Helgarpósturinn - 10.05.1984, Blaðsíða 24
HIN „VINSAMLEGU"
LEIKSTJÓRASKIPTI
[ ENEMYMINE
HOLLYWOOD
í STJÖRNUSTRÍÐI
Á ÍSLANDI
• ,,Ef þú kemst að því hver tók ákvörðunina um að reka mig,
láttu mig þá endilegavita,“ segir Richard Loncraine í viðtali við
Helgarpóstinn. Hin snögglega ákvörðun 20th Century Fox í
Hollywood um að fá nýjan leikstjóra að Enemy Mine og hætta
við áframhaldandi tökur myndarinnar á íslandi, segir okkur
meira um kvikmyndagerð í Hollywood heldur en hvað Richard
Loncraine var að fara með Enemy Mine.
eftir Hallgrím Thorsteinsson myndir: Guðmundur Sigfússon o.fl.
20 th Century Fox í Beverly Hills í Kaliforníu sagði í
fréttatilkynningu sinni um uppsögn Richards Loncraine
sem leikstjóra stórmyndarinnar Enemy Mine á sunriu-
daginn var, að samstarfsslit hans og fyrirtœkisins hefðu
verið,,vinsamleg. “
, ,Þeir vilja halda því fram að svo hafi verið, já, “ segir
Loncraine sjálfur í samtali við blaðamann Helgarpósts-
ins. Loncraine dvelst nú í London, fór þangað strax
morguninn eftir að ákvörðun kvikmyndajöfranna í
Hollywood hafði verið tilkynnt starfsfólki myndarinnarí
Félagsheimilinu Hvoli á sunnudagskvöld.
Hann er varkár í símann, vill ekki segja mikið um
samskipti sín og Fox. ,,Þeir hafa aðrar hugmyndir um
myndina en ég, en þeir gerðu mér raunverulega ekki
grein fyrirþví hverjarþœr voru. Þaðsem éghefverið að
reyna að gera á íslandi hefur greinilega ekki fallið
einhverjum ígeð. “
hætta tökum á íslandi - sem
Hinn
listræni
ágreiningur
Kvikmyndafyrirtækið segir að-
eins að ástæðan fyrir því að Lon-
craine hafið verið sparkað sé „list-
rænn ágreiningur" hans og fyrir-
tækisins. Þetta er gamalkunnur
frasi úr heimi kvikmyndanna, en
raunveruleg ástæða liggur ekki fyr-
ir. Talsmenn Fox hér á landi hafa
þagað yfir henni og látið fréttatil-
kynningar sínar tala.
J kvikmyndagerð er alltaf verið
að þræða þennan milliveg milli
f jármála og listrænna sjónarmiða,"
segir Loncraine. ,£g skal ekkert
segja um það á hvem hátt fjármál
spiluðu inn í þessa ákvörðun Fox,
ég hreint út sagt veit það ekki. Ég
lagði mikið upp úr því að kvik-
mynda á íslandi vegna landslctgs-
ins og birtunnar þar. Mér fannst að
þetta tvennt myndi gefa myndinni
þetta framandi andrúmsloft sem
ég sóttist eftir. Ákvörðunin um að
24 HELGARPÓSTURINN
reyndar kom eftir að mér var til-
kynnt að ég væri ekki lengur með
myndina - getur alveg eins bent til
þess að að þessu sinni hafi raun-
verulega verið um listrænan
ágreining að ræða. Þeir hafa ekki
séð þetta sömu augum og ég, býst
ég við, ekki talið umhverfið á ís-
landi gefa myndinni það listræna
gildi sem ég tel að það hefði gert.
Ef svo er, þá þurfið þið íslend-
ingar ekki að hafa áhyggjur af því
að þeir heimsæki ykkur aftur í
bráð,“ segir hinn vonsvikni kvik-
myndaleikstjóri. Kvikmyndin
Enemy Mine var stærsta tækifærið
á ferli hans sem Ieikstjóra, en áður
hcifði hann leikstýrt þremur ódýr-
ari kvikmyndum, auk þess að hafa
unnið fyrir BBC og við auglýsinga-
gerð. „Þetta var gífurlegt áfall fyrir
mig, en ég ætla að komast yfir
þetta, maður verður að vera seigur
í þessum bransa, ef maður ætlar að
lifa í honum. Ég ætla til Indlands í
nokkrar vikur núna, hjóla þcir um
og slappa af. Síðan tek ég til við að
leikstýra einhverri annarri mynd,
en ég veit ekki hvaða mynd það
verður."
Hollywood hefur, hikandi að
vísu, verið að auka sókn sína í evr-
ópska leikstjóra hin síðari ár. 20th
Century Fox fékk augastað á Lon-
craine vegna verðlaunciauglýs-
ingamyndar sem hann gerði í fyrra,
en ekki vegna fyrri afreka við gerð
leikinna kvikmynd, furðulegt nokk.
Auglýsingin var fýrir British Air-
ways og heitir „Manhattan, Man-
hattan." Hún Vcir sýnd á kvik-
myndaauglýsingahátíðinni hér á
landi fyrir skömmu.
Kvikmynda átti
um allt land
Á sama tíma og Fox reyndi að
hafa uppi á Loncraine, Vcir hann að
banka uppá hjá fyrirtækinu með
það fyrir augum að fá að gera
Enemy Mine. Hann gekk á milli
manna í Hollywood en fékk dræm-
ar viðtökur, þar til vinstri hönd
fyrirtækisins áttaði sig loks á því
að Loncraine var maðurinn sem
hægri hönd þess hafði verið að
leita að. Þessi skollaleikur tók
ótrúlega langan tíma, nokkrar vik-
ur, og sýnir vel hvílík völundcirhús
kvikmyndafyrirtæki af þessari
stærðargráðu eru. 20th Century
Fox er stærsta kvikmyndafyrirtæki
í einkaeign í heiminum.
Nú er um hálft ár síðan ísland
var nefnt sem kvikmyndatökustað-
ur fyrir Enemy Mine. Eftir að Lon-
craine var ráðinn leikstjóri fór
hann yfir handrit Edwcurds Khm-
ara, sem gert er eftir vísindaskáld-
sögu Barry Longyear, og breytti
því og staðfærði fyrir tökur hér á
landi. Framleiðendur myndarinn-
ar, þar á meðal Stanley OToole
aðalframkvæmdastjóri, höfðu lagt
hcut að Loncraine að taka útisenur
myndarinnar frekar á Kanaríeyj-
um, þzu sem kvikmyndafólkið
hefði fengið gott veður allan töku-
tímcmn. En Loncraine fékk sínu
framgengt.
Upphaflegar áætlanir um tökur
á íslandi gerðu ráð fyrir að myndin
yrði tekin í Vestmannaeyjum, á
Skógasandi, við Kvíslimar, á
Reykjanesi, Hellisheiði, að Fjalla-
baki, í Námaskarði, við Herðubreið
og Dettifoss. Ætlun Loncraines
með því að taka myndina svo víða
um landið var að skapa sterka og
fjölbreytta umgjörð um myndina
sem héldi athygli áhorfenda.
Loncraine telur að ljósið á ís-
landi, sérstaklega hið langa rökkur,
hefði gefið myndinni þá sérstæðu
birtu, sem fengi áhorfcindann til að
trúa því að myndin gerðist á plán-
etu í framandi sólkerfi. Ron Carr,
sem hefur yfimmsjón með fram-
kvæmdum á tökustað í Enemy
Mine og áralanga reynslu af stór-
myndagerð, sagði í samtali við
Helgarpóstinn, að hið langa rökkur
hér á landi gæfi kvikmyndinni stór-
kostlegt og töfrandi yfirbragð.
„Þessi birta er kynngimögnuð, ef
okkur tekst að færa hana yfir á
hvíta tjaldið," segir hann.
Ron Carr segir að „daylies" (tök-
ur hvers dags) hafi jafnan strax
verið sendar vestur um hcif til
Holiywood til skoðunar. Þetta
styður þá tilgátu sem varpað hefur
verið fram, að Hollywoodjöfrunum
Louis Gossett jr. Maðurinn úr
óvinasólkerfinu.
hafi ekki líkað sú umgjörð sem
Loncraine var að setja myndina í
hér á íslandi, að þeim hafi hrein-
lega ekki litist á blikuna.
StarWars
formúlan
Tökur hófust í Vestmannaeyjum
fyrir rúmum þremur vikum. Þá
þegar var búið að skera talsvert
niður af fýrirhuguðum tökustöð-
um á íslandi. Ekkert benti þó þá til
þess ágreinings sem átti eftir að
koma upp á yfirborðið síðar. í
Vestmannaeyjum var kvikmyndað
upphaf myndarinnar þegar geim-
hermennimir tveir brotlenda
geimförum sínum á plánetunni.
Annar þeirra er frá Jörðinni, hinn
frá plánetunni Dracon. Enemy
Mine er aðeins „Stjömustríðs-
mynd“ að því leyti, að Jörðin og
Dracon eiga í stríði. Að öðm leyti
sleppir samlíkingunni milli Star
Wars-myndanna og Enemy Mine.
Loncraine vildi gera mannlega
framtíðarmynd. ,JÉg ætlaði að gera
mynd, sem yrði full af bjartsýni.
Myndin átti að fjalla um vináttu og
ást, um það hvemig mennimir
tveir sigrast á hatrinu. Mig langaði
Dennis Quaid leikur Jarðarbúann.