í umferð
og óspart krafist réttar okkar ef
við höfum orðið véirir við ólög-
Gíslason skipaði í ráðherratíð sinni og erþví
talsvert komið til ára sinna, eða samið strax á
fyrstu misserum myndbandavœðingaríslend-
inga fyrir um fjórum árum. Frá þeim tíma
hefur ólögleg dreifing á myndbandaefni auk-
ist gífurlega og leiga á leyfislausum upptökum
á kvikmyndum og sjónvarpsefni margfaldast
að svo miklum mun að fyrir löngu érkomið í
hrikalegt óefni. Það sést best á því að við
skipulagða rannsókn á umfangi ólöglegra
myndbanda í umferð hjá vídeóleigum áStór-
Reykjavíkursvœðinu, sem gerð var fyrir
þremur vikum, reyndust yfir níutíu prósent
allra leiganna hafa á boðstólum spólur án
réttinda til dreifingar.
dæmi að bíræfnustu mynd-
bandaleigumar hafi komið
sér upp ljósmyndum af útsendur-
um SRM, svo afgreiðslufólk
þeirra geti þekkt þá er þeir nálg-
ast leigurnar og þar með lokað á
þá. Ekki er enn vitað um alvarleg
átök sem komið hafa upp í þessum
,/assíum” útsendara SRM, en víst
er að þeir em illa þokkaðir á sum-
um leiganna, svo sem framar
greinir.
Umfang ólöglegra myndbanda
í umferð vídeóleiga skiptir enn
mörg hundmð titlum, líklega allt
að eitt þúsund, en fjöldi mynd-
bandatitla í umferð nú mun vera
nálega 5000. Myndbandaleigur á
Stór-Reykjavíkursvæðinu munu
nú vera 43 talsins, og í nýlegri
rassíu sem fcirin var í fjömtíu
()eirra kom í ljós að allar þessar
leigur, nema ein, höfðu á boð-
stólum einn eða fleiri titla sem
þær höfðu ekki dreifingarrétt á. í
þessari rassíu samtakanna, sem
gerð var fyrir þremur vikum, var
lagt lögbann á ólöglega dreifingu
340 titla sem aðilar innan SRM
hafa einir dreifingarrétt á. Ætti
þessi fjöldi að sýna vel hvemig
staðan er á myndbandamarkaðn-
um í dag.
Við þetta má bæta, að í fyrr-
greindri rassíu komu leiðangurs-
lega dreifingu á efni sem við höf-
uin umboð fyrir.”
- Hefurorðiðáranguraf þessu
starfi?
Já, það hefur sýnt sig að eftir
stofnun samtakanna hefur dreif-
ing á ólöglegum kópíum minnk-
að að mikium mun. Það var kom-
inn sægur af slíku efni á markað-
inn, en við þykjumst hafa hreins-
að rækilega til á því sviði. Nú er
svo komið að upptökur og út-
leiga á ólöglegu efni er orðin
næsta lítil miðað við það sem
áðurvar...”
- En óvandaðar myndbanda-
leigur þrífast enn. Hverjar helst-
ar?
,Af okkar háifu em langsam-
iega flest mál í gangi gegn Vídeó-
heiminum í Tryggvagötu. Það er
óhætt að fullyrða að sú leiga sé
bíræfnust á þessu sviði. Það hvíla
f jölmörg lögbönn á þessari leigu,
sem hún hefur síðan ítrekað
brotið. Og reyndar hefur hún ekki
haft að neinu þa»r óteljandi
áminningar sem við höfum gefið
henni. Sem stendur biðum við
dóms í máli Vídeóheimsins, en
það er áreiðanlegt að eigendur
þessarar leigu eiga yfir höfði sér
háar fjársektir og miklar skaða-
bótakröfur frá nær flestum rétt-
höfum myndefnis hérá landi.”
- Erufleirimálafþessumtogc
í gangi?
Já, það eru nokkrar leigur í
viðbót inni í þessu dæmi, en mál
þeim viðkomandi eru óðum að
leysast. Það er að myndast
ákveðin samskiptaregla milli
rétthafa myndbanda og vídeó-
leigasem nær allir eru famir að
virða. Þar skera eigendur Vídeó-
heimsins sig algjörlega úr. Þeir
eru einfaldlega ekki viðræðuhæf-
ir.”
- Hverju munu nýju höfunda-
réttarlögin breyta fyrir rétthafa
myndbanda?
„Eins og höfundaréttcirlögun-
um er nú háttað, sæta brot á
þeim ekki opinberri kæru, heldur
verður sá, sem misgert er við, að
höfða sitt mál sjálfur. Þetta gerir
lögleysu á sviði myndbandaleigu
mun auðveldari en ella, því hvert
mál á hendur lögbrjóti gengur
svo hægt í gegnum dómskerfið.
Nýju höfundalögin Veita hinsveg-
ar rétthöfum aukna vemd, þar
sem brot á þeim varða eftirleiðis
opinberri ákæru. Þar með verður
hægt að stöðva ólöglega dreif-
ingu myndefnis á stundinni, að
viðlagðri hegningu. Þetta verður
vonandi þeSs valdandi að menn
hugsi sig um tvisvar áður en þeir
stofna til ólöglegra viðskipta af
þessu tagi.”
Eins og kemur fram hér á
undan hefur útleiga á ólög
legum myndböndum farið
mjög minnkandi eftir að Samtök
rétthafa myndbanda komu til
sögunnar með sínar .fireinsanir”
á markaðnum. Enn er þó talsvert
í að lögleysan hverfi af þessum
vettvangi. Samtök rétthafa
myndbanda hafa allt frá stofnun
gert skipulagðar „rassíur” í
myndbandaheiminum, bæði á
Stór-Reykjavíkursvæðinu og úti
umlandsbyggðina.Eftirtekjan frá
þeim ferðum hefur alla jafna ver-
ið mikil.
Það eru þrír menn frá samtök-
unum sem gerðir eru út af örk-
inni í þessar ferðir, þar með tal-
inn einn lögfræðingur hinum til
halds og trausts. Heimildir HP
segja þessa menn hafa fengið
mjög misjafnar móttökur á
vídeóleigum, allt frá mjög vin-
samlegumtil talsverðra átaka þar
sem annað hvort hefur slegið í
brýnu milli þeirra og viðkomandi
eigenda eða þeir hafa hreinlega
varnað þeim inngöngu í leiguna,
stundum með átökum. Þess eru
S
,,Eg rek mína sjoppu vel“
- segir eigandi Vídeóheimsins í Tryggvagötu,
en Samtök rétthafa myndbanda hafa ítrek-
að reynt að binda enda á ,,bírœfna“ starf-
semi hans.
Vídeóheimurinn, myndbanda-
leigan í Tryggvagötu 19, hefur
allt frá stofnun átt í hvað mestum
útistöðum við Samtök rétthafa
myndbanda á íslandi, af öllum
myndbandaleigum í landinu.
Þessi ..bírœfna sjórœningja-
leiga”, eins og hún hefur oftar en
ekki verið kölluð, á að baki fjölda
málssókna auk nokkurra lög-
banna fyrir meintan stuld á
myndböndum sem aðrar leigur
eiga einar rétt á til útleigu. Af
hálfu Samtaka rétthafa mynd-
banda, SRM ,er nú róið að því
öllum árum að fá starfsemi þess-
arar leigu stöðvaða og þess
reyndar eins beðið að frumvarp
ríkisstjórnarinnar til laga um
breytingu á höfundalögum nái
fram að ganga, en þar er skýrt
tekið fram að afglöp af því tagi
sem SRM ákœrir Vídeóheiminn
fyrir, sœti allt að tveggja ára
fangelsi.
Svo sem kemur fram í greininni
hér að ofan hafa SRM neytt
margvíslegra leiða til að fá stöðv-
aða starfsemina hjá Vídeóheim-
inum og skulu þœr ekki tíundað-
ar hér, en hinsvegar farið í heim-
sókn á þessa umtöluðu ,,sjórœn-
ingjaleigu” í Tryggvagötu.
Það er annar eigandi leigunn-
ar sem tekur á móti okkur, Sergio
Pizarro, ungur Chilebúi sem
stofnaði Vídeóheiminn ásamt
konu sinni íslenskri, Elínborgu
Kjartansdóttur, er þau fluttust
hingað fyrir tveimur árum.
Sergio er fœddur og uppalinn í
höfuðborg Chile, Santiago, en
fyrir um sex árum fluttist hann til
Englands og hóf störf hjá chile-
anska sendiráðinu í London.
Hann segist hafa komist í kynni
við ýmsa umboðsaðila í vídeó-
bransanum í Lundúnum, jafnt
smærri sem stœrri, og hafi notið
góðs af þeim kynnum eftir að
hann fluttist hingað til lands og
stofnsetti Vídeóheiminn. Mágur
Sergio, bróðir Elínborgar, rekur
myndbandaleiguna Vídeósýn í
Breiðholti, og segir Sergio þá
hafa samvinnu um útvegun efnis
frá Lundúnaborg sem þeir síðan
leigi til skiptis á leigum sínum.
Þess má geta að Vídeósýn á einn-
egin yfir höfði sér lögbann frá
SRM fyrir ólögmœta leigu á
myndböndum ,,og hefur reyndar
í fáu sýnt höfundaréttinum meiri
virðingu en Vídeóheimurinn ”,
eins og einn heimildamaður HP
innan SRM orðarþað.
„Viðskiptin hafa gengið langt
framar vonum allt frá því við
hjónin hófum starfsemina héma
í Tryggvagötunni," segir Sergio
Pizarro. „Við höfum ávallt reynt
að hafa á boðstólum nýjustu titl-
ana, ellegar þá vinsælustu á
markaðnum hverju sinni. Við
reynum að hafa það til, sem fólk
biður um. Þetta hefur mönnum
líkað.”
- Frá hvaða aðilum í London
fœrðu þitt efni?
„Eg vil ekki gefa upp hverjir
það eru, eða fara að nafngreina
þá. Það er bíssnessleyndarmál.”
- Er eitthvert efni frá þér með
íslenskum texta eins og þekkist
orðið hjá flestum mynd-
bandaleigum?
„Nei, ekkert. Ég er ekki ennþá
farinn að bugleiða textanir, enda
sýnist mér viðskiptavinir mín-
ir ekki kvarta þó þeir fái allar
myndirnar á frummálinu einu. Ég
set bara efnið upp í hillur eins og
það kemur upp úr kössunum frá
mínum mönnum í Englandi.”
- Mér sýnist heldur ekki nein-
ar íslenskar skýringar vera utan á
myndbandahulstrunum, svo sem
eins og kynning á innihaldinu
eða hvort um er að rœða vafa-
samt efni fyrir börn að horfa á?
„Nei, eins og ég segi, þá læt ég
fólk bara fá böndin eins og þau
koma frá Englandi. Við sem störf-
um héma í afgreiðslunni, reynum
þó yfirleitt að segja fólki frá því
hverslags efni það er að leigja
sér. Við bemm okkur til dæmis
eftir því að vara það við efni sem
má ætla að sé bömum skaðlegt.
Að vísu höfum við náttúrlega
ekki alltaf tíma til slíkra útskýr-
inga yfir búðarborðið, enda jafn-
an við marga að fást í afgreiðsl-
unni í einu. Það er svo mikil um-
ferð héma í gegnum hjá okkur
alla jafna.”
- Má fólk á öllum aldri fá leigt
efni hjá þér?
„Nei, við reynum yfirleitt að
miða aldurstakmarkið við fimm-
tán ár.”
- Ertu með,,bláar"ábakvið?
Já, rétt eins og aðrir í þessum
bransa. Þetta er það vinsælt efni
að maður þarf að hafa eitthvað af
því á boðstólum.”
- Hverjir fá slíkar myndir
leigðar?
„Bara kunningjar, eða sérlegir
fastakúnnar.”
- Hvað með hryllings- eða
ódœðismyndir sem bannaðar
hafa verið í nágrannalöndum
okkar?
„Ég hef bara ekki kynnt mér
þessi bönn í nágrannalöndunum,
svo ég get ekkert sagt um það
atriði.”
- Samtök rétthafa mynd-
24 HELGARPÓSTURINN