Helgarpósturinn - 27.03.1986, Qupperneq 15

Helgarpósturinn - 27.03.1986, Qupperneq 15
Valdimar Indriðason: Formaður banka- ráðs Útvegsbankans, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Helgi Seljan: Þingmaður Alþýðubanda- lagsins, sat f bankaráði Búnaðarbankans. Garðar Sigurðsson: Þingmaður Alþýðu- bandalagsins, í bankaráði Útvegsbank- ans. illMIRTELJA ÞETTA EKKIVERA NEITTMÁL flokksins, formaður bankaráðsins er Pétur Sigurdsson þingmaður og sjálfstæðismaður. Lárus Jónsson einn af bankastjórum Útvegsbank- ans er fyrrverandi þingmaður Sjálf- stæðisflokksins sem og forveri hans í starfi, Jónas Rafnar, tengdafaðir Þorsteins Pálssonar formanns Sjálf- stæðisflokksins. Úr sama flokki er Valdimar Indridason formaður bankaráðs Útvegsbankans. Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag hafa líka sína tauma inn í banka- kerfið. í bankaráði Búnaðarbankans situr Alþýðuflokksmaðurinn Hauk- ur Helgason, sem er áhrifamaður í þeim flokki pg einn af forystumönn- um BSRB. í þessu bankaráði var einnig til skamms tíma Helgi Seljan, alþingismaður úr Alþýðubandalagi. Kollegi hans, þingmaðurinn Garðar Sigurðsson, fékk nú fyrir áramót sérstaka traustsyfirlýsingu til áfram- haldandi setu í bankaráði Útvegs- bankans frá þingflokki sínum, Al- þýðubandalaginu. í bankaráði Landsbankans á Alþýðubandalagið hauk í horni þar sem er Lúðuík Jósepsson, fyrrverandi formaður fiokksins. Hættan á hagsmunaárekstrum er augljós, hvernig er annað hægt en að ruglast á hlutverkum þegar einn stjórnmálamaður hefur tíu til fimmtán hlutverk á sinni könnu þar sem hagsmunir hljóta einhvern tím- ann að fara annað en saman. Verkalýðshreyfingin Hættan á hagsmunaárekstrum er ekki eingöngu í kringum fjármála- stofnanirnar. Forustumenn í verka- lýðshreyfingunni hafa löngum verið virkir baráttumenn í stjórnmáia- flokkum landsins. Þeir hafa verið sakaðir um að beita hreyfingunni og lífskjörum fólksins í flokkspólitísk- um tilgangi þegar mikið hefur legið við að koma höggi á andstæðinga. Þeir Guðmundur J. Guðmundsson og Karl Steinar Guðnason alþingis- menn eru í forystu VerkamannS- sambands íslands. Guðmundur J. er einnig formaður Dagsbrúnar. Björn Þórhallsson varaforseti ASÍ er í mið- stjórn Sjálfstæðisflokksins og Ás- mundur Stefánsson forseti ASÍ er í miðstjórn Alþýðubandalagsins. Vegna þessara augljósu pólitísku tengsla hvílir ætíð sá skuggi yfir störfum þeirra að hagsmunir flokka þeirra annars vegar og hreyfingar- innar hins vegar rekist á þegar átök eru um lífskjör. Stóriðjunefnd Þeir Gunnar G. Schram og Birgir ísleifur Gunnarsson eru alþingis- menn Sjálfstæðisflokksins og eru báðir í samninganefndum, sem rík- isstjórnin hefur starfandi til að gera samninga við útlendinga um stór- iðju á íslandi. Því hefur Gunnar G. Schram verið í nefndinni, sem hefur samið við ÍSAL. Hann á einnig sæti í iðnaðarnefnd Neðri deildar Al- þingis. Einhver stærstu verkefni þeirrar nefndar á þessu kjörtímabili hafa verið að yfirfara og meta samn- Ásmundur Stefánsson: Forseti ASi, mið- Gunnar G. Schram: Þingmaður Sjálf- stjórnarmaður í Alþýðubandalaginu. stæðisflokksins, stóriðjunefnd, iðnaðar- nefnd Neðri deildar. inga ríkisstjórnarinnar við ÍSAL. Þá situr þar löggjafinn og eftirlitsmað- urinn Gunnar G. Schram og metur viðskipti, sem samningamaðurinn Gunnar G. Schram hefur gert fyrir hönd íslenska ríkisins. Ótal slík dæmi finnast í íslensku stjórnkerfi en enginn virðist hafa neitt við þau að athuga nema líkt og í dæmunum hér að ofan þar sem um er að ræða að embættismaður á fyr- irtæki sem hefur sama rekstur og hann starfar við hjá ríki eða borg. Athugasemdir við stjórnmálalega hagsmunaárekstra eru gjarnan af- greiddar sem að viðkomandi sé að koma höggi á pólitískan andstæð- ing. Ekkert athugunarvert! í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins segir að rétt sé að banna starfsmanni atvinnustarf- semi ef hún fari ekki saman við starf hans í þjónustu ríkisins. (34. gr.) En Ólafur Jóhannesson segir í Stjórn- arfarsrétti að ,,í löggjöfinni er t.d. engin fyrirmæli að finna um sér- stakt vanhæfi ráðherra, stjórnar- ráðsstarfsmanna eða lögreglustjóra. Fara þeir embættismenn þó með úr- skurðarvald sem vissulega er þýð- ingarmikið". Ráðherrar og þing- menn geta þannig átt fyrirtæki, set- ið í stjórnum fyrirtækja og félaga án þess að löggjafinn sjái nokkuð at- hugavert við að þessir sömu menn setji lög á Alþingi um t.d. félög og fyrirtæki. Birgir isleifur Gunnarsson: Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, stóriðjunefnd. ÆVINTÝRAMYND EFTIR SÖGU ASTRID LINDGREN SPENNANDI, DULARFULL OG HJARTNÆM SAGA T ext i: U msión: Þórhallur Sigurðsson. Raddir: Bessi Bjama- son, Anna Þorsteins- dóttir og Guðrún Gísladóttir. ATH.: BREYTTAN SÝNIN G ARTÍMA Sýnd kl. 2,4.30,7 og 9.30. VERÐ KR.190,- ATH.: Engin sýning á föstu- daginn langa og páskadag. H/TT L^ikhúsið RcenínGoa ÖÓttíR HELGARPÓSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.