Helgarpósturinn - 17.10.1985, Side 3
„Þetta fólk er með gamlar kratahug-
myndir og það er einfaldlega í vitlausum
flokki." — Um „fornaldarkratana".
„Ég er sannfærður um, að BJ mun logn-
ast út af."
„Ég held, að þessi hópur hafi fyrst og
fremst farið að hittast f kringum ein-
hverjar kjaftasögur." — Um sig og Val-
gerði Bjarnadóttur.
ekki. Þegar mér varð ljóst í sumar,
að ég mátti vart leysa vind fyrir
þessu Félagi jafnaðarmanna, þá
lýsti ég því yfir, að ég skyldi halda
kjafti, þetta hlyti að ganga yfir. Svo
varð ekki. Og eftir að fjárhagsáætl-
un okkar Guðmundar frá því í ágúst
var endurskoðuð kom í ljós, að það
var ekki pláss fyrir mig. Með endur-
skipulagningu fjármálanna í lok
september var búið að skipuleggja
mig út á götu.“
— Var þad vísvitandi?
„Auðvitað, það var ekki gert ráð
fyrir starfsmanni landsnefndar. Og
rökrétt framhald hjá mér var að
segja af mér. Kannski var þetta
skynsamleg aðgerð. Ef þessar deilur
eiga að halda áfram og á þann hátt,
sem þær hafa verið reknar, og með
þeim viðhorfum og aðferðum sem
hefur verið beitt, þá er þetta banda-
lag dautt.“
— Dautt, enda þótt þid fariö?
„Já, nema að pólitíkin verði rekin
á öðrum nótum en við kysum. Nýtt
fólk rekur varla sömu pólitík og við,
þá er þetta allavega eitthvað grun-
samlegt."
BJ mun lognast út af
— BJ er tilraun til þess ad breyta í
grundvallaratridum stjórnskipan ís-
lenzka lýdveldisins. Ef BJ deyr, er
þetta þá ekki sídasta tilraunin?
„Guðmundur Einarsson og Stefán
Benediktsson eiga að styðja við bakið á
Jóni Baldvin." Um krata og örlög for-
manns þeirra.
„Þetta er kannski sú fyrsta, en
ekki sú síðasta."
— Loforö frá þér?
„Já.“
— Þannig ad það mun heyrast frá
þér aftur á pólitískum vettvangi?
„Já, örugglega."
— Framboð í nœstu kosningum?
„Það held ég ekki.“
— Stefnið þið Valgerður Bjarna-
dóttir að því, að BJ lognist út af?
„Nei, við stefnum ekki að því. Eg
er hins vegar á því, að það muni
lognast út af.“
— Myndirðu sjá eftir því?
„Já, ég myndi sjá eftir því."
— Og einhvers konar þálttaka í
starfinu kemur ekki til greina?
„Nei, það er alveg ljóst, að á með-
an helmingurinn af þingflokknum
er í beinni andstöðu við mig og hinn
tekur ekki afstöðu, þá er ég bara
að eyðileggja með því að koma ná-
lægt þessu."
— Og gildir sama um Valgerði?
„Mér finnst það.“
— Hvað áttu við með því, þegar
þú segir, að Félag jafnaðarmanna
sé að uppruna til eins konar „aðdá-
endaklúbbur" ykkar Valgerðar?
„Eg held, að þessi hópur hafi fyrst
og fremst farið að hittast í kringum
einhverjar kjaftasögur. Um þetta hef
ég dæmi.“
— Að þetta ráði kreppunni t BJ?
„Ekkert vafamál."
— En hvað með pólitíkina, ein-
hver er hún hjá félaginu, andófs-
hópnum?
„Ja, Félag jafnaðarmanna á sér
tvo talsmenn á Alþingi íslendinga,
þær Kolbrúnu Jónsdóttur og
Kristínu Kvaran. Og þær hafa aldrei
komið með neina pólitík, aldrei.
Þingseta þeirra er slys frá upphafi.
Niðurstaðan er sú, að þetta félag á
sér enga pólitík."
— Attu við, að þessir tveir þing-
menn BJ séu pólitískt stefnulausir?
„Já, ég er bara að segja, að þær
skilja ekki um hvað pólitík snýst.
Þær verða að hafa pólitík sína á
hreinu, þó ekki væri nema vegna
virðingar við kjósendur sína. Ég
geri að sjálfsögðu ráð fyrir því, að
þær muni taka Jón Baldvin og hina
kratana í karphúsið."
— Áttu ekki fremur von á, að þœr
gangi til liðs við þá?
„Það væri langskynsamlegast og
ég hef bent þessu félagi á það, að
það ætti helzt heima í Alþýðu-
flokknum."
Góður BJ-þingmaður á að
vera leiðinlegur
— Nú virðist þingflokkurinn klof-
inn, en hvar standa þeir Guðmund-
ur Einarsson og Stefán Benedikts-
son?
„Það er ekki ljóst, en ég gaf þeim
kost á að tala út við þessar stúlkur."
— Nú gagnrýndi Valgerður þá
Guðmund og Stefán á landsnefnd-
arfundinum frœga um daginn. Tek-
ur þú undir þetta?
„Já. Hins vegar vil ég ekki berja
þá undir beltisstað. En þeir eru á
einhvers konar ,,flippi“.“
— Hvað áttu við með því?
„Þetta er ofboðslega ,,næs“
klúbbur þarna við Austurvöllinn.
Það er gaman að vera þarna."
— Áttu við, að þeir hafi gleymt sér
I þœgilegheitum?
„Ég held bara, að forsendur þess,
að þeir geti sinnt þessum málefnum
bandalagsins og verið „þjóðfélags-
skæruliðar", séu að þeir skapi óróa í
kringum sig. Þeir geta ekki setið í
kaffistofunni með hinum köllunum,
hlegið með þeim og verið svo vond-
ir við þá. Þeir eiga að vera leiðinleg-
ir og borða nestið sitt uppi í Kringlu.
Góður þingmaður fyrir BJ væri
maður, sem kæmi inn í skarkalann
og þá gengju allir hinir út. Þetta var
það sem við lofuðum fólki."
— Má ég minna á, að stofnandi BJ
var óþekkur þingmaður en um leið
manna vinsœlastur á kaffistofunni.
„Ég hygg, að það hafi reynt tölu-
vert á hann. En það má vel vera, að
það sem við viljum gera sé ekki
hægt. Það verður þó að koma fram,
að af fjórum þingmönnum flokksins
eru tveir þeirra, Guðmundur og
Stefán, fjandi góðir."
Guðmundur og Stefán
styðji Jón Baldvin — ekki
krata
— En eruð þið Valgerður ekki að
stíga hœttulegt skref fyrir BJ og
þessa tvo góðu þingmenn með því
að deila svona hart á opinberum
vettvangi?
„Nei, það má aldrei verða mark-
mið bandalagsins að halda
Guðmundi og Stefáni inni á þingi."
— En þeir hafa gert gagn?
„Má vera, en ég held að það sé
alveg klárt, að það gildi um bróður-
partinn af málum BJ, að þau hefði
allt eins mátt flytja í nafni Alþýðu-
flokksins."
— Þannig að Guðmundur og Jón
Baldvin hafi t.d. verið fulltrúar
krata í sjónvarpsþœtti um stjórn-
málaástandið á þriðjudag?
„Já. Ég varð ekki var við neinn
sérstakan mun.“
— Guðmundur og Stefán eru þá
ekki þessir „kerfisbanar“ sem þú
vildir sjá í þingmönnum BJ?
„Nei.“
— Þannig ertu búinn að segja, að
þingflokkurinn sé ódugandi fyrir
BJ?
„Ég held a.m.k. að þessi þing-
flokkur eigi að velta því alvarlega
fyrir sér hvort hann eigi ekki að
ganga til samstarfs við þá á þingi,
sem eru að tala á sömu eða svipuð-
um nótum.“
— Alþýðuflokkinn?
„Nei, ekki Alþýðuflokkinn, því
það er t.d. ofboðsleg gjá á milli Guð-
mundar Einarssonar og Alþýðu-
flokksins. Hins vegar held ég að þeir
ættu að íhuga alvarlega samstarf
við Jón Baldvin Hannibalsson. Það
er umtalsverður munur á málflutn-
ingi hans persónulega og svo krata
og í raun gæti hann hiklaust verið
þingmaður í þingflokki BJ, miklu
frekar en í Alþýðuflokknum. Guð-
mundur Einarsson og Jón Baldvin
eiga miklu meira sameiginlegt í
pólitík en Jón Baldvin og t.d. Karl
Steinar og slíkir. í þeirra sporum
myndi ég ganga til samstarfs við Jón
Baldvin. Eg held nefnilega, að ef
Jón Baldvin ætlar að lifa af í Alþýðu-
flokknum þá þurfi hann á svona
mönnum að halda eiris og Guð-
mundi og Stefáni.“
— Og þú mœlir með þvt, að þing-
menn BJ hlaupi undir bagga með
Jóni Baldvin?
„Já, ég er á því, að þeir ættu að
reyna að hatda honum á floti. Ég er
enginn krati, en hafi jafnaðarstefna
átt sér von, þá er það nú í þessum
Jóni Baldvin. Þú verður að athuga,
að samþingmenn hans í krata-
flokknum bíða eftir því að skræla
hann.“
Er þetta eitthvað
fyndið?
Edda Björgvinsdóttir
,Já, það má segja að þetta séu rosalega fyndnir þættir."
— Nú eru þættirnir kynntir sem fjölskylduharm-
leikur. Bendir það ekki til þess að þarna sé sorgarleikur
á ferðinni, kannski í ætt við gríska dramað?
,,Jú, nei, þetta hefur allt sína skýringu. Sjáðu til, og nú tala
ég alveg prívat, svona okkar á milli, ef fólki er sagt í dagskrár-
kynningu að einhver þáttur sé skemmtiþáttur eða gamanþátt-
ur, þá fara allir í stellingar fyrirfram og búast við einhverju stór-
kostlega fyndnu, samanber áramótaskaupið um árið. Því ríður
á að villa um fyrir fólki og kannski koma því gleðilega á óvart
þannig að það detti úr stólunum af kæti."
— Um hvað fjallar þetta verk?
„Um þrenn hjón í raðhúsi. Fjölskyldumynstrið er öfugt á við
það sem við eigum að venjast, þ.e.a.s. kynjahlutverkunum er
snúið við, stelpurnar eru útivinnandi í ábyrgðarstöðum og
strákarnir heima að dunda við börnin og skera salat milli þess
sem þeir setja í þvottavélina og þvo upp. En nóta bene, þetta
er engin skyndibreyting, í þáttunum gefum við okkur það að
svona hafi ástandið alltaf verið hjá þessum blessuðum hjón-
um."
— Altsó, djúpt stykki og útpælt?
„Nei, nei, alls ekki, engin þjóðfélagsádeila, heldur grunnir
brandarar."
— Er þetta kannski enn meira kvennakjaftæði?
„Þættirnir eru eiginlega karlakjaftæði, svo það hálfa væri
nóg!"
— Karlar í hefðbundnum kvennahlutverkum og
öfugt — er þetta kannski óskhyggja ykkar Helgu —
svona vilduð þið hafa ástandið í þjóðfélaginu?
„Miðað við öskubuskukomplexinn mun þetta vera hinn
duldi draumur hvers karlmanns. Svo vil ég taka fram og undir-
strika að við göngum út frá hinu sterkara kyni."
— Ertu að reyna að segja lesendum HP að karlmenn-
irnir f þáttum ykkar séu draumaprinsarnir ykkar, eða
öllu heldur: Er þinn draumamaður þarna einhvers
staðar á skjánum?
„Nei, en draumur mannsins míns!"
— Er kannski þinn æðsti draumur að vinna úti?
„Nei, ég vil ekki sjá það."
— Verða kannski þættirnir til þess að þeir fáu karl-
menn sem eru orðnir mjúkir og komnir með aðra löpp-
ina inn á heimiiin, sjái nú sjálfa sig f spéspegli og bakki
strax út í atvinnulífið á ný?
„Já, já, þá getum við stelpurnar byrjað upp á nýtt og hafið
nýjan kvennaáratug. Heldurðu að það verði ekki bara gaman?"
— Þetta eru sex þættir, er það eitthvað táknrænt?
„Já, það er það."
— Eitthvað svona að lokum?
„Nei, nei. Sestu bara fyrir framan sjónvarpið á laugardags-
kvöld. Fáðu þér einn róandi og góða konu þér við hlið."
Edda Björgvinsdóttir er landsþekktur leikari og spaugari. Hún hefur
löngum unnið með kollega sfnum Helgu Thorberg <Á tali og fleira). Þær
stöllur (fyrirgefið, þeir félagar) hafa nú skrifað sex þætti fyrir sjónvarp
sem nefnast Fastir liðir „eins og venjulega". Fyrsti þáttur verður sýndur
á laugardaginn.
HELGARPÓSTURINN 3