Helgarpósturinn - 06.02.1986, Side 3
FYRST OG FREMST
VIÐ höfum frétt af því að suður
á Keflavíkurflugvelli hafi kjötmál
Alberls Gudmundssortar og Geirs
Hallgrímssonar ekki beinlínis ýtt
undir vinsamleg samskipti Islend-
inga og Bandaríkjamanna. Hvort
sem þetta tiltekna mál er að baki
eða ekki, þá mun anda köldu milli
bandarískra yfirmanna Public
Works (sem sér um almennar
framkvæmdir, viðgerðir, viðhald
og fleira) og íslenskra starfsmanna
stofnunarinnar. Á síðasta ári tók
við yfirstjórn þar Commander J.F.
Morrow og er HP tjáð að hann sé
í e.k. stríði við íslendingana, leitist
við að koma löndum sínum í störf
Islendinga, vilji leggja niður máln-
ingarverkstæði P.W. og hefur fund-
ið ýmislegt að störfum viðgerðar-
deildar meðal annars. Rétt fyrir
mánaðamótin síðustu sendi
Morrow síðan stjórum hinna ýmsu
deilda minnisbréf, þar sem hann
segist hafa tekið eftir því að starfs-
menn virði ekki reglur um matar-
tíma. Reglurnar kveða á um
hálfrar klukkustundar matartíma
mánudaga til fimmtudaga, en
engan matartíma á föstudögum
þegar íslendingar hætta kl. 13.
Segir hann það hins vegar allt of
algengt að starfsmenn taki sér
klukkustundar matarhlé mánu-
daga til fimmtudaga og hálftíma
matarhlé á föstudögum. Segir
hann það ábyrgð yfirmanna að sjá
til þess að ,,við fáum fyrir fullar
launagreiðslur fullan vinnudag".
EINS og fram hefur komið í fjöl-
miðlum síðustu daga hefur fram-
kvæmdastjórn Listahátíðar þegar
kynnt hátíðina í smáatriðum, er
því með sitt á hreinu mun fyrr en
áður hefur tíðkast. Hátíðin hefst
31. maí nk., sama dag og Reykvík-
ingar ganga til borgarstjórnarkosn-
inga. Arið 1978 bar upphaf Lista-
hátíðar einmitt upp á um svipað
leyti og kosningarnar og telur
Hrafn Gunnlaugsson, formaður
framkvæmdanefndar í ár, það síð-
ur en svo hafa spillt fyrir kynn-
ingu hátíðarinnar í fjölmiðlum;
kvað alla hafa verið búna að fá sig
pakksadda af pólitísku þrefi og
tekið listinni fagnandi.
En það verða fleiri en hinn
almenni listunnandi fagn-
andi og bráðkátir þennan dag.
Þannig vill nefnilega til að það
verður enginn annar en Davíö
Oddsson borgarstjóri sem setur
Listahátíð, og því má telja fullvíst
að borgarstjórinn fái ókeypis kosn-
ingaauglýsingu í útvarpi og sjón-
varpi á sjálfan kjördag, en kjör-
fundi lýkur ekki fyrr en kl. 11 um
kvöldið. Þeir skyldu þó ekki hafa
komið sér saman um þetta félag-
arnir Hrafn og Davíd? Þetta er að
minnsta kosti skrambi skemmtileg
tiiviljun.
Þótt framkvæmdanefndin hafi
birt dagskrá hátíðarinnar nú þegar
má þó alltaf gera ráð fyrir að eitt-
hvert stórstirnið fái hálsbólgu eða
togni í ökkla og dagskráin breytist
eitthvað af slíkum ófyrirsjáanleg-
um orsökum. Jafnvel er ekki loku
fyrir það skotið að einhverjir bæt-
ist við. Á fundi sem framkvæmda-
stjóri Listahátíðar hélt með blaða-
mönnum í vikunni sagðist Hrafn
Gunnlaugsson jafnvel vera bjart-
sýnn á að kanadíska ljóðskáldið
og söngvarinn Leonard Cohen
gæti látið sjá sig í vor. Hann sagð-
ist hafa gert margítrekaðar tilraun-
ir til að fá Cohen hingað til lands
á liðnar listahátíðir en hann hafi
verið svo rammgirtur umboðs-
mönnum að sér hafi aldrei tekist
að ná sambandi við hann. Þar
hefði þó orðið óvænt og ánægju-
leg breyting á þegar Hrafn brá sér
eitt sinn í gufubað í Montreal.
Maðurinn sem sat honum næst í
gufunni fór að grennslast fyrir um
hvaðan hann væri og spurði síðan
hvort hann hefði vitað eitthvað
um Kanada áður en hann kom til
landsins. Hrafn sagðist einungis
hafa þekkt til Leonards Cohens.
,,En gaman," svaraði maðurinn.
„Ég var einmitt að ljúka við að
gera um hann heimildarmynd og
hann er ágætur vinur minn.“
Að afloknu gufubaðinu fóru þeir
síðan og slógu á þráðinn til
Cohens og þar með var hann
kominn í samband við Listahátíð.
Cohen hefur sýnt mikinn áhuga á
Islandsför en óvíst er enn hvort
Listahátíðin í vor passar inn í
tímaáætlun hans. En ef ekki núna,
þá seinna. Sérstaklega þótti hon-
um vænt um að heyra að forseti
Islands unni honum mjög.
I LOK síðustu aldar skrifaði
franski rithöfundurinn Emile Zola
frægt stórpólitískt bréf vegna
Dreyfusmálsins með fyrirsögninni
„J’accuse", Ég ákæri. Nú, árið
1986, fetar Sigurdur læknir
Árnason í fótspor Zola og skrifar
bréf með sömu fyrirsögn, sem
birtist í Þjóðviljanum á miðviku-
dag. Þar skammar læknirinn
blaðamenn og ritstjóra Þjóðviljans
af nokkurri heift fyrir skif þeirra
um kaffibaunamálið svokallaða.
Heiftin kann að skýrast af því, að
Sigurður er samvinnumaður, en
fróðir menn telja þó nærtækast þá
skýringu, að Sigurður Árnason
(Böduarssonar málfarsráðunautar)
er óvart tengdasonur Erlends
Einarssonar forstjóra SIS.
BÚVÖRUDEILD Sambands
íslenskra samvinnufélaga hefur
verið nokkuð í sviðsljósinu hjá
okkur og landbúnaðarkerfi Fram-
sóknarflokksins í heild. Við höfum
þannig haldið því fram að
greiðslur ríkissjóðs í formi „vaxta-
og geymslugjalds” hafi það í för
með sér að SlS-veldið hefur meiri
áhuga á því að geyma kjötið sem
lengst, fremur en að beita sér fyrir
söluátaki, t.d. til Bandaríkjanna.
Þessu mótmælir vitaskuld fram-
kvæmdastjóri búvörudeildar. En
hvað segir Pálmi Jónsson á Akri,
bóndi, þingmaður og vanur maður
sem fyrrverandi landbúnaðarráð-
herra? Niðri á þingi heyrðist til
hans hvar hann lýsti því yfir að
þetta fyrirkomulag væri „óviðun-
andi hneyksli”, en við Helgar-
póstinn sagði hann:
„Það er alveg nauðsynlegt að
finna nýtt fyrirkomulag á þessum
greiðslum vaxta- og geymslu-
gjaldsins. Það þarf að koma því
þannig fyrir að það hafi að
minnsta kosti ekki ietjandi áhrif á
sölu, heidur hvetjandi. Það er nátt-
úruiega augljóst að ef öil
sambandsfyrirtækin sameinast um
að seija einvörðungu í gegnum
búvörudeild, þá verður sú deild
nærri því einráð um kjötsölu í
landinu og þar af leiðandi um þá
möguleika sem eru á sölu út úr
landi, á erlenda markaði. Manni
gæti dottið í hug að stofnun félags
sláturleyfishafa innan Sam-
bandsins væri svar við þeim frels-
istilburðum sem birtast meðal
annars í stofnun Landssambands
sauðfjárbænda og tilraunum
þeirra til sölu á þessari vöru.“
HELGARPÚSTURINN
Á leiðinda stund
Þátturinn ef þátt má kalla,
þynnist og verður tómari.
Ekki vil ég um það fjalla,
enda varla dómari,
það er verið að spjalla og spjalla
og spjalla um skallann á Ómari.
Niðri.
SMARTSKOT
UÓSMYND JIM SMART
Freyðir hún
Jóhanna Þráinsdóttir, þýðandi
Hotel-sápunnar
„Hún freyðir mjög vel og gefur frá sér góðgjarnar sápukúlur."
— Hvað meinarðu?
„Ég á við að þetta sé óskaplega notalegur þáttur."
— Eitthvað í líkingu við Dallas?
„Áður en ég svara þessari spurningu verð ég fyrst að viður-
kenna að ég er bara búin að sjá fyrsta þáttinn af þessari nýju
seríu. Af honum að dæma virðist mér Hotel vera svipaður Dall-
as nema að því leyti að í þeim fyrrnefnda eru allir góðir. Glysið
er hinsvegar svipað."
— Ertu að reyna að segja okkur að Hotel hafi enga
joðerra að geyma?
„Já. í Hotel er hjálpsemin allsráðandi. Þetta eru mjög mann-
legir þættir að því leyti. Og persónur þeirra eru mjög skiljanlegt
fólk, sýnist mér vera. Það heldur framhjá af sömu ástæðum og
við hin, en ekki af því að það sé að reyna að fá olíusamninga
undirritaða."
— Hvenær var byrjað að framleiða Hotel-þættina
vestra?
„Veistu, að við þýðendurnir vitum oftast allra minnst um þá
þætti sem við erum að fara að fást við. Við lesum gjarnan um
það í blöðunum hverskonar efni þetta er og hvaða fólk sé til
dæmis frægast sem leikur í þáttunum. En þú spyrð um aldur:
Mér skilst að það sé þúið að sýna Hotel í liðlega tvö ár vestra."
— Við vinsældir?
,Vá, geysilegar vinsældir."
— Hvað skapar svona sápuóperum vinsældir að þfnu
mati?
„Ætli það séu ekki draumórarnir. Þarna sér fólk líf sem það
getur sjálfsagt aldrei lifað, en gaman er hinsvegar að láta sig
dreyma um í ró og næði uppi í sófa. í tilviki Hotel-þáttanna er
um dýrasta og flottasta hótel íheimi að ræða, þangað sem eng-
ir venjulegir menn leggja leið sína, hvað aurinn varðar."
— Veistu hvaö nóttin kostar á þessum stað?
„Mér sýndist við þýðingu fyrsta þáttarins það vera einhvers
staðar í kringum 6000 krónur, en þá þer að hafa í huga að þar
fer um þriggja ára gamall þáttur."
— Sýnist þér sæmilega vandað tíl þessara þátta?
,Já, ég get ekki séð annað. Annars hef ég nú ekki stúderað
mikið svona sápuóperur. Sá til dæmis bara einn Dallas-þátt-
anna, þann fyrsta að mig minnir. En það er augsýnilega mikið
lagt í gerð þessa efnis. Þættirnir eru vel leiknir og mér skilst að
það sé lagt mjög mikið kapp á að fá góða gestaleikara í hvern
þátt. Aðalleikararnir eru heldur ekki af óþekktari gerðinni,
James Brolin og Betty Davis."
— Þetta er í fyrsta skipti sem þú þýðir sápuóperu og
fyrir þér liggja næstu 22 þættir af þessu. Finnst þér það
vera yfirþyrmandi?
„Það góða við starf þýðandans er að hann er alltaf að fást
við ný verkefni. Hvað Hotel viðvíkur er ég að kljást við þá teg-
und sjónvarpsefnis sem ég hef ekki kynnst áður. Mér sýnist
sem betur fer að þessir þættir séu ekki algjör lágkúra eins og
oft ku vera með sams konar efni. Samtölin snúast ekki þara um
æ lovv jú og vill jú marrí mí, heldur fá þarna að fljóta með mjög
vandlega skrifaðar senur. Þessvegna hlakka ég til næstu 22
þátta."
Ný sápuópera hóf göngu sína (sjónvarpinu í gærkvöldi, miðvikudags-
kvöld. Hún leysir Dallas af hólmi og heitir Hotel. Okkur hér á HP lék for-
vitni á að vita hverskonar efni hér yrði á ferðinni og slógum því á þráðinn
til Jóhönnu Þráinsdóttur, margreynds þýðanda á sjónvarpinu, en hún
tekst einmitt á við^pxta Hotels.
HELGARPÓSTURINN 3