Helgarpósturinn - 17.10.1985, Síða 4
YFIRHEYRSLA
nafn: Þorsteinn Pálsson fæddur: 29. okt. 1947 heimilishagir: Eiginkona, Ingibjörg Rafnar, tvö börn
heimili: Brúnaland 3 staða: Fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins
læun Þingfararkaup (kringum 60 þús). Hækkar í ráðherralaun (tæp 100 þús.) bifreið Nýlegur Saab
✓
„Eg er enginn kraftaverkamaður“
eftir Guðmund Árna Stefónsson myndir Sigurður Þorri
Uppstokkun á ráðherralidi Sjálfstæðisflokksins hefur ekki farið framhjá nokkr-
um manni. í gær settist Þorsteinn Pálsson á stól fjármálaráðherra. Formaður fiokks-
ins loks kominn á „stailinn“ fræga. En það gekk ekki lítið á og meö innkomu
Þorsteins í stjórnina voru aliir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hristir milli ráðu-
neyta. En hverju breytir það fyrir Þorstein, rikisstjórnina og Sjálfstæðisflokkinn að
Þorsteinn er Ioks kominn inn? Hefur hann nokkra möguleika á því að láta til sín taka
og breyta ímynd stjórnarinnar, sem óneitanlega hefur veikst mjög I huga almenn-
ings hina síðustu mánuði?
Um þetta og fleira er fjallað í Yfirheyrslu Helgarpóstsins, þar sem Þorsteinn Páls-
son situr fyrir svörum.
— Það er hin nýuppstokkaða ríkis-
stjórn sem er ofarlega i hugum fólks. Því
hefur verið haldid fram að það hafi verið
öriög — utanaðkomandi aðstæður —
sem hafi orsakað breytingar innan
stjórnarinnar fremur en að þú sem for-
maður og leiðtogi flokksins hafir ýtt
þeim úr vör.
„Menn starfa náttúrlega í samræmi við
þær aðstæður sem þeir búa við hverju sinni.
Það kom fram af minni hálfu eftir lands-
fundinn 1983, að ég hefði ekki í hyggju við
svo búið að taka sæti í ríkisstjórninni. Nú, en
niðurstaðan varð þessi, þingflokkurinn ósk-
aði eftir því að ég tæki sæti í ríkisstjórninni
og gerði tillögur um breytingar á starfsskipt-
ingu milli ráðherra, sem af því leiddi. Þetta er
bara hluti af því verkefni, sem á mínum herð-
um hvilir sem formanns flokksins."
— Þú hafðir sem sagt ekki frumkvæði
að því sjálfur að þessar brey tingar yröu?
„Ég get aðeins sagt, að það var ekkert sér-
stakt áhugamál, en ég verð auðvitað að
gegna mínum skyldum sem flokksformaður
og þetta er ein af þeim."
— Geir Hallgrímsson hefur lýst því
yfir í viötölum, að í ágúst hafi hann boð-
ist til þess að standa upp úr stól sínum
„ef engin önnur lausn fyndist“. Hvað var
það í ágústmánuði sem kallaöi fram slíkt
tilboð af hálfu Geirs?
„Hann ræddi það í ágústmánuði við mig,
að hann kynni að hafa áhuga á því að fara út
úr ríkisstjórninni um áramótin og niður-
staðan varð sú að hann ákvað að gera þetta."
— Var það að þínu frumkvæði eða
hans, sem Geir bauð þetta nú síðla sum-
ars?
„Það var að hans frumkvæði."
— Frá því að ákvörðun var tekin um
ráðherrauppstokkun í síðustu viku, þá
hefur Albert Guðmundsson notað síð-
ustu dagana á stóli fjármálaráðherra til
að útdeila gjöfum á alla kanta. Fer þetta
í taugarnar á þér?
„Ég hef nú bara lesið um þetta í blöðunum
og ugglaust er þetta ýkt með einhverjum
hætti í blaðaumfjöliun. Hins vegar hef ég
ekki fylgst með þessum ákvörðunum í ein-
stökum atriðum. Og hef því lítið um þær að
segja."
— Nú fór það ekki framhjá nokkrum
manni að ráðherrarnir voru allt annað
en ánægðir með þennan þvæling á þeim
milli ráöuneyta. Það skein bersýnilega í
gegnum þeirra tal og fas. Var erfitt að
koma þessu á koppinn — voru þeir þung-
ir?
„Nei, það var ekki ýkja erfitt. Auðvitað
kemur það mönnum mikið á óvart að svo
gagnger breyting skyldi gerð á starfsskipt-
ingu ráðherranna, en þetta tók nú ekki lang-
an tíma. Þingflokksfundur var haldinn á
mánudagseftirmiðdegi, þar sem mér var fal-
iö þetta umboð. Síðdegis á þriðjudegi lágu
þessar tillögur fyrir og voru samþykktar
samhljóða. Af því má nú glöggt merkja að
þetta voru ekki miklar þrautir."
— En leiddi þetta ekki aðeins af því, að
ráðherrarnir vissu að þeir ættu engra
annarra kosta völ, eftir að þingflokkur-
inn hafði gefið þér alræðisvald?
„Ég hygg að ráðherrarnir séu flestir sáttir.
Auðvitað er það þannig með stjórnmála-
menn, að þeir verða að vera tilbúnir til þess
á hverjum tíma að takast á við margvísleg
verkefni. Þetta er á vissan hátt nýjung í ís-
lenskum stjórnmálum að breyta svo gagn-
gert til á miðju starfstímabiii stjórnarinnar.
Reynslan á eftir að skera úr um það, hvaða
árangri þetta skilar. Ég tel að þetta hafi verið
rétt við þessar aðstæður. Allverulegar breyt-
ingar voru óhjákvæmilegar, bara vegna
mannaskiptanna í ríkisstjórninni. Það hlaut
að ieiða til þess, að það væri eðliiegt að
skipa störfum með nýjum hætti."
— Var það algjör tilviljun hvar hver
ráðherrann lenti; drógu þeir miða úr
krukku eins og á tombólu? Eða var ein-
hver pólitík ó bakvið hverja einstaka til-
færslu?
„Auðvitað réði engin tilviljun ferðinni. Ég
held að ráðuneytin séu skipuð mjög hæfum
mönnum eftir þessa breytingu, og að þekk-
ing og frumkvæði manna njóti sín vel, svo
sem raunar var fyrir. En það er eðli þessara
starfa, að menn verða að vera viðbúnir því
að takast á við mjög ólík verkefni. Þetta eru
ekki sérfræðistörf. Þetta er pólitík."
— Nú hafa menn t.d. velt vöngum yfir
þeirri pólitík sem kynni að liggja að baki
því að setja Albert niður í iðnaðarráðu-
neytinu. Af hverju sendirðu Albert
þangað en ekki eitthvað annað?
„Það lá á margan hátt beint við að hann
færi þangað. Þetta er mikilvægt ráðuneyti og
mikið um að vera.“
— Þótti þér fýsilegt að setja Reykja-
víkurþingmann í idnaðarráðuneytið í
stað Austfjarðaþingmannsins Sverris,
til að stöðva ýmis draumaverkefni Iands-
byggðarþingmanna I þessum mála-
flokki? A Albert t.d. að setjast á áform
um kísilmálmvinnslu á Reyðarfirði?
„Nei, engin slík sjónarmið lágu að baki.
Eftir þessa breytingu mun stjórnin stuöla að
alhliða uppbyggingu atvinnulífsins á landinu
öllu. Af því að þessi tiitekna verksmiðja er
nefnd, þá hefur verið leitað eftir samstarfs-
aðilum erlendis frá. Fáist þeir til þessa verks,
þá verður ráðist í það.“
— Mál hafa verið sett þannig upp í fjöl-
miðlum að þú sért hinn nýi kraftaverka-
maður í stjórninni sem eigi að breyta
hálfdauðri stjórn í lifandi og virkt
stjórnvald. Er mikil pressa á þínar herð-
ar vegna þessara væntinga?
„Ég er ekki kraftaverkamaður. Og ég fer
ekki inn í þessa stjórn með því hugarfari. Ég
auðvitað neita því ekki, að mér finnst hvíia
veruleg ábyrgð á mínum herðum. Mér er
ljóst að það er mjög vandasamt og viðamikið
verkefni, sem ég hef tekist á hendur, en ég
vona að ég geti stuðlað að framförum á
þessu sviði. En ég hef ekki hugsað það í nein-
um kraftaverkastíl."
— Hvers vegna lá það jafnbeint við og
raun ber vitni, að þú færir í fjármála-
ráðherrastólinn, en ekki eitthvert annað
ráðherrasæti? Nú er það langt í frá al-
gengt að flokksformenn taki sér sæti í
fjármálaráðuneytinu og það ráðuneyti
er talið óvinsælt. Er það Albert sem hef-
ur lyft þessu embætti og gert það svo
mikilvægt að formaður Sjálfstæðis-
flokksins sækir nú í það?
„Ætli það stafi ekki fyrst og fremst af því,
að þar brennur eldurinn heitast um þessar
mundir. Og það dæmist á flokksformanninn
að standa þar.“
— En nú hefur fjármálaráðherra-
embættið ekki veriö hið vinsælasta í
gegnum tíðina og menn kannski ekki
sótt í það af þeim sökum. Ætlar þú ef til
vill að afla þér vinsælda með því að út-
deila gjöfum tvist og bast eins og Albert?
„Ég held að það sem skiptir máli í þessu
sambandi, sé að fjármálum ríkisins sé stjórn-
að á þann veg, að þau stuðli að framförum í
efnahagsbúskapnum. Takist mönnum það,
eiga þeir erindi. Ég vona að ég geti lagt eitt-
hvað af mörkum í þeim efnum."
— Því hefur verið haldið fram, að þú
hafir ekki þorað í gömlu refina á ráð-
herrastólum Sjálfstæðisflokksins, fyrr
en nú að örlögin tóku í taumana og fram-
kvæmdu það sem þú vildir gert hafa.
Hefur þér veist það erfitt að taka um-
deildar ákvarðanir, sem ef til vill ganga
gegn vilja hinna eldri og reyndari í
flokknum?
„Samstarf við þingmenn og aðra ráðherra
flokksins hefur verið með ágætum. Það eru
að eiga sér stað kynslóðaskipti í forystu
flokksins. Þau hljóta alitaf að gerast á
ákveðnum tíma. Það er útilokað að þau ger-
ist á einni nóttu. Ég er tiltölulega ánægður
með það, hvernig þetta samstarf hefur geng-
ið fyrir sig og hef trú á því að það muni halda
áfram."
— Ertu varkár stjórnmálamaður?
„Já, ég hugsa að ég sé varkár í eðli mínu.
Ég neita því ekki."
— Þeirri kenningu er mjög haldið á
lofti að Sjálfstæðisflokkurinn leiti nú
aðeins eftir réttu tækifæri og tíma-
punkti til að slíta stjórnarsamstarfinu
og efna til nýrra kosninga. Er það í áróð-
ursplaninu að þú komir með róttækar
niðurskurðartillögur sem framsóknar-
menn geti með engu móti sæst á og þá
slíti sjálfstæðismenn og heimti kosning-
ar?
„Við erum ekki í neinum ieikbrögðum eða
sandkassaleik. Við erum í þessu vegna þess
að við teljum, að við þurfum að ná árangri.
Og við höfum samþykktir okkar landsfundar
fyrir störfum okkar og munum leggja það til
grundvallar okkar stjórnarsamstarfi við
Framsóknarflokkinn. En það eru engar leik-
fléttur eftir lögmáli sandkassans í þessu
spili."
— Yfir í annað. Nú bauð Jón Baldvin
þér upp í dans í sjónvarpinu á þriðju-
dagskvöld. Ertu farinn að svipast um
eftir nýjum samstarfsaðila í nýju ríkis-
stjórnarsamstarfi? Finnst þér ástæöa til
að hvíla Framsókn eftir 14 ára nær
óslitna stjórnarsetu Framsóknarflokks-
ins?
„Meðan við eigum aðild að ríkisstjórn, þá
stöndum við heilir að henni. Við göngum
hins vegar óbundnir til næstu kosninga."
— Hvenær verða næstu kosningar?
„Með réttu lagi eiga þær að verða 1987 —
í apríl."
— Áttu von á því aö sú tímasetning
standi — verða þær ekki fyrr?
„Það er ekkert á þessu augnabliki, sem
bendir til þess að kjörtímabilið verði stytt.
Um það geta menn hins vegar ekkert sagt
með fullri vissu fyrirfram. Menn vita ekki
hvað á daga þeirra drífur."