Helgarpósturinn - 27.03.1986, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 27.03.1986, Blaðsíða 14
Valur Arnþórsson: Kaupfélagsstjóri KEA, formaður stjórnar SÍS, í framkvæmda- stjórn Framsóknarflokksins, formaður stjórnar Dags, formaður stjórnar Kaffi- brennslu Akureyrar, stjórnarmaður í Landsvirkjun. Stefán Guðmundsson: Þingmaður Fram- sóknarflokksins, stjórnarmaður í Steinull- arverksmiðjunni, formaður stjórnar Byggðastofnunar. Davíð Scheving Thorsteinsson: Mið- stjórnarmaður í Sjálfstaeðisflokknum, var formaður stjórnar Þróunarfélagsins. Rétur Sigurðsson: Þingmaður Sjálfstæð- Jónas Haralz: Bankastjóri Landsbankans, isflokksins, formaður bankaráðs Lands- i miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. bankans. Á íslandi eru hagsmunaárekstrar ótrúlega alg EKKERT GERT TIL ÞESS AÐ KOMAST HJA ÞEIM -OG! Hér á landi hefur lítil umræða átt sér stað um hagsmunaárekstra sem ætla má að séu miklir t.d. í stjórn- kerfinu vegna þess hvað náin tengsl eru á milli framkvæmdavaldsins og löggjafans þótt engum hafi lengi vel þótt neitt athugavert við það. Eins má ætla að um hagsmunaárekstra sé að ræða í stærri stíl hérlendis en erlendis sökum smæðar þjóðfélags- ins. Hér þekkja allir alla og flestir, ef grannt er skoðað, eru skyldir hver öðrum ef ekki ættarlega séð þá flokkslega séð. Allir vita að sumir fá ekki vinnu sumsstaðar af því að þeir eru ekki með rétta flokkslitinn. Dæmi um slíkan hagsmunaárekstur er nýleg ráðning í stöðu forstöðu- manns dvalarheimilis aldraðra við Dalbraut. Af þessu sést að hags- munaárekstrar eru víðtækt efni og eiga sér víða stað bæði hjá embætt- ismönnum og hjá stjórnmálamönn- um. Um hina fyrrnefndti er oft talið að hagsmunaárekstrar þeirra séu sjálfsbjargarviðleitni illa launaðra embættismanna þ.e. þeir stundi at- vinnurekstur á sama sviði og þeir starfi hjá hinu opinbera til þess að drýgja tekjurnar. Þar til á síðustu ár- um hefur fólk verið grandalaust fyr- ir þessu og hefur Helgarpósturinn frá upphafi margoft upplýst um hagsmunaárekstra. Hagsmunaárekstrar embættismanna Tvö nýleg dæmi um hagsmuna- árekstra embættismanna sem starf- rækja eigin fyrirtæki. Fyrra dæmið er að Helgapósturinn upplýsti að brunamálastjóri og/eða börn hans starfræktu fyrirtæki er hefði með eldvarnabúnað að gera og að brunamálastjóri sem yfirmaður brunavarna í landinu hlyti að beita áhrifum sínum í hagnaðarskyni fyr- ir fyrirtæki sitt og/eða barna sinna. Seinna dæmið og nýlegra er að Þjóðviljinn upplýsti að húsnæðis- fulltrúi Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar hefði notfært - sér stöðu sína sér og fyrirtæki sínu til framdráttar. Tilgangur fyrirtækis hans er nær samhljóða hlutverki hans sem húsnæðisfulltrúa hjá borginni. Mýmörg svona dæmi er hægt að finna. Einnig eiga sér stað óhjákvæmi- legir hagsmunaárekstrar í stjórn- kerfinu hjá stjórnmálamönnum. Stjórnmálamenn virðast ekki, þrátt fyrir að þeir séu í sviðsljósinu, láta það aftra sér frá því að taka að sér verkefni þar sem óhjákvæmilega er mikil hætta á hagsmunaárekstrum. Þingsályktunartillaga Gudmundur Einarsson alþingis- Lúðvík Jósepsson: Fyrrv. formaður Al- þýðubandalagsins, í bankaráði Lands- bankans. maður lagði fram í vikunni tillögu til þingsályktunar um varnir gegn hagsmunaárekstrum og hefur tekið saman sérstaka greinargerð um það efni. Lítum á nokkur dæmi úr grein- argerð Guðmundar: Valur Arnþórsson: kaupfélags- stjóri KEA á Akureyri er formaður stjórnar SIS, hann er í framkvæmda- stjórn Framsóknarflokksins, for- maður stjórnar dagblaðsins Dags, formaður stjórnar Kaffibrennslu Akureyrar og stjórnarmaður í Landsvirkjun. Steinullarverksmiðjan Stefán Gudmundsson þingmaður Framsóknarflokksins er einnig stjórnarmaður í Steinullarverksmiðj- unni og hann er formaður stjórnar Byggðastofnunar, var áður formað- ur stjórnar Framkvæmdastofnunar og í stjórn hennar frá 1980. Stefán hefur því vafalaust haft í mörg horn að líta vegna Steinullarverksmiðj- unnar. Stefáni Guðmundssyni hafa verið hæg heimatökin þegar Stefán Guðmundsson alþingismaður sam- þykkti aðild ríkisins að Steinullar- verksmiðjunni. Síðan hefur Stefán gengið á fund Stefáns Guðmunds- sonar stjórnarmanns í Fram- kvæmdastofnun og mælt með því að aðilar verksmiðjunnar fengju lán til að koma henni á fót. Líka er at- hyglisvert hvort Stefán hafi ekki haft áhrif á innflutning SÍS á einangrun- arefni. Einnig má velta því fyrir sér hvort engir hagsmunaárekstrar verði hjá Guðmundur J. Guömundsson: Þingmað- ur Alþýðubandalagsins, VMSÍ, Dags- brún. Vali Arnþórssyni vegna Framsókn- arflokksins, SIS, KEA og eina dag- blaðsins á Norðurlandi. Þróunarfélagið Þróunarfélagið átti að komast hjá hagsmunaárekstrum með því að vera hlutafélag en ekki ríkisfyrir- tæki. En Davíd Scheving Thorsteins- son miðstjórnarmaður í Sjálfstæðis- flokknum var kjörinn í stjórn félags- ins. Tveir varamenn í stjórn félags- ins voru kjörnir Björn Þórhallsson miðstjórnarmaður í Sjálfstæðis- flokknum og Gunnar Ragnars einn- ig miðstjórnarmaður og forystu- maður Sjálfstæðisflokksins í bæjar- stjórn Akureyrar. í stjórn Þróunar- félagsins var einnig kjörinn Jón Ingvarsson í ísbirninum stjórnar- maður í Verslunarráði íslands og OLÍS. Hann mun ekki vera ókunn- ugur innviðum Sjálfstæðisflokksins. Heldur ekki Hördur Sigurgestsson forstjóri Eimskips og stjórnarmaður í Flugleiðum sem einnig var kjörinn í stjórn Þróunarfélagsins. En þegar ráða átti framsóknarmann í fram- kvæmdastjórastöðu félagsins þá þótti sjálfstæðismönnunum Davíð og Héðni í stjórninni nóg um og gengu út! Ríkisbankarnir Hagsmunaárekstrar hljóta einnig óhjákvæmilega að eiga sér stað inn- an ríkisbankakerfisins. Jónas Haralz bankastjóri Landsbanka ís- lands er í miðstjórn Sjálfstæðis- Karl Steinar Guðnason: Þingmaður Al- þýðuflokksins, VMSÍ. Guðmundur Einarsson BJ hefur lagt fram þingsályktunartillögu Varnir gegn hagsmunaárekstrum Guömundur Einarsson alþingis- maður hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um varnir gegn hagsmunaárekstrum og hann hef- ur samið greinargerð þá sem þessi grein er að miklum hluta til byggð á. Helgarpósturinn sló á þráðinn til hans til að fá upplýsingar um ástæðurnar fyrir tillöguflutningn- um: „Ég held að það sé grundvallar- atriði að almenningur geti haft traust á stjórnkerfinu og það á við Guðmundur Einarsson: Leggur fram til- lögu til þingsályktunar um varnir gegn hagsmunaárekstrum. þingmenn, ráðherra og starfs- menn í opinberri þjónustu. I ná- grannalöndunum hafa allsstaðar verið settar strangar reglur um þessi mál. Hérna hafa menn haft á orði að ekki sé hægt að setja um þetta reglur sökum fámennis en ég held að það sé þvert á móti enn brýnna vegna fámennisins. í Bandaríkjunum, svo ég nefni dæmi, þarf fólk sem er að ráða sig í opinbera þjónustu að skýra frá því ef það á skyldmenni einhvers- staðar í kerfinu. Breskir þingmenn verða að skýra frá eignum og við- skiptatengslum sínum og það er sett í opinber þingskjöl. Menn geta ímyndað sér hvernig siíkur listi myndi líta út hjá Albert Guö- mundssyni og Geir Hallgrímssyni. Grundvallarreglan er sú að maður verður að útiloka þessa árekstra, það er ekki nóg að reyna að sýna fram á að þeir hafi ekki orðið. Mín hugmynd er um fyrir- byggjandi aðgerðir, það má aldrei neinn vafi leika á því að kerfið vinni heiðarlega. Það er hneyksli að þessi mál skuii ekki hafa verið tekin fyrir hér á íslandi, því ís- ienska stjórnkerfið markast af miðstýringu og fámennisstjórn og það er vaðandi í hagsmuna- árekstrum," sagði Guðmundur Einarsson að lokum. leftir G. Pétur Matthíasson myndir: Jim Smart o.fl. 14 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.