Helgarpósturinn - 27.03.1986, Blaðsíða 18
SKÁK
Skák undir suðlægri sól
Stundum flýtur inn á borð til
mín tímarit um skák frá syðri
helmingi hnattarins, AJEDREZ
DE ESTILÖ, gefið út í Buenos
Aires. Eins líklegt að það hafi ver-
ið lengi að velkjast á leiðinni, vik-
ur eða jafnvel mánuði sem annars,
flokks póstur, að minnsta kosti er
það sem nú liggur fyrir framan
mig nóvemberhefti árgangsins
1985. En hingað er það þó komið
eftir langa útivist, 48 blaðsíður
þéttsetnar ýmsum fróðleik.
Ajedrez de Estilo — það má ýmis-
legt segja um stílinn Argentínu-
menn eru að minnsta kosti á und-
an Spánverjum í rithætti, þeir rita
leikinn Rf3 sem Cf3 en ekki C3AR.
Það er furðulegt hve seint hefur
gengið að útrýma þessum gamla
og þunglamalega rithætti hjá
ensku-, frönsku- og spænskumæl-
andi þjóðum.
Útgefendur þessa tímarits eru
sýnilega nokkuð seigir við að afla
sér frétta víðs vegar að. Þarna sé
ég frásögn af skákþingi Finnlands
1985 og skákir þaðan, þann fróð-
leik hef ég ekki rekist á í blöðum
okkar né eða grannþjóðanna. Qg
hér eru fréttir frá Póllandi, Rúss-
landi og Danmörku, frá Moskvu
og Tilburg, auk frétta af heima-
slóðum. Talsvert er fjallað um
bréfskák í þessu hefti, hún virðist
vinsæl þar syðra, enda eru sumir
fréttamenn tímaritsins á norðlæg-
um slóðum einmitt kunnir bréf-
skákmeistarar.
Áhugi á skák stendur á gömlum
merg í Argentínu. Frægt einvígi
um heimsmeistaratitilinn fór fram
í Buenos Aires 1927. Þar áttust við
Aljekín og Capablanca, Argen-
tinumenn hafa oft sent sveit á
ólympíumót skákarinnar þótt þeir
eigi um langari veg að sækja, og
tvívegis hafa þeir verið gestgjafar,
eins og ætti að vera okkur íslend-
ingum í fersku minni: þar unnum
við forsetabikarinn 1939.
í þessu hefti er líka frásögn af
skákþingi Argentínu, hinu 59. í
röðinni. Þar vann Oscar Panno yf-
irburðasigur, var tveimur heilum
vinningum á undan næsta manni.
Oscar Robert Panno er fæddur
17. mars 1935, sama árið og Bent
Larsen og Friðrik Ólafsson. Hann
lærði að tefla sex ára gamall en fór
ekki að tefla að ráði fyrr en hann
var orðinn tólf ára. En hæfileikar
hans komu fljótt í Ijós, hann skar-
aði fram úr jafnöldrum sínum og
raunar einnig þeim sem eldri-
voru. Átján vetra gamall er hann
sendur norður til Evrópu og þar
verður hann heimsmeistari ungl-
inga á móti sem haldið er í Kaup-
mannahöfn. Sama ár verður hann
skákmeistari Argentínu í fyrsta
skipti.
Tveimur árum síðar nær hann
3ju verðlaunum á millisvæðamóti
í Gautaborg og vinnur sér þar með
stórmeistaratitil tvítugur að aldri.
Síðan hefur Panno verið fremsti
taflmeistari heimalands síns.
Hann hefur sex sinnum unnið sér
rétt til þátttöku á millisvæðamóti,
átta sinnum hefur hann teflt í sveit
Argentínu á ólympíumótum. Sigr-
ar hans og frábær frammistaða á
alþjóðlegum skákmótum verða
ekki rakin hér. Að vísu hefur hann
tekið sjaldnar þátt í alþjóðamótum
en ella vegna þess hve fjarri hann
er þeim slóðum þar sem mest er
um skákmót, og svo einnig vegna
starfa sinna.
Panno er einn þeirra manna er
hélt sinu striki þrátt fyrir skákina
og lauk prófi í verkfræði. Ég hygg
hann starfi í sinni grein og þar liggi
orsök þess að hann teflir minna á
mótum en ella. Þó hef ég einhvers
staðar séð hann titlaðan prófessor
í skák við einhvern frægan knatt-
spyrnuklúbb í Buenos Aires.
Panno — Keller
Ólympíumótið í Moskvu 1956.
Drottningarbragð.
1. d4 d5 2. c4 c6
3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6
5. e3 a6 6. Bd3 dc4
7. Bxc4 b5 8. Bb3
Nú minnir staðan á þegið drottn-
ingarbragð, með Bd3 hefði hvítur
haldið á brautir Meranvarnarinn-
ar.
8.. .. c5 9. 0-0 Bb7
10. De2Rbd7 11. Hdl Be7
Allt er þetta samkvæmt fræð-
unum, en hér telja sumir vitringar
betra að leika Dc7 fyrst til þess að
vera nógu fljótur að ráðast að mið-
borði hvíts með Rc5. Þetta er
nefnt hér vegna þess að það skipt-
ir líklega svolitlu máli í þessari
skák.
12. e4 cd4 13. Rxd4 Dc7
14. Bg5 Rc5 15. Hacl!
Nú kemur í ljós að svartur er í
vandræðum með drottninguna á
c-línunni og getur því hvorki drep-
ið á e4 né b3 (Rxb3 16. Rxb3 Db6
17. Be3, eða 16.... Db8 17. Rxb5!).
Ekki er heldur glæsilegt að
hróka (15.... 0-0 16. e5!)Hér ferþví
sem oftar þegar staðan er orðin
örðug:
15.. .. b4 16. Bxf6! gf6
eftir Guðmund Arnlaugsson;
Eða 16. ... Bxf6 17. Ra4 Be7 18.
Bxe6!
Svartur treystir á vörnina De5.
18. Bxe6! De5
Hann fær ekki nægjanlegt lið
fyrir drottninguna með 18.-fe6.
19. Rxe6 Rxe6 Bxc5 20. Hxc7
Rxc7 21. Hd7.
19. Rxc5 20. Bf5!
Þannig bjargar hvítur bæði bisk-
upi og riddara. Hann hótar nú
Dg4+ og Dh5, svo að svartur hef-
ur ekki tíma til að taka riddarann.
20. ... Hfe8 21. Dh5 Bxd4
Meðal ógnana hvíts var 22.
Hxc5 Dxc5 23. Bxh7+ og 28.
Dxc5.
22. Hxd4! Dxd4 23. Hc7
og svartur gafst upp.
GATAN
Hvað sagði sadistinn, þegar
masókistinn bað hann um að
berja sig?
•!8N
:jbas
SPILAÞRAUT
Svo er hér annað spil, sem við
skulum fara rólega í og spilágæti-
lega.
Suður gefur. Allir í hættu.
* A-7-6-3
Q 10-8-5-2
O K-8-2
+ K-2
♦ 5-4
Á-D-7-6-4
O Á-G-6
+ D-8-4
Sagnir:
suður vestur
1 hjarta pass
4 hjörtupass
norður austur
3 hjörtupass
pass pass
Vestur lætur spaða drottningu.
Hvað gerum við nú? Við erum
með tapslagi í báðum svörtu litun-
um og jafnvel einn í tígli og einn
eða tvo í hjarta.
Sjá Iausnir á bls. 10.
LAUSN Á KROSSGÁTU
- m S O K B - & V ■ N
B fí N K fí R Æ N 1 N G J ft R • '1 • O
R ’O • R U r 'ft L D R ft 6 ft R s T
U • r fí T r u R fí U 6 ft /n u L 1
G R fí U T u R • 'ft R N fí H £ m ft Ð
• 'O F fí G U R T s m ‘ft R . fí Ð F Ö R . G K
• F fí T fí N F / S K fí R * S R . Æ R ft s V O
/< R U L L fí R • K fí r fí L 7 N ft • H R £ / N
F £ r fí R ■ o /< ft N u m O i< K ft L Ð ft
. S fí 5 S N fí P R 'o m fí K R fí F T U R
• K R . K y r R ft N • r o R K £ N N ft R 1 .S
• J fí S o N u R * ft /n o & • U í « fí U S ft N
• ft D fí L V R fí U <3 u R ♦ / V N fí R • fí L Æ
MkB MNW. fíueu ÚR- V /NDfl m'fíL. 'DKEfílN L/Nfí BLoTfí um - enTup- NfíR A SUTiÐ VÆ6jfí S PoR BUND/Ð ~~ZJ HRYSSfí ’/ HfíNfí SKEL SPfíNfí HRUKKr V/NNUR OGN 6fíB8-\ FHD
y H'fíS Pr'fí mj'óe 'fíKRFfíR
fíT- e£fív/ -tónn
ii» i PúKfíR KÝL! fíTT
/íLMG! V I . KÚ 6fíR TtV/R. ENL! 1£GUR F£/?У) m/qr l>R /="/-> /< LBJÐ/ -r /
t/ZS/R <ö'erhl. TZoVA n Út
STfíUR
Sftmui .
) HKIK6/R TÓBfíK ~-r 'ol ÚT- „ lNpUR
2 £/N$ HElVuT l NN
í 5KlrV/V verk-k
ÚTÍFfí HVÉFS- /nh
e?.'oÐ\R þliííTu /* VHL. KY&Jfl PRBTT //? PLfíSS
SfíUPRfí K\/£NDií> £/NS u/n /< Konu
. / FoT SOLTfí Fétfíb HfíLfí RbFfí fíUGNfí RfíD vÆlt/n fíR
LB6GUR. F/tV 'fí
’fíST 5oRP
TfíL 5 > 1 'ol'/kir VElKRK 5K/PU LíGGUR.1 ÓLDS LB/Ffífí
fí-XLfí KlÆÐ/
mjöe ! L'fíG- Pórfí
V Fj'fífí/ FoRfít) 6 ER/R HUHDUK
GRuHfí Hfíf TflNE/HE
h'opur efíP’Ð- 'TbL , u 5n'u<ju RVN/Ð LfíGfíR TD'yR.
'fíTT TÓNA/ /<
FoKKÚi) KfíCDflH > LfíHÉfíH FóT- LE66
l, 'fíTT SV/Ð INGUR OfkflR
18 HELGARPÓSTURINN