Helgarpósturinn - 17.10.1985, Blaðsíða 20
ISLENDINGAR LITA ÞAÐ ALVARLEGUM AUGUM,
„Svo þetta verður grein um það sem allir gera, en eng-
inn veit um,“ sagði karlmaður í samtali við Helgarpóst-
inn. Áður höfðu svo margir haldið því fram að íslend-
ingar væru iðnir við framhjáhald, að við þurftum ekki
frekari vitnanna við. Menn ætla að náunginn sé lauslátur,
án þess að geta fært sönnur á það.
Þetta kemur reyndar heim og saman við niðurstöður
könnunar sem nýlega var gerð á Islandi; yfirgnæfandi
meirihluti spurðra tekur harða afstöðu gegn lauslæti í
kynferðismálum, á meðan þeir sömu standa í þeirri trú
að flestir aðrir séu lauslátir! Megin niðurstaða þessarar
sömu könnunar er raunar sú að íslendingar séu mjög
siðavönd þjóð, sem vel að merkja þýðir ekki að við get-
um ekki misstigið okkur. Og um það fjallar þessi grein.
En nú er best að rugla ekki saman
félagslegri könnun og Helgarpósts-
samtölum við fjölda fólks. Enda
gerður greinarmunur á því hér á
eftir, og sérstaklega talað um
„könnun" þegar sú fyrstnefnda á í
hlut. Við HP-menn spyrjum hins
vegar: Hvers vegna verður fólki hált
á svellinu?
Og komumst einfaldlega að því að
ástæðurnar geta verið hundrað eða
fleiri. „Þetta er svo einstaklings-
bundið," voru undantekningarlítið
svör þeirra sem veltu vöngum yfir
þessu, kvenna jafnt sem karla.
Dæmi um svör eru þessi:
„Mig langar í tilbreytingu." —
„Maðurinn minn sýnir mér ekki
áhuga." — „Ég héit einu sinni fram-
hjá vegna þess að ég reiddist mann-
inum mínum, og fékk svo heiftar-
legt samviskubit að ég er viss um að
ég geri það ekki aftur." — „Ævin-
týraþrá." — „Karlmenn gera þetta af
því að þeir vilja sanna sig." — „Ég
gæti trúað að framhjáhlaup mundi
hressa upp á egó konunnar."
Þar höfum við það. En að draga
niðurstöður af trúnaðarsamtölum
Helgarpósts við bæði kynin væri í
rauninni hættulegt. Þar af leiðandi
biðjum við menn að taka eftirfar-
andi með öllum hugsanlegum fyrir-
vara, eða sleppa næstu línum ella:
Að fólki sé hættast við framhjá-
haldi á aldrinum 30—45 ára. Að
möguleikinn á framhjáhaldi sé ofar
í huga karla en kvenna. Að karlar
geri það af nýjungagirni og ævin-
týraþrá, á meðan konan gerir það
fremur út af vonbrigðum með eitt
eða annað í hjúskapnum. Að tilfinn-
ingar þurfi að vera með í leiknum
hjá konunni, á meðan þær skipta
engu hjá karlinum; eru fremur fjöt-
ur um fót. Að ótrúlega margir líti
svo á að framhjáhald geti undir viss-
um kringumstæðum verið til bóta í
hjónabandi. Að hugtakið framhjá-
hald megi toga og teygja enda-
laust...
Léttúðugar „sólar-
landaþjóðir“
Áður en lengra er haldið skulum
við snúa okkur að fyrrnefndri könn-
un. Þessa dagana er í félagsvísinda-
deild Háskóla Islands unnið úr rann-
sókn á lífsviðhorfum Islendinga,
sem byggir á Gallup-könnun þeirri
er Hagvangur gerði á síðasta ári, og
gerir mönnum kleift að bera okkur
saman við aðrar þjóðir.
Þannig eru „sólarlandaþjóðir"
einna léttúðugastar í viðhorfum til
kynferðismála, þó ekki sé það ein-
hlítt að blóðhitinn lækki eftir því
sem norðar dregur. Bretar og Svíar
líta hliðarspor í ástalífi til dæmis
ekki jafn alvarlegum augum og við,
en Danir og íslendingar eiga sam-
leið í þeim efnum.
74% íslendinga teija að boðorðið
um að maður skuli ekki drýgja hór
sé í fullu gildi hvað þá sjálfa snertir.
Þar erum við einna efst á blaði með-
al annarra þjóða. Hins vegar telja
aðeins 46% íslendinga að það sama
gildi um fólk almennt í landinu. Sum
sé, þeir ætla að aðrir séu fjöllyndari
en þeir sjálfir.
67% Dana eru sammála 74% ís-
lendinga, en aðeins 7% þeirra telja
að boðorðið um að ekki skuli haldið
framhjá sé í fullu gildi hjá öðrum.
Sem endurspeglar orðsporið sem
fer af nágrönnum okkar; að vera
með lauslátari þjóðum í heimi. Og
hverfum nú í bili frá niðurstöðum
Gallup-könnunarinnar.
Ævintýraþrá, kynlífsþörf
og nýjungagirni
I þessari grein erum við beinlínis
að fiska eftir sjónarmiðum sem lúta
að framhjáhaldi, hvort sem viðmæl-
endur HP hafa nú stigið hliðarsporið
til fulls eða látið sér nægja að velta
þessum möguleikum mannlífsins
fyrir sér. Þessi breyskleiki er því í
sviðsljósinu, allt annað bíður betri
tíma.
36 ára karlmaður segir til dæmis
við Helgarpóstinn: „Menn halda
framhjá vegna þess að þeir eru að
mæla sig; kanna hvort þeir hafa ein-
hvern sjens ennþá, eins og þeir
höfðu í gamla daga áður en þeir
giftu sig. Sumir eru með þeim
ósköpum gerðir, að þeir þurfa alltaf
að standa í þessu."
Kynbróðir hans, tveimur árum
yngri, segir: „Framhjáhald svalar
ævintýraþrá, kynlífsþörf og
nýjungagirni. Stór partur af leiknum
er spennan; þetta má ekki og þetta
gæti komist upp. Þetta er ævintýri
með allri þeirri áhættu sem hugsan-
lega kann að fylgja."
Enn annar segir: „Ég stunda þetta
ekki. En þegar réttar kringumstæð-
ur skapast; möguleikinn á framhjá-
haldi er allt í einu fyrir hendi, þá
hlýðir maður þörfinni og siðferðis-
öflin, skynsemi og tryggð gagnvart
konunni verða undir í baráttunni.
— Huaö þarí,,hin" konan aö hafa
við sig?
„Ekkert sérstakt. Hún er bara
öðruvísi. Hluti af þessu er auðvitað
að eiginkonan er ekki eins spenn-
andi og áður."
Það var nefnilega lóðið. Einmitt
þetta „honum finnst ég greinilega
ekki eins spennandi og áður" rekur
konur út í framhjáhald, ef marka má
viðmælendur HP.
Ein þeirra segir t.a.m.: „Þegar
karlinn hættir að segja að ég sé sexý
eða sæt verður maður eðliiega fúll.
Hann veitir mér ekki athygli lengur.
Þetta held ég að sé algengt í hjóna-
böndum. Fólk hefur svo mikið að
gera, að það mætir afgangi að rækta
ástina í hjónabandinu. Það ein-
angrast hvort frá öðru. Áður en var-
ir er það farið að skemmta sér sitt í
hvoru lagi, og þá er nú leiðin í fram-
hjáhaldið greið. Allt í einu finnur
konan að hún vekur athygli karl-
manna og þeir spila á strengi sem
hún hafði gleymt. Egóið tekst á loft,
og ekkert er auðveldara en að
ganga lengra."
Við viljum gott kynlíf
í fyrrnefndri Gallup-könnun voru
Islendingar spurðir að því hvort rétt-
lætanlegt væri að halda framhjá.
Þeir taka almenna afstöðu gegn því,
öfugt við þar sem sumir hefðu átt
von á. 92% segja að það sé ekki rétt-
lætanlegt. Þar af taka 72% enn dýpra
í árinni, og segja að það sé aldrei
réttlætanlegt. En hvernig í ósköpun-
um verður þá skýrður sá orðrómur
sem farið hefur af lauslæti landans?
Jú, á móti koma aðrar niðurstöður
í sömu könnun. fslendingar ieggja
20 HELGARPÓSTURINN