Helgarpósturinn - 27.03.1986, Síða 19

Helgarpósturinn - 27.03.1986, Síða 19
m helgina birti Morgun- blaðið niðurstöður skoðanakönn- unar sem Hagvangur framkvæmdi 3—11. mars. Niðurstöðurnar benda eindregið til þess að í Reykjavík séu kjósendur mjög að pólaríserast, þ.e. að hverfa frá miðjuflokkunum til flokkanna yst til vinstri og hægri. Einkum virðast kjósendur Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks leita nú til Alþýðubandalags. Ef borgarstjórnarkosningarnar í vor færu í anda þessarar skoðana- könnunar yrðu næsta kjörtímabil í borgarstjórn alls 10 sjálfstæðis- menn, 4 alþýðubandalagsmenn og ein kvennalistakona. Þá mættu við hverja atkvæðagreiðslu fjórir sjálf- stæðismenn með góðri samvisku hlaupast undan merkjum. Alþýðuflokkurinn og Framsókn- arflokkurinn eru samkvæmt þessu langt frá því að eiga mann inni. Það virðist ætla að duga krötum skammt að hafa í prófkjöri skellt Sigurði E. Guðmundssyni, en á hinn bóginn er rétt að hafa í huga að könnunin er framkvæmd tiltölulega skömmu eftir að Sigurður var með stóryrtar yfirlýsingar í fjölmiðlum um ástæður þess að hann féll. En allt um það virðist Bjarni P. Magnússon eiga langt í land, hvað þá eiginkona formanns Alþýðu- © flokksins, Bryndís Schram. Fyrsti maður á lista Framsóknarflokksins, Sigrún Magnúsdóttir, á sömuleið- is ansi langt í land. . . Húseigendur Húsfélög Stofnanir Skrifstofur DÖNSK GRAM TEPPI á stigahús og stofnanir í hágæðaflokki. Sérlega endingargóð, 5 ára ábyrgð Tökum mál og gerum tilboð yður að kostnaðarlausu. Opið laugardaga kl. 10—12. Teppaverslun Friðriks Bertelsen h/f Síðumúla 23 s: 686266 HÆFILEIKAR ÞÍNIR? PROFIL-hæfileikamatiS mælir þá þætti í fari fólks, sem skipt geta sköpum við val á starfi eða við námsval. PRÓFÍL-prófið metur m.a.: • Sköpunarhæfileika • Skipulagshæfni, streituþol • Innlifun, samskiptahæfni • Ábyrgð og sjálfsöryggi Með 10 þátta PRÓFÍL-línuriti færðu yfirlit um þínar sterku hliðar og hvaða eiginleikar gætu verið til trafala — jafnt í starfi sem námi. Upplýsingar & tímapanfanir í síma 68 70 75 kl. 10—12 alla daga. Sálfræðistöðin Psychological Center Inc. Bolholti 6, V. hæð, 105 Reykjavík Sími: (91 )-68 70 75 Álfheiður Steinþórsdóttir — Guðfinna Eydal HELGARPÓSTURINN 19

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.