Helgarpósturinn - 06.02.1986, Page 8
brunamálastjóra til Danmerkur í
september síðastliðnum. Þá sat
hann námskeið um Haion slökkvi-
efni og auglýsti síðan einkaumboð
fyrir Halon 1301 á íslandi þegar
heim kom. Utanlandsferðir borg-
aðar af I. Pálmasyni hf., sem er eitt
af stærstu fyrirtækjunum í bruna-
vörnum á landinu, og Hagkaupum,
þykja heldur ekki samræmast fylli-
lega hlutlausum vinnubrögðum
opinbers starfsmanns. I. Pálmason
tok þátt í kostnaði við ferð Þóris til
ýmissa Evrópuianda í þeim tilgangi
að skoða brunavarnatæki og var
forráðamaður fyrirtækisins með í
förinni. Ferðalag brunamálastjóra á
vegum Hagkaupa stóð í sambandi
við brunavarnir í stórhýsi fyrir-
tækisins í nýja miðbænum. Stjórn-
armenn Brunamálastofnunar munu
hins vegar ekki hafa reglulegar
fregnir af ferðalögum brunamála-
stjóra, né ku hann skila skýrslu eftir
slíkar ferðir.
Stjórn og róðherra
ókunnugt um umfang
kennslustarfa Þóris
Þeir, sem ná þurfa tali af Þóri
Hilmarssyni á vinnutíma, hafa það
gjarnan á orði að ekki sé ljóst hvar
best sé að leita hans. Brunamála-
stjóra sé allt eins að finna á kontór
Skanis h/f, ef hann er þá ekki að
kenna í Tœkniskóla íslands uppi á
Artúnshöfða, en það gerir hann alla
daga vikunnar — í sínum vinnu-
tíma. Vitneskja um umfang þessara
kennslustarfa var þó aðeins að ber-
ast til stjórnarmanna og ráðherra
síðastliðinn mánudag. Þann dag var
ráðherra jafnframt skýrt frá því að
brunamálastjóri væri einnig með
fyrirtæki á sviði eldvarna og mun
Stefán Valgeirsson, framsóknarþingmaður og föðurbróðir brunamálastjóra, var feng-
inn til þess að taka fulltrúa slökkviliðsmanna ,/i beinið".
— Við útvegum allt viöurkennt efni í f ulibúin Halon-slökkvikerfi
íhús og skip.
— Sérþjálfaðir og iðnlærðir menn annast uppsetningu, eftirlit
og viðhald á kerfunum.
• Við sjáum um tafarlausa endurfyllingu á tæmdum halonflöskum
í eigin áfyllingarstöð eða með áfylltum flöskum af lager.
UMBÖÐ
Á ÍSLANDI fyrir
DANSK FIRE
EATER APS
NORRÆN VIÐSKIPTI
Laugavegí 59
101 ReykjaviK Sími21800
Þetta er auglýsing um Halon efnið, sem brunamálastjóri fékk umboð fyrir (ferð sem
hið opinbera greiddi.
hann hafa orðið mjög undrandi við
þær fréttir. Aðrir heimildarmenn
Helgarpóstsins hafa aftur á móti þá
sögu að segja, að Alexander Stef-
ánssyni hafi verið fullkunnugt um
tengsl Þóris Hilmarssonar við Skan-
is h/f. Nú mun ráðherra hafa verið
gerð nákvæm grein fyrir stöðunni
og telja heimildarmenn að draga
muni til tíðinda í málum Þóris Hilm-
arssonar brunamálastjóra á næst-
unni.
Samkvæmt lögum um brunamál
skipar félagsmálaráðherra þriggja
manna stjórn, sem hafa á eftirlit
með rekstri og starfsemi Bruna-
málastofnunarinnar. Núverandi
stjórnarformaður er fngi R. Helga-
son, forstjóri Brunabótafélags Is-
lands, en auk hans eru í stjórninni
þeir Einar Ingi Halldórsson, bæjar-
stjóri í Hafnarfirði, og Gísli Kr.
Lórenzson, varaslökkviliðsstjóri á
Akureyri. Hvorki stjórnarmennirnir
né Alexander Stefánsson, félags-
málaráðherra, munu vera ýkja
hrifnir af gangi mála innan stofn-
unarinnar. Haft er á orði, að Bruna-
málastofnun sé eins og stjórnlaust
rekald og að alla festu skorti við
daglega stjórnun. Einkaframtak
Þóris fór ekki hátt, fremur en vitn-
eskja um kennslustörf hans, en nú
þegar stjórninni er orðið kunnugt
um alla þá þræði, sem brunamála-
stjóri hefur á sinni hendi, mun hún
vilja taka á róttækan hátt á málinu.
Vonuðust menn þó til þess að geta
haldið þessari umfjöllun í sínum
hópi og því kipptust stjórnarmenn
allsnarlega við, þegar ljósmyndari
Helgarpóstsins mætti á vettvang í
upphafi stjórnarfundar síðastliðinn
mánudag. Brunamálastjóri var ekki
mættur á fundinn, en hafði sent þau
skilaboð á fundinn að hann yrði
veikur fram eftir vikunni.
Hörð gagnrýni fulltrúa
slökkviliðsmanna
Sá stjórnarformaður, sem hve
harðast hefur gagnrýnt störf eða að-
gerðaleysi Þóris Hilmarssonar, er
Gísli Kr. Lórenzson, fiokksbróðir
hans og upphaflegur stuðningsmað-
ur brunamálastjóra í embætti. Mun
brunamálastjóri hafa fengið Stefán
Valgeirsson frænda sinn til þess að
tala hressilega við Gísla, en enginn
árangur varð af því samtali. Gísli er
fulltrúi slökkviliðsmanna í stjórn
Brunamálastofnunar. Samkvæmt
heimildum HP mun hann nú vera
orðinn afskaplega afhuga bruna-
málastjóra og er sagt að hann hafi
lýst því yfir við stjórn slökkviliðs-
manna, að ekki væri von á úrbótum
í brunavörnum landsmanna fyrr en
Þórir léti af störfum. Þegar dagblað-
ið Tíminn birti síðan viðtal við
ónafngreindan mann fyrir rúmri
viku, sem reyndar var brunamála-
stjóri sjálfur eins og fram kemur í
viðtali við Þóri hér á síðunni, mun
Gísla hafa verið nóg boðið og hann
þá hafa samið bréf til ríkissaksókn-
ara. í bréfinu var faríð fram á opin-
bera rannsókn á ummælum Þóris í
Tímanum, þar sem fullyrt er að beð-
ið sé eftir stórum eldsvoða þar sem
tugir manna láti lífið, áður en bruna-
vörnum hér á landi verði kippt í lið-
inn. Ekki hefur hins vegar bólað á
bréfinu á borði saksóknara ríkisins
og má því gera ráð fyrir að á stjórn-
arfundinum á mánudag hafi Gísli
fengið tryggingu fyrir því að ný
stefna verði tekin í stjórn Bruna-
málastofnunar.
Þegar Helgarpósturinn hafði sam-
band við Gísla Lórenzson og spurði
um skoðun hans á ástandi bruna-
varna á íslandi, kvaðst hann ekki
ýkja hlynntur því að umræða um
þau mál færi fram á síðum dag-
blaða. Æskilegra væri að málin
yrðu rædd á þeim skrifstofum, sem
um þau ættu að fjalla. Þá fyrst væri
árangurs að vænta. Sagðist Gísli
þeirrar skoðunar, að ábyrgir aðilar
ættu ekki að komast upp með að
brunavarnir í landinu væru í því
ástandi, sem raun bæri vitni. Þar
Imeð væri hann sjálfur talinn, sem
stjórnarmaður í Brunamálastofnun.
Undanfarið hefði verið harkalega
deilt á eftirlit með þessum málum í
blöðunum og á Alþingi, en ljóst væri
að þessu yrði aldrei kippt í lag með
því að þora ekki að taka á málinu.
Það yrði hins vegar óvinsælt — því
yrði ekki á móti mælt.
Ennfremur sagði Gísli: „Það voru
grófar aðdróttanir í Tímanum um
daginn. Einnig hrekkur maður við
þegar forsvarsmaður ríkisspítal-
anna lýsir því yfir að reykskynjarar
veiti falskt öryggi, þegar staðfest er
að slík tæki hafa bjargað þúsundum
mannslífa um heim allan. Það á að
láta rannsaka þessar fullyrðingar. Ef
sjúkrahús landsins eru slík bruna-
hólf, sem blöðin segja, er ekki um
annað að ræða en flytja sjúklingana
út úr þeim. Það á að íáta þjóðina vita
af þessu og draga menn til ábyrgðar!
Eg vil ekki sætta mig við það að
tugir manna þurfi að brenna inni
svo farið sé að gera einföldustu hluti
í brunavörnum. Ég get hreinlega
ekki sætt mig við það. Það á ekki að
leyfa að hús séu tekin í notkun fyrr
en þau hafa verið búin fullkomnum
viðvörunarkerfum — þá lendum við
ekki í þeim erfiðleikum, sem nú er
við að etja. Þarna er meinsemdin."
Embættismenn verði
lótnir leita sér að
annarri vinnu
„Sá sem byggir hús, á ekki að láta
það hvarfla að sér eitt andartak að
hann komist upp með að hafa ekki
í því eldvarnir og hið opinbera á að
ganga á undan með góðu fordæmi.
Ef þetta hefði verið gert, væri ekki
ítrekað verið að setja fram þings-
ályktunartillögur um brunavarnir
og standa fyrir söfnunum meðal al-
mennings. Alþingismennirnir sex-
tíu, sem stjórna eiga landinu, þurfa
að taka á sig rögg og segja embætt-
ismönnunum, sem stjórna í þeirra
nafni, að ef þeir standi sig ekki verði
þeir því miður að leita sér að ann-
arri vinnu!
Auðvitað er aldrei hægt að koma
alveg í veg fyrir eldsvoða í frystihús-
um, svo dæmi sé tekið, en þeim er
hægt að fækka verulega með því að
8 HELGARPOSTURINN